Dagur - 12.12.2000, Blaðsíða 2
2- Þ R1!) J VI) A G V R 12. nF.SF.MBER 2001)
FRÉTTIR
Ekki einhugur í
Landssímasölu
Ami Gimnarssoii ef-
ast iun að samkeppn-
isyfirvöld blessi sölu
Landssímans og
gnmnnetsins í einu
lagi. Höfum fengið
alla okkar fyrirvara
samþykkta, segir
Hjálmar Amason.
„Eg hafna því að við framsóknar-
menn höfum gefið eftir varðandi
söluna á Landssímanum og það
pirrar mig þegar ég heyri menn
segja þetta," segir Hjálmar Arna-
son, sem hefur verið helsti tals-
maður Framsóknarflokksins
varðandi deilur stjórnarflokk-
anna um sölu Landssímans og
ljósleiðarans, sem nú eru til lykta
leiddar. Síminn og Ijósleiðarinn
verða seld í einum pakka.
Samfylkingin sakar framsókn-
armenn um að hafa gefist upp í
Landssímamálinu og kemur það
frani á heimasíðu Samfylkingar-
innar á netinu. Þar er vitnað í
ræður sem þingmenn Framsókn-
arflokksins þeir Hjálmar Arna-
son, ísólfur Gylfi Pálmason og
Árni Gunnarsson hafa flutt um
málið á Alþingi.
Fyrirvörum náö
„Það sem við höfum alltaf sagt er
að við viljum sjá ákveðin rök fyr-
ir því að selja ljósleiðarann með
Landssímanum. Þess vegna hef-
ur málið allt tekið svo langan
tíma sem raun ber vitni. Nú segj-
um við að þau markmið sem við
settum okkur hafa náðst.
Þau markmið eru í (yrsta lagi
að greina reksturinn á netinu frá
öðrum rekstri. I öðru lagi höfum
við sagst vilja sjá jafnan aðgang
allra landsmanna á sambærilegu
verði inn á þessu neti. í þriðja
lagi viljum við fá tryggingu fyrir
því að öll fyrirtæki sem vilja
hasla sér völl þarna, cigi greiðan
Hjálmar Árnason: Allt tal um eftirgjöf
pirrar hann.
aðgang inn á netið. Þá viljum við
að eftirlit með rekstrinum verði
eflt í gegnum bæði Samkeppnis-
stofnun og Póst- og fjarskipa-
stofnun. Auk þess viljum við
hraða uppsetningu dreifikerfis-
ins, sem hefur til þessa ekki
gengið nógu vel. Meðal annars
má nota hluta söluhagnaðarins
til þess. Þetta eru þeir fyrirvarar
sem við höfum sett og eins og
dæmið lítur út núna sjáum við
ekki annað en að þessum fyrir-
vörum sé náð,“ segir Hjálmar
Arnason.
Vill tvö hlutafélög
Árni Gunnarsson, varaþingmað-
ur Framsóknarflokksins, hcfur í
ræðum á Alþingi í vetur harist
gegn því að ljósleiðarinn verði
seldur með Landssímanum.
„Það sem ég vil gera er að skip-
ta þessu upp í tvö fyrirtæki, tvö
hlutafélög. Landssíma Islands
annars vegar og grunnnetið hins
vegar. Þar á ég við að hafa ljós-
leiðarann, símstöðvarnar og
heimtaugarnar í einu hlutafélagi
og það verði ekki í meirihluta
eigu sömu aðila og koma til með
að eignast Landsímann. Ég er
ekki búinn að Ioka á þann mögu-
Ieika að þetta náist fram,“ segir
Árni Gunnarsson.
Hann segist vilja að ríkið eigi
ráðandi hlut í því hlutafélagi sem
stofnað verður um ljósleiðarann
og síðan kæmu þar að þau fyrir-
tæki sem eru að keppa á síma-
markaði hér á landi. Hann nefn-
ir þarTal, Línu net, Islandssíma,
hlutafélagið sem til verður um
Landsímann og hátæknifyrir-
tæki, auk almennings.
„Ég er nær viss um það að
samkeppnisyfirvöld geta varla
fallist á það að Landssíminn og
grunnnetið verði selt í einu lagi.
Við höfum dæmi um hvernig
stofnunin hefurgripið inn í skyld
mál hér á landi," segir Árni
Gunnarsson. - S.DÓI!
Fjárlög af-
greidd í gær
Fjárlög ársins 2001 voru af-
greidd á Alþingi í gær. Þetta er
mun fyrr en verið hefur um
margra ára skeið. Vanalega eru
fjárlögin það mál sem síðast er
afgreitt fyrir jólaleyfi þingmanna
en svo verður ekki að þessu
sinni. Samkvæmt starfsáætlun
þingsins á síðasti starfsdagur
fyrir jólaleyfi að vera á föstudag-
inn kemur, þann 15. desember.
Ovíst er hvort tekst að af-
greiða lagafrumvarp um samein-
ingu Landsbanka Islands og
Búnaðarbanka Islands fyrir ára-
mót. Nú er beðið eftir niður-
stöðu Samkeppnisráðs í málinu
og mikil óvissa ríkjandi um hvort
hún kemur fyrir jól. Eins og
Dagur hefur greint frá leggja
starfsmenn Samkeppnisráðs
mikla vinnu í sameiningarmálin
þessa dagana og vinna nánast
nótt sem nýtan dag í þessu stór-
máli. - S.DÓR
„Hef fengið bágt
„fyrir þessa tHlögu“
THlaga itm aö leggja
Náttúruvemdarráð af
fær misjafna dóma.
Móðgun við bæfa ein-
staklinga að sitja í
áhrifalausu ráði.
Árni Bragason, forstjóri Náttúru-
verndar ríkisins, segist hafa feng-
ið bágt l'yrir tillögu sína til um-
hverfisráðherra um að leggja
Náttúruverndarráð niður. Hann
scgist hafa borið frarn lagabreyt-
ingatillöguna til að fá af stað um-
ræðu um störf ráðsins og tilgang.
Árni sendi ráðherra þessar til-
lögur fyrir rúmum tveimur mán-
uðum og vill taka fram að erind-
ið tengist því að engu leyti Kísil-
iðjunni eins og skilja hafi mátt á
umfjöllun Ríkisútvarpsins fyrir
helgina. Hann bendir á að Nátt-
úruverndarráð sé að hluta til op-
inbert ráð þar sem ríkisstofnanir
tilnefni hluta fulltrúanna. Um-
ræðan um tillögur ráðsins litist
gjarnan af því að ef ráðið álykti
gegn skoðunum ráðherra, veki
það mestu athyglina en málefnið
sjálft falli í skuggann.
Vildi umræðu
„Þetta hefur gerst ítrekað og eins
má benda á að frjáls félagasam-
tök eru orðin miklu sterkari en
fyrr. Eg vil'fá menn til að ræða
þetta en hef fengið mjög bágt fyr-
ir. Margir segja að ég sé að skjó-
ta sjálfan mig í fótinn, því Nátt-
Árni Bragason: Tilvist Náttúruverndar-
ráðs marklítil.
úruverndarráð styður vel við
Náttúruvernd ríkisins. Ráðherra
hefur sent tillögurnar mínar til
umsagnar Náttúruverndarráðs."
I 8. grein náttúruverndarlaga
segir að Náttúruverndarráð skuli
skipað níu mönnum. Umhverfis-
ráðherra skipi fimm þeirra í upp-
hafi náttúruverndarþings, fjóra
að fengnum tillögum Náttúru-
fræðistofnunar íslands, Háskóla
Islands, Bændasamtaka Islands
og Ferðamálaráðs og einn án til-
nefningar og skuli hann vera for-
maður ráðsins. Fjórir skulu
kosnir á náttúruverndárþingi og
framlag skv. lagagrein um ráð-
stafanir gegn umhverfismengun
af völdum einnota umbúða fyrir
drykkjarvörur, skuli renna lil
Náttúruverndarráðs. Annan
kostnað sem leiði af störfum
ráðsins skuli greiða úr ríkissjóði.
Módgun
Árni vill að frjáls félagasamtök
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra:
Hefur sent tillögu til umsagnar.
njóti ágóðans af umbúðum á ein-
nota dry'kkjarvörum og segir enn-
fremur í skýringum sínum við til-
lögur um lagabreylinguna: „Við
breytingar á náttúruverndarlög-
um 1996 tók Náttúruvernd ríkis-
ins við hlutverki Náttúruverndar-
ráðs, en ákveðið var að stofna
ráðgefandi ráð Náttúruverndar-
ráð „hið nýja“. Hið nýja Nátt-
úruverndarráð hefur nú starfað
síðan 1997 og óhætt er að segja
að tilvist ráðsins hafi ekki haft af-
gerandi áhrif á nein náttúru-
verndarmál á starfstíma sínum.
Ráðherra hefur ekki nýtt ráðið og
hcldur ekki Náttúruvernd ríkis-
ins. Oflug frjáls félagasamtök
hafa tekið við hlutverki því sem
ráðinu hefur verið ætlað. Það er
móðgun við hæfa einstaklinga að
sitja f áhrifalausu ráðgefandi ráði
sem enginn vill þiggja ráð frá.“
- I!l>-
Jólin koma viö Austurvöll
Kveikt var á Oslóartrénu við Austurvöll um helgina. Fjöldi manns kom saman af
þvi tilefni og skemmti sér við leik og söng, þar sem jólasveinarnir komu einnig
við sögu.
Dýrast í Reykjavík
í júní síðastliðnum könnuðu Neytendasamtökin verð á matvöru í
fimm borgum í Evrópu. Niðurstaðan varð sú að hæsta vöruverðið var
í Reykjavík. Könnunin sem nú er birt er sama könnunin en nú var
hún framkvæmd í Reykjavík og Kaupmannahöfn. Af 57 vörutegund-
um er hæsta verðið að finna í Reykjavík í 50 tilvikum og 7 í Kaup-
mannahöfn. Þegar tekið er saman verð á 57 vörutegundum sem fást
í báðum borgunum kostar karfan 22.684 kr í Reykjavík en 15.739 kr
í Kaupmannahöfn. Munurinn ncmur 44 af hundraði og er þá tekið
tillit til virðisaukastatts sem er mishár í löndunum.
Könnunin var gerð mánudaginn 4. desember síðastliðinn og fram-
kvæmd í sambærilegum vcrslunum í báðum borgunum. Athvgli er
vakin á að hún var ekki gerð í svonefndum lágvöruverðsverslunum og
því er ekki um að ræða lægsta verð sem neytendum stendur til boða.
Borið var saman verð á algengum matvörum; mjólkurvörum, fiski,
kjöti, brauði, ávöxtum, grænmeti, morgunverðarkorni, drykkjarvörum
o.fl. Mesli verðmunurinn er á frosnum kjúkllrigi cða 400%. Minnsti
verðmunurinn er á tómötum og Iambakótilettum eða 3%. - bþ