Dagur - Tíminn Akureyri - 15.03.1997, Síða 10

Dagur - Tíminn Akureyri - 15.03.1997, Síða 10
10 - Laugardagur 15. mars 1997 AKUREYRARBÆR Sviðsstjóri fræðslu og frístundasviðs Laust er til umsóknar starf sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs hjá Akureyrarbæ. Sviðsstjóri er framkvæmdastjóri fræðslu- og frí- stundasviðs, samræmir og ber ábyrgð á allri starf- semi er undir það svið heyrir, sem eru leikskólamál, skólamál, menningarmál, íþrótta- og tómstundamál. Sviðsstjóri skal hafa góða yfirsýn yfir starfsemi á fræðslu- og frístundasviði. Hann ber ábyrgð á að stýra og viðhalda formlegu samskiptakerfi allra deildarstjóra á sviðinu. Einnig skal hann fylgjast með þróun og nýjungum í þeim málaflokkum sem tilheyra sviðinu og hafa frumkvæði að þeim nýjung- um í starfsháttum sem til framfara mega vera. Hann ber ábyrgð á eðlilegri framþróun þeirrar þjónustu sem sviðið veitir bæjarbúum. Umsækjandi þarf að hafa háskólapróf á einhverju því sviði sem tengjast verkefnum sviðsins og/eða langa starfsreynslu, sem nýtist í starfinu. Hann þarf a.m.k. að hafa eitt norðurlandamál á valdi sínu. Æskilegt er að hann hafi þekkingu á og reynslu af stjórnun og sveitarstjórnarmálum. Honum þarf að láta vel að vinna með öðrum, hafa með hendi forystu, skipuleggja verkefni og setja fram mál í ræðu og riti. Meirihluti þeirra sem sinna stjórnun og öðrum áhrifastöðum hjá Akureyrarbæ eru karlmenn. í sam- ræmi við landslög og jafnréttisáætlun bæjarins vill Akureyrarbær stefna að því að hlutur kynjanna á áhrifastöðum verði sem jafnastur og hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um starfið. Upplýsingar um starfið, kaup og kjör, veita bæjar- stjóri og starfsmannastjóri í síma 462 1000. Umsóknareyðublöð fást á starfsmannadeild Akur- eyrarbæjar í Geislagötu 9. Umsóknarfrestur er til 4. apríl. Bæjarstjóri. Hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu sem auðsýndu einlæga samúð, vinarhug og framúrskarandi hjálpsemi vegna svip- legs fráfalls ástvinar okkar, ÁRNA ÞORSTEINSSONAR í Fljótstungu. Ingibjörg Bergþórsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA BERGÞÓRSDÓTTIR, Lindasíðu 4, Akureyri, sem lést að heimili sínu föstudaginn 7. mars síðastliðinn, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn 17. mars kl. 13.30. Guðni Friðriksson, Olga Guðnadóttir, Kristján Halldórsson, Agnes Guðnadóttir, Konráð Alfreðsson, Þorbjörg Guðnadóttir, Steinunn Guðnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. íyagur-®ttrtirm ÞJÓÐMÁL Leigj endasamtök? Ragnar Sverrisson skrifar Leigjendasamtök eru varla til sem hugtak á Norður- landi, það höfum við orðið vör við sem höfum staðið í und- irbúningi að stofnun Leigjenda- samtaka Norðurlands. Mjög skýrar reglur gilda um samskipti og viðskipti á leigu- markaðnum, það vita þeir sem hafa kynnt sér húsaleigulögin. En því miður virðast fáir hafa gert það. Mín reynsla er að leigjendur eru illa upplýstir um rétt sinn og skyldur. Og þegar kemur að leigusölum er svipaða sögu að segja. Ég hef orðið var við mjög undarlegt viðhorf hjá leigusölum, margir þeirra virð- ast líta svo á að þeir séu að gera manni stórkostlegan greiða, að þeir séu af tómri manngæsku að leigja manni íbúðina „sína“ á okurprís. Stað- reyndin er sú að leigjandinn borgar oft stóran hluta af eign- armyndun leigusalans. En auð- vitað eru leigusalar misjafnir. Það er eflaust ekki öfundsvert hlutskipti að vera leigusali og misjafn sauður í hópi leigjenda, en það réttlætir ekki að leigu- salar brjóti húsaleigulögin. Svartur leigumarkaður Ég vil nefna hér eitt dæmi sem leitað var með til mín nýlega og hér er ekki um einsdæmi að ræða. Einstæð móðir með tvö börn hér í bæ leigir Iitla þriggja herbergja íbúð á 40.000 krónur á mánuði sem ekki ætti að leigj- ast á meira en 28-35.000 krón- ur hámark að mínu mati. En það er ekki allt. í leigusamningi er aðeins gefið upp 25.000 krónur til skatts sem er innan skattleysismarka fyrir leigutekj- ur. Hver er réttur leigjandans í þessu dæmi og hvert getur hann snúið sér til að fá upplýs- ingar um hann og aðstoð til að sækja rétt sinn? Jú, rétt til getið, til Leigj- endasamtaka Norðurlands. í þessu dæmi væri auðsótt að rétta hlut leigjenda verulega og koma í veg fyrir þessa lögleysu. Ég skora á þá sem eru í svip- aðri aðstöðu eða telja að brotið sé á sér á einhvern hátt að leita til Leigjendasamtaka Norður- lands. Húsaleigubætur Hvaða áhrif hefðu húsaleigu- bætur á fyrrnefnt dæmi? Væru greiddar húsaleigubætur á Ak- ureyri fengi leigjandinn 17.400 krónur í húsaleigubætur, að því tilskyldu að hún/hann hefði þinglýstan samning upp á 40.000 krónur. Ég hef grun um að upphæð leigunnar yrði eitt- hvað lægri ef um þinglýstan Ég skora á þá sem eru í svipaðri aðstöðu eða telja að brotið sé á sér á einhvern hátt að leita til Leigendasamtaka Norðurlands. samning væri að ræða. Leigj- endasamtök Norðurlands munu veita sem best þá ráðgjöf og lagaaðstoð sem við á ásamt því að upplýsa félagsmenn um rétt- indi og skyldur. Einnig leggja samtökin áherslu á að unnið verði að úrbótum og lausnum á húsnæðisvandamálum, en tak- marki sínu hyggjast samtökin ná með upplýsingastarfi, þátt- töku í opinberum umræðum um húsnæðismál og í samstarfi við opinberar stofnanir. Það hefur sýnt sig nú þegar að gríðarieg þörf er á slíkum samtökum, þá ekki síst til að breyta því við- horfi sem ríkir um leigumál. Það þykir nánast skammarlegt að eiga ekki sína eigin íbúð sé maður kominn til vits og ára. Litið er á leigu sem tímabundið neyðarúrræði en ekki sem val- kost í mismunandi búsetuformi fólks. Þetta kemur m.a. fram í því hversu stutt er síðan húsa- leigubætur komu til. Vel má vera að lögum um húsaleigu- bætur þurfi að breyta en það að sum sveitafélög borgi en önnur ekki er óþolandi misrétti. Gam- an væri að fá einhver svör frá bæjarstjórn Akureyrar um hvers vegna þeir vilja ekki greiða húsaleigubætur. Það hvarflar að manni að það standi eitthvað í þeim að opin- bera hvernig viðskiptum á leigumarkaðnum hér er í raun háttað. Sú röksemd að erfitt sé að breyta húsaleigulögunum eftir að bæjarfélögin hafa sam- þykkt að greiða bætur er fárán- leg. í lögunum er ákvæði um að lögin skuli endurskoða í ár og er sú endurskoðun í gangi. Reynsla Reykjavíkurborgar er að það íjármagn sem sparast í félagslega kerfinu við það að greiða húsaleigubætur er hærri upphæð en þau 40% sem borg- in greiðir í húsaleigubótum á móti ríkinu, þ.e. borgin hagn- ast. Gaman væri að vita hvort einhver könnun hefur verið gerð á Akureyri um áhrif greiðslu húsaleigubóta á kostn- að-til félagslega kerfisins. Það er mun manneskjulegra fyrir Ieigendur að fá greiddar húsa- leigubætur en að þurfa að leita sér fjárhagsaðstoðar hjá Fé- lagsmálastofnun. Húsaleigu- bætur eru mikið hagsmunamál fyrir leigjendur og myndu svipta hulunni af því svarta- markaðsbraski sem ríkir á leigumarkaðnum á Akureyri. Mikil þörf er á öflugum samtök- um leigjenda til að lyfta Ieigu- markaðnum á ásættanlegt plan og gera leigu að réttlátum val- kosti fyrir þá sem það velja eða þurfa að leigja. Höfundur er i undirbúningsnefnd fyrir stofnun Leigjendasamtaka Norður- tands. Eru leigjendasamtök á Akureyri nauðsynleg? Nemendur í Háskólanum á Akureyri eru um 400 manns og er stór hluti þeirra á leigumarkaðnum. Nemendafélagi skólans hafa á undanförnum misserum borist kvartanir og ábendingar frá nemendum um mörg mál er lúta að leigumarkaðnum. Þar má nefna margt sem ábótavant er, s.s. húsnæðisframboð, ástand leiguhúsnæðis og hátt leiguverð. Einnig hefur stefna Akureyrabæjar hvað húsaleigu- bætur varðar vakið mikla óánægju meðal nemenda. Hingað til hafa engin samtök verið til á Akureyri sem berjast fyrir hagsmunum allra leigj- enda. En frá og með gærdegin- um, fimmtudeginum 13. mars er breyting á því. Þá var hald- inn stofnfundur Leigjendasam- taka Norðurlands. Máttur leigjendasamtaka sem þessara er mikill þar sem á bak við þau stendur stór en jafnfram ólíkur hópur. Slík samtök munu breyta miklu fyr- ir háskólanemendur á Akur- eyri þar sem þeir verða ekki lengur einir að berjast fyrir sameiginlegum hagsmunum leigjenda heldur sameinast þeir öðrum hópum sem allir eiga sömu hagsmuna að gæta. Stjórn Félags stúdenta við Háskólann á Akureyri (FSHA) fagnar þessu framtaki og vill hvetja alla námsmenn, leigj- endur og aðra áhugasama ein- staklinga til að ganga í þessi leigjendasamtök og styðja þannig í verki kröfur leigjenda um bætt kjör á leigumarkaði. F.h. FSHA Helga Sif Friðjónsdóttir, Rúnar Þór Sigursteinsson.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.