Dagur - 21.02.2001, Page 6
6 - MIBVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2 001
ÞJÓÐMÁL
Útgáfufélag: DAGSPRENT
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjóri: elías snæland jónsson
Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson
Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Símar: 460 6ioo og soo 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: 1.900 KR. Á mánuði
Lausasöluverð: 150 kr. og 200 kr. helgárblað
Grænt númer: ooo 7obo
Netföng auglýsingadeildar: valdemar@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is
Símar auglýsingadeildar: íreykjavík)563-1615 Ámundi Ámundason
(REYKJAVÍK)563-1642 Gestur Páll Reyniss.
CAKUREYRI)460-6191 Valdemar valdemarsson.
Simbréf auglýsingadeildar: 460 6i6i
Símbréf ritstjórnar: 460 617KAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Flug vallanmiræ ð an
í fjrrsta lagi
Átökin um framtíð Reykjavíkurflugvallar hafa leitt í Ijós alvar-
legan ágreining um málið beggja vegna borðsins í borgar-
stjórninni. Hið sama á við um afstöðu þingmanna Reykjavík-
ur. Hún fer ekki eftir flokkslínum nema hvað framsóknar-
menn virðist samstíga í málinu. Þingmenn annarra flokka eru
ósammála innbyrðis. Það eru því fyrst og fremst persónulegar
skoðanir borgarfulltrúa og alþingismanna sem ráða afstöðu
þeirra til þess hvort flugvöllurinn eigi að vera áfram í Vatns-
mýrinni eða fara.
í öðru lagi
Dagur birti í gær samantekt um afstöðu borgarfulltrúa og
þingmanna höfuðborgarinnar til málsins. Meirihluti þeirra
sem tekið hafa afstöðu með eða móti eru fylgjandi því að flug-
völlurinn fari. Nokkrir eru jafnákveðnir á móti. Orfáir þing-
menn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa bins vegar
gert það að pólitísku markmiði að fara í fýlu. Þeir ætla ekki að
taka þátt í því með kjósendum í borginni að greiða atkvæði um
málið í næsta mánuði, heldur sitja heima. I því Ijósi er ánægju-
legt að sjá að líklegasti framtíðarforingi sjálfstæðismanna í
borginni, Júlíus Vífill Ingvarsson, lætur ekki hrekjast í fýlu-
pokaflokkinn. Hann tekur fullan þátt í því með öðrum borgar-
búum að ræða málið og greiða atkvæði.
í þriðjalagi
Þær umræður sem þegar hafa farið fram sýna að jafnvel þeir
sem vilja hafa flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni sætta sig eng-
an veginn við völlinn í óbreyttri mynd. Því er augljóst að ef
meirihluti þeirra sem greiða atkvæði í mars reynist fylgjandi
flugvelli í Vatnsmýrinni, verður mjög þrýst á um verulegar
breytingar á skipulagi svæðisins í þá veru að stórauka þar
byggð. Hvernig mikil ný byggð í næsta nágrenni við flugvöllinn
á að tryggja öryggi og þægindi fólksins sem þar á að lifa og
starfa, er hins vegar óljóst - eins og reyndar margt annað sem
varpað hefur verið fram í flugvallarumræðunni og eftir á að
rökstyðja nánar.
Elías Snæland Jónsson
Útspil Davíðs
Garri las af mikilli athygli frétt-
ir Dags í gær um Reykjavíkur-
llug\'öll. Þar var m.a. kortlögð
afstaða kjörinna fulltrúa höf-
uðborgarbúa lil vallarins, bæði
borgarfulltrúanna og alþingis-
mannanna. Ymislegt fortitni-
legt kom þar i ljós, svo sem að
þrír megin hópar eru greinilega
til staðar. Fyrsti hópurinn er
Samfylkingaríhaldið, scm vill
að völlurinn fari. I þessum
flokki eru Samfylkingin, vin-
stri grænir og nokkrir sjálf-
stæðismenn. Annar hópurinn
eru Framsóknaríhaldið, sem
vill að völlurinn verði áfram, en
þar inni eru framsóknarmenn-
irnir allir að viðbættri Ástu
Ragnheiði sem er jú gamall
frammari, og svo
nokkrir sjálfstæðis-
menn. Þriðji hópur-
inn er svo Sjálfstæð-
isíhaldið, sem ætlar
ekki að taka þátt
kosningunni, en þar
eru einungis útvaldir
íhaldsmenn sem
telja sig til aðalsins í
Sjálfstæöisflokkn-
um. Þetta eru menn
eins og Davíð Odds-
son og Inga Jóna
Þórðardóttir og svo
auðvitað hinn sjálfumglaði
Sv'errir Hermannsson.
Sjálfstæðisíhald
Af þessum hópum öllum er
það að sjálfsögðu Sjálfstæðisí-
haldið sem vekur mesta at-
hygli, og þá kannski sérstak-
lega sú afstaða Davíðs Odds-
sonar að ætla ekki að kjósa.
Garra þykir merkilegt að þarna
Iýsa tveir foringjar Sjálfstæðis-
flokksins - foringinn á lands-
vísu og foringinn í Reykjavík -
því yfir að þeir muni ekki kjósa,
en aðeins einn óbreyttur
flokksmaður er sannanlega á
sömu línu þeir, en það er Guö-
laugur Þór Þórðarson! Þó verð-
ur að gera ráð lýrir að fólk eins
og Björn Bjarnason, Geir
Haarde og Sólveig Pétursdótt-
ir, sem ekki hafa enn gefið sig
upp, muni fylgja foringjunum
þegar það verður næst spurt.
F.ngu að síður verður þetta að
teljast óvenjuleg staða - þorri
fulltrúa Sjáífstæðisflokks fvlgir
hvorki Dav'íð aðalforingja né
Ingu Jónu undirforingja í
Reykjavík!
Davíð að förlast?
Auðvitað hefði jiessi staða ekki
komið upp ef þau Davíð og
Inga Jóna hefðu gefið út sína
afstöðu dálítið f\rr! Þá hefðu
allir kjörnu fulltrúarnir v'itað
hvaða afstöðu jieir áttu að
hafa. Fn þetta gerðist sem sagt
ekki, bæði Inga Jóna og þá sér-
staklega Davíð komu
ekki fram með yfir-
lýsingar sínar (ýrr en
eftir að allir v'oru
búnir að gefa sig upp
í málinu. 1 huga
Garra getur þetta
einungis jiýtt tvennt.
Annað hvort er Dav-
og
hann hefur ekki átt-
að sig á framvind-
unni og stendur þvf
uppi sem fulltrúi
minnihlutaskoðana í flokkn-
um. Eða, hann hefur vísvitandi
verið að bíða þess að allir gæfu
sig upp, til að sjá hvort hann
geti ekki síðar sveigt flokkinn
inn á sína Iínu. Rökin fýrir jn'í
væru einfaldlega þau, að Davíð
|irái að fá að spreyta sig á nýj-
um og erfiðari verkefnum vdð
flokksstjórnina - hann væri
orðinn svo þreyttur á lognmoll-
unni jiar sem allir sitja og stan-
da möglunarlaust jiar sem
hann segir.
Á næstu dögum mun Jiað
svo koma í ljós hvor kenningin
er rétt - Garri hallast þó að
þeirri síðari!
GARRl
ODDUR
ÓLAFSSON
skrifar
Oft er staglast á því að verkfiill
horgi sig ekki og að þau komi verst
niður á því fólki sem í þeim
stendur. Þeir sem verst bera sig
upp undan verkföllum eru at-
vinnurekendur sem oft bæta kjör
þeirra sem hjá þeim starfa án jiess
að til verkfalla komi. Hins vegar er
sjaldan samið (ýrr en farið er að
hóta vinnustöðvunum og látið
skella í tönnuni. Hvernig umhorfs
væri á vinnumarkaði ef verkfalls-
rétturinn væri ekki fýrir hendi er
erfitt að gera sér grein fý'rír. En |iá
ber að hafa í huga að atvinnu-
rekendur eru ekki endilega
svarnir óvinir starfsfólks síns
og mun hitt sönnu nær að Ilest-
ir vilja greiða sæmilegt kaup til
að halda og reka fyrirtæki af
forsjálni og viti. Það værður ekki
gert með illa launuðum og óá-
nægðum starfskröftum.
Þegar verkfallshrinur hanga
ylir íslensku samfélagi með til-
heyrandi upphrópunum um að
það sé mesta verkfallsland í
Verkfoll borga sig
heimi og að verkföll
horgi sig aldrei, er rétt
að athuga.
Framhaldsskóla-
kennarar fóru í langt
og strangt verkfall í
vetur og uppskáru
ágæta kjarasamninga
miðað við þá sem
þeir áður bjuggu við.
Svo var fjöldi manns
sem fékk 40% kaup-
hæ kkun og munar
um minna. Þeir fóru
aldrei í verkfall og
áttu ekki einu sinni fulltrúa í
samninganefnd. Það eru fram-
haldsskólakennarar á eftirlaun-
um. Mun seint verða sannað að
þeir hafi ekki grætt á verkfalli.
Sv'o jiurftu grunnskólakenn-
arar ekki að (ara í verkfall til að
fá umtalsverðar kjarabætur
vcgna |iess að menntakerfið
mátti ekki við lleiri hardögum
við kennarastéttirnar á sama
skólaárinu.
Verfallsglöð
hátekjustétt
Núna stendur yfir
verkfall flugumferöar-
stjóra, sem annars virð-
ast búa við sæmileg-
ustu kjör miðað v'ið
þær launatölur sem
gefnar eru upp. Þótt
fl u gu m ferðars tj órarn ir
fari aldrei nema í hálf-
gildingsverkföll, hefur
þeim teldst að koma ár
sinni betur (ýrir borð
en flestar launastéttir
aðrar. Það er sannarlega tómt mál
að tala um að verkföll þessarar
stéttar hefí ekki borgað sig. Þeir
eru meðal verkfallsglöðustu og
tekjuhæstu stétta ríkisgeirans.
Enda liggur mikið við að stjórna
niöurgreiddu fíugi, sem á undir
högg að sækja í samkeppninni við
hílinn.
Lítill sáttatónn
Síðan er efnilegt sjóm; nnav'erkfall
í uppsiglingu. Þótt enn sé mánuð-
ur þar til hoðað sjómannaverkfall
hefst eru fýlkingar útgerðarmanna
og sjómanna farnar að hrópast á
og er lítill sáttatónn í þeim her-
hvötum. Það verkfall skellur á
á þeim árstíma sem vetrarvertíð
stóð hæst þegar landróðrar voru
stundaðir og sá guli gaut á Sel-
vogsbanka.
Lítill vafi leikur á að sjómenn
munu græða á jiví verkfalli, hvort
sem það stendur lengur eða skem-
ur. Utgerðarmenn segja að jiað
skipti ekki máli hvenær takmark-
aður kvóti þeirra er veiddur, svo að
þá gildi einu hvernær sjómönnum
þóknast að róa eða sitja í landi.
Hins vegar gæti langt sjó-
mannaverkfall komið illa við og
haft áhrif á viðskiptajöfnuðinn,
sem kvað vera heldur hágur fyrir.
Ef stöðva á veiðar og útfíuíning
sjávarafurða, kemur í Ijós að fisk-
veiðamar eru ekki orðnar ómerki-
Ieg afgangsstærð í hagkerfinu,
eins og margir áhangendur nýju
hagfræðinnar vilja vera láta.
Þorskurirm er enrtþá
mikil hagræn stærð.
SDnytr
Veiðskulda ólympískir
knefaleikarþá atkygli
og umfjöllun sem þeir
hafa fengið áAlþingi
undanfarið?
Guömiindiir Arason
j'yrrv. fonmidur linefah'ikaráðs
Reykjavíknr.
„Hnefaleikar eru
þriðja vinsælasta
greinin hv'að að-
sókn varðar á
Olympíuleikunum
og sjálfur hef ég
verið heillaður
lengi af þessari grein. hef stundaö
hana allt frá árinu 1935.
Ólympískir hnefaleikar eru hæði
góð þjálfun og eins þroskandi.
Mér finnst það vera réttlætismál
að jiessi grein sé leyfð, hún er af
sama meiði og karate - nema hvað
að í hnefaleik ekki er leyft að spar-
ka í höfuð manna. Eg tel að menn
eigi sem mest að fá að ráða sínum
gjörðum sjálfir og vona Jiví að
þröngsýni ráði ekki ferðinni þegar
þetta mál verður leitt til ly kta á AI-
þingi."
Ólafux Hergill Oddsson
héraðslæknir á Noríhirlandi.
„Frumvarp þessa
efnis var fellt á Al-
þingi í maí á sl. ári.
Þar með tel ég að
málið eigi að vera
úr sögunni og
menn eigi að hlíta
þeirri niðurstöðu sem fekkst - og
frekar ræða önnur Jiarfari mál. I
greinum sem ég hef skrifað um
þetta mál hér í Degi hef ég talið
mig sýna fram á hversu hættulegir
ólympískir hnefaleikar eru - og þar
hef ég vitnað til erlendra rann-
sókna. Þar sem högg á höfuðið eru
leyfð í þessari íþróttagrein verður
óhjákvæmlega heilahristingur og
alvarlegir áverkar á augu hafa ver-
ið staðfestir. Það eru heilaáverkar
sem ég hef sérstakar áhvggjur af,
en afleiðingar þeirra koma oft ekki
fram (ýrr en Iöngu eftir að iðkun
íþróttarinnar er hætt.“
Ásta Ragnheiöur
Jóhannesdóttir
þingmaðnrSamJylkingar.
„Þetta mál hefur
fengið meiri athygli
en ástæða er til.
Nema þá að um-
ræðan virki von-
andi sem forvörn
gegn því að þessi
hættulega íjirótt verði leyfð - og að
menn fari að skaða hvern annan
undir merkjum íjiróttaiðkunar.
Heilaskaðar scm geta hlotist af
völdum hnefaleika áhugamanna
v'alda alvarlegri fötlun, koma seint
fram og læknast ekki.“
EHert B. Schram
form. íþrótta- og
ólympíusambands íslands.
„Það er hluti af al-
mennum mann-
réttindum að
menn fái að stunda
ólympíska hnefa-
Ieika, sem eru víð-
ast hvar viður-
kenndir sem keppnisgrein. Það er
af hinu góða að menn skiptist á
skoðunum um þetta mál og jiað
að menn ræði jietta mál af hita
sýnir að þetta snertir réttlætis-
kennd manna."