Dagur - Tíminn Akureyri - 13.02.1997, Side 3
JDagur-Œmrám
Fimmtudagur 13. febrúar 1997 - 3
F R É T T I R
Alþingi s Loðnan
Verðlækkunm er
vonarpenmgur
Stefán Guðmundsson, Framsóknarflokki
„Orkuverð verður óbreytt til aldamóta og
lækkar síðan.“
Umdeilt frumvarp um
Landsvirkjun varð að
lögum í gær. Arður
verður ekki greiddur
út á kostnað orku-
kaupenda, segja
ráðamenn.
Ný lög um Landsvirkjun
voru samþykkt á Alþingi
í gær með 41 atkvæði
gegn 7. Umdeildasta breytingin
varðar arðgreiðslur til eigend-
anna; ríkisins, borgarinnar og
Akureyrarbæjar. Staðfest er
samkomulag eigendanna um að
framlög þeirra til fyrirtækisins
skuli endurmetin á samtals 14
milljarða og stefnt skuli að því
að greiða 5,5% arð af þeirri
upphæð. Fram kom í umræðum
á Alþingi að áætlað er að til
ársins 2010 verði eigendum
reiknaðir 15 milljarðar í arð og
lántökuábyrgðargjald og helm-
ingur þess - 750 milljónir -
verði greiddur út.
Þingmenn Alþýðubandalags-
ins greiddu allir atkvæði gegn
frumvarpinu, 2 Jafnaðarmenn
sátu hjá og 1 Sjálfstæðismaður
Aðrir sögðu já.
Bókuð sátt
Iðnaðaráðherra fagnaði sér-
staklega þessari „víðtæku pólit-
ísku sátt,“ sem hann kallaði
svo, en hún byggist sennilega
fremur á umtalaðri bókun eða
viljayfirlýsingu eigenda, en al-
mennri ánægju með breyting-
arnar. Til hennar vísaði Stefán
Guðmundsson, Framsókn-
arflokki, þegar hann sagði að
staðfest væri að orkuverð yrði
óbreytt til aldamóta, en lækki
þá um 2 til 3% á ári til ársins
2010. „Og arðgreiðslur verða
víkjandi fyrir lækkun
orkuverðs," sagði Stefán
á Alþingi í gær. Þess má
reyndar geta að Lands-
virkjun hefur þegar
tilkynnt um 3,2% hækkun
gjaldskrár l.apríl næst-
komandi.
Alþýðubandalagsmenn
vildu fá ákvæði um verð-
lækkun inn í lagatextann
og sögðu lítið hald í bók-
uninni. „Á grundvelli
mjög umdeilanlegra út-
reikninga um eiginljár-
framlög og arð, er ætlun-
in að taka miklar fjár-
hæðir út úr
þessu fyrir-
tæki og raf-
orkukaup-
endur
borga,“ sagði
Steingrímur
J, Sigfússon.
Einar K.
Guðfmnsson,
Sjálfstæð-
isflokki,
treystir því að
verðlækkun haf! forgang hjá
Landsvirkjun, en telur forsend-
ur arðgreiðslna hæpnar og sat
því hjá.
Það gerðu líka Jafnaðar-
mennirnir Lúðvík Bergvinsson
og Guðmundur Árni Stefánsson.
Guðmundur sagði yflrlýsingar
um verðlækkun eftir aldamót
vera „vonarpening fyrir lands-
menn, en arðgreiðslurnar eru í
hendi fyrir eigendurna." -vj
Steingrímur J. Sigfússon
alþingismaður
Þá á að taka miklar
Jjárhœðir út lír
Landsvir/gun og raf-
orkukaupendur
borga
Loðnugangan
komin vestur
að Ingólfshöfða
Frysting loðnu á Jap-
ansmarkað að hefjast
á Austfjarðahöfnum
en markaðurinn hefur
þrengst og búist við
töluverðri verðlækkun
Loðnubáturinn Sigurður
VE-15 landaði nær 1.500
tonnum í Krossanesverk-
smiðjunni á Akureyri í gær-
kvöld og fer meginhluti aflans í
bræðslu, en um 30-40 tonn fóru
til Fiskiðjusamlags Húsavíkur
hf. til frystingar á Rússlands-
markað. Loðnan er ekki orðin
hæf til að hægt sé að frysta
loðnuna á Japansmarkað en til
þess vantar enn a.m.k. eitt pró-
sentustig, þ.e. að hún nái 15%,
en það gæti orðið fyrir helgina.
Vonir standa til að hægt verði
að frysta um 20 þúsund tonn á
þessum vetri, sem er um 10
þúsund tonnum minna magn en
í fyrra, en búist er við tölu-
verðri verðlækkun. Ástæðan er
krafa um stærri loðnu, og eins
eru Kanadamenn að koma inn
á markaðinn með töluvert
magn. Það er svo ekki fyrr en
loðnan hefur náð um 22%
hrognafyllingu að hægt er að
skilja frá henni hrognin og
frysta þau á Japansmarkað. Sá
markaður hefur einnig þrengst
milli ára. GG
Barnaspítali
Dalvík
Besti vinur barnanna?
í gær afhenti Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari Barnaspítala
Hringsins allt það efni sem Japis gaf út og dreifði á síðasta ári -
sem og allt barnaefni sem Japis hefur gefið út og dreift í gegnum
tíðina, eða alls um 70 titlar. Auk þessa tók söngvarinn sæli svo
lagið fyrir börnin og áritaði meðal annars póstkort. Mynd: Hilmar
Knattspyrnumaður ráð-
inn f‘rani kvæmdas tjórl
Grétar Steindórsson hefur
verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri sápugerð-
arinnar Hreins hf. á Dalvík, og
tekur hann við starfmu í maí-
mánuði af Margréti Brynjólfs-
dóttir, sem starfar áfram hjá
fyrirtækinu. Grétar er að ljúka
BS-námi í hagfræði í Bandaríkj-
imum. Starfið var auglýst og
bárust 12 umsóknir um starf
framkvæmdastjóra. Daníel
Hilmarsson, stjórnarformaður
Hreins hf„ segir að gert hafi
verið ráð fyrir því að það tæki
þrjú ár þar til reksturinn færi
að skila hagnaði. Grétar hefur
leikið með Dalvikurhðinu í
knattspyrnu undanfarin sumur
en kemur frá Breiðabliki, en
segja má að nú sé vera hans
tryggð. Liðið vann sér rétt til að
spila í 2. deild 1997, sem nú
heitir 1. deild eftir samþykkt
ársþings KSÍ. GG
Vestmannaeyjar
Jeppi yfir andiitið
Jóhann Sveinn, 19 ára: „Andlitið sneri
beint að dekkinu og ég horfði því í dekkið
þegar bíllinn tók af stað og dekkið fór yfir
andlitið."
Furðulegt lán var yfir
ungum manni sem
lenti með höfuðið
undir jeppa á ferð.
Vestmannaeyingurinn Jó-
hann Sveinn Sveinsson
(19 ára), var með ólíkind-
um heppinn þegar hann var að
koma út af dansleik á skemmti-
stað fyrir skömmu og má þakka
fyrir að hafa ekki stórslasast.
Jóhanni skrikaði fótur í hálk-
unni og lenti með höfuðið á göt-
unni við hlið bíls. Hér var ekki
um venjulegan bíl að ræða
heldur jeppabifreið og fór aft-
urhjól hennar yfir höfuð Jó-
hanns. Hann hlaut skurð á
höfði og heilahristing og var
fluttur á sjúkrahús en fékk að
fara heim eftir nokkra daga.
í samtali við Dag-Tímann
segir Jóhann Sveinn að hann
hafi verið að koma út af balli og
var að fara yfir götuna þegar
óhappið átti sér stað.
„Þegar ég var að komast yfir
götuna rann ég til í hálkunni og
datt aftur fyrir mig og skall í
götuna. Jeppabíll hafði verið að
bíða eftir því að ég færi yfir en
ökumaðurinn tók ekki eftir því
þegar ég datt. Ég lenti á hlið
með hægri vangann í götunni
og beint fyrir framan aftrn--
dekkið á bflnum. Andlitið sneri
beint að dekkinu og ég horfði
því í dekkið þegar bfllinn tók af
stað og dekkið fór yfir andlitið.
Eftir þetta man ég ekkert fyrr
en ég vaknaði á sjúkrahúsinu.
Ég var lagður inn en slapp
ótrúlega vel, var með skurð yfir
hægri augabrún og þó nokkuð
bólginn á hægri hluta andlitsins
auk þess að fá heilahristing. Að
öðru leyti slapp ég ómeiddur,"
segir Jóhann Sveinn.
Þegar betur er að gáð
er með ólíkindum að höf-
uðkúpa Jóhanns Sveins
skyldi ekki springa þegar
jeppabifreiðin keyrði yfir
höfuð hans. Að sögn
lækna kom þar tvennt til
að því er virðist. Annars
vegar er dekk á jeppabif-
reið breiðara en á venju-
legum fólksbfl og þunginn
dreifðist því á alla höfuð-
kúpuna þegar dekkið fór
yfir hana. Og þar sem
jeppadekk er stærra og
hærra var snertiflötur
þess hærri á andlitinu en
á venjulegum fólksbfl. Ef
dekkið hefði farið nokkr-
um miflimetrum ofar eða
neðar á höfuðið er allt
eins líklegt að illa hefði
getað farið. Hins vegar
virðist Jóhann Sveinn
hafa legið „rétt“ í götunni,
þ.e. á hlið og með vang-
ann í götunni. Óvíst er
livernig hefði farið hefði
hann legið með hnakkann að
dekkinu, á bakinu eða á grúfu.
Og varla hefði þurft að spyrja
að leikslokum ef dekkið hefði
farið yfir hálsinn á honum.
„Þegar ég datt reyndi einn
kunningi minn að grípa í mig
en tókst ekki. Hann varð vitni
að því sem gerðist og hélt að ég
væri stórslasaður. En ég veit að
ég slapp vel og er þakklátur
fyrir það,“ sagði Jóhann Sveinn.
ÞoGuÆjjum