Dagur - 17.03.2001, Blaðsíða 8
VIII- LAUGARDAGUR 17. MARS 2001
KIRKJUSTARF
ÁRBÆJARKIRKJA
Guðsþjónusta kl. 11.00. Organisti Pavel
Smid. Kirkjukórinn syngur. Eftir guðsþjón-
ustuna verður stuttur fundur með foreldrum
fermingarbarna vorsins 2001. Einnig köku-
basar 4. fl. karia í fótbolta. Barnamessa kl.
13.00. Léttir söngvar, biblíusögur, bænir,
umræður og leikir við hæfi barnanna. For-
eldrar, afar og ömmur eru sérstaklega hvött
til þátttöku með börnunum. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 11.
Altarisganga. Organisti: Sigrún Þórsteins-
dóttir. Létt máltíð í safnaðarheimilinu eftir
messu. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA
Guðsþjónusta kl. 11. Prédikun: Þorgils Þor-
bergsson, cand. Theol. Prestur sr. Gunnar
Sigurjónsson. Organisti: Kjartan Sigurjóns-
son. Kór Digraneskirkju A hópur. Sunnu-
dagaskóli á sama tima. Umsjón: Sr. Magn-
ús, Margrét og Þórunn. Léttur málsverður í
safnaðarsal að lokinni messu. Kl. 20:30.
Fundur í hjónaklúbb Digraneskirkju. Prest-
arnir fara á kostum í tvískiptu erindi sem
þeir kalla: „Þú skilur mig ekki, ástinl"
FELLA- OG HÓLAKIRKJA
Guðsþjónusta kl. 11. Taize sálmar. Prestur
sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Organisti
Peter Maté. Flautuleikari Martial Nardeu.
Barnaguðsþjónusta á sama tíma í safnaðar-
heimilinu í umsjón Margrétar Ó. Magnús-
dóttur. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA
Útvarpsguðsþjónusta kl. 11:00. Prestur sr.
Vigfús Þór Árnason prédikar og þjónar fyrir
altari. Kór Grafarvogskirkju syngur. Org-
anisti Hörður Bragason. Barnaguðsþjón-
usta kl. 11:00. Prestur sr, Anna Sigríður
Pálsdóttir. Umsjón Sigrún, Þorsteinn Hauk-
ur og Hlín. Undirleikari Guðlaugur Viktors-
son. Barnaguðsþjónusta kl. 13:00 í Engja-
skóla. Prestur sr. Anna Sigríður Pálsdóttir.
Umsjón: Sigrún, Þorsteinn Haukur og Hlín.
Undirleikari Guðlaugur Viktorsson. Prest-
arnir
HJALLAKIRKJA
Messa kl. 11. Altarisganga. Sr. Guðmundur
Karl Brynjarsson þjónar. Félagar úr kór
kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng.
Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Barna-
guðsþjónusta í Lindaskóla kl. 11 og í kirkj-
unni kl. 13. Orgelandakt kl. 17. Kári Þorm-
ar, organisti i Fríkirkjunni í Reykjavík, leikur
verk eftir César Franck, J.S. Bach, C-M.
Widor o.fl. Við minnum á bæna- og kyrrðar-
stund á þriðjudögum kl. 18. Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA
Barnastarf í safnaðarheimilinu Borgum kl.
11:00. Guðsþjónusta kl. 14:00. Séra Sigur-
jón Árni Eyjólfsson prédikar og þjónar fyrir
altari. Kór Kópavogskirkju syngur og leiðir
safnaðarsöng. Árnesingar koma í heimsókn
og Árnesingakórinn syngur undir stjórn Sig-
urðar Bragasonar. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirs-
son.
SELJAKIRKJA
Barnaguðsþjónusta kl. 11.00. Nýr limmiði,
söngur og fræðsla fyrir krakka. Guðsþjón-
usta kl. 14.00. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir
prédikar. Organisti er Pavel Manasek.
ÁSKIRKJA
Kirkjudagur Safnaðarfélags Ásprestakalls.
Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Guðsþjónusta
kl. 14:00. Inga Backman syngur einsöng.
Kirkjubíllinn ekur. Kaffisala Safnaðarfélagsins
eftir messu. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA
Barnamessa kl. 11:00. Foreldrar, ömmur og
afar eru hvött til þátttöku með börnunum.
Ungmennahljómsveit undir stjórn Pálma J.
Sigurhjartarsonar. Guðsþjónusta kl. 14:00.
Barnakór kirkjunnar syngur undir stjórn Jó-
hönnu Þórhallsdóttur. Glæsilegt kaffihlað-
borð foreldrafélags barnakórs eftir guðs-
þjónustu. Pálmi Matthiasson.
DÓMKIRKJAN
Messa kl. 11:00. Sr. Hjálmar Jónsson. Kór
Menntaskólans í Reykjavíkur syngur. Org-
anisti Marteinn H. Friðriksson. Æðruleysis-
messa kl. 20:30. Bræðrabandið leikur. Þor-
valdur Halldórsson syngur. Sr. Jakob Ág.
Hjálmarsson, sr. Jóna Hrönn Bolladóttir og
sr. Anna S. Pálsdóttir leiða samkomuna.
GRENSÁSKIRKJA
Barnastarf kl. 11:00. Messa kl. 11:00. Altar-
isganga. Kirkjukór Grensáskirkju syngur.
Organisti Árni Arinbjarnarson. Kvöldmessa
kl. 20:00. Einfalt form, léttir söngvar, hlýlegt
andrúmsloft. Ólafur Jóhannsson.
GRUND DVALAR- OG HJÚKRUNAR-
HEIMILI
Guðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Árni Sigurðsson.
Organisti Kjartan Ólafsson. Félag fyrrverandi
sóknarpresta.
HALLGRÍMSKIRKJA
Fræðslumorgunn kl. 10:00. Siðferðilegur
háski? Uppeldi á íslandi í upphafi aldar: Dr.
Vilhjálmur Árnason, prófessor. Messa og
barnastarf kl. 11:00. Umsjón barnastarfs
Magnea Sverrisdóttir. Félagar úr Mótettukór
syngja. Organisti Hörður Áskelsson. Sr. Sig-
urður Pálsson. Aðalsafnaðafundur Hall-
grimssóknar að lokinni messu. Ensk messa
kl. 17:00. Allir velkomnir.
LANDSPÍTALINN HRINGBRAUT
Messa kl. 10:30. Sr. Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA
Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Björgvin Þor-
steinsson, fræðslufulltúi, Sólveig Halla Krist-
jánsdóttir, guðfræðinemi, Guðrún Helga
Harðardóttir, djáknanemi. Organisti Douglas
A. Brotchie. Kirkjukaffi eftir barnaguðsþjón-
ustu. Messa kl. 14:00. Sr. Tómas Sveinsson.
Organisti Douglas A. Brotchie. Molasopi eftir
messu.
LANGHOLTSKIRKJA
Kirkja Guðbrands biskups. Messa kl. 11:00.
Prestur sr. Kristján Valur Ingólfsson. Org-
anisti Bjarni Jónatansson. Gamlir kórfélagar
sjá um forsöng. Barnastarf í safnaðarheimili
kl. 11:00. Umsjón Lena Rós Matthíasdóttir.
Kaffisopi eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA
Messa og sunnudagaskóli kl. 11:00. Kór
Laugarneskirju syngur undir stjórn Gunnar
Gunnarssonar. Sr. Bjarni Karlsson þjónar
ásamt Eygló Bjarnadóttur, meðhjálpara og
hópi fermingarbarna. Sunnudagskólinn í
umsjá Hrundar Þórarinsdóttur, djákna og
hennar samstarfsfólks. Messukaffi Sigríðar,
kirkjuvarðar, bíður allra í safnaðarheimili.
Messa kl.13:00 í dagvistarsalnum Hátúni 12.
Þorvaldur Halldórsson syngur við undirleik
Gunnars Gunnarssonar. Margrét Scheving,
sálgæsluþjónn, Guðrún K. Þórsdóttir, djákni
og sr. Bjarni Karlsson þjóna ásamt hópi
sjálfboðaliða.
NESKIRKJA
Guðsþjónusta kl. 11:00. Prestursr. Frank M.
Halldórsson. Organisti Reynir Jónasson.
Kirkjubíllinn ekur um hverfið á undan og eftir
guðsþjónustu. Sunnudagaskólinn kl. 11:00.
8-9 ára starf á sama tíma. Safnaðarheimilið
opið frá kl. 10:00. Kaffisopi eftir guðsþjón-
ustu. Tónleikar kl. 17:00. Sinfóníuhljómsveit
áugamanna. Einsöngvari Sigrún Jónsdóttir.
Stjórnandi Oliver Kentish.
SELTJARNARNESKIRKJA
Guðsþjónusta kl. 11:00. Prestur sr. Sigurður
Grétar Helgason. Organisti Viera Manasek.
Sunnudagaskólinn á sama tíma. Bjóðum
börnin sérstaklega velkomin til skemmtilegr-
ar samveru. Fundur með foreldrum ferming-
arbarna í safnaðarheimilinu eftir guðsþjón-
ustu. Verið öll hjartanlega velkomin.
í>*gur
AKUREYRARKIRKJA
Leiksýning kl. 11 í Safnaðarheimili. Stopp-
leikhópurinn flytur leikritið „Ævintýrið um
Óskirnar tíu“ í Sunnudagaskólanum en það
byggir á bókinni „Við Guð erum vinir“ eftir
Kari Vinje. Leikritið er ætlað 2-8 ára börnum
og tekur um 20 mín í flutningi. Allir eru vel-
komnir á leiksýninguna í Safnaðarheimilinu.
Tónleikar kl. 16. Barna- og unglingakór Ak-
ureyrarkirkju, Kór Snælandsskóla og Góðir
hálsar ásamt strengjasveit Tónlistarskólans
á Akureyri og einsöngvurum úr söngdeild
skólans. Föstuvaka kl. 20.30. Séra Jóna
Lfsa Þorsteinsdóttir. Kór Akureyrarkirkju
syngur, Rósa Kristín Baldursdóttir syngur
einsöng. Valgeir Skagfjörð og Saga Jóns-
dóttir lesa Ijóð.
MÖÐRUVALLAKLAUSTURSKIRKJA
Messa verður fyrir allt prestakallið i Möðru-
vallaklausturskirkju sunnudaginn 18. mars
kl. 14:00. Molasopi á prestssetrinu eftir
messu. Mætum öll og njótum samveru í
húsi Guðs.
LANDAKIRJA
Kl. 11:00. Almenn guðsþjónusta. Allir ald-
urshópar hefja guðsþjónustuna saman í
kirkjunni en börnunum verður boðið að eiga
sérstaka samveru í Safnaðarheimilinu þegar
líður á stundina. Kór Landakirkju og Litlir
lærisveinar syngja og leiða söng. Mikil lof-
gjörð og tónlist, fyrirbænir og prédikun.
Fermingarbörn lesa úr Ritningunni. Kaffisopi
á eftir. Ath. Vegna leiðarþings Kjalarnespró-
fastsdæmis í Keflavík síðar um daginn,
verður ekki messað í Landakirkju eftir há-
degi. Kl. 20:30. Æskulýðsfundur með gesta-
leiðtoganum Elvu Björk Ágústsdóttir úr
Reykjavík. Takið vel á móti Elvu Björk með
góðri þátttöku.
HVERAGERÐISKIRKJA
Sunnudagaskóli kl. 11:00. Fundur með
fermingarbörnum og foreldrum kl. 14:00.
Sóknarprestur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vinarhug
og hlýju við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
BJÖRNS BENEDIKTSSONAR
frá Sandfellshaga
Ásta Björnsdóttir,
Benedikt, Rannveig, Páll, Gunnar,
Björn Guðmundur, Björn Víkingur og fjölskyldur.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
BJÖRN BRYNJÓLFSSON,
Hellisgötu 29, Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans mánudaginn 12. mars.
Útför hans fer fram í Fossvogskirkju
miðvikudaginn 21. mars kl. 15.
Höröur Blöndal, Sólveig Gísladóttir,
Hrafnkell Björnsson, Bára Halldórsdóttir,
Sveinn Björnsson, Hjördís Gunnþórsdóttir,
Margrét Blöndal Björnsdóttir, Georg Magnússon,
barnabörn og barnabarnabörn.
U tfararskr e vtin ^ ar
V X V*V -X W JL kj XV JX ■ A K U R E Y R 1 t W V l' A JL x 14. JL
1 jg| | kistuskreytingar,
krossar, kransar,
blómaskreytingar,
1 Býflugan og blómið i blómvendir,
Sími 461 5444
Glerárgata 28 . Akureyri
Kírkjudagiir í Selfosskirkju -
Biskupsvísitasía
Hinn 25. mars næstkomandi eru
45 ár liðin frá vígslu Selfoss-
kirkju. Þennan mánaðardag árið
1956 bar upp á pálmasunnudag
og þá vígði biskupinn yfír Islandi,
herra Asmundur Guðmundsson
kirkjuna. Þessi mánaðardagur.er
ávallt boðunardagur Maríu seni
vTsar fram til beilagra jóla eftir
rétta 9 mánuði eða skeið með-
göngunnar. Islenskir söfnuðir
hafa gjarna minnst boðunar
Maríu á þeim sunnudegi seni
næst liggur 25. mars ef hann ber
upp á virkan dag. I ár er afmæli
kirkjunnar á drottinsdegi en
vígsludagurinn er ávallt nefndur
kirkjudagur í hverjum söfnuði.
Biskup Islands herra Karl Sigur-
björnsson vfsiterar Árncspró-
fastsdæmi nú í mars og vill svo
gleðilega til að hann verður við
messu Selfosssafnaðar á kirkju-
dagi hans. Dagurinn verður tek-
inn snemma með því að komið
verður saman til morgunsöngs og
bænagjörðar kl. 9:00 þá um
morguriinn og eftir stundina
verður boðið upp á kaffi og með-
læti.
Er biskup kémur mun hann
ásamt eiginkonu sinni og ' pró-
fastinum, sr. Úlfari Guðmunds-
syni snæða Iéttan hádegisverð
með sóknarnefnd, sóknarpresti
og starfsfólki Selfosskirkju. Há-
tíðarmessa hefst síðan kl. 14:00
en að henni lokinni er þess
vænst að kirkjufólk komi í safn-
aðarsalinn og hafi þar kost á að
heilsa biskupi og ciga við hann
orðastað. Verður þar borið fram
kaffi og eitthvað í að bíta. Biskup
mun síðan að þeirri stund geng-
inni sitja fund sóknarnefndar
Selfosskirkju um starf safnaðar-
ins og málefni hans. Kirkjudegi á
Selfossi lýkur með aftansöng í
kirkjunni kl. 18:00.
Megi vísitasía biskups Islands
verða Selfosssöínuði glcðirík og
"Pþbyggileg.
Þórir Jökull Þorsteinssoii,
sóknarþrestur.