Dagur - 23.01.2001, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2 00 1 - 11
Daurjur,
ERLENDAR FRETTIR
Loftlagsbreytmgar
af mannavoldiun
valda hörmungum
Losun efna út í and-
rúmsloftið sem valda
hitun geta breytt lífs-
mynstrinu á fjöl-
iiieiiiium svæðum
Veðurfar breytist mun örar en
áður var spáð og aukinn hiti loft-
hjúps og sjávar hefur margvísleg-
ar og yfirleitt óæskilegar breyt-
ingar í för með sér. I nýút-
kominni skýrslu, sem unnin var
á vegum Sameinuðu þjóðanna,
og byggist á rannsóknum fjölda
vísindamanna frá mörgum lönd-
um er niðurstaðan sú, að gróð-
urhúsaáhrifín séu síst ýkt og að
stjórnvöldum um allan heim beri
að taka þegar í taumana og vinna
sameiginlega að því, að minnka
losun koltvísýrings og fleiri skað-
legra efna út í andrúmsloftið.
Það er ekki eingöngu koltvísýr-
ingurinn sem veldur breytingum
á loftslagi, heldur eru þar að
verki samverkandi áhrif fleiri
efna sem dælt er út í umhverfið
og breyta háttsemi höfuðskepn-
anna.
Vitað er að loftslagsbreytingar
eru eðlilegur þáttur í leik nátt-
úruaflanna og margir draga mjög
í efa að maðurinn eigi neina sök
á því að nú fer veðrátta hlýnandi
víðast hvar. En enn fleiri vísinda-
menn hallast að þeirri skoðun og
færa rök fyrir að með þeirri gíf-'
urlegu orkunotkun og efnafræði-
legu breytingum sem maðurinn
iðkar á þessari öld og færist sí-
fellt í aukana, hraði hann eðli-
legum breytingum náttúruafl-
anna.
Hiti hefur farið hækkandi alla
síðustu öld og mun hraðar síð-
asta áratuginn en áður. A næstu
100 árum mun hitahækkunin
verða mun hraðari, segir í
skýrslu SÞ. Jöklar bráðna og yfir-
borð sjávar hækkar. Það þýðir að
tugir milljóna manna verða að
flytja frá landssvæðum sem nú
liggja lágt yfir sjó.
Onnur áhrif eru þegar komin í
ljós og eiga eftir að verða enn
meiri haldi sem horfir. Regn- og
þurrkasvæði breytast. Það þýðir
að víða verður vatnsskortur þar
sem nú er nægt vatn og blómleg-
ur Iandbúnaður. Annars staðar
munu flóð eyðileggja lendur og
mannvirki.
Nú er spáð að loftslag muni
hitna um 1.4 til 5.8 stigfrá 1990
til 2100. En það mun hærra en
spáð var í sambærilegri skýrslu
1995. Yfirboð sjávar um hækka
um 9 til 88 sentimetra.
Síðasti áratugur aldarinnar
sem leið var heitari en nokkurt
sambærilegt tímabil á síðustu
1000 árum. Enda hafa þurrkar
og flóð verið ineira áberandi á
fleiri og stærri svæðum en áður
þekktist.
Loftslagshitun mun hafa
margvíslegar hættur í för með
sér. Jörð skrælnar, skógar hverfa
og atvinnuhættir og lífskjör hljó-
ta að breytast. 1 löndum sitt
hvoru megin við miðhaug er
hætt við að hitabeltisssjúkdómar
aukist að mun. I tempruðu belt-
unum munu heitu sumrin valda
aukinni streitu og sjúkdómum
sem af henni Ieiðir.
Utlitið er því ekki sérlega bjart
verði ekki gripið í taumana. Höf-
uðáhyggjuefnið er að hitnandi
loftslag muni hafa mikil áhrif á
landbúnað og vatnsbúskap á
fjölbýlum svæðum með ófyrirsjá-
anlegum afleiðingum.
Er skorað á ríkisstjórnir að
taka viðvaranir vísindamanna al-
varlega og gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að minnka losun
þeirra efna út í andrúmsloftið
sem valda óæskilegum veður-
farsbreytingum.
Ekkert fé í fóstureyðingar
WASHINGTON - George W. Bush ætlar
að láta það verða eitt sitt lýrsta verk í
embætti að gefa úr sérstaka forsetakipun
um að banna allar fjárveitingar úr opin-
berum sjóðum til verkefna heima og er-
lendis þar sem stuðst er á einhvern hátt
\áð fóstureyðingar sem lausn í fjölskyldu-
ráðgjöf. Þetta var haft eftir embættis-
manni í Hvíta húsinu í gær. Þessi ákvörð-
un kemur í kjöfar víðtækra mótmæla and-
stæðinga fóstureyðinga en þeir hafa safn-
ast saman í tilefni þess að nú eru 28 ár frá
því að fóstureyðing varð lögleg í Bandaríkj-
unum í kjölfar stefnumarkandi dóms
Hæstaréttar.
Miuui eiturlyfjaframleiðsla
VIN - framleiðsla á kókaíni og heróíni, þeim tveimur eiturlyfjateg-
undum sem valda mestum vandræðum á Vesturlöndum, hefur
minnkað verulega og á sér nú stað í færri löndum en nokkru sinni
fyrr. Þetta kemur fram í aldamótaskýrslu Sameinuðu þjóðanna um
eiturlyfjavandann, sem kom út í gær. A hinn bóginn kemur einnig
fram í þessari skýrslu - sem skrifuð er af Eiturlyfjaeftirlitsstofnun
Sameinuðu þjóðanna í Vín - að eftirspurn hefur aukist mikið á síð-
asta áratug eftir ýmsum anfetamínskyldum efnum.Samkvæmt skýrsl-
unni er kókaínframleiðslan nú 20% minni en hún var árið 1992 og
ópíumframleiðsla minnkaði um heil 17 prósent á síðasta ári einu
saman. Það landsvæði sem nú er notað undir kókaínræktun var árið
1999 u.þ.b. 14% minna en það var árið 1990.
Vottur af bjartsýni
TABA, Egypta-
landi - Samn-
ingamenn
Palestínu-
manna og Isra-
ela héldu
áfram samn-
ingaviðræðum
sínum í Eg-
yptalandi í gær
og var haft eft-
ir mönnum úr
samninga-
nefndunum að
hægt væri að
segja að vottur
af bjartsýni
hefði gert vart
við sig um að
unnt yrði að ná
einhvers konar
samkomulagi
áður en forsæt-
isráðherrakosn-
ingar fara fram í ísrael. „Andrúmsloftið er ekki neikvætt, og það er
verið að ræða í alvöru um erfið mál s.s. flóttamenn og land, þar á
meðal Jerúsalem og útfærslun á þeim,“ sagði upplýsingaráðherra
Palestfnumanna, Yasser Abed Rabblo.
Samningamenn ísraels og Palestínumanna eru ad ræða
málin í alvöru. Utanríkisráðherra ísraela, Shlomo Ben
Ami (t.v.J, sést hér ræða við aðalsamningamann
Palestínu Ahmed Korei í Egyptalandi í gær.
■ FRÁ DEGI
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR
23. dagur ársins, 342 dagar eftir.
Sólris kl. 10.34, sólarlag kl. 16.46.
"3
Þau fæddust 23. jan.
• 1832 Edouard Manet, franskur listmálari.
•1891 Antonio Gramsci, ítalskur kommún-
isti og gáfumaður.
• 1898 Sergei Eisenstein, rússneskur kvik-
myndagerðarmaður sem m.a. gerði Beiti-
skipið Pótemkin árið 1925.
• 1910 Django Reinhardt, gítarleikari.
• 1920 Guðmunda Elíasdóttir söngkona.
• 1930 Derek Walcott, rithöfundur frá Vest-
ur-Indíum sem hlaut Nóbelsverðlunin í
bókmenntum árið 1992.
• 1942 Sighvatur Björgvinsson alþingismað-
ur.
• 1952 Valgeir Guðjónsson tónlistarmaður.
Þetta gerðist 23. jan.
•1751 brann bærinn að HvítárvöIIum í
Borgarfirði og létust þá sjö manns.
• 1793 skiptu Rússar og Prússar PóIIandi í
annað sinn á milli sín.
TIL DAGS
• 1915 var Gullfossi, fý'rsta skipi Eimskipa-
félags Islands, . hleypt af stokkunum í
Kaupmannahöfn.
• 1922 var insúlín lyrst notað í meðferð á
sykursýki.
• 1934 var Sunnukórinn á ísafirði stolnað-
ur.
• 1964 var h'ffæri úr dýri í fýrsta sinn grætt í
mann, en um var að ræða hjarta úr apa
sem læknar f Bandarfkjunum græddu í 64
ára gamlan mann, sem lést innan tveggja
klukkustunda.
• 1968 tóku Norður-Kóreumenn bandaríska
njósnaskipið Pueblo og sökuðu áhöfnina
um njósnir.
• 1973 hófst eldgosið í Heimaey.
Vísa dagsins
Syrgir nú einmana
ið unga hlóm
runnið í reit lasta,
hörðum huga
hatar sól og vind
fyrir tilveru tíma.
Jónas Hallgrímsson
Afmælisbarn dagsins
Rússneski kvikmyndagerðarmaðurinn
Sergei Mikhaílovitsj Eisenstein fædd-
ist í Riga, höfuðborg Lettlands, þann
23. janúar árið 1898. Hann gerði m.a.
kvikmyndirnar Beitiskipið Pótemkin
árið 1925, Alexander Nevskí árið 1938
og ívan grimma árið 1944. Eisenstein
var mikill frumkvöðull í þróun kvik-
myndatækninnar og skrifaði margt um
kenningar sínar í þeim efnum. Eisen-
stein lést í Moskvu þann 11. febrúar
árið 1948.
.-‘í > unri3n<un i <
Um það, sem ekki er hægt að ræða
um, ber okkur að þegja.
Ludwig Wittgcnstein
Heilabrot
Hvaða karl er það, sem þolir ekki sól
en lifir af vatni einu saman?
Lausn á síðustu gátu: Eldur
Lausn á þarsíðustu gátu:
Ari hlýtur að segja satt, því hann getur
ekki bæði verið í síðasta sæti og logið.
Hann er þá í 3. eða 4. sæti. Einar getur
hins vegar ekki verið að segja satt, því þá
væri Finnur að ljúga og Einar væri þá í
fyrsta sæti og væri að ljúga. Einar er því
í 1. eða 2. sæti og Finnur er ekki í 2.
sæti. Finnur hlýtur hins vegar að vera í
3., 4. eða 5. sæti. En þá er Finnur að
segja satt og Einar hlýtur því að vera í 2.
sæti. Þá eru Bjarni eða Davíð í fyrsta
sæti. Davíð getur ekki verið í fyrsta sæti,
því þá væri Bjarni (sem væri þá í 3.-5.
sæti) að ljúga um að Davíð væri í þriðja
sæti. Bjarni hlýtur því að vera í 1. sæti,
en Davíð í 4. eða 5, sæti. Davíð er þá að
segja satt um að Ari sé á eftir Finni.
Finnur er þá þriðji, Ari fjórði og Davíð
fimmti. Ekki satt?
rUtftJ&LliO? i'Ovl tj 4