Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Blaðsíða 5
®agur-®ímmrt
LÍFIÐ í
Laugardagur 8. mars 1997 -17
L A
N D I N U
/ síðustu viku kom hingað til lands breski
afbrotafrœðingurinn Piers Beirne og flutti
erindi sem hann nefndi „Interspecies sexual
assault“ sem fjallaði um kynferðislegt
ofbeldi gegn dýrum.
Kynferðislegt ofbeldi gegn
dýrum hefur ekki farið
hátt í opinberri umræðu
en hefur að sögn Piers Beirne
og Helga Gunnlaugssonar af-
brotafræðings verið að potast
upp á yfirborðið síðustu árin.
Bierne talar um „beastiality"
þegar hann ræðir kynferðislegt
athæfi á milli tegunda og nær
„skepnuskap-
ur“ ágætlega
merkingunni
sem að baki
liggur þegar
rætt er um
menn og dýr.
Víst er að
skepnuskapur
þessi hefur
ekki verið
rannsakaður
svo óyggjandi
niðurstöður
eða tölur liggi
fyrir og því er í byrjun forvitni-
legt að vita á hverju Beirne
byggir rannsóknir sínar.
„Ég hef lesið allt um kynferð-
islegt ofbeldi gegn dýrum sem
ég hef komist yfir sem þýðir
ekki að ég hafi haft úr miklu að
moða. -En það hafa auðvitað
verið gerðar rannsóknir um
kynferðislega hegðun manna og
þá hefur þetta athæfi komið við
sögu auk þess sem það hafa
verið gerðar nokkrar rannsókn-
ir þar sem þetta var sérstaklega
í athugun."
Aftökurnar í Svíþjóð
Beirne nefnir að á fimmta ára-
tugnum í Bandaríkjunum hafi
komið út fræg skýrsla, Kinsey-
skýrslan, sem birti sláandi nið-
urstöður. „Þarna er að finna
rannsóknir fé-
lags- og sál-
fræðinga á
kynlífi manna
og dýra. Reynt
er að komast á
snoðir um það
hvers vegna
menn hafi
þessar hvatir
og er niður-
staðan sú að
þeir sem hafa
mök við dýr
séu andlega skaddaðir, fávitar,
geðveikir o.s.frv. -En þrátt fyrir
þetta viðurkenndu allt að 60%
ungra sveitadrengja „skepnu-
skapinn," eða að hafa beitt dýr
kynferðislegu ofbeldi.“
Annað sem er forvitnilegt er
rannsókn sem sænski sagn-
fræðingurinn Jonaf Oiliecuist
gerði en þar segir af aftökum
Qölda drengja vegna kynlífs
með dýrum. Á árunum 1680-
1810 voru m.ö.o. ungir drengir,
8-15 ára gamlir, teknir af h'fi í
Svíþjóð fyrir „skepnuskap."
Helgi Gunnlaugsson segir af-
tökurnar sýna afstöðu samfé-
lagsins, drengirnir voru álitnir
óhreinir eða
sjúkir og því
aflífaðir á svip-
aðan hátt og
við tökum á
málum þegar
sjúkdómar
koma upp hjá
dýrum. „Það
sem er áhuga-
verðast þegar
maður skoðar
heimildir sem
þessar er
afhverju sum
samfélög taka
menn af lífi
fyrir verknað-
inn á meðan
önnur þola hann.“
Ekki bannað!
í íslenskum lögum stendur
hvergi að kynferðislegt sam-
neyti með dýrum og mönnum
sé bannað en í öllum fylkjum
Bandaríkjanna eru lagaákvæði
þess efnis. „Þrátt fyrir lagabók-
stafinn er refsivöndur þessa í
raun ekki virkur t.d. í Banda-
ríkjunum og Bretlandi. Þeir
sem viðurkenna kynferðislegt
oíbeldi gegn dýrum eru yfirleitt
meðhöndlaðir af sálfræðingum
fremur en refsirétti.“ Beirne
segir að vegna þessa sé að
nokkru búið að afmá glæpinn.
„Jafnvel þótt viðkomandi fari
fyrir rétt er sjaldgæft að það sé
beinlínis réttað yfir honum
vegna „skepnuskaparins" held-
ur er þá talað um stjórnlausa
hegðun og hún þá sjaldan skil-
greind mikið frekar.“
Mannleg hegðun
„Ég h't á málið frá sjónarhóli
dýraréttar og sé samlíkingu
með kynferðislegu ofbeldi gegn
dýrum og kynferðislegu ofbeldi
gegn konum og
börnum. Það
er mismunur á
valdi og styrk
sem um ræðir.
Ég hef reynt að
finna út hvað
þetta merkir
og fordæmi
„skepnuskap"
ekki vegna trú-
arlegra
ástæðna held-
ur út frá
mannlegum
sjónarmiðum.
Það er alltaf
siðferðilega
rangt af mönn-
um að stunda kynlíf „með“ dýr-
um, dýr geta ekki gefið sam-
þykki sitt, geta ekki sagt nei og
þjódleikhCsið
Stóra sviðið kl. 20.00
KÖTTUR Á HEITU BLIKKÞAKI
eftir Tennessee Wiliams
2. sýn. miðvikud. 12. mars. Uppselt
3. sýn. sunnud. 16. mars. Uppselt
4. syn. fimmtud. 20. mars. Uppselt.
5. sýn. föstud.. 4. apríl
6. syn. sunnud. 6. apríl
ÞREK OG TÁR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Fimmtud. 13. mars. Örfá sæti laus
Næst sfðasta sýning
Sunnud. 23. mars. Síoasta sýning
VILLIÖNDIN
eftir Henrik Ibsen
í kvöld. Örfá sæti laus.
Föstud. 14. mars. Uppselt.
Laugard. 22. mars.
KENNARAR ÓSKAST
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Á morgun. 9. mars Laus sæti.
Laugard. 15. mars. Nokkur sæti laus.
Föstud. 21. mars. Siðustu sýningar
LITLI KLÁUS OG
STÓRI KLÁUS
eftir H.C. Andersen
í dag, 8. mars kl. 14.00. Laus sæti.
A morgun, 9. mars kl. 14.00. Nokkur sæti laus.
Laugard. 15. mars kl. 14.00. Uppselt.
Sunnud. 16. marskl. 14.00
Laugard. 22. mars kl. 14.00
Smíðaverkstæðið kl. 20.30
LEITT HÚN SKYLDI
VERA SKÆKJA
eftir John Ford
ikvöid. Uppselt.
Ámorgun, 9. mars. Uppselt
Laugard. 15. mars. Uppselt
Fðstud. 21. mars
Laugard. 22, mars
Athygti er vakin á að sýningin
er ekki við hæfi barna.
Ekki er hægt að hleypa gestum inn
i salinn eftir að sýning hefst.
Listaklúbbur Leikhúskjallars
mánud. 10. mars
LJÓÐ ÚR HJÖRTUM KVENNA.
Einsöngstónleikar
SIGRÍDAR ELLU MAGNÚSDÓTTUR, við undirleik
Ólafs Vignis Albertssonar. Hún flytur lög frá ýmsum
timum þar sem konur og kvenhetjur túlka
tilfinningar sínar.
Húsið opnað kl. 20.30. ■ Dagskrá hefst kl. 21.00 •
Miðasala við inganginn.
Miðasalan eropin mánudaga og þriðjudaga kl. 13-18,
frá miðvikudegi til sunnudags kl. 13-20 og til 20.30
þegar sýningar eru á þeim tíma. Einnig er tekið á móli
sfmapöntunum frá kl. 10 virka daga.
Breski afbrotafræðingurinn Piers Beirne segir að kynferðislegt ofbeldi gegn dýrum sé til í öllum samfélögum.
Það er hins vegar afar mismunandi hvernig tekið er á málunum. Mynaas
„Þrátt fyrir þetta
viðurkenndu allt að
60% ungra sveita-
drengja „skepnu-
skapinn, “ eða að
hafa beitt dýr kyn-
ferðislegu ofbeldi. “
„Það er alltafsið-
ferðilega rangt af
mönnum að stunda
kynlíf„með“ dýrum,
dýr geta ekki gefið
samþykki sitt, geta
ekki sagt nei og ekki
kœrt verknaðinn til
fólks sem gœti komið
til hjálpar. “
ekki kært verknaðinn til fólks
sem gæti komið til hjálpar."
Engar rannsóknir á „skepnu-
skap“ eru til á íslandi en Beirne
segir að í íslendingasögunum sé
áburður um slíkt notaður til að
móðga menn á svipaðan hátt og
þegar einhver vænir þá um
ergi. -En hvað um íslensk lög í
dag, finnst Beirne ekki undar-
legt að í þeim sé hvergi minnst
á kynferðislegt ofbeldi gegn
dýrum?
„Ég veit ekki hvað það segir
mér um samfélagið, það kemur
margt til greina. T.d hef ég
heyrt að umræðan um heimilis-
ofbeldi sé tiltölulega ný á ís-
landi vegna þess að fólk hafi al-
mennt haidið að slíkt ætti sér
ekki stað. Kannski á þetta líka
við um „skepnuskapinn" en ég
er samt handviss um að fólk
veit að þetta viðgengst í samfé-
laginu þótt ekki sé um hluta op-
inberrar umræðu að ræða.“
LEIKFÉLA6 AKUREYRAR
Kór Leikfélags Akureyrar
Kossar
og kúlissur
Laugard. 8. mars kl. 20.00.
Sýningin fellur niður vegna
óviðráðanlegra forfalla
Næstu sýningar:
Föstud. 14. mars kl. 20.00.
Laugard. 22. mars kl. 20.00.
Athugið breyttan sýningartíma.
Afmælistilboð
MiSaverS 1500 krónur.
Börn yngri en 14 óra 750 krónur.
MiSasalan er opin alla virka daga
nema mónud. kl. 13.00-17.00
og fram aS sýningu sýningardaga.
Símsvari allan sólarhringinn.
Sími 1 miSasölu: 462 1400.
JDagur-®ímítm
- besti tími dagsins!