Dagur - Tíminn Akureyri - 01.03.1997, Qupperneq 7

Dagur - Tíminn Akureyri - 01.03.1997, Qupperneq 7
Jlagur-'ðSmímt Laugardagur 1. mars 1997 - VII MINNINGARGREINAR Séra Guðmimdur Sveinsson Séra Guðmundur Sveinsson fæddist í Reykjavík 28. aprfl 1921. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli í Reykjavík 16. febrúar síðastUð- inn. Foreldrar hans voru Sveinn Óskar Guðmundsson múrara- meistari í Reykjavík, f. 5.11. 1895, d. 13.11 1973, og Þórfríð- ur Jónsdóttir húsmóðir, f. 26.4.1895, d. 20.12 1973. Systir sr. Guðmundar er Guðrún Sveinsdóttir kennari, f. 23.7.1927. Maður hennar var Magnús Bæringur Kristinsson skólastjóri Kópavogsskóla, f. 9.10.1923, d. 21.7.1995, og eiga þau fímin uppkomin hörn. Hinn 15.4. 1944 kvæntist sr. Guðmundur Guðlaugu Einars- dóttur, f. 3.5.1918, dóttur Ein- ars Jónssonar kennara og verk- stjóra í Reykjavík, f. 21.4.1885, d. 29.7.1969, og Guðbjargar Kristjánsdóttur, f. 12.1.1888, d. 1.9.1979. Dætur sr. Guðmundar og Guðlaugar eru Guðbjörg, f. 18.2.1943, ritari í Reykjavík, gift Ólafi Péturssyni forstöðu- manni mengunarvarna og eiga þau tvö börn, Guðlaugu Rafns- dóttur og Ólaf Pétur Ólafsson, og tvö barnabörn; Þórfríður, f. 28.9.1944, skólastjóri á Hvann- eyri, gift Gísla Jónssyni kenn- ara og eiga þau þrjár dætur, Guðlaugu Ósk, Karen Rut og Guðbjörgu Brá, og eitt barna- barn; Guðlaug Guðmundsdóttir, f. 22.5.1952, skrifstofumaður í Reykjavík, gift Steinþóri Guð- bjartssyni blaðamanni og eiga þau þrjú börn, Guðmund Þórð- arson, Svein Óskar Þórðarson og Guðrúnu Steinþórsdóttur. Sr. Guðmundur lauk stúd- entsprófi frá MR 1941, embætt- isprófi í guðfræði við HÍ 1945, stundaði framhaldsnám í gamlatestamentisfræðum við háskólann í Kaupmannahöfn 1948-1950, lauk prófi í hebr- esku 1949, stundaði framhalds- nám í semítamálum og gamlatestamentisfærðum við háskólann í Lundi og lauk það- an fil.cand. prófi 1951. Hann vann að fræðslustörfum við há- skólann í Kaupmannahöfn 1953-54, nam nútímahebresku í London 1959-60, kynnti sér rekstur samvinnuskóla á Norð- urlöndum, í Þýskalandi og á Englandi sumarið 1955 og fór m.a. í náms- og kynnisferðir til Sviss 1956, Bandarflcjanna 1963 og 1974, og til Norðurlanda, Þýskalands og Bretlands 1974. Sr. Guðmundur var sóknar- prestur í Hestþingum 1945-56. Hann var stundakennari við Kl 1943-45, stundakennari við Bændaskólann á Hvanneyri 1945-48, 1952-53 og 1954-55, kenndi guðfræði við HÍ 1952 og 1954, var skólastjóri Samvinnu- skólans í Bifröst 1955-74, skólastjóri Bréfaskóla SÍS 1960- 1974 og skólameistari Fjöl- brautaskólans í Breiðholti 1974-1988. Sr. Guðmundur var um árabil í norrænni nefnd sem vann að samræmingu verslunaraskóla- menntunar á Norðurlöndum, var formðaur nefndar sem samdi heildarfrumvarp um full- orðinsfræðslu 1971-74, sat í nefnd er gerði tillögur um skip- an íjölbrautaskóla í Reykjavík 1973, sat í námskrárnefnd Fjöl- brautaskólans í Breiðholti frá 1978, formaður Sundlaugar- nefndar Breiðholts 1980 og í starfshópi á veguin mennta- málaráðuneytisins 1981 sem vann að samræmingu náms í frainhaldsskólum með áfanga- kerfi. Sr. Guðmundur var ritstjóri Samvinnunnar 1959-1963. Hann skrifaði Ijölda greina og ritgerða um guðfræðileg, trúar- leg og menningarleg málefni. Helstu rit: Islam, menningar- sögurit, 1956 (íjölr.). Menning- arsaga I-IV, 1960-68 (fjölr.). Persónusaga I-III, 1968-70 (Qölr.). Samtíðarsaga I-II, 1979- 80 (Qölr.). Trú og guðfræði, 1970. Dönsk málfræði, 1968 og 1970 (Qölr.). Menningarsaga: Fjarlægari Austurlönd, Sinolog- ia, 1968 (fjölr.). Sama: Indland, Hindúar, 1968 (íjölr.). Mannleg samskipti, 1971 (Qölr.). Sam- vinnusaga, 1971 (fjölr.). Samtíð- arsaga, 1981 (fjölr.). Forsendur vestrænnar menningar, 1983 (fjölr.). Við fráfall séra Guðmundar Sveinssonar, skólameistara, er horfinn af sjónarsviðinu einn merkasti skólamaður samtíðar- innar. Hans er sárlega saknað af ástvinum og öðrum samferða- mönnum, sem áttu því láni að fagna að kynnast honum á langri vegferð. Örlagadísirnar voru sérstak- lega gjafmildar í garð Guðmund- ar og gáfu honum í vöggugjöf margbrotnar gáfur og hæfileika, sem einstætt má teljast. Ef litið er yfir ævistarf hans kemur glöggt í Ijós hversu mikill af- burðamaður hér var á ferð og hve víða spor hans lágu en vafa- laust verður hans minnst fyrst og fremst fyrir þátt hans við mótun íslenska skólakerfisins. Vert er að skipta æviskeiði Guðmundar í þrjá meginþætti, sem hver og einn er afskaplega sérstæður. Fyrsta þátt í ævi Guð- mundar má rekja fram að þeim tíma, sem hann lét af störfum sem sóknarprestur á Hvanneyri. Annar þáttur spannar einstæðan feril í nær tuttugu ár sem skóla- stjóri á Bifröst og þriðja og síð- asta æviskeið Guðmundar hefst þegar hann tekur við skólastjórn Fjölbrautarskólans í Breiðholti á árinu 1974. Ljóst var strax í upphafi að hugur Guðmundar lá til lang- skólanáms og að loknu stúdents- prófi hóf Guðmundur nám í guð- fræði við Háskóla íslands. Að guðfræðiprófi loknu gerðist Guð- mundur sóknarprestur á Hvann- eyrarprestakalli þar sem hann dvaldi með hléum vegna fram- haldsnáms erlendis allt til ársins 1956. Mér er vel kunnugt um það að Guðmundur var vinsæll af sóknarbörnum sínum og fór það ekki framhjá Borgarfirðing- um að Hvanneyrarprestakall hafði eignast sem prest og sálu- sorgara einstakan gáfu- og drengskaparmann. Þó nú séu rúmlega 40 ár síðan Guðmundur hætti prestsstörfum á Hvanneyri er hann enn minnisstæður í hug- um sóknarbarna sinna enda átti hann þar fjölmarga vini og kunningja, sem minnast hans með hlýhug og vináttu. Þrátt fyr- ir annasöm prestsstörf á Hvann- eyri gat þó Guðmundur stundað framhaldsnám í guðfræði í Kaupmannahöfn og Lundi. Hann hafði fullan hug á frekari fram- haldsnámi og hafði á árinu 1955 fengið heimild ráðherra og bisk- ups til að dvelja erlendis í allt að þrjú ár til að ljúka allviðamiklu vísindaveiki í Gamla testament- isfræðum sem þá var í smíðum. Örlögin höguðu þó því að Guð- mundur var kallaður til að taka við starfi skólastjóra Samvinnu- skólans og sjá uin flutning skóla- starfseminnar að Bifröst í Borg- arfirði svo og að skipuleggja skólann á nýjum forsendum sem heimavistarskóla og framhalds- skóla á sviði viðskiptamenntun- ar. Sem fyrirmynd að Samvinnu- skólanum á Bifröst leitaði Guð- mundur aðallega til Norður- landa, einkum til Svíþjóðar og Danmerkur. Tillögur og ábend- ingar Guðmundar beindust fyrst og fremst að því að starfrækja verslunarskóla, sem byði fram mikið bóknám ásamt raungrein- um viðskiptalífsins og að stofna til nýrrar skólategundar sem legði áherslu á uppeldis- og heimilisþátt skólastarfsins auk þess sem lögð yrði rækt við fé- lagslegan og menningarlegan þátt í skólastarfinu. Hugmyndir Guðmundar fengu góðar undir- tektir og teningnum var kastað. Samvinnuskóhnn að Bifröst hóf skólastarf haustið 1955 og þar með hófst farsæll ferill Guð- mundar sem skólafrömuðar. Undirritaður átti þess kost að njóta leiðsagnar Guðmundar á Bifröst og síðar sem samkennari hans við skólann. Öllum Bifrest- ingum var Guðmundur einstakur persónuleiki og uppaiandi. En minnisstæðastur var hann nem- endum sem góður kennari enda var Guðmundur vel til þess fall- inn að fást við kennslu. Hans að- alfag var menningarsaga, sem var í senn kennsla í menningu, listum og heimspeki. Vinsældir Samvinnuskólans á Bifröst létu ekki á sér standa og fór orðspor skólans víða. Flykktust í skólann nemendur víðs vegar af landinu og komust færri að en vildu. Að því hlaut að koma að hróður Guðmundar sem skólastjóra vekti athygli stjórnvalda því að hér var um afburðamann að ræða á sviði mennta- og skóla- mála. Var Guðmundi m.a. falin formennska í nefnd sem gerði tillögur um skipan Fjölbrautar- skóla í Reykjavík. Enn var Guð- mundur kallaður til frekari starfa og átaka á sviði mennta- mála. Eftir nær tveggja áratuga starf yfirgaf Guðmundur Sam- vinnuskólann að Bifröst vorið 1974 til að taka við starfi skóla- meistara fjölmennasta skóla fandsins, Fjölbrautarskólans í Breiðholti. Stofnun Fjöfbrautaskólans í Breiðholti var algjör bylting á sviði menntamála á fslandi og vann Guðmundur einstakt braut- ryðjendaverk á því sviði. Var honum mikið kappsmál að allur undirbúningur varðandi stofnun skólans yrði sem vandaðastur og feitaði hann sér fanga og reynslu víða um lönd. Leið ekki á löngu þar til Fjölbrautaskólinn í Breið- holti varð stærsta skólastofnun landsins. Metnaður Guðmundar lá ekki síst í því að geta boðið nemendum upp á Ijölbreytt og vandað námsefni á margvísleg- um sviðum. Þá vann Guðmundur mikið verk að koma á öldunga- deild við skólann, sem brátt varð mjög vinsæl af nemendum. Þótt Guðmundur hafi bæði hafl góða þekkingu á menntamálum og áratuga reynslu sem skólastjórn- andi var þó fljótlega ljóst að hið mikla brautryðjendaverk hjá Fjölbrautaskólanum í Breiðliolti var erfitt enda viðfangsefnið bæði tröllaukið að stærð og um- fangi. En Guðmundur var ekki þannig skapi farinn að gefast upp a miðri leið og tókst honum ásamt góðri hjálp samverka- manna sinna að auka veg skól- ans þannig að hann varð fljót- lega bæði eftirsóttur af nemend- um og kennurum. Guðmundur lét síðan af starfi skólameistara árið 1988 og kom bæði til að hann var nú kominn á almennan eftirlaunaaldur, en auk þess hafði hann síðustu mánuðina átt við alvarleg veikindi að stríða. Guðmundur Sveinsson var gæfumaður í sínu einkalífi. Hann kvæntist ungur glæsilegri konu, Guðlaugu Einarsdóttur, og eign- uðust þau þrjár mannvænlegar dætur. Samband þeirra hjóna var einstakt í alla staði enda stóð Guðlaug samhliða manni sínum og veitti honum mikinn stuðning og skjól í störfum hans. Er nú mikill harmur kveðinn meðal nánustu vandamanna Guðmund- ar. Við Kristín sendum Guðlaugu, dætrunum og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Það er huggun harmi gegn að minningin um góðan dreng mun þó lifa meðal samferðamanna hans um ókomna framtíð. Blessuð sé minning Guðmundar Sveinssonar. Kristín og Hrafn Magnússon Með sr. Guðmundi Sveinssyni er genginn merkur frumkvöðull á sviði fræðslumála. Hann var brautryðjandi nýrrar framhalds- skólastefnu og sem skólastjóri mótaði hann starfsemina með sterkum persónuleika sínum. Nemendur hans þakka honum mótandi uppeldisáhrif, varan- lega örvun og h'fsstefnu sem hef- ur greitt leið þeirra til farsældar. Sr. Guðmundi var falið að gróðursetja Samvinnuskólann í nýju umhverfi á Bifröst í Norður- árdal. Þar skópu þau hjónin, Guðlaug Einarsdóttir og sr. Guð- mundur, einhverja sérstæðustu uppeldis- og menningarstofnun landsins á sinni tíð. Verka þeirra á þeim vettvangi sér ennþá stað víða í íslensku atvinnulífi og menningu. Margir forystumenn í íslensku þjóðlífi minnast sr. Guð- mundar með þakklæti og virð- ingu fyrir uppeldi, fræðslu og forsjá á viðkvæmu mótunar- skeiði þeirra sjálfra. Seinna gerðist sr. Guðntundur einn fremsti frumkvöðull þeirrar menningarbyltingar sem upp- bygging framhaldsskólanna varð á 8. og 9. áratug aldarinnar. í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í Reykjavík skóp hann forystu- stofnun sem að sumu leyti skar sig úr hópi fjölbrautaskólanna í landinu. Einnig þar mótaði sr. Guðmundur stofnunina með mætti frumlegrar hugsunar og heildstæðrar skipulagsstefnu. Við hlið mikilla anna við stjórnunarstörfm vann sr. Guð- mundur að fræðastörfum, bók- leslri og áhugagrúski. Hann var leitandi hugur og síspurull um rök tilverunnar. Hann leitaði víða fanga enda mikill tungu- málamaður. Hann hafði forðum starfað sem sóknarprestur og guðfræðin leitaði jafnan á hann. En hann hneigðist líka að heim- speki og félagsfræði, og menn- ingarsagan varð kjörsvið hans. Um menningarsögu ritaði hann nokkrar kennslubækur og var rómaður kennari á því sviði, bæði á Bifröst og í Breiðholti. Sr. Guðmundur var kappsfull- ur áhugamaður um það sem hann tók sér fyrir hendur, enda skilaði hann drjúgu dagsverki. Hann lagði sig allan í verkið og helgaði sig því að öllu leyti. Þá hirti hann ekki alltaf um vinnu- tímann og hlífði sjálfum sér aldrei við erfiði eða óþægindum. Hann var mjög örlátur og gjöfull á tíma sinn og á sjálfan sig, eink- um í samskiptum við ungt fólk sem var að þroskast undir verndarvæng hans. Nemendur hans á Bifröst ylja sér enn við margar sögur af ósérhlífni hans og hita og metnaði fyrir þeirra hönd. Sr. Guðmundur Sveinsson varð velgjörðamaður rnargra og þau minnast hans í dag. Sá sem þessi orð skrifar er í þessum fjöl- menna hópi. Sr. Guðmundur átti m.a. þátt í því að við hjónin tók- um að okkur störf á Bifröst Iöngu eftir að þau Guðlaug hurfu þaðan. Hann hvatti mig á allar lundir, m.a. í því að raska mjög þeirri menningarstofnun sem hann sjálfur hafði áður skapað. Hann skynjaði og skildi glöggt að hverju fór í íslenskum háskóla- málum og hafði enn fullan metn- að fyrir hönd skólans á Biíröst. Og ég á honum ekki síður þakkir að gjalda fyrir forsjá og leiðsögn innan Frímúrarareglunnar. Ég heimsótti sr. Guðmund fyr- ir nokkru þar sem hann dvaldist á hjúkrunarstofnun. Þegar ég spurði hann hve lengi hann yrði þarna, svaraði hann hiklaust: “Dauðinn einn mun brátt skera úr um það.” Hann vissi að dauð- inn er dyrnar inn og upp, og trú hans var sterk. Hann átti góða heimvon. Við Sigrún sendum Guðlaugu og afkomendum inni- legar kveðjur með þakklæti og virðingu. Jón Sigurðsson Minningargreinar Minningargreinar birtast aðeins í laugardagsblöðum Dags-Tímans. Þær þurfa að berast á tölvudiskum eða vélritaðar. Myndir af þeim sem skrifað er um þurfa að berast með greinunum. Sendist merkt Dagur-Tíminn Strandgötu 31, 600 Akurevri Garðarsbraut 7, 640 Húsavik Brautarholti 1, i05 Reykjavik

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.