Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Page 1

Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Page 1
LIFIÐ I LANDINU Laugardagur 8. mars 1997 - 80. og 81. árgangur - 47. tölublað Blod KNATTSPYRNUMAÐUR AFGUÐSNÁÐ Bjarni Guðjónsson, 18 ára framherji á Akra- nesi, hefur verið í heimsóknum hjá knatt- spyrnuliðum í Bretlandi, Þýskalandi og á Spáni undan- farna mánuði. Bjarni fer til Glasgow og Leeds á þriðju- daginn og vonast til að fljót- lega liggi fyrir niðurstaða um atvinnumennsku eða ekki. Ef samningar takast fer Bjarni utan með kærustu sinni, Margréti Valsdóttur, og mömmu. Bjarni og Margrét ætla að byrja að búa saman og mamma Bjarna ætlar að hjálpa þeim að koma sér fyr- ir og fóta sig í nýja landinu. Athygli vakti þegar Bjarni og faðir hans, Guðjón Þórðar- son, lentu í átökum í New- castle í fyrra. Guðjón hefur þegar sagt frá því opinber- lega en Bjarni vill lítið ræða um málið. Hann segir: „Tím- inn læknar öll sár. Við verð- um að bíða og sjá.“ -GHS - sjá viðtal við Bjarna Guðjónsson á bls. 22. Mynd: GS MENN VIKUNNAR S Isjávarháskanum austur við Þjórsárósa sýndu og sönnuðu þyrlu- flugmenn Landhelgisgæslunnar hvers þeir og þyrlan TF-LÍF er megnug. „Þyrlan reyndist frábærlega," segir Hermann Sigurðsson, flugmaður, og bætir við: „Við vorum með hugann hjá félögum okkar á varðskipinu.“ Gifta fylgir störfum áhafnar þyrlunnar sem vann mikið þrekvirki og drýgði mikla hetjudáð með að bjarga nítján mönnum við erfiðar aðstæður. Menn vikunnar eru sjálfkjörnir. Mynd: GHS Mynd: GS „SKEPNU- SKAPUR" Kynferðislegt ofbeldi gegn dýrum viðgengst í öllum samfélögum, segir breski af- brotafræðingurinn Piers Beirne. Hann segir fyrirbrigðið tengjast öðru ofbeldi í samfélaginu og þótt það hafl ekki farið hátt í opinberri umræðu viti menn alla jafna um tilvist þessa „skepnuskapar“. Sjá bls. 17.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.