Dagur - Tíminn Akureyri - 01.03.1997, Page 4

Dagur - Tíminn Akureyri - 01.03.1997, Page 4
Laugardagur 1. mars 1997 -IV ^igur-SSmimt S 0 G U R 0 G S A G N I R Leifar i tveimur löndum 4. og síðasta grein Jónas Hallgrímsson í Danmörku - fyrr og enn. Bein komu til Islands, en án höfuðs, herða og brjósts. Þetta skáld Jóhannesar Sveinssonar (Kjarvals) er í Hjástoðarkirkjugarði. Hraunið: fæðingarstaðurinn. Eldingaleiftur: skáldgáfan. (Mynd í eigu Á. S.) Hver var hún, vonin, sem dó, er leið á hátíð- lega minningarathöfn í gömlu sóknarkirkjunni í Öxnadal hinn 12. október 1946? íslensk, þjóðleg uppreisnarvon, og er þá mikið sagt um leyndan hug svo gam- alkunnugs fólks kúgunarvaldi og fullreyndri yfirdrottnun sem íslendingar eru. Einhverjir kirkjugestanna áttu þá von, þeirra á meðal presturinn, að utan úr garðinum heyrðist nokkurt hark af járni við stein og ekki hóglega sleginni mold af reku. Stundin var svo andleg og endurminningin ljúf, en samfélagið svo löghlýðið, að jafnvel ólögmætar fyrirskipanir voru teknar gildar og staðlaus- um stöfum fylgt. Þegar tónskáldið hafði leikið síðustu hljómana, lyftu engir undir létta beinakistuna og báru út, af því að það var ekki opin gröf í kirkjugarðinum. Ým- ist gekk fólk innar og gerði kveðju krossmarksins yfir beinakistunni og þjóðfánanum eða fór rakleiðis fram og upp á hlaðið, einstaka kunnugur að gömlum leiðum foreldra og systra skáldsins. Brátt varð hljótt á staðnum og Þór Þor- steinsson kirkjuhaldari læsti tortryggilega eins og hinn fyrsta dag þessarar undarlegu viku á Bakka, þegar kistan var borin í kirkjuna. Sorg bjó í hjarta og söknuður í huga fólksins, þegar það týndist burt í átt af göngu- brúnni undan Auðnum, hjá samkomuhúsi sveitarinnar, þar sem hin veglega aldarártíð var hátíðleg haldin 3 misserum fyrr. Stoltarhæfi og virðingu eins kirkjugestanna var þó svo misboðið við þessa atburði, að lét fiytja sig heim, áður en Björgvin Guðmundsson gaf tón- inn að síðasta sálminum. Hér var dauðans tími óviss og að- stæðurnar mótsögn. Kveðju- sálmur fslendinga eftir formóð- urbróður listaskáldsins áttu ekki við þennan lægingardag í Öxnadal. Anna ljósmóðir á Þverá fór, áður en embætti var úti, af því að sýnt var, að ekki yrði fylgt úr kirkju og rekunum kastað við gröfina. Dagur kom að kvöldi og dimm haustnóttin lagðist yfir, kyrr og hljóð, ólík síðustu helgi, þegar hrakviðrið afvegaleiddi Sigurjón Pétursson, af því að kirkjuvegurinn var ófær. Svo var það í lýsingu morguninn eftir, sunnudaginn 13. október, að lögreglulið kemur heim að Bakka að sækja kistuna sam- kvæmt ráðherraskipun og með fógetavaldi. Engin hindrun var gerð. Seig svo hópurinn niður fyrir Bakkann og austur yfir á og lyfti kistunni á bflpall. Hörmuleg afmyndun þess, er gert var við Laufásveg 14 í Reykjavík, áður birti af degi viku fyrr. Nema að nú var engin gleði og von, enginn viðhafnar- hugur, aðeins skyldug forsögn og hlýðni. Þannig bar það að “þegar skáldið hvarf á braut” eins og frá var sagt í síðustu grein. Ríkisvaldið var komið á vettvang. Áður en fyrstu sólar- geislarnir höfðu vermt Hraun- dranga, höfðu embættismenn þess ekið vögnum sínum fram í Öxnadal “og hrifið kistuna úr kirkjunni, úr reit foreldra og ástvina. Hégóminn og tildurs- mennskan höfðu fengið sínum vilja framgengt. En heima í djúpum dali stendur ást dalbú- anna á Jónasi Hallgrímssyni dýpri rótum en áður. Minning hans er ósnortin af ömurleika þessara síðustu daga”: Vert er að vekja enn athygli á, að hvorki var skoðað í kist- una meðan hún stóð uppi í Bakkakirkju í fulla viku né að morgni sunnudagsins, áður en hún var numin úr kirkjunni og borin yfir Öxnadalsá og flutt burt. Er það raunar með ólík- indum, einkum af því að efa- semdarraddir tóku strax að heyrast, þegar kunnugt varð, að bein skáldsins væru komin til landsins. Lok kistunnar var alls ekki innsiglað. Hitt gat virst enn furðulegra, að ekki skyldi að hugað, þegar kistan var aft- ur heimt til Reykjavíkur, þar sem hún var geymd í 33 nætur, þangað til farið var með hana í Reykjavíkurdómkirkju á fæð- ingardegi skáldsins, hinn 16. nóvember, en síðar um daginn jarðsett í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum. Til þess nú, að allt væri sem hátíðlegast, talaði herra biskupinn í Reykjavík, en sjálfur forsætisráðherrann, Olafur Thors, var einn líkmann- anna austur á Þingvöllum. Þar sem ríkið kostaði útförina, var skylt, að sóknarpresturinn kastaði rekunum. Mjög þókti síra Hálfdani Helgasyni á Mos- felli það allt öndvert. Hann var einn nánasti vinur föður míns ævilangt, og sóknarprestur Sig- urjóns á Álafossi alla sína löngu þjónustutíð. En nú voru það ekki orðin gömlu og dönsku eins og í Hjástoðarkirkjugarðin- um 31. maí 1845: “Til jord skal du igen blive,” heldur: “Sáð er jarðneskum líkama, en upp rís andlegur líkami.” Engin tilkynning var gefin um athugun beina Jónasar Hallgrímssonar. Vakti það furðu, en sú skýring fékk brátt vængi, sem von mátti vera, að frá litlu hefði verið að segja og hæfði því þögnin best, enda engar líkur til að málið kyrrðist eða gleymdist, ef opinbert yrði, að mikils væri vant af líkams- beinum skáldsins, jafnvel með öllu eða væri annars leifar. Verður að telja sennileg reynsluhyggindi fyrrverandi lögreglustjóra Hermanns Jón- assonar í Þingvallanefnd, að ekki væri hreyft við kistunni. Eftirgrennslan þess, sem á vantaði, var óumræðileg útmál- un á smánarblettinum, sem fé- lög náttúrufræðinga og rithöf- unda höfðu lýst yfir, að beina- málið væri þegar orðið, meðan kistan var enn í Bakkakirkju. Annar uppgröftur í Kaupinhöfn var auðmýkjandi fyrir íslend- inga, þar sem þjóðminjavörður þeirra hafði staðið samkvæmt opinberum, löggegnum leyfum. Aleinasta leit að leggnum, sem ætlandi er, að Sigurjón Péturs- son hafi tekið úr kistunni, frek- ar en ekki, um nótt á Möðruvöl- um, yrði til að ýfa und. Auk þess mun hinum nýja meiri- hluta í Þingvallanefnd, Her- manni og Stefáni Jóhanni Stef- ánssyni, hafa verið sárt um, að beinið, sem brotnaði í stiganum í Sankti Pétursstræti 22 rúmri öld fyrr, væri hulið fósturjarðar- mold á Bakka í Öxnadal. Andi listaskáldsins góða var ódauð- legur jafnt fyrir því, að höfuð og brjóst hins jarðneska lægi í danskri jörð og brotið leggjar- bein manns, sem aldrei átti auðvelt um gang, norður á Bakka. Leggurinn einn hefði verið táknleg nægð í þjóðar- grafreitinn. Hver veit nema svo hafi verið. Þannig eru lyktir beinamáls- ins sagðar - og svæfðar út í frá. En heima í djúpum dali var þetta rætt enn og aftur mörg hin næstu árin. Af þeim létt- leika, jafnvel nokkrum fegin- leik, ef þeir, sem meir vissu gleymdu sér í gleði augnabliks- ins, er hlaut að benda til ann- ars sannleika. Svo vel var hans gætt, að aldrei var hann aijúp- aður, aðeins styrktist grunurinn um, að skáldið hafi ekki horfið burt, líkamsleifarnar, sem Sig- urjón Pétursson kom með norð- ur í óveðrinu hið minnilega októberkvöld fyrir 50 árum. Ein sagan, sem ýmsir lögðu trúnað á, var sú, að beinakist- an, sem dr. Matthías Þórðarson lagði beinin í við uppgröftinn, hafi þeir Sigurjón og Asmundur J. Steenstrup prófessor, áður mýrafræðingur og lektor í Sórey á Sjálandi. Vinur og velgerðarmaður Jónasar skálds, sem dvaldi lang- dvölum hjá nonum í Sórey. Eftir það fór hann í Skt. Pétursstræti og lét jafnt og laust undan síga. - Jónas kvað hafa verið einstaklega lélegur göngumaður, allt frá bernsku. Þessvegna e.t.v. brotnaði hann í hinum prýðilega gerða stiga. skáld frá Skúfsstöðum, lagt óhreyfða í kistuna á Laufásvegi 14. Var það raunar með öllum líkindum, ella hefði Sigurjón komist að því hve mikils beina var vant. Kassann hafi Sigurjón tekið úr kistunni í haustmyrkr- inu og rigningunni hjá sam- komuhúsinu á Þverá og hulið þar til bráðabirgða norðan við vegarslóðann að göngubrúnni, en þar er nú Jónasarlundur, fallegur minningarreitur. Þegar allt hafi verið orðið kyrrt og kistan flutt suður heiðar, hvað, í Bakkakirkju stóð steinkistan í fulla viku (6.-13. okt.). Var til þess ætlast, að við aðhefðumst nokkuð eða gerðum ekkert? Á.S.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.