Dagur - 17.02.2001, Side 2

Dagur - 17.02.2001, Side 2
II- LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001 l>aywr ÍSLENDIN GAÞÆTTIR Laugavegur 13 í flutningum og er nú Efstasund 100. Framhald afforsíðu Verslimarrekstui Sigurgeirs Siggeir Torfason var sonur Torfa Þorgrímssonar prentara á Lauga- vegi 2. Tvítugur að aldri varð Sig- geir verslunarmaður við verslun I.R.B. Lefoliis á Eyrarbakka, síð- ar varð hann bókhaldari verslun- arinnar. Siggeir varð síðan versl- unarstjóri við verslun Jóns Arna- sonar kaupmanns í Þorlákshöfn. Hann var um nokkurt skeið við verslun Th. Thorsteinssonar í Reykjavík eða þar til hann stofn- aði sína eigin verslun á Lauga- vegi 10 árið 1898. Verslunin var sniðin að þörfum bænda og ein- nig þeirra sem bjuggu á mölinni. Eftir að Siggeir byggði að Laugavegi 13 flutti hann versl- unina á fyrstu hæð hússins. Á lóðinni haka til við verslunina var sláturhús, þangað ráku bændur féð á haustin til slátrunar. I versl- uninni var á boðstólnum öll sú matvara sem venjulegt heimili þurfti á að halda. Einnig þær vör- ur sem bændur þurftu til bú- starfa og má þar nefna orf, hrífur og ljái. Hagsýni og áreiðanleg viðskipti hafði Siggeir Torfason að leiðarljósi á sínum viðskipta- ferli. Kona Siggeirs Torfasonar var Helga Vigfúsdóttir, systurdóttir frú Sylvíu konu Thorgrímsens. Á heimili þeirra hjóna að Lauga- vegi 13 B var mjög gestkvæmt enda voru hjónin hæði mjög gest- risin. Þar þáðu sveitamenn sem og aðrir rausnarlegar góðgerðir og hvíld eftir langt ferðlag. Helga Vigfúsdóttir lést 30. júní 1934. Siggeir Torfason lést 6. júlí 1938. Húsgagnaverslun Kristjáns Árið 1919 stofnaði sonur þeirra Helgu og Siggeirs, Kristján Sig- geirsson húsgagnaverslun í hús- inu. Að loknu námi í Verslunar- skóla Islands nam Kristján hús- gagnasmíði hjá Jóni Halldórssyni og Co. í Reykjavík. Hann stund- aði síðan framhaldsnám í iðn- grein sinni í Þýskalandi. Kona Kristjáns var Ragnhildur Hjalta- dóttir Jónssonar skipstjóra og konsúls. Jafnframt því að reka eina af stærstu húsgagnaverslun og húsgagnasmiðju þessa lands tók Kristján Siggeirsson virkan þátt í félagsstörfum. Hann var einn af stofnendum Húsgagna- meistarafélags Reykjavíkur og formaður þess frá 1941 - 1963, var gerður heiðursfélagi 1967. Auk þess var hann einn af stofn- endum Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis. Hann var í stjórn Vinnuveitendasambands Islands, í stjórn Slippfélagsins en þar var hann stjórnarformaður í mörg ár og einn af stofnendum Hamars- búðar h.f. Hann var einn af stofnendum Almennra Trygginga h.f. Hann lagði félags - og mann- úðarmálum lið og má þar nefna Oddfellowregluna og Rotaryfé- lagiö. Kristján kynntist notkun bíla þegar hann var við nám í Þýskalandi og fljótlega eftir að bifreiðainnflutningur hófst til landsins fékk hann sér bíl. Oku- skírteini hans var nr. 5. Heimili Kristjáns Siggeirssonar og Ragnhildar Hjaltadóttur var til fyrirmyndar. Þar ríkti hlýhug- ur og gestrisni eins og á æsku- heimilum þeirra beggja. Heimilið þótti einnig mjög glæsilega búið húsgögnum þar sem sérstök smekkvísi réði ríkjum. Árið 1928 var reist þrílyft við- bygging úr steinsteypu austan við húsið, með porti, risi og glugga- kvistum. Á fyrstu hæð var versl- unarými með fjórum vörusýning- argluggum á framhlið hússins. Innan á útveggjum er klætt með korki. 1 miðhæðinni eru þrjú íbúðarherbergi, eldhús, búr, bað- herbergi, klósett og tveir gangar. Á efstu hæðinni var sama her- bergjaskipan. I risi eru fjögur herbergi, snyrting, tveir fastir skápar og þurrldoft. I kjallara sem er undir öllu húsinu eru þrjár geymslur, þvottaherbergi og þrír gangar. Tréstigar eru á milli hæða. Arkitekt að byggingunni var Pétur Ingimundarson. Árið 1953 var timburhúsið flutt í burtu í hcilu lagi inn í Efstasund 100 þar sem það var sett á steypt- an kjallara. Húsinu hefur verið mikið breytt og er óþekkjanlegt frá því sem það var áður. Það hef- ur verið forskalað og dyr sem voru á hornsneiðingi hafa verið fjarlægðar, einnig svalir sem voru yfir dyrum. Allt skraut sem var fyrir ofan glugga á húsinu á með- an það stóð á Laugavegi 13 er einnig horfið. Á þaki hússins hefur verið skotið út nokkrunt kvistgluggum en kvisturinn sem var yfir hornsneiðingnum hefur verið tekin. 1 húsinu eru nú sex íbúðir. Fímm hæða stórhýsi Eftir að búið var að flytja gamla húsið var byggt á lóðinni fimm hæða stórhýsi áfast byggingunni frá 1928. Ofan á viðbygginguna voru byggðar tvær hæðir og er ekki hægt að sjá utan á húsinu annað en það sé eitt og sama húsið. Nýja húsið og hæðirnar tvær á gamla húsinu er byggt af steinsteypu, húðað utan með marmarasalla, korkklætt að inn- an og þökin koparklædd. I virðingu frá 1956 segir að á fyrstu hæð séu tvær verslunar- búðir, gangur og stigahús. Eystri búðin er í eldra húsinu. Á annar- ri hæð eru sex skrifstofur, skjala- herbergi, borðstofa, tvö snyrti- herbergi, innbyggður eldfastur skjalaskápur, gangur og stigahús. Önnur hæð er óbreytt í eldri hlutanum. Á þriðju hæð í gamala húsinu er herbergjaskipan eins og áður en hefur verið endur- bætt. Á þriðju hæð í nýja húsinu eru sjö skrifstofuherbergi. Fjórða hæðin er öll nýbyggð og nær yfir eldra húsi, þar eru fimmtán skrif- stofur ásamt borðstofu, snyrt- ingum og stigagangi. Finunta hæðin er inndregin á þeim hlið- um sem vita að Laugavegi og Smiðjustíg. Þar eru tólf skrif- stofuherbergi, tvær snyrtingar og fjórir fataskápar. Turnherbergi er á suðvesturhorni hússins. í kjall- ara er sýningarsalur, pökkunar- salur, vörugeymslur, lyftuher- bergi, snyrtiherbergi, fataskápar og miðstöðvarklefi. Allar hæðir hússins eru málaðar og gólf dúk- lögð. Arkitekt að byggingunni var Gunnlaugur Pálsson. Ragnhildur Hjaltadóttir lést 16. maí 1972. Kristján Siggeirs- son lést 20. maí 1975. Trésmíðahús, tvílyft, úr steyn- steypu er baka til við húsið. Þar var lengi trésmiðja, síðan verslun með húsgögn. 1 þessu húsi er núna rekinn skemmtistaður. Á undanförnum árum hefur starfsemi í húsinu breyst mikið. I mörg ár var þar verslunin IKEA sem flestir þekkja. Núna er þar herrafataverslun og skrifstofur. FYRSTUR MEÐ FRETTIRNAR

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.