Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Blaðsíða 3

Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Blaðsíða 3
. _YTR> . nr JJagur-®bn&m Laugardagur 8. mars 1997 -15 Hinn fullkomni samruni Daníel Þorsteinsson, píanóleikari, og Sigurður Halldórsson, sellóleikari. Beethovenaðdáendur ættu ekki að láta tónleika þeirra Daníels Þor- steinssonar, píanóleikara, og Sig- urður Halldórsson, sellóleikara, fram hjá sér fara. Fluttar verða fimm sónötur og þrenn tilbrigði fyrir píanó og er um heildarflutning á verkum tónskáldsins fyrir þessi hljóðfæri að ræða. „Eitt tilbrigðið er við stef eftir Hándel en hin tvö eru við sitt hvort stefið úr Töfraflautu Mozarts. Tilbrigðin bera Beethoven mjög sterkt vitni en samt setur hann stundum upp hatt hinna. Þannig heyrir maður í Mozart í tilbrigðunum við stef- in úr Töfraflautunni en þau eru samt eftir Beethoven. Þetta er mjög skemmtileg blanda,“ segir Daníel aðspurður um verkin sem flutt verða á tónleikunum. Sónöturnar fimm segir Daníel að skipta megi í þrennt. Fyrstu tvær skrifi Beethoven á sínum yngri árum og þær geri miklar kröfur til píanóleikarans. I seinni sónötunum skapist síðan meira jafnvægi milli hljóðfæðranna. „í tveimur síðustu sónötunum verður hinn full- komni samruni hljóðfæranna. Þá er Be- ethoven orðin heyrnarlaus og því með ólíkindum að honum hafi tekist þetta svona vel.“ Krefjandi flutningur Flutningur þessara verka tekur alls þrjár klukkustundir en þeir Daníel og Sigurður skipta verkunum niður á tvenna tónleika. „Það er bæði til að ofgera ekki áhorfendum og kannski ekki síður til að ofgera ekki okkur sjálfum. Þetta er mjög kreljandi flutningur. Tónlistin er svo kyngimögnuð og í henni mikill innri kraftur sem bæði gefur mik- ið en tekur líka frá manni í flutningi. Þannig að það er engum greiði gerður með því að flytja þetta allt í einu,“ segir Daníel. - Eiga þessi hljóðfæri vel saman? „Já, mjög vel. Sellóið er það kraftmik- ið að píanóið þarf ekki að gefa mikið eft- ir. Það er hægt að nota kraftinn í píanó- inu nokkuð óhikað á móti sellóinu sem er töluvert öðruvísi en þegar spilað er t.d. með flautu eða jafnvel með fiðlu." Tónleikarnir um helgina fara fram í Gerðurbergi í Reykjavík klukkan 17 á sunnudag. Seinni tónleikarnir verða síð- an á sama stað í apríl. AI I tveimur síðustu sónötunum verður hinn fullkomni sam- runi hljóðfœranna. Pá er Beethoven orð- in heyrnarlaus og því með ólíkindum að honum hafi tekist þetta svona vel. Hafdís Jósteinsdóttir með ömmudrenginn Jón Þór við útigrillið í skotinu milli skaflanna. að er satt að segja dálítið undarleg upplifun, ef ekki beinlínis einstök tilfinn- ing, að paufast í myrkri á milli himinhárra skafla sem hálfhylja húsin í kring og finna allt í einu leggja að vitum sér í gegnum kófið ómengaðan ilm af lamba- kjöti snarkandi á útigrilli. Grill- lyktin er eins og fjarlæg angan frá ókomnu sumri. Þessa einstöku tilfinningu upplifði blaðamaður Dags-Tím- ans eitt snjóþungt vetrarkvöldið á Húsavík. Og eins og gáttaþef- um er gjarnt rann hann á lykt- ina sem barst yfir skaflana, í gegnum snjógöng sem lágu nið- ur að húsi Sigurðar Þórarins- sonar og Hafdísar Jósteinsdótt- ir. í skoti við útidyrnar, þar sem skaflar og húsveggir mynduð skjól, stóð Hafdís og grillaði dýrlegar hryggsneiðar frá að sjálfsögðu Kaupfélagi Þingey- inga og naut góðrar aðstoðar sonarsonar síns, Jóns Þórs Sig- mundssonar. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Hafdís grillar úti í vetur en ekki áður í svona miklum sköfl- um. En hún segir það engu máli skipta, aðalatriðið sé að hafa skjól. Og hún fullyrðir að kjötið só jafnvel enn ljúffengara grill- að úti í stórhríð en í glampandi sumarsól. „Þetta er frábær leið til að koma sér í sumarskap þegar skaflarnir hylja alla glugga og menn eru orðnir þreyttir á því að moka sig út á morgnana og inn á kvöldin“ sagði Hafdís Jósteinsdóttir. Og hefur lög að mæla. Og eiginlega furðulegt að fleiri íbúar á snjó- þyngslasvæðum fari ekki að dæmi hennar. Sólarlandaferðir á vetri gegna auðvitað fyrst og fremst því hlutverki að slá á söknuð íslendinga eftir sumri og sól. En hvers vegna ekki að sleppa sólarlandaferðinni, drífa sig út í skafl með grillið, skutla lærissneiðunum á og upplifa þannig sumarið, sólina og úti- leguna, allt í einum pakka? Það er a.m.k. ódýrara en utanlands- ferðin. js Grillað á milli skaflanna Frá degi Tónlistarskólans á Laugum í Reykjadal. Kristrún Kristjánsdóttir við píanóið og Hanna Þórsteinsdóttir leggur fiðluna að vanga sér. Mynd: Runólfur Eentínusson. Laugaþrestir syngja hátt og snjallt Dagur tónlistarskólanna var um síðustu helgi. Víða um land buðu tón- listarskólar gestum og gangandi til að kynna sér hvað þar er að gerast - og víða var fjölmenni. Hápunkturinn hjá Tónlistarskóla á Laugum í Reykjadal var söngur barna- kórsins Laugaþrasta, sem Björn S. Þórarinsson, skólastjóri, stjórnar. Alls 25 börn eru í kórnum, sem getið hefur sér gott orð. Nú um helgina syngur kórinn til að mynda á Landsmóti barnakóra sem haldið verður að Laugar- vatni. Jafnframt verður sungið fyrir gamla fólkið á Ljósheim- um, sem er dvalarheimili eldri borgara á Selfossi. „Kórfélögum fjölgar lítið í bráð, úr því sem komið er. Við höfum fengið í hann öll þau börn hér í dalnum sem liðtæk eru. Lengra komust við ekki í bráð, hvað fjölgun varðar. En auðvitað stefnum við á að verða sífellt betri og betri," segir Björn í gamansömum tón, Nemendur Tónlistarskólans á Laugum eru milli 60 og 70 talsins. Þeir nemendur sem eru á grunnskólaaldri eru alls 33, en fjölmargir, sem komnir eru af léttasta skeiði, hafa einnig gaman af því að læra sitthvað í tónlist. -sbs.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.