Dagur - 23.01.2001, Blaðsíða 8

Dagur - 23.01.2001, Blaðsíða 8
8- ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 Thyptr ■ SMÁTT OG STÓRT UMSJÓN: SIGURDOR SIGURDÓRSSON sigurdor@ff.is „Ég vil þakka guði iyrir náð hans og gæsku.“ Jesse Jackson blökkumannaleið- togi í Bandaríkjun- um í messu sköm- mu eftir að upp komst að hann hafði barnað aðra konu en eiginkon- una. Lamaðist alveg hans styrkur Ég fékk þetta skemmtilega bréf og limru írá dr. Olínu Þorvarðardóttur á dög- unum: „Af því ég sé að þú hefur gaman af og birtir stundum vísur um menn og málefni datt mér í hug að senda þér línu. Mörgum varð um og ó þegar blessaður heilbrigðisráðherrann hneig niður í beinni sjónvarpsútsendingu á dögunum, og ekki varð mönnum minna um að sjá formann Samfylkingarinn- ar standa ráðþrota hjá án þess að hreyfa legg eða lið til þess að grípa konuna eða stumra yfir henni. Þótti sumum lítið Ieggjast fyrir kappann eftir allt tal stjórnarandstöðunnar um aðstoð við lítilmagnana í þjóðfélaginu og nauðsyn þess að „Ieggja lið“ þeim sem „minna mættu síri' — þegar menn sáu svo í beinni útsendingu hvemig helsti talsmaður þeirra sjónarmiða brást við í raun og veru þegar á reið. Sumir hafa gert grín að þessu og aðrir hneykslast, en sjálfri brá mér svo við að það liðaðist upp úr mér limra þar sem ég sat yfír sjónvarpsfréttun- um og horfði á þessa atburði. Hún er svona: I öryrkja máli ei myrkur, mjög var í umræðum virkur, en er ráðherrann lá honum lémagna hjá lamaðist alveg hans styrkur. Ússur Skarphéðinsson. Höfuiidiiriim ftmdinn Jón Krisljánsson alþingismaður brást fljótt við þegar við spurðum hvort ein- hver þekkti höfund vísunnar „Eg skal ekki liggja um þvert/ þegar ég fer að barna." Visan er eftir þann kunna hagyrðing Isleif Gíslason sem var kaup- maður á Sauðárkróki og var þekktastur fyrir vísubotninn fræga „Tvisvar sinn- um tveir eru Ijórir/ taktu í hornið á geitinni." En Jón segist hafa lært vísun öðruvísi en við birtum hana. Hann segist hafa Iært hana svoan: Ekki ligg ég )fir um þvert er égfer að barna. Það er ekki lengi gert óhræsið að tarna. Drottinn hlesi Hæstarétt Jóhann Arsælsson alþingismaður orti undir ræðu Dav- íðs Oddssonar þegar umræður stóðu sem hæst um ör- yrkjafrumvarpið: Hér sit ég og hlusta á blaður hart og títt úr koppum skvett. Davíð, hann er dæmdur maður drottinn blessi Hæstarétt. Jóhann Ársælsson alþingismaður. FÍNfl OG FRÆGA FÓLKIÐ Bardagar og rokk á Golden Globe Bardagar og rokk voru í aðalhlutverkum á Golden Glóhe verðlaunaafhendingunni á sunnudags- skvöld en þá fengu myndirnar „Gladiator" og „Almost Famous" viðurkcnningu sem bestu mynd- irnar hvor í sínunr flokki. Gladiator var valin besta dramatíska myndin en „Almost Famous" var valin sem besta gamanm^Tidin. Eins og venjulega var hér á ferðinni stórskotaliðið í hópi hinna fínu og frægu, og nrátti þarna kenna gamlar kempur í bland við fersk andlit. Þarnar stigu á verðlauna- pall fólk cins og Kate Hudson sem fékk titilinn besta leikkona í aukahlutverki í myndinni .yUmost Famous", Tom Hanks sem var kosinn besti leikar- inn í dramatísku hlutverk í myndinni „Cast Away“ og Julia Robcrts sem valdin var besta leikkonan í dramatísku hlutverki, en Björk Guðmundsdóttir var einmitt tilnefnd til þeirra verðlauna líka. Þá vakt sérstaka athvgli að á verðlaunapall kom sjálfur Robert Downey Jr. sem nú á í mildum málaferðum vcgna fíkniefnaneyslu sinnaren hann var valinn besti lcikarinn í aukahlutverkií sjón- varpsgamanþáttum fyrir leik sinn í „Ally McBeal". Vesturvængurinn eða „The West Wing“, sjón- varpsþáttaröðin á NBC sem fjalla um forseta- stjórnmála í Bandaríkjunum var valin besti dramatíski sjónvarpsþátturinn en „Sex and the Citv" var liins vegar valinn besti gamaþátturinn í I samkvæmi á eftir verð- iaunaafhendingunni sem Warner Bros/ln Style hélt, mætti blaðaútgefandinn Hugh Hefner og hafði með sér hóp ónafngreindra stúlk- na „piaymates" og skiiaboðin virðast skýr, það er ekki aðal- atriði hvað þessar stúlkur heita, þá má þekkja þær á einhverju öðru! Kate Hudson sem var valin besta leikkona í auka- hlutverki fyrir leik sinn í „Almost Famous“ sést hér sýna Tom Cruise, sem var kynnir, styttuna sína. sjónvarpinu. Presidential politics, too, figured prominently, with NBC’s ‘The West Wing” taking honors for best TV drama, and its star Martin Sheen named best actor in a TV drama. Fyrirfram hafði verið búist við að myndirnar „Gladiator" og „Traffíc" myndu fá flest verðlaun enda voru þær báðar með fimm tilnefningar. Þær fengu hvor um sig tvenn verðlaun. Það sem kom sér- fræðingum í kvikmyndaiðnaðin- um einna mest á óvart var að „Almoust Famous" skyldi ná að krækja sér í tvenn verðlaun, og einnig það að myndin han Angs Lee, „Crouching Riger, Hidden Dragon" skyldi ná sér í tvenn verölaun. ÍÞRÓTTIR Örn á leið til Los Angeles? Góður árangur Amar Arnar- sonar að undanförnu hefur auðvitað spurst víða og hefur hann þegar fengið fjölda til- boða um skólavist frá háskól- um í Bandaríkunum. Þar í landi eru keppnisíþróttir í há- vegum hafðar hjá háskólunum og leggja þeir metnað sinn í að eiga góð íþróttalið og þar með talið í sundi. Æfinga- og keppnisaðstaða í skólunum er mjög góð og margir þeirra hafa á að skipa þjálfurum í fremstu röð og mun einn þeirra, Mark Schubert, aðalþjálfari hjá Suð- ur-Kalifornía háskóla (USC) í Los Angeles, væntanlegur hingað til lands til viðræðna við Örn um hugsanlega skólavist. Mark Schubert er heimsfrægur þjálfari sent hefur þjálfað marga afreksmenn í sundi, um 20 ára skeið. Meðal þeirra er heimsmethafínn og ólympíumeist- arinn í 100 og 200 m baksundi, Lenny Krayzelburg, sem hefur lok- ið skólagöngu frá USC. Samkvæmt frétt á vefsíðu Sundfrétta mun þjálfarinn væntanlegur til landsins þann 11. febrúar n.k. en jafnframt sagt að enginn ákvörð- un hafi ennþá verið tekinn í málinu og haft eftir Erni að hann hafi áhuga á að kanna til hlítar, hvort að það hentaði sér að stunda æfing- ar erlendis, við þær aðstæður sem þar eru í boði. Einnig er nefnt að þjálfarinn hafi í hyggju að ræða við fleiri íslenska sundmenn og mun Jakob Jóhann Sveinsson þar efstur á blaði. Kuzulj sló Evrópuinet Arnar Króatinn Gordan Kuzulj, helsti keppinautur Arnar Arnarsonar á Evrópumeistaramótinu í Valencia á Spáni, sló um helgina Evrópu- met Arnar í 100 m baksundi, sem hann setti á áðurnefndu móti í Valencia fyrr í vetur. Arangrinum náði Kuzulj á heimsbikarmóti sem fram fór í Berlín og bætti kappinn metið um 4/100 úr sek- úndu, þegar hann synti í úrslitum sundsins á laugardaginn á 52,24 sek. Annar í sundinu varð Litháinn Darius Grigalionis á 52,79 sek. og í þriðja sæti Þjóðverjinn Stev Theloke á 53,11 sek. Kuzulj var í miklu stuði á mótinu, en á sunnudaginn jafnaði hann heimsmet Ástralans Matt Welsh í 200 m baksundi frá því í haust, þegar hann synti á 1:51,62 mín. Árangurinn er auðvitað einnig nýtt Evrópumet, en gamal metið átti Spánverjinn Zubero, sett í apríl árið 1991 og var það eitt elsta gildandi Evrópumetið í karlaflokki. Þetta var önnur atlagan sem Kuz.ulj gerir að metinu á stuttum tíma, en hann var rétt við metið f móti í Shellield í Eglandi fyrr í vikunni. Kuzulj mun keppa á öllum fimm heimsbik- armótunum sem haldin eru í Evrópu í vetur, en alls eru haldin tíu heimsbikarmót á keppnistímabilinu og var mótið í Berlín, sem án efa er það sterkasta til þessa, það áttunda í röðinnu. Breski sundmaðurinn Mark Foster setti einnig nýtt Evrópumet á mótinu, þegar hann hætti eigið met í 50 m skriðsundi. Hann synti á 21,24 sek. og bætti þar með eldra metið sem hann setti á Evr- ópumeistaramótinu í sheffield árið 1998 um 15/100 úr sek. Rúss- inn Alexander Popov varð annar í sundinu á 21,57 sek. og Banda- ríkjamaðurinn Jason Lezak varð þriðji á 21,68 sek. Þá bætti Martina Moravcova frá Slóvakíu eigiö Evrópumet í 100 m flugsundi, þegar hún Sý'nti á 57.16 sek., en gamla metið var 57,54 sek., sett á Evrópumeistaramótinu í Valencia í desember. Hún hafði mikla yfirburði í sundinu, en pólska stúlkan Otylia Jedrzejczak sem varð í öðru sætinu synti á 59,18 sek. Mette Jac- obsen frá Danmörku varð í þriðja sæti á 59,25 sek. Moravcova er mjög fjölhæf sundkona, en hún sigraði einnig í 100 m baksundi ásamt Daniellu Samuliski frá Þýskalandi og í 100 m fjórsundi, eins og hún hefur gert á öllum heimsbikarmótunum, sem hún hef- ur tekið þátt í í vetur. Tvö síðustu heimsbikarmótin fara frarn í vikunni, það fyrra í Stokkhólmi um miðja vikuna og Iokamótið í París um næstu helgi. Úrn Arnarson. Moravcova kjörin íþróttamaður Slóvakíu Áðurnefnd Martina Moravcova, sem er 24 ára gömul, var nýlega kjörin íþróttamaður ársins 2000 í heimalandi sínu, Slóvakíu, af þarlendum íþróttafréttamönnum. Moravcova vann til tveggja silf- urverðlauna á Olympíuleikun- um í Sydney í 100 m flugsun- di og 200 m skriðsundi og eru það fyrstu verðlaun sund- manns frá Sóvakíu á Ólympíu- leikum. Hún varð einnig Evr- ópumeistari í þessum sund- greinum á Evrópumeistara- mótinu í Valencia á Spáni, auk þess sem hún sigraði í 100 m fjórsundi. í öðru sæti í kjörinu varð skíðamaðurinn Pavol Hochschorner og í þriðja sæti tvíburabróðir hans Peter, ein- nig skfðamaður. Martina Moravcova.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.