Dagur - 12.12.2000, Blaðsíða 7
ÞKIDJUDAGUR 12. DESEMBER 2000 - 7
ÞJÓDMÁL
Á að vemda náttur-
Ða^tr.
Nú er sennilega að fara í gang
áróður gegn Kárahnjúkavirkjun
eins og raunar boðað var þegar
hætt var við Eyjabakkavirkjun.
Rökin eða rakaleysið gegn þessari
virkjun eru svipuð og alltaf áður:
hræðsluáróður á grundvelli böl-
sýninnar, óttans við það óþekkta,
óttans við framtíðina, óttans við
ímyndun sína, Það óþekkta hlýtur
að vera illt og því hlýtur framtíðin
að vera ógnin sjálf nema „ég“ fái að
ráða? Ef allur þessi ótti ætti nú við
rök að styðjast. Þvflík ógn! Er það
ekki eitthvað svona sem orðið ógn-
arstjórn felur í sér. Þetta minnir
helst á „kallinn á kassanum" sem
boðaði heimsendi einhvern næstu
daga, þó á öðrum forsendum.
Sá hópur manna sem kallast
náttúruverndunarsinnar óttast nú
t.d. moldrok úr Iónsbotninum,
það er eitt af þeim hálmstráum
sem þeir fálma í þegar traustari
rök finnast ekld. Botninn er nefni-
lega undir vatninu og vandséð
hvernig moldrok getur myndast
þar. Þó fyrir geti komið að la'kki
svo í lóninu að eitthvað af botnin-
um kæmi uppúr þá væri það \dð
þær aðstæður að ekki þyrfti að ótt-
ast moldrok. Það væri þá helst að
vetrinum þegar orkunotkun er
mest og þá er minnst rennsli í lón-
ið þar sem allt yfirborðsvatn er
frosið, en þá er lónsbotninn Iíka
frosinn eða undir snjó. Svo það er
bókstaflcga engin hætta á mold-
roki úr lónsbotninum. Og þó svo,
þá er alltaf meira eða minna mold-
rok þó það sjáist ekki nema þegar
mjög hvasst er. Jarðvegsfok er að-
ferð náttúrunnar til að jafna land-
ið. Fjöll og klettar molna niður
„Nú er sennilega að fara í gang áróður gegn Kárahnjúkavirkjun eins og raunar boðað var þegar hætt var við Eyja-
bakkavirkjun, “ segir greinarhöfundur m.a. í grein sinni. Myndin er af Kárhnúkasvæðinu.
smátt og smátt og vindurinn er
notaður til að flvtja efnið til. Allt
sem fykur sest til þar sem skjól er:
sandurinn og moldin setjast til í
lautum og holum og í votlendi.
Þannig „holufyIIast“ hraunbreið-
urnar og grundvöllur myndast fyr-
ir jarðveg og gróður framtíðarinn-
ar. Að hefta jarðvegsfok er þannig
í mótstöðu við náttúruna, en ekki
til hjálpar henni, enda er fokjarð-
vegur langstærsta jarðvegstegund-
in á íslandi. Náttúran hefur ekki
endilega sömu markmið og menn-
irnir, í skammsýni sinni. Þó er
ekki verið að amast við uppgræðslu
hér, en það verður að gerast á rétt-
um forsendum. Maðurinn þarf oft
að raska náttúrunni í einhverjum
smáatriðum til að lifa sjálfur.
Gegnsæi
Að tala um gegnsæi jökulvatns er
beinlínis út í hött. Jafnvel tært
bergvatn er ekki gegnsætt nema
þar sem það er allra gryn nst.
Minnsta hreyfing á yfirborði
stöðuvatns gerir það ógegnsætt
enda vandséð hvaða þýðingu það
hefur að vatn sé gegnsætt yfirleitt.
Framhiirðiii
Náttúran leitast jafnan við að jafna
yfirborð landsins enda þótt hún
sjálf hafi valdið því hversu mis-
hæðótt það er. Vindurinn er það
flutningstæki sem flytur hin léttari
og fíngerðari efni af einum stað á
annan eins og lyrr segir. Vatnið
tekur hins vegar við þegar vindork-
an nægir ekki. Ár og lækir hafa
grafið gil og gljúfur í brattar hlíðar
ljallanna og skolað efninu niður í
ána í dalbotninum, sem ber það
áfram alla leið niður á jafnsléttuna
og sumt alla leið til sjávar. Fram-
burður vatnsfallanna fellur til á
öllu vatnasvæðinu. Minnst af
honum kemur frá upptökunum
eða undan jöklunum. Líklega í
svipuðum hlutföllum og vatnið
sjálft. Framburður vatnanna sest
til eftir því sem straumþungi er
minni, lyrst það grófasta, síðan
hitt, aðeins það fíngaerðasta berst
alla Ieið til sjávar.
Aðeins sá framburður sem
myndast fyrir ofan stífluna sest til
í lóninu. Því er augljóst að verði
Jökulsá á Dal virkjuð \’ið Kára-
hnjúka og vatninu veitt yfir í Jök-
Hítastig
Eitt af því sem menn óttast við
þessi virkjunaráform er það að
aukning jökulvatns í Lagarfljóti
mundi leiða til þess að loftslag á
Fljótsdalshéraði kólni vegna þess
hve jökulvatn er kalt. Þetta er
ástæðulaus ótti vegna þess að
vatnið hlýnar við að standa í uppi-
stöðulóni. Stöðuvatn er alltaf hlýr-
ra en straumvatn. Þar að auki
hlýnar vatnið nokkuð við núning-
inn þegar það þrýstist gegnum
jarðgöngin en þó hlýnar það lík-
Iega mest við þrýstinginn sjálfan.
Allir \dta að þrýstingur mvmdar
hita. Þar sem Jökulsá í Fljótsdal
verður líka tekin í jarðgöng verður
niðurstaðan sú að Lagarfljót verð-
ur hlýrra eftir en áður með tilsvar-
andi áhrifum á loftslag svæðisins.
Þetta er enda reynslan t.d. af
Blönduvirkjun.
Blanda er mun hlýrri nú en hún
var áður að sögn vatnamælinga-
manna, og reyndar sjá bændur á
því svæði nokkurn mun að ýmsu
leyti, t.d. hefur fiskgengd í Blöndu
aukist.
Það er nú þegar búið að reisa
fjölmargar stórvirkjanir á íslandi
og ekki sjáanlegt að nein þeirra
hafi skaðað náttúruna á neinn
hátt. Grasið grær eins og það hef-
ur alltaf gert , fuglarnir syngja og
una glaðir við sitt og mannlífið
hefur aldrei verið auðveldara en
nú, einmitt að sínu leyti vegna
þessara virkjunarframkvæmda,
sem hafa malað okkur gull og bætt
þannig lífskjör í landinu. Þó heim-
ta menn jafnan enn hetri lífskjör
og það er eðlilegt, en það verður
eitthvað undan að láta til að upp-
lýlla þær kröfur.
sér?
ulsá í Fljótsdal og Lagarfljót þá ber
það engan framburð með sér
þangað. Liturinn á jökulvatni staf-
ar af uppleystum efnum í vatninu
og þau uppleystu efni setjast ekki
til. Þess vegna er t.d. Lögurinn
mórauður þó þar sé ekkert botnfall
enda er hann yfir 130 m djúpur.
una gegn sjálM
PÉTUR
GUÐVARÐARSON
SKRIFAR
STJÓRNMÁL Á NETINU
Sjálfstæðisflokkurinn hættur að skaffa
„Efnahagsmálin eru að fara úr
böndunum hjá ríkisstjórninni. Ný
áætlun Þjóðhagstolnunar er mik-
ið áfall en hún spáir vaxandi verð-
bólgu. Mistök ríkisstjórnarinar
voru að grípa ekki í taumana á
síðasta ári með ströngum aðgerð-
um í ríkisfjármálum og fylgja
þéitn eftir með aðhaldi gagnvart
stofnunum á þessu ári. Þá hefðu
aðgerðir Seðlabankans í peninga-
málum átt að koma fyrr og hefðu
ekki þurft að vera eins örvænting-
arfullar og raunin hefur verið í
ár,“ segir Ágúst Einarsson, vara-
þingmaður, á vefsíðu sinni. Og
hann segir ennfremur:
„Afleiðingarnar blasa við. Aukin
verðbólga, nijög háir vextir, mikill
viðskiptahalli, minnkandi kaup-
máttur og þrengri staða heimila
og fvrirtækja.
Það lýsir ábýrgðarleysi hjá for-
sætisráðherra að grafa höfuðið í
sandinn að hætti strútsins og
neita að viðurkenna að árangur
marga ára getur fokið út í veður
og vind ef ekki er sýnd aðgæsla í
efnahagsmálum. Það er áberandi
að for\'sta framsóknar talar ekki af
jafnmiklu kæruleysi og sjálfstæð-
ismenn.
Líkurnar á því að þessi stjórn
haldi áfram eftir næstu kosningar
eru hverfandi. Ef framsókn vill
ekki og lengi hefur legið fyrir að
Samfylkingin hyggur ekki á
stjórnarsamstarf með Sjálfstæðis-
flokknum þá eru einungis vinstri-
grænir eftir sem samstarfsaðilar
Sjálfstæðisfiokksins. Það er hefð
fyrir því í Sjálfstæðisflokknum að
líta slíkt hýru auga.
Sjálfstæðismenn og vinstri-
grænir gætu sameinast í rílds-
stjórn um óbreytt ástand. Þá væru
komnir saman þeir flokkar sem
vilja almennt minnstar breytingar
og andstaðan við ESB bindur
Davíð, Steingrím og Ogmund
ágætlega saman. Ekki er víst að
öllum kjósendum vinstri-grænna
hugnist slíkt samstarf en þessi
möguleiki er líklegastur nema
Samfylkingunni takist ætlunar-
verk sitt að verða það sterk að hún
verði það forystuafl sem Ieysir
Sjálfstæðisflokkinn af hólmi við
ríksstjórnarmyndun. Það er ekki
einungis í efnahagsmálum sem
hallar undir fæti hjá sjálfstæðis-
mönnum. Þeir hafa algerlega
brugðist í því að ná lendingu í
deilunni við kennara, það stefnir í
uppsögn kjarasamninga á al-
mennum markaði í febrúar, hörð
andstaða er hjá öldruðum og ör-
vrkjum, ungt fólk finnur ekki úr-
lausn í stöðnuðu menntakerfi
Sjálfstæðisflokksins og tekjur
heimilanna dragast saman. Sjáll-
stæðisflokkurinn er hættur að
skaffa og þá eru ckki margar
ástæður eftir fyrir því að kjósa
hann."
Fatlaðir borga brúsaiui
„Framlög í Framkvæmdasjóð fatl-
aðra hala verið skert um 1800
milljónir kr. síðan árið 1995 að
meðtöldu næsta ári, með þeim af-
leiðingum að húsnæðismál fatl-
aðra eru komin í algjört óelni. Fé-
lagsmálaráðherra lofaði nú um
helgina að eyða biðlistum í hús-
næðismálum fatlaðra á næstu 5
árum. Það loforð ætlar ráðherr-
ann greinilega að efna með því að
Iáta fatlaða sjálfa bera uppi meg-
inþungann af rekstrinum með
leigugreiðslum t.d. á sambýlum
fyrir fatlaða. Þetta er grundvallar-
breyting á rekstri stofnana latl-
aðra, scm gæti haft afdrifaríkar
afleiðingar fyrir kjör og þjónustu
við fatlaða í framtíðinni.
Félagsmálaráðherra sem stóð
fý'rir þessari skerðingu boðar nú
að hann ætli að eyða löngum
biðlistum fatlaðs fólks eftir hús-
næði eins og sambýlum. Og hverj-
ir eiga borga, svo þessi loforð ráð-
herrans komi til framkvæmda.
Fatlaðir sjálfir eiga að mestu að
standa undir þessu með leigu-
greiðslum, en flestir þeir scm húa
á sambýlum og vislheimilum
greiða enga leigu nú. Auknar
leigugreiðslur á fatlaða og þroska-
hefta munu nema um 220 millj-
ónum á ári þegar þessi loforð ráð-
herrans eru að fullu komin til
framkvæmda. Á móti er aðeins
gert ráð lýrir að um 40 milljónir
komi til fatlaðra í húsaleigubót-
um.
Það sést best hvc loforð félags-
málaráðherra er sýndarmennskan
ein, því ráðherrann sagði þvert
nei við því á Alþingi að hann ætl-
aði að beita sér fvrir viðbó.tarfram-
lagi nú við Ijárlagaafgreiðsluna
vegna þessa samnings sem hann
gerði um helgina við Oryrkja-
bandalagið.”