Dagur - Tíminn Akureyri - 15.03.1997, Side 1
Ríkisstjórn
Davíö viður-
kennir mistök
Markmiðið að finna
leiðir sem koma fólki
til góðs en ekki ills.
Við erum opnir fyrir því að
taka upp viðræður við
ASÍ að finna annan ílöt á
vaxtabótakerfinu. Það virðist
sem það sé einn stærsti fleinn í
holdi ASf. Markmið okkar er að
finna einhverja leið sem gæti
orðið fólki til góðs en ekki ills,“
sagði Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra í gær.
Ráðherra sagði að ASÍ hefði
sýnt fram á það með sannfær-
andi dæmum að vaxtabótatil-
lögurnar gætu haft öfug áhrif á
það sem að var stefnt. Hann
benti hinsvegar á að skatta-
frumvörp ríkisstjórnar væru í
vinnslu og því einsýnt að þau
yrðu ekki lögð fram fyrr en eftir
páska. Væntanlegar breytingar
á vaxtabótakerfinu yrðu þá í
þeim pakka.
Grétar Þorsteinsson, forseti
ASÍ, og Ari Skúlason, fram-
kvæmdastjóri sambandsins,
gengu á fund forsætisráðherra í
gær. Þar gerðu þeir ráðherra
grein fyrir afstöðu sambandsins
til framkominna tillagna ríkis-
stjórnar í skatta- og vaxtabóta-
málum. Jafnframt ítrekuðu þeir
skoðun sambandsins um fleiri
skattþrep.
Ari Skúlason, framkvæmda-
stjóri ASÍ, benti einnig á að sá
hluti sem snýr að stjórnvöldum
í tengsium við gerð kjarasamn-
inga, væri álíka mikilvægur og
kröfurnar á hendur atvinnurek-
endum. -grh
Rannsóknir
Yfir 100 ný dýr fundin
Yfir 100 tegundir hafa
fundist af óþekktum sjáv-
ardýrum í hafinu við ís-
land frá því ein stærsta rann-
sókn sem gerð hefur verið á líf-
inu í hafinu kringum fsland,
Botndýr á íslandsmiðum, hófst
sumarið 1991. í flestum tilfell-
um er um lítil sjávardýr að
ræða, krabba og orma af ýmsu
tagi, Tindakrabba og Maðka-
móður svo dæmi séu nefnd.
„Tindakrabbi er eiginlega
stærsti íslenski krabbinn, mjög
groddalegur og ógeðslegur,"
segir Jörundur Svavarsson,
prófessor við Iláskóla íslands,
en hann ijallar um rannsóknina
og sjávardýrin óþekktu í fyrir-
lestri í Námskynningu Háskóla
íslands á sunnudag klukkan
14.30. -GHS
Fréttir og þjóðmál
Jörundur Svavarsson prófessor segir að Tindakrabbi sé stærsti íslenski krabbinn, „groddalegur og ógeðslegur."
Mynd: Hilmar Þór
Viðskipti
Landsbankinn kaupir VIS
Stærsti kaupsamningur á
fyrirtæki á íslandi var
undirritaður í gærdag í
bankaráðssal Landsbanka ís-
lands við Austurstræti.
Landsbankinn keypti Vá-
tryggingafélag íslands hf.-VÍS -
að hálfu. Á þrem árum mun
bankinn reiða fram 3,4 millj-
arða króna. Um er að ræða
byltingu í bankastarfsemi á ís-
landi.
Sverrir Hermannsson banka-
stjóri sagði í gær að
hefði ekki staðið í
samkeppni við
aðra um þessi
kaup. „Það ræður
enginn annar við
svona lagað nema
Landsbankinn,“
sagði bankastjór-
inn.
Landsbanka-
menn hafa um
skeið leitað færis á
bankinn tryggingamarkaði, en án árang-
Sverrir Hermannsson
bankastjóri
„Það rœður
enginn við
svona nema
Landsbankinn'
urs þar til nú að þeim bauðst
að kaupa stærsta tryggingafé-
lag landsins að hálfu, eign
Eignarhaldsfélags Brunabótafé-
lags íslands, sem heldur áfram
starfsemi sinni sem eignar-
haidsfélag með digra sjóði, en
utan VÍS-hússins við Ármúla.
„Erlend tryggingafélög sáu
aðallega fyrir sér sölulúgu hjá
okkur fyrir tryggingar sínar,
sem við höfum engan áhuga á,“
sagði Kjartan Gunnarsson
bankaráðsformaður meðal ann-
ars í gær um viðleitni bankans
að hasla sér völl á trygginga-
markaði.
Ein vika fór í samningaum-
ræður Brunabótar og Lands-
banka áður en fyrirtækin kom-
ust að niðurstöðu um kaup-
verðið, - 3,4 milljarða króna.
Nánar um
ann/VÍS á bls. 6
Landsbank-
íslendingaþættir
fylgja
blaðinu í dag
Bls 4
Samherjar
að fornu
og nýju