Dagur - Tíminn Akureyri - 15.03.1997, Page 9

Dagur - Tíminn Akureyri - 15.03.1997, Page 9
íOagur-®mttm Laugardagur 15. mars 1997 - 9 RITSTJORNARSPJALL Takk, en algj ör óþarfi i \***2t0* 1 í>san''5s^T^“ * n f —í£Ö*£Í ír^SíS- S¥fl . ^fsSSfe?* k ^i^tr - -JKaíirfi? fí*^í h*p»“' i» -• , V* „ i « »; ", •atfstfiít ^ ..^ ,**??**& ‘ ‘‘5?”* - “w'SSf*;' tam,»ln 0« ,mrJ , ,,l'l'?i '•'•«« !™>tori.k‘Z\uUH**l»™ i fi»í«. if, "'“”’ i.i-ai ™»iiir u,,d, ’ “‘"‘VNX'nti ! “»T|r„ú„, “ilí* ,* "'” "»S- •» WÍ.irr I, L? "2“« mh« w.wu „, iHura iimm, : '»«!<• ;..> Uli 5»S rf uw,r*"* «ðrí J322ÍÍ rf,,;,r*'1 »fU Sf,,,. a'Ub-U""' á *<« „„ %Murnitr ..r,, i riía..._ . ° Wiwr Itrf. K; •'.Muniar ,., | Sv„ m"« '»» , jiSvííritt | Wmim nj? ' "6 I *wmhh> £ Æf*r, “r !•«*» | "fímiJli; *»**»• *í» Mr-«kí|. -Slúra vvsiir* ... i'»'t‘M'i,rTu°*!'?“ *'VI iWffnð tttSSS “lr>n «,!«„ r,íl,u ,w‘uf«lko*tíí/ t1Íam‘ski •» «ÍÍ «>»» Imiur sourávwi" 5>*í“r" “Ircll,° **^«rM«du»H ír" "HJlr mi af'Æf^- v«xtelMtiim ,i J»±í u t®« ‘ Wwuwfo Irön' *?**••* l«<8* «A« sÖIO(a,, " *l"«u»tt.fci.,lr, Jk-wjí ár, o* ff00 ir- a *r iKkkm/hJ,.1?’** »2.000 HMiuSl » fraui 4 ' ,HSKn«’ **«t« sá I <35.«ik» fcr) JL®" «»»a. JYJ £**“?«UMNÍto ?‘fcaUn|„rfcfc,,,. .^T f Ns. fcr «r ‘»a"uí. »/,« 15 o « | muius, J-OfW knniur f ;| '•fc'il-llaus rt,!iA - ,aw«"% »•„# W««! ii..mSS*“''“ <■'” »( hnrAi n.i, **r>rir »*vi 1 5?| !Vr^£q::'s§ Uám #fc’“S‘,;Afónn» «ro «f.:l S^l'ima fóik( j„m í* "*f«»ftWJ»P Stefán Jón Hafstein ritstjóri skrifar S g íékk fyrirhafnarlausa kjarabót í vikunni. Mér sýnist að miðað við sam- anlagðar heimilistekjur og að- stæður fái enginn jafn góða kjarabót og ég, nema Hörður Sigurgestsson, Þórarinn V., og slatti af öðrum sem við getum kallað hátekjumenn. Með góð- um vilja og að teknu miði af heimilisaðstæðum er nefnilega hægt að koma mér í hóp há- tekjufólks, ef úrtakið er sæmi- lega breitt. Við sem erum glettilega lausir við útgjalda- frekar byrðar lífsins og upp- skerum takk sæmilega á vín- ekrum vinnunnar fengum bón- usvinning í vikunni. Frá ríkis- stjórninni. Til þess að „greiða fyrir gerð kjarasamninga". Þetta voru tillögur um skattalækkanir. Hver fær mest? Þjóðfélagið er stundum eins og barnaafmæli eða harður systk- inaslagur: hver fær mest? er spurning sem sprettur fram eins og ósjálfráð viðbrögð þegar samfélagskakan er tekin úr ís- skáp þjóðarsáttarinnar. Davíð mætti með skattalækkunartil- lögur sem miða að „frámuna- lega góðri kjarabót" (eða hvernig frasinn nú var). Með aðstoð góðra reiknimeistara ASÍ og ijármálaráðuneytisins og okkar eigin félaga í blaða- mannastétt var fundið út að einn hópur skar sig rækilega úr: barnlaust hátekjufólk með rétta blöndu af skuldum miðað við fasteignamat. Kjarabótin okkar var í fyrsta lagi meiri í þúsund köllum talin en hinna. Og bara nokkuð góð til heimila með yfir 500 þúsund á mánuði, kringum 20 þúsund kall. Allra vesælustu láglaunakleprarnir fengu auðvitað ekki neitt, því þeir borga nánast engan skatt. Jú, miðlungstekjuheimilin munu finna fyrir batnandi hag, en hlutfallslega minna en...þið vitið hverjir. Hlutfallslega. Svo það er alveg sama hvort maður mælir með prósentum eða þús- undköllum, þeir græða mest sem alla jafna græða mest. Áfram. Bætur fyrir börn og skuldir í okkar samfélagi þykir rétt að bæta fólki (skattleggja minna) ef það a) er með lágar tekjur, b) á börn og ef það c) skuldar mikið í húsnæði. Á undanförn- um árum hefur það gerst að þetta fólk hefur haft sérstaka tilhneigingu til að reyna að auka tekjur sínar með tiltækum ráðum (mikilli vinnu ef hægt er) til að borga barnagæsluna og uppeidið meðan það er úti í vinnunni sem á að borga hús- næðið... og barnagæsluna...sem er nauðsynleg til að vinna meira... Þannig hefur þetta fólk komist í „hátekjuhóp“, sem er nauðsynlegt til að vera í „háút- gjaldahópi" og verið refsað með svokölluðum „jaðaráhrifum" - eða skerðingu bóta vegna tekna. Heil nefnd hefur leitað að leið út úr ógöngum þessa millibilshóps, en hugleiðingar hennar hafa enn ekki birst. Barnafólkið Það er líklega gott mál að ein- falda barnabótakerfið og má færa rök fyrir því að millifæra innan þess frá hátekjufólki; nú munu barnabætur falla niður við 275 þús. króna heimilistekj- ur hjóna með eitt barn, og 350 þúsund hjá hjónum með tvö börn. En hvað? Hvaðan koma þessar tölur og hvaða hugsun er á bak við þær? Er eitthvað hér á bakvið sem heitir „ijöl- skyldustefna" sem hefur verið auglýst eftir og þingað um og gefnar úr bækur um á barna- ári? Hvar er brúin milli þessa heims og annars fyrir þetta ei- lífa tyllidagaefni: fjölskylduna? Húsnæðiskaupendur „Hvaða hugsanleg meining er í því að hálaunamaður eins og ég, sem aðeins hef fyrir sjálfri mér að sjá, fái 50-60 þús. kr. meira út úr ríkissjóði, en systir mín, á helmingi lægri launum og með ungbarn á framfæri, kemur út með 10-20 þús. í mín- us?“ Svona spurði „systir" í blaðinu okkar í gær. Munurinn á milli þeirra getur orðið 80 þúsund krónur. Fyrir þá sem skulda í húsnæði koma upp úr dúrnum furðulegustu hlutir, eins og þeir að hátekjuijöl- skylda sem býr í skuldsettu einbýlishúsi gæti bætt við sig bótum, meðan lágtekjueinstak- lingur sem er að basla í fólags- legri smáíbúð gæti tapað tugum þúsunda. Við birtum í blaðinu í gær dæmi af tveimur systrum sem kaupa sams konar íbúð, með öllu sambærilegu, nema önnur er láglaunakona og hin ekki. Munurinn á milli þeirra nemur tugum þúsunda - há- tekjukonunni í hag! Og mamma þeirra ætlar að skuld- setja sig með því að skipta um íbúð, setja söluhagnaðinn í hlutbréf (skattafrádráttur) og fá 140 þúsund í árlegar vaxta- bætur í ofanálag! Skattarnir Og svo veit maður ekkert hvað maður á að gera með ávinning- inn af skattalækkunum þeirra sem lægst hafa launin. Þeir borga lægsta skatta og fá því engan ávinning, 200 krónur ef heppnin er með, meðan önnur heimili taka inn tvo tugi þús- unda - ef tekjurnar hafa verið nógu háar. Við sýndum dæmi af ólíkum fjölskyldum í vikunni og hvernig skattadæmið horfir við þeim; málið er einfalt: þeir sem hafa minnst fá ekkert. Þar er á ferðinni aðgerð sem best er lýst með skiptingu kökunnar sem nú kemur út úr ísskápnum. Vegna aukins góðæris og meiri veltu sér ríkissjóður fært að skila aftur hluta af þeim skattahækkunum sem dunið hafa yfir síðan 1990. (Sbr. skýrslu forsætisráðherra sem kynnt var í vikunni). Þær skattahækkanir hafa engum hlíft - þótt þær hafi verið mis- miklar. Þær skattalækkanir sem nú eru boðaðar gagnast þeim mest sem...já, þið vitið. Hinum - sem minnst hafa - er „hlíft“. Við lækkunum. Ríkið skiptir máli Þarna er ekki lítið mál á ferð- inni. Ríkið er svo stór efnahags- stærð í öllum okkar „fjöl- skyldubúskap" að ákvarðanir þess skipta MEIRA máli fyrir íjölda heimila um það hvernig góðærið skiptist en útkoman í kjarasamningum. Takið eftir því að margt fólk mun nú hrökkva út úr bótakerfinu eða tilbaka eða til hliðar á ein- hvern dularfullan fasteigna- matshlutfallshátt, fyrir upphæð- ir sem vega miklu þyngra í rekstrinum en kauphækkunin sem hugsanlega kemur! Núna þegar Davíð tekur þjóðarkök- una út úr skápnum kemur í ljós að hún hefur stækkað, það er meira til skiptanna, en það verður ekkert eftir fyrir suma. Minna en ekkert. Niðurstaðan? Heildarsumman af öllu þessu basli til að greiða fyrir samn- ingum er að auka í raun og hlutfallslega ráðstöfunartekjur þeirra sem mest hafa, en minna hjá öllum öðrum, og minnst hjá þeim sem minnst hafa; síð- an bætist við grátt ofaná svart með því að búa til stórslysa- gildrur í bótakerfinu flókna og óskiljanlega; vont var það áður en hvað er það nú? Krukk í kaupið Við skulum ekki gleyma því að „jaðaráhrifin" eru komin til vegna þess réttlætismáls að þeir einir nytu bóta sem þyrftu á að halda. „Tekjutenging" var um tíma slíkt kappsmál að skatthlutfallið var komið í 70% þegar allt var týnt til, helst hjá hörkupúlandi barnafólki með námslán og þörf fyrir að búa í húsi. Sú við- leitni sem nú birtist til að slaka á þessari kló er lofsverð og hlýtur að ganga gegn „jöfnun- aráhrifum" skattkerfisins að stóru leyti. Þau voru orðin of mikil fyrir ákveðna hópa - um það eru allir sammála. En þetta „útspil“ ríkisstjórnarinnar núna afhjúpar miklu meiri vanda en þann að „greiða fyrir gerð samninga". Það tæpir á svo mörgum óafgreiddum stór- pólitískum málum að fjölmiðlar og hagsmunaaðilar hafa engan veginn haft undan að rýna í, og ráðherrar líka sýnist manni, sem verða hálf hvumsa þegar þeir skoða kanínuna sem kom upp úr pípuhattinum. Tökum dæmi um nokkur þessara stór- pólitísku mála: 1) Kakan út úr þjóðarsáttarís- skápnum, hlutur lágtekju- fólks í stækkaðri köku. Hver er þáttur ríkisvaldsins í því efni, hver á hann að vera? 2) Hlutur og staða barnafólks í samanburði við aðra þjóðfé- lagshópa, sem þáttur í „fjöl- skyldustefnu", sem ef til vill, og ef til vill ekki er til? 3) Húsnæðisstefna og niður- greiðslur á húsnæði til hverra, hvers vegna? 4) Kjaramunur í landinu og þáttur skattkerfis í að jafna lífskjör. Hvað vill ríkið? Nota skattkerfið til að auka lífs- kjaramun? Minnka hann? Halda óbreyttum? Ef nú á að auka lífskjaramun gegn- um skattkerfisbreytingar þá er það ekkert smámál sem menn henda inn í Karphús eftir kvöldmat á venjulegu þriðjudagskvöldi í formi talnadálka. Allt er þetta með gömlu góðu fingraförunum: krukk í kaupið. En hvar er pólitíska leiðsögnin? Takk, en algjör óþarfi Tillögurnar í skatta- og bóta- málum virðast ekki vera sú dúfa sem fær fólk til að klappa Skara skrípó lof í lófa. Og það er alveg eins gott að viður- kenna það strax: meðan lág- launamenn reyna að stoppa mjólkurvél og bögglast við að herða sig upp í að fara í launa- laust leyfi í mótmælaskyni við þyngsli í samningamálum sitj- um við hálaunamenn og fjár- magnseigendur og reynum að átta okkur á þessum mjög svo óvænta glaðningi sem datt inn um lúguna eftir kvöldmat hér í vikunni: Nei sko! Takk! En al- gjör óþarfi. Að svo stöddu. Ef ekki væri búið að vitna alltof oft í óbærilegan léttleika tilverunn- ar myndi maður gera það nú.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.