Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Blaðsíða 4
4 - Laugardagur 8. mars 1997
3Dítgitr-(Emtám
Rafvirki óskast
Snarvirki ehf. á Þórshöfn vantar rafvirkja nú þegar.
Mikil vinna og góð laun.
Staðgengilsréttindi æskileg.
Uppl. í síma 471 1608, Magnús, símboði 845 5935,
Unnar Heimir.
Félag járniðnaðarmanna
Auglýsing um kjörskrá
Kjðrskrá Félags járniðnaðarmanna vegna atkvæða-
greiðslu um verkfall, liggur frammi á skrifstofu félagsins
frá 10. mars 1997.
Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér hvort þeir
séu á kjörskrá og njóti atkvæðisréttar.
Kærufrestur er til loka kjörfundar, sem auglýstur verður
síðar.
Kjörstjórn
Félags járniðnaðarmanna.
, Menntamálaráðuneytið
Styrkir til náms og rann-
sókna í Rússlandi
Stjórnvöld í Rússlandi bjóða fram tvo styrki handa
íslendingum til háskólanáms og einn til vísindalegs
sérnáms í Rússlandi á námsárinu 1997-98.
Umsækjendur um styrki til háskólanáms skulu að öðru
jöfnu vera yngri en 27 ára og umsækjendur um styrki til
vísindalegs sérnáms skulu vera yngri en 35 ára og
hafa lokið MA- eða MS-prófi. Styrkirnir nema 83.490
rúblum á mánuði, sem eru lágmarkslaun í landinu. Að
auki verður styrkþegum séð fyrir herbergi á stúdenta-
garði, sem þeir greiða fyrir sömu leigu og rússneskir
stúdentar. Styrkþegar greiða sjálfir allan ferðakostnað.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í
menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykja-
vík. Umsóknum fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt
meðmælum og læknisvottorði. Umsóknarfrestur er til 7.
apríl nk.
Menntamálaráðuneytið,
6. mars 1997.
HAFNASAMLAG NORÐURLANDS
Útboð
Aðstaða vegna farþegabryggju á Akureyri.
Hafnasamlag Norðurlands óskar eftir tllboðum í
dýpkun, byggingu grjótgarðs og landveggs fyrir
farþegabryggju við Torfunef á Akureyri. í verkinu er
innifaiið að vinna og flokka grjót f Krossanesnámu,
aka því að garðstæðinu og byggja grjótgarð.
Efnismagn í garðinn er áætlað 1900 rúmmetrar. Dýpka
skal innan garðs í -3,0 m. Ails um 3600 rúmmetra efn-
islosun vegna dýpkunar er í garð og við núverandi fyll-
ingu í Krossanesi.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 10. maí 1997.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hafnasamlags
Norðurlands, Oddeyrarskála við Strandgötu á Akureyri
frá og með mánudeginum 10. mars 1997 gegn 5.000
kr. greiðslu.
Tilboð verða opnuð á sama stað mánudaginn 24. mars
1997 kl. 11.
Hafnarstjóri.
F R E T T I R
Kópavogur
Urgur út af áfengissölu
Listakaup, umboðsaðili Quelle-vörulistans, mun annast um áfengissölu í Kópavogi.
Þegar Ijósmyndari var þar á ferð í vikunni, var ekkert farið að gerast innanhúss í
innréttingamálum, en útsalan á að opna fyrir mánaðamótin. Myn&E.ó,.
istakaup hf. - Qu-
elle-vörulistinn,
ráðgerir að opna
fyrstu áfengisútsölu
Kópavogs undir lok
þessa mánaðar í strjál-
býlinu austast í bænum,
þar sem rísa mun mið-
bæjarkjarni á komandi
árum. Mikil óánægja
ríkir í bænum með
þessa tilhögun, fyrir-
tækið þykir afskekkt.
Hulda Finnbogadóttir
sem sóttist eftir leyfi til
starfrækslu vínbúðar í
Hamraborg, aðalvið-
skiptakjarna Kópavogs,
hefur kært útboðið til
kærunefndar útboðs-
mála. Hún telur að út-
boð Ríkiskaupa hafi
verið gallað. Varafor-
maður þeirrar nefndar,
Skarphéðinn Þórisson
hæstaréttarlögmaður,
sagði í samtali við blaðið að úr-
skurðar væri að vænta seint í
næstu viku.
Talsmaður Listakaups, Ólafur
Sveinsson, segir kæru Huldu
Finnbogadóttur engu máli
skipta, útsalan verði opnuð á
næstunni. Aðspurður um álit að-
allögmanns dómstóls ESB á
skipulagi áfengismála á Islandi
segir hann að það brcyti ekki
neinu. Lögmaður Evrópudóm-
stólsins hefur sagt að hann telji
að þegar við undirritun samn-
ings um Evrópska efnahagssvæð-
ið hefði átt að loka fyrir ríkisein-
okun á áfengisverslun á Norður-
löndum, þar á meðal á Islandi.
Formaður nefndarinnar, Páll
Sigurðsson lagaprófessor, tekur
ekki þátt í úrskurðinum, segist
vanhæfur vegna tengsla við
Höskuld Jónsson, forstjóra
ÁTVR.
Veitingarekstur
Ljóst að ýmislegt
mætti betur fara
Afkoma veitingahúsa og
gistihúsa hefur verið svo
erfið, nokkuð mörg und-
anfarin ár, að eigendur þeirra
hafa gripið til allra mögulegra
ráðstafana til að draga úr
kostnaði, sagði Erna Hauks-
dóttir, framkvæmdastjóri Sam-
bands veitinga- og gistihúsa. En
leitað var skýringa hennar á
þeim mikla samdrætti í þessum
greinum sem lesinn verður úr
Átvinnuvegaskýrslum Hagstof-
unnar. „Innkoman á þessum
stöðum fer að langmestu leyti í
hráefni og vinnulaun. íslensk
veitingahús eru að borga eitt
hæsta búvöruverð í heimi og
áfengisgjald á íslandi, sérstak-
lega á léttvín og bjór, er langt
fyrir ofan það sem þekkist í
öðrum löndum. Og þegar launin
eru hátt í 40% af veltunni þá er
vitanlega reynt að skera þar
niður eins og mögulegt er.“
- Samt virðast alltaf ótal
margir til í að spreyta sig í
greininni?
„Já, menn eru að leggja al-
eiguna að veði til að kaupa
staði sem aðrir hafa gefist upp
á að reka, jafnvel fagmenn sem
hafa unnið við þetta meginhluta
sólarhringsins. Samt er alltaf til
nóg af fólki sem telur sig geta
gert betur; það hljóti að vera
hægt að reka þetta. Og auðvitað
ganga sumir staðir vel. Veit-
ingarekstur er samt almennt
mjög erfiður og viðkvæmur. Og
álagning á mat mjög lág, því
samkeppnin leyfir ekki annað.
Enda hafa margir farið illa út
úr þessu.
- Oft heyrast hka raddir um
vaxandi „svarta“ starfsemi?
„Því verða auðvitað stjórn-
völd að svara. Það er búið að
ýja að þessu í áratugi, að það sé
gífurleg svört sala í veit-
ingarekstri.
Við höfum árum saman beð-
ið um þokkalegt eftirlit í þess-
um málum. Við getum auðvitað
ekki lagt fram
neinar sannanir
fyrir því hvernig
hlutirnir eru, en
það er samt öllum
ljóst að ýmislegt
mætti betur fara.
Það er stjórnvöld-
um líka ljóst, og
þarna fer ríkis-
kassinn á mis við
afskaplega mikið.
Að breyta þessu er
vitaskuld einungis á færi yfir-
valda, en þeim virðist óskap-
lega erfitt að koma einhverjum
böndum á þetta,“ sagði Erna
Hauksdóttir. - HEI
Reykjavík
Mikillfjöldi
árekstra
venjumikið var um árekstra
í Reykjavík í gær. Um
klukkan 17.00 var búið að til-
kynna 17 óhöpp og þar af eina
bflveltu í Kjós, þar sem öku-
maður slasaðist. Um miðjan
dag í gær varð þriggja bfla
árekstur á Kringlumýrarbraut
við Fossvog sem lamaði umferð
um hríð. Einn maður slasaðist,
en ekki alvarlega. Akstursskil-
yrði voru slæm í Reykjavík í
gær, þó nokkur snjór og slæmt
skyggni. BÞ
Atvinna
29 ára gamall, fjölhæfur maður óskar eftir framtíð-
arvinnu.
Hálfur byggingariðnfræðingur og heill hönnuður.
Mikil reynsla í teikni- og tölvuvinnu. Einnig nokkur
reynsla af tré- og málmsmíði og ýmsu handverki. Ýmis
vinna kemur til greina.
Hafið samband í síma 462 1030
Erna Hauksdóttir
frkvstj. Samb. veitinga- „ Við höfum í ára- raðir heðið um þokkalegt eflirlit í þessum málum. “ og gistihúsa | ' ' fl S jðSgSj