Dagur - Tíminn Akureyri - 02.04.1997, Qupperneq 7

Dagur - Tíminn Akureyri - 02.04.1997, Qupperneq 7
|Dagur-®TOrimt Miðvikudagur 2. apríl 1997 - 7 ERLENDAR FRÉTTIR Clinton með her sínum: Sigur fyrir hann? Rautt strik Baksvið Dagur Þorleifsson Eftir Helsinkifund þeirra Clintons Bandaríkjafor- seta og Jeltsíns Rúss- landsforseta er ofarlega í f]öl- miðlum sú skoðun að niður- stöður fundarins séu sigur fyrir þann fyrrnefnda. Jeltsín hafi í raun samþykkt að Pólland, Tékkland og Ungverjaland verði tekin inn í NATO. Á fundi þessum hafi komið skýrt í ljós að Bandaríkin séu eina risaveldi heims og að Rússland, risaveldi þangað til fyrir nokkrum árum, verði sem önnur ríki að sætta sig við þær takmarkanir sem ofurveldi Bandaríkjanna setji því. Ný skipting í áhrifasvæði? En ýmissa annarra mál, þ. á m. sumra bandarískra fréttaskýr- enda, er að á fundi þessum í höfuðborg Finnlands hafi Evr- ópu verið skipt upp á nýtt í áhrifasvæði milli Vestursins og Rússlands. Vestrið færi út kví- arnar yfir þrjú áðurnefnd fyrr- verandi fylgiriki Rússaveldis en önnur riki milli NATO og Rúss- lands, a.m.k. fyrrverandi sovét- lýðveldi, verði „grátt“ svæði er skilji sundur nefnda fyrrverandi (?) andstæðinga. Sérstaklega virðast Rússar viðkvæmir fyrir því að fyrrverandi sovétlýðveldi gangi í NATO og líta á það sem óþolandi auðmýkingu fyrir sig. Sergej Karaganov, einn helstu öryggismálaráðunauta Jeltsíns, segir Rússland hafa dregið „rautt strik“ eftir vesturlanda- mærum Eystrasaltslanda, Hvíta-Rússlands og Úkraínu. í löndum þessum og víðar munu margir taka þetta sem merki þess, að Rússland hafi ekki sætt sig við að ríki þessi séu eða verði því óháð. Rússland virðist raunar þegar komið langt á leið með að innlima Hvíta-Rússland á ný. Ljóst virðist að nærgætni við Rússland og skoðanir Banda- ríkjastjórnar á því, hvað borgi sig best fyrir Bandaríkin pólit- ískt, hafi skipt meira máli í ákvarðanatöku NATO um það, hvaða ríkjum skuli „boðið inn“ í sumar, en meiri eða minni áhugi hinna ýmsu þjóða fyrr- verandi sovétblokkar á NATO- aðild. Pólverjar óðfúsir, Ungverjar beggja blands Ýmsir þekktir fréttaskýrendur, eins og Wiiliam Pfaff við Inter- national Herald Tribune, halda því fram að síðustu árin hafi áhrif og völd Bandaríkjanna í NATO aukist drjúgum, þannig að bandalagið sé nú fyrst og fremst tæki til að tryggja pólit- ísk völd þeirra í Evrópu. Á þeim vettvangi hafi Bandaríkin ýtt til hliðar Frakklandi, er löngum hafi verið þeim óþjálast af NATO-ríkjum, og reiði sig á Þýskaland, sem bæði er öflugra og hlýðnara Bandaríkjunum en Frakkland, sem aðalbanda- Vera kann að Rúss- land hafi sætl sig við að Pólland, Tékkland og Ungverjaland gangi í NATO, en það leggur þeim mun þyngri áherslu á að engin fyrrverandi sovétlýðveldi komist í það bandalag. mann í Evrópu. Samkomulag Clintons og Jeltsíns um sam- starfssáttmála NATO og Rúss- lands, er veitir Rússlandi að- stöðu til áhrifa í bandalaginu, þarf ekki að vera formsatriði eitt af Clintons hálfu. f Banda- ríkjunum hefur ekki vantað undanfarið raddir sem hvetja til aukins samráðs Bandaríkjanna við Rússland. Áhugi á tilkomu nýs öxuls, Washington-Berlín- Moskva, að sjálfsögðu undir forystu Bandaríkjanna, kann að vera með í myndinni af þeirra hálfu. Samkvæmt niðurstöðum skoðanakannana vill þorri Pól- verja komast í NATO, en tæpur helmingur Ungverja. Margir kváðu og vera beggja blands um þetta í Tókklandi. Ekki er laust við að í austanverðri Mið- Evrópu votti fyrir draumi, blöndnum fortíðarsöknuði, um blokk fyrrverandi IJabsborgara- landa er yrði óháð Rússlandi, en ekki í NATO. Sennilega er áhugi Eista, Letta og Litháa á NATO-aðild ekki minni eða jafnvel meiri en Pólverja, en ríkjum þessara þriggja smá- þjóða verður þó vart boðið inn í NATO í sumar. Öryggi Eystrasaltslanda Bæði í Bandaríkjunum og Vest- ur-Evrópu heyrast raddir, sem telja stækkun NATO í austur glapræði er muni leiða til nýs kalds stríðs með Vestrinu og Rússlandi. En aðrir vestur- landamenn hvetja eindregið til þess að auk Póllands, Tékk- lands og Ungverjalands verði a.m.k. Eystrasaltslöndum boðin NATO-aðild í sumar. Það muni leiða til þess að Rússar loksins gefist upp á stefnu sinni um skiptingu álfunnar í áhrifasvæði og í staðinn leitast við að verða Evrópuþjóð í alvöru, taka upp eindregið samstarf við önnur Evrópuríki í stað þess að eiga í meira eða minna íjandsamleg- um metingi við þau, enda muni þeir vart búa við neinn skort á óvinum fyrir það. Upp úr Jeltsín hrökk raunar nýlega að Rúss- land vildi komast í Evrópusam- bandið og að það ætti að forð- ast þjösnaskap gagnvart Eystrasaltslöndum. Erling Bjol, danskur sagn- fræðingur sem var eindreginn andkommúnisti í kalda stríðinu, skrifar að óraunhæft hefði verið að bjóða Eystrasaltslöndum inn í NATO í „fyrstu umferð." Pól- land, Svíþjóð og Finnland geti hins vegar haldið rússneskri ágengni frá Eystrasaltslöndum, Pólland með því að hóta að öðr- um kosti nánara hermálasam- starfi við NATO og Svíar og Finnar því að ganga í það bandalag. 1961 reyndi Krúsjov að þvinga Finnland til nánara hermálasamstarfs við Sovétrík- in. En Norðmenn létu þá sov- ésku stjórnina vita að þeir myndu bjóða öðrum NATO-ríkj- um að koma upp herstöðvum í landi sinu og Svíar gáfu Sovét- mönnum í skyn að þeir kynnu að ganga í NATO, ef Krúsjov léti ekki af ágengni við Finna. Og þá gáfu Sovétríkin eftir. Aðalsafnaðar- fundur Aðalsafnaðarfundur Akureyrarsóknar verður haldinn f Safnaðarheimili Akureyrarkirkju eftir guðsþjónustu sunnudaginn 6. apríl nk. Fundurinn hefst kl. 15.15. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Sóknarnefndin. Hjó °kkur f'nnur þú m.a. ferðabækur barnabækur • handbækur Ijóð • bestabækur • kynlífsbækur spennusögur • ævisögur myndabækur • ættfræðirit fræðsluefni • spennuefni afþreyingu • skáldskap • heilafóður skemmtun • útivist • dulspeki • tækni landkynningarefni • ferðalög • íþróttir • matreiðslubækur og margt fleira. ► Bókamarkaðurinn stendur 2 aðeins yfir i nokkra daga. —v Ekki láta þetta einstaka tækifæri framhjá þér fara. bókatitlar OPID DAGLEGA10-19 UM HELGAR; Hafnarstræti 93 (Áður Vöruhús KEA) Gengið inn hjá Stjörnuapóteki Hinn árlegi bókamarkaður Félags islenskra bókaútgefenda stendur nú yfir á Akureyri, Simar 898-5868 og 897-6427. 24 more _ •% • mars # • « pm 24. MARS TIL 7. APRÍL 1 B 1 é é I i \ 1., é

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.