Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Qupperneq 13

Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Qupperneq 13
Jkgur-®mttmt g\<XgUxMmmm Smáréttir með aspargus Ef þú ert aspargusunnandi þá er þetta eitthvað fyrir þig. Tvær uppskriftir af smáréttum sem eiga sameiginlegt að uppistað- an er aspargus. Kartöflur og asp- argus 250 g grœnn aspargus 1 kg nýjar kartöflur Sósa: 1 msk. hunang 1 msk. dijon sinnep 100 g majones 2 dl súrmjólk salt og pipar Skerið aspargus í 2 sm. langa bita og gufusjóðið. Þvoið kartöflurnar og sjóðið, afhýðið og látið kólna. Skerið í bita. Hrærið hunangi og sinnepi saman við majo- nes og súrmjólk. Kryddið með salti og pipar. Bland- ið sósu saman við kartöfl- ur og aspargus. Aspargus m/sítrónum og möndlum 300 g grœnn eða hvítur aspargus 75 g möndlur (saxaðar) ’A sítróna 100 g kalt smjör salt og pipar Gufusjóðið aspargus- inn. Setjið á disk og hald- ið heitum. Ristið saxaðar möndl- urnar gullinbrúnar á þurri pönnu. Kreistið safa úr 1/2 sítrónu og ríf- ið börkinn smátt. Bætið bæði berkinum og safan- um á pönnuna og látið malla í stutta stund. Tak- ið pönnuna af hitanum og hrærið smjörinu saman við, lítið í einu. Saltið og piprið eftir smekk og hellið yfir heitan aspargusinn. Laugardagur 8. mars 1997 - 25 Hverfafundum Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra með íbúum Reykjavíkur verður framhaldið á næstu vikum. 5. fundur verður haldinn mánudaginn 10. mars með íbúum Bakka, Stekkja, Skóga og Seljahverfís auk Suður-Mjóddar. Fundarstaður: Ölduselsskóli kl. 20.00. 6. fundur verður haldinn fímmtudaginn 13. mars með íbúum í Háaleitis-, Smáíbúða-, Bústaða-, Fossvogs- og Múlahverfí. Fundarstaður: Réttarholtsskóli kl 20.00. 7. fundur verður haldinn mánudaginn 24. mars með íbúum í Túnum, Holtum, Norðurmýri og Hlíðum. Fundarstaður: Ráðhúsið kl. 20.00. 8. fundur verður haldinn mánudaginn 7. apríl með íbúum Vesturbæjar, Miðbæjar og Austurbæjar vestan Snorrabrautar. Fundarstaður: Ráðhúsið kl. 20.00. Á fundunum mun borgarstjóri m.a. ræða um áætlanir og framkvæmdir í hverfunum. Síðan verða opnar umræður og fyrirspurnir með þátttöku fundarmanna og embættismanna borgarinnar. Jafnframt verða settar upp teikningar af fyrirhuguðum framkvæmdum í hverfunum ásamt öðru fróðlegu og myndrænu efni. Allir velkomnir. Skrifstofa borgarstjóra. NISSAN deildin í KA—heiittiliitii smtxtiidagiitit 9. mars lil. 20.00. MÆTVM VELIKA-HEIMILW OG HVETJLM OKKAR LW!

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.