Dagur - 21.02.2001, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 - 9
ÍÞRÓTTIR
Hafnarfj arðarslagur
í Kap! akrika í kvöld
Heil umferð fer fram í
Nissandeild karla í
handknattleik í kvöld
og er Hafnarfjarðar-
slagur FH og Hauka í
Kaplakríka án efa mest
spennandi viðureign
umferðarinnar.
Það er skammt stórra högga á milli
hjá nýkrýndum bikarmeisturum
Hauka í handknattleik karla, því á
morgun mæta þeir erkifjendum
sínum úr FH, aðeins þremur dög-
um eftir bikarúrslitaleikinn gegn
HK. Leikurinn fer fram á heima-
velli FH-inga í Kaplakrika og bíða
FH-ingar, sem eiga harma að
hefna eftir tapið í fyrri umferðinni,
örugglega spenntir eltir að ná sér
niðri á Haukunum. Leikir liðanna
eru alltaf miklir baráttuleildr og
virðist þá staða liðanna í deildinni
litlu skipta, þegar í bardagann er
komið. Þá er barist upp á líf og
dauða, enda heiður hálfs bæjarfé-
lagsins í veði hjá hvoru liði og
spurning bvor helmingurinn læð-
ist með veggjum næstu daga á eft-
ir. Það er því mikil háspenna í loft-
inu í Gaflarabænúm þessa dagana
og eiga sumir stuðningsmenn lið-
anna hreinlega mjög bágt. En fyr-
irleikjáspennan nær þó hámarki,
mínúturnar áður en flautað er til
leiks og þá taka þeir þjáðustu sér
gjarnan stöðu á áhorfendapöllun-
um þar sem stutt er í útgöngu-
dvrnar. Það er nefnilega mjög ai-
gengt, að þegar illa gengur hjá
öðru hvoru liðinu og taugar stuðn-
ingsmannanna eru þandar til hins
ýtrasta, að þeir þjáðustu láti sig
gjarnan hverla úr húsi og hafa þeir
þá gjarnan sést keyra Alftanes-
hringinn til að ná sér niður, áður
en þeir koma aftur til að fylgjast
með restinni. Þannig er hand-
boltastemningin í Hafnarfirði og
hefur alltaf verið, frá því fyrsti leik-
ur liðanna var flautaður af vegna
slagsmála fyrir um það bil sextíu
árum síðan.
Stöðva Framarar
sigurgöngu KA?
I Safamýrinni fer fram annar
spennandi leikur, þar sem Framar-
ar taka á móti KA. Bæði liðin hafa
verið á mikilli siglingu að undan-
förnu og er norðanliðið, sem nú er
í fjórða sæti deildarinnar með 18
stig, ósigrað í síðustu sex deildar-
leikjum, eða frá því liðið tapaði
með tveimur mörkum gegn
Gróttu/KR þann 11. nóv. s.l.
Framarar, sem eru í öðru sæti
deildarinnar með jafnmörg stig og
topplið Hauka, hafa aftur á móti
sigrað í síðustu þremur leikjum, en
töpuðu síðast óvænt gegn Völsur-
um með þriggja marka mun, 21-
19, í lok nóv. og var það annað tap
liðsins í deildinni í vetur. Það má
því búast við hörðum slag í Sala-
mýrinni í kvöld og spurning hvort
Frömurum tekst að stöðva sigur-
göngu KA-manna, eða öfugt.
Góö staða Grótta/KR
Spútniklið Gróttu/KR, sem óvænt
er í þriðja sæti deildarinnar, heim-
sækir ÍR-inga í Breiðholtið í kvöld
og er öruggt að heimaliðið mun
þar taka hraustlega á móti gestun-
um. IR-ingar eru nú í níunda sæti
deildarinnar með 12 stig og veitir
því ekki af stigunum gegn Seltjarn-
arnesliðinu. Það gæti þó reynst
erfitt miðað við frammistöðu
Gróttu/KR gegn FH-ingum í síð-
ustu umferð, þegar þeir hreinlega
tóku Hafnarfjarðarliðið í nefið,
eins og sagt er og unnu það með
22ja marka mun, 23-11. Skoruðu
FH-ingar ekki nema fjögur mörk í
öllum seinni hálfleiknum, gegn
sterkri vörn heimamanna, sem svo
sannarlega eru með sigurbragðið í
munninum. Þeir eru ósigraðir í
síðustu fimm leikjum og hafa
reyndar aðeins þurft að játa sig
sigraða gegn Haukum og Fram í
síðustu ellefu leikjum, eða frá því
þeir steinlágu gegn FH-ingum í
Kaplakrika með átta marka mun í
fyrri umferðinni.
LeiMr kvöldsins:
Kl. 20.00 ÍR - Grótta KR
KI. 2Ö.00 Stjarnan - ÍBV
Kl. 20.00 HK - Afturelding
Kl. 20.00 Fram - KA
KI. 20.00 FFI - Haukar
Kl. 20.00 Valur - Breiðablik
26 milljómr til sérsambanda ÍSÍ
Iþrótta- og ólympíusamband íslands hefur kynnt hvaða aðilar fái styrki úr
Afrekssjóði ÍSÍ og Olympíufjölskyldu ÍSÍ við fyrstu úthlutun ársins 2001.
Alls eru veittar 26 milljónir króna í styrki að þessu sinni og fær Frjálsí-
þróttasamband Islands mest, eða tæpar 5,5 milljónir króna. Handknatt-
leikssambandið, sem er næst í röðinni, fær 4 milljónir króna, sundsam-
bandið tæpar 3,5 milljónir, skíðasambandið tæpar 2,4 milljónir og fim-
leikasambandið rúma 2,1 milljón króna. 1 heildina var tólf sérsambönd-
um veittur stvTkur úr Afrekssjóði ISI, en fimmtán sérsamböndum og einni
séríþróttanefnd ISI, var veittur styrkur úr sjóði Olympíufjölskyldunnar.
Olympíuljölskylda ISI, samanstendur af fimm fyrirtækjum sem eru ís-
Iandsbanki-FBA, Flugleiðir, Sjóvá-Almennar, Austurbakki og VISA ísland
og hafa forsvarsmenn þeirra nýlega skrifað undir nýja samstarfssamninga
við ISI um samstarf fram yfir Olympíuleikana í Aþenu árið 2004. Á vef-
síðu ISl segir að með samstilltu átaki þessara fyrirtækjti til fjögurra ára sé
ISI og sérsamböndunum gert kleift að halda áfram að efla afreksstarf í
íþróttum á íslandi. „Samningarnir eru metnir á um 60 milljónir króna og
öll hafa þessi fyrirtæki verið mjög ötul við að styðja við starf íþróttahreyf-
ingarinnar í gegnum árin. Fjármagninu verður, að þessu sinni, ráðstafað
til sérsambanda ISI og sérsambandanna f\TÍr ÓlxTnpíuIeikana í Salt Lake
City 2002 og Aþenu 2004 og einnig til annarra stórv’erkefna sérsambanda
ÍSI, svo sem þátttöku í Heimsmeistaraniótum og E\TÓpukeppnum,“ segir
á vefsíðunni.
Glímiuneim HSK unnu flesta bikartifla
Seinni hluti Bikarglímu Islands fór fram að Reykjahlíð í S-Þingeyjarsýslu
um stóustu helgi. Keppendur voru alls 27 frá þremur félögum og var
keppt í sjö flokkum karla og kvenna með útsláttarfyrirkomulagi. Keppend-
ur HSK voru mjög sigursælir á mótinu og unnu þeir bikarmeistaratitla í
öllum flokkum nema kvennaflokki, þar sem Hildigunnur Káradóttir, HSÞ,
sigraði.
Bikarmeistarar í öðrum flokkum urðu eftirtaldir: í karlaflokki Kjartan
Lárusson, HSK, í unglingaflokki jón Kristinsson, HSK, í sveinaflokki
Guðni Jcnsson, HSK, í piltaflokki Orri Guðmundsson, HSK, í meyjaflokki
Hugrún Geirsdóttir, HSK og í telpnaflokki Elísabet Patriarca, HSK
ísland mætir Hvtta-Rússlandi
lslenska karlalandsliðið í handknattleik rnætir Hvít-Rússum í und-
ankeppni Evrópumóts landsliða, sem fram fer í Svíþjóð í bvrjun næsta árs.
Alls 22 þjóðir taka þátt í undankeppninni og drógust eftirtaldar saman:
Tvrkland - Króatía, Hvíta-Rússland - ísland, Litháen - Ukraína, Sviss -
Ungvetjaland, Slóvakía - Þýskaland, Italía - Júgóslavía, Pólland - Noregur,
Bosnía - Danmörk, Israel - Makedónía, Holland - Portúgal og Finnland -
Tékkland.
Sigurliðin úr einvígunum komast áfram í úrslitakeppnina í Svíþjóð
ásamt Svíum, Rússum, Spánverjum, Frökkum og Slóvenum, en þjóðirn-
ar urðu f fímm efstu sætunum á Evrópumeistaramótinu í Króatíu í fvrra.
Leikirnir í undankeppninni fara fram á tímabilinu 3. - 11. júní og verð-
ur fyrri leikur Islands leikinn ytra. lslendingar og Hvít-Rússar hafa sex
sinnum áður mæst í landsleikjum og hafa Hvít-Rússar þar vinninginn,
hafa unnið fjórar viðureignir cn Íslcndingar tvær. Síðasti leikur þjóðanna
fór fram í maí 1997 og sigruðu strákarnir okkar þá með átta marka mun,
30-22.
ITíinikvæmdíistjorn ÍSÍ lýslr vonbrigðum
Framhaldssagan lun
sameiningu ÍSÍ og
ILMFÍ heldur áfram og
það nýjasta í málinu er
að framkvæmdastjóm
ÍSÍ hefur lýst vonhrigð-
um sínuiii um afstöðu
stjómar UMFÍ að hafna
viðræðum.
Eins og áður hefur komið fram á
síðum Dags, eru mjög skipar skoð-
anir um sameiningu ISI og UMFI
í ein heildarsamtök. Andstaðan
gegn sameiningunni virðist mest
innan UMFl og hefur stjórnin
þegar hafnað viðræðum um hugs-
anlega sameiningu. Innan ung-
mennahreyfingarinnar eru þó
skiptar skoðanir og hefur for-
mannafundur fjölmennasta aðild-
arfélags UMFI, Ungmennasam-
band Kjalarness, til dæmis lýst
vantrausti á stjórn UMFÍ vegna af-
stöðu hennar til málsins. I öðrum
aðildarfélögum, sérstaklega á
landsbyggðinni, virðist andstaðan
gegn sameiningu mest og er að
heyra að þar ráði gamli ung-
mennafélagsandinn og gamlar
hefðir tengdar starfsemi félag-
anna, ferðinni. Til dæmis hefur
stjórn Ungmennafélagsins Vestur-
hlíðar, sem ekki mun hafa íþróttir
á stefnuskrá sinni, ályktað harð-
lega gegn sameiningu. Minna hef-
ur heyrst frá aðildarfélögum ÍSÍ,
sem ekki starfa innan ungmenna-
hreyfingarinnar og helst að ein-
stakir áhugamenn hafi lagt orð í
belg.
Frumkvæðið frá fuUtnun
UMFI
Það nýjast í málinu er að fram-
kvæmdastjórn ÍSI hefur lýst yfir
vonbrigðum sínum með þá
ákvörðun stjórnar UMFI um að
hafna viðræðum um hugsanlega
sameiningu. I ályktun sem fram-
kvæmdastjórnin samþykkti á fundi
sínum þann 16. febrúar s.I. segir
að stjórnin lýsi vonbrigðum sínum
el<ki síst í ljósi þess að boðið var til
viðræðna án nokkurra skuldbind-
inga og tilmæli um sameiningar-
viðræður væru til komnar að frum-
kvæði fulltrúa ungmennafélags-
hreyfíngarinnar á síðasta íþrótta-
þingi ISI, auk þess sem ársþing
UMSK, sem er stærsta héraðs-
sambandið innan UiVIFI, hafi ein-
dregið mælt með áframhaldandi
viðræðum.
í ályktuninni segir einnig:
„Stjórn UMFÍ hefur jafnframt
kosið að gera lítið úr þeim fjár-
hagslega ávinningi sem af samein-
ingu hlýst og líta framhjá þeim
upplýsingum og staðreyndum,
sem ekki hafa verið véfengdar, að
auk sparnaðar í rekstri yfirstjórnar,
um allt að 15 millj. kr., getur út-
hlutun Iottóarðs til hreyfingarinn-
ar og íþróttastarfins aukist um tug-
ir milljóna króna, þ.á.m. til ung-
mennafélaga. Er þá ekki með talið
skipulagslegt og félagslegt hagræði
sem fvlgja mun sameiningu."
Hörð mótmæli
„Framkvæmdastjórn ÍSI mótmælir
harðlega þeirri luIhTðingu UMFI
að íþrótta- og ungmennafélögum í
dreifbýli annars vegar og þéttbýli
hins vegar sé gert mishátt undir
höfði í starfi ÍSÍ. Fjárframlög og
þjónusta hvers konar hefur þvert á
móti farið vaxandi við íþróttastarf-
ið í dreifbýli og má þar til nefna að
ISI hefur sérstakan starfsmann
staðsettan á Akure\TÍ til að sinna
málum á Norður- og Austurlandi
og til stendur að gera hið sama á
Vesturlandi og Vestljörðum.
Ástæða þvkir til að minna á, að
óánægja hefur mvndast innan raða
íþróttahreyfingarinnar vegna
skiptingar lottóarðs, scm rennur til
íþróttastarfsins frá ÍSÍ og UMFÍ.
Ur þeirri óánægju og gagnrýni má
draga með því að leggja lottóarð
íþróttahreyfingarinnar í einn pott.
Með því að hafna sameiningarvið-
ræðum er UMFI að bjóða þeirri
hættu heim, gagnvart sínum um-
bjóðendum, að gengið verði á hlut
þeirra."
UMFÍ verdur ad útskýra betur
„Stjórn UMFÍ hefur lagt til að
„komið verði á fót fastri samstarfs-
nefnd, sem hafi það verkefni að
samræma störf samtakanna, ræða
verkaskiptingu og leiðir til hagræð-
ingar".
Viðræðum um sameiningu var
einmitt ætlað að leiða til hagræð-
ingar og sparnaðar, en þeim \ið-
ræðum hefurstjórn UMFÍ hafnað.
Að gefnu þessu tilefni vekur fram-
kvæmdastjórn ÍSI athygli á að
Iþrótta- og Olympíusamband ís-
lands fer með yfirstjórn allra
íþróttamála í landinu og skyldur og
áb\Tgð gagnvart öllum íþrótta- og
ungmennafélögum. Þar af leiðir
að erfitt er að sjá hvað UMFI á við,
þegar talað er um verkaskiptinjgu
milli þessara tveggja samtaka. ÍSI
getur ekld og mun ekki afsala sér
neinum störfum né skyldum til
annarra samtaka. UMFÍ verður að
útskýra betur, hvað átt er við með
„samræmingu og verkaskiptingu".
Með því að hafna viðræðum um
hugsanlega sameiningu er UMFl
að bregðast þeim áskorunum, sem
koma úr þeirra eigin röðum og
hafna breylingum, sem mögulega
geta haft skipulagslega, félagslega
og verulega fjárhagslega þýðingu
lyrir þau störf og þau félög, sem að
báðum þessum samtökum standa.
Framkvæmdastjórn ISI mun
halda áfram að k\Tina málið og sín
viðhorf, þar sem því verður við
komið í samræmi við samþykkt
síðasta Iþróttaþings ISI og skorará
stjórn UMFI að endurskoða af-
stöðu sína til málsins." - EK