Dagur - Tíminn Akureyri - 22.01.1997, Page 4

Dagur - Tíminn Akureyri - 22.01.1997, Page 4
Blönduós Norðurland vestra |Dagur-®t] Mjólkursamlag SAH er fyrsta fyrirtækið á Norðurlandi vestra sem fær viðurkenningu á innra eftirlitskerfi. Mynd: gg Mjólkursamlag SAH hlýtur viðurkenningu Mjólkursamlag Sölusam- bands Austur-Húnvetn- inga á Blönduósi hefur hlotið viðurkenningu á innra eftirlitskerfi hjá Heilbrigðiseft- irliti Norðurlands vestra. Mjólk- ursamlag SAH er fyrsta fyrir- tækið á Norðurlandi vestra sem fær viðurkenningu af þessu tagi og var því afhent vottun af því tilefni 19. desember sl. af Sig- urjóni Þórðarsyni, fram- kvæmdastjóra Heilbrigðiseftir- lits Norðurlands vestra. Sam- lagið fær vottun á GÁMES- gæðaeftirlitskerfi (Greining áhættuþátta og mikilvægra eft- irlits-staða) sem er íslenskun á HACCP (Hazard Analysis and Critical Control Points) og er al- þjóðlegt eftirlitskerfi, einkum notað í matvælaiðnaði. Með GÁMES er beitt kerfisbundnum aðferðum við stjórnun á þekkt- um áhættuþáttum í matvæla- framleiðslu og breytir eftirliti frá vöruskoðun til fyrirbyggj- andi eftirlits. Sigurjón Þórðarson telur kerfið afburða gott, enda sé með viðurkenningunni til Mjólkursamlags SAH settur ákveðinn punktur aftan við 2 ára vinnu við kerfið í nijólkur- samlaginu, þar sem vinnan hef- ur m.a. miðast við áhættugrein- Kerfið fækkar áhættuþáttum í fram- leiðslunni og er trygging fyrir við- skiptavini okkar að þeir fái bestu mögu- legu gæði á þeirri vöru sem þeir kaupa frá okkur, segir Páll Svavarsson mjólkur- samlagsstjóri. ingu og gerð gæðahandbókar. Haldið er utan um allar skrán- ingar og úrvinnslur með tölvu- forriti. Páll Svavarsson, mjólkur- samlagsstjóri, telur kerfið auka á öryggi á öllum stigum fram- leiðslunnar þrátt fyrir áralanga áherslu á hráefnis- og vöru- gæði. „Það er ekkert nýtt að lögð sé áhersla á gæðamál hér, það hefur átt sér .stað árum saman. Kerfið fækkar áhættuþáttum í framleiðslunni og tryggir meira öryggi og er einnig trygging fyr- ir viðskiptavini okkar að þeir séu að fá besta mögulega gæði á þeirri vöru sem þeir kaupa frá okkur,“ sagði Páll Svavars- son. Innvegin mjólk var 4.012.382 lítrar hjá Mjólkur- samlagi SAH á árinu 1996 á móti 3.947.002 h'trum árið 1995. Fullvirðistrétturinn á yfirstandandi verðlagsári er 4.087.059 og hefur aukist um 96 þúsund lítra. 1% er vegna aukningar á landsvísu en auk þess hefur fullvirðistréttur verið keyptur inn á samlagssæði Mjólkursamlags SAH, eða um 2,4%. Þar hafa einstök sveitar- félög veitt viðkomandi bónda aðstoð með ýmsum hætti. GG Siglufjörður Jarðgöng betri en Lágheiðarvegur? Við þurfum að hafa niður- stöður rannsókna þegar við tökum ákvörðun um hvernig staðið verður að teng- ingu Siglufjarðar austur á bóg- inn. Þar á ég við spurninguna um hvort byggja skuli heifsárs- veg yfir Lágheiði eða tengja Siglufjörð við Eyjafjarðarsvæðið með jarðgöngum um Héðins- fjörð. í fljótu bragði sýnist mér að skynsamlegra gæti verið að velja jarðgöng, enda er Lág- heiðin afar snjóþung,“ segir Páll Pétursson, 1. þingmaður Norðurlands vestra. Jarðgöng um Héðinsfjörð kosta um þrjá milljarða kr. Uppbygging heilsársvegar yfir Lágheiði, úr Fljótum í Ólafs- fjörð, er sýnu ódýrari - kostar vel innan við milljarð. „Við er- um að tala um svimandi fjár- hæðir,“ segir Páll Pétursson. Við úthlutun peninga til framkvæmda á Norðurlandi vestra á þessu ári segir Páll að sem fyrr verði megináhersla lögð á uppbyggingu Siglufjarð- „í fljótu bragði sýn- ist mér að skyn- samlegra gæti verið að velja jarðgöng, enda er Lágheiðin afar snjóþung,“ segir 1. þingmaður Norðurlands vestra. arvegar, það er lagningu slit- lags á hann. Stefnt er að því að verkinu verði lokið 1999. - Þá verður haldið áfram við breikk- un einbreiðra brúa í hringveg- inum í gegnum kjördæmið og í ár verða brýr yfir Melrakka- dalsá í Víðidal og Húseyjarkvísl í Skagafirði teknar fyrir. Einnig verða gerðar endurbætur á vegum í Svínadal og í Hegra- nesi í Skagafirði. Um framtíðaráform í vega- gerð á Norðurlandi vestra segir Páll Pétursson að huga beri að uppbyggingu vegar yfir Þverár- fjall, frá Skagaströnd á Sauðár- krók. Þá sé nauðsynlegt að lag- færa þjóðveginn í Norðurárdal í Skagafirði, frá Silfrastöðum að sporði Öxnadalsheiðar. Vegar- stæðið sé óhentugt, enda hafi því óverulega verið breytt þeg- ar vegurinn á þessum slóðum var lagður slitlagi fyrir fáum árum. -sbs. Ráðstefna um atvinnumál í Miðgarði Atvinnumálanefnd Norð- urlandskjördæmis vestra skilaði í haust skýrslu til félagsmálaráðherra, Páls Pét- urssonar, þar sem íjallað er m.a. um þróun byggðar og at- vinnulífs á Norðurlandi vestra ásamt hugmyndum um hvernig efla megi atvinnulífið í kjör- dæminu í nánustu framtíð. f dag verður haldin í Mið- garði í Skagafirði ráðstefna um efni skýrslunnar og atvinnumál á Norðurlandi vestra og hefst ráðstefnan klukkan 10.00, og er öllum opin. Að ráðstefnunni standa Samband sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) og Iðnþróunarfélag Norðurlands vestra (INVEST) ásamt félags- málaráðuneytinu. Félagsmálaráðherra mun fjalla um ástand, horfur og sóknarfæri eftir atvinnugrein- um og íjallað verður sérstak- lega um atvinnumál kvenna, landbúnað, sjávarútveg, iðnað, ferðaþjónustu, einkarekna Fjallað verður m.a. um atvinnumál kvenna, landbúnað, sjávarútveg, iðnað, ferðaþjónustu, einkarekna þjón- ustu og opinbera þjónustu. þjónustu og opinbera þjónustu. Auk félagsmálaráðherra munu framámenn í kjördæminu hafa framsögu um hina ýmsu mála- flokka. Að þeim loknum verða almennar umræður og að þeim loknum pallborðsumræður þar sem ræddar verða niðurstöður ráðstefnunnar og valkostir. GG Akureyri Haftækni gaf stað- setningartæki í tilefni afmælis fyrirtækisins Haftækni hf. á Akureyri hefur sérhæft sig í sölu, uppsetningu og við- haldsþjónustu á fjarskipta-, fiskileitar- og siglingatækjum í skip og báta og er þjónustu- svæði fyrirtækisins aðallega Norðurland og austur um til Bakkafjarðar auk þess sem það hefur sölu- og þjónustu- umboð á Norðurlandi fyrir alla helstu framleiðendur á sviði fjarskipta-, fiskileitar- og siglingatækja. Einnig er Haf- tækni með umboð á Norður- landi fyrir Apple Macintosh tölvur. Fyrirtækið veitir ráð- gjöf við kaup á hvers konar tækjum, hannar fyrhkomulag þeirra og sér um uppsetning- una, hér á landi og erlendis. Haftækni hf. er 10 ára um þessar mundir, og í tilefni af afmælinu var Hjálparsveit skáta á Akureyri og Flug- björgunarsveitinni á Akureyri afhent staðsetningartæki, GPS-38, sem hentar mjög vel til leitar. Sævar Örn Sigurðs- son, framkvæmdastjóri, sagði við það tækifæri að hann von- aðist til að í framtíðinni yrði það sjálfsagt mál að staðsetn- ingartæki væru fylgililutar fjallafara, til lengri og skemmri ferða. GG Leonard Birgisson, formaður Flugbjörgunarsveitarinnar á Akureyri, t.v. og Magnús Viðar Arnarson, formaður Hjálparsveitar skáta á Akur- eyri, með nýju GPS- 38 staðsetningartækin ásamt Sævar Erni Sig- urðssyni, framkvæmdastjóra Haftækni hf. Mynd-jhf

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.