Dagur - Tíminn Akureyri - 19.04.1997, Side 15
Tónlistarhvalreki
- Skunk Anansie og 5ting á leið til íslands til tónleikahalds
Hafi einhverjir haldið að
þetta sumar sem nú fer í
hönd yrði viðburða-
snauðara hvað tónleika með
frægum erlendum tónlistar-
mönnum áhærir, þá er víst
óhætt að fullyrða, að svo verður
aldeilis ekki raunin. Lands-
menn eru vart farnir að finna
vorþefinn í lofti, þegar fregnir
hafa nú borist af tvöföldum
sumarglaðningi, strax nú í
næsta mánuði og svo í seinni
hluta júnímánaðar. Er þetta svo
bara ef að líkum lætur, upphaf-
ið af meiru af svo góðu í sumar
og seinna á árinu, t.d. kynnu
Blur, eins og áður hefur verið
sagt frá, að koma aftur til tón-
...og stórpopparinn Sting í júní.
leikahalds, en í bili er alveg nóg
að einbeita sér að því sem þeg-
ar er ákveðið.
Skunk Anansie
Það er annars vegar ein af
framsæknari rokksveitum Bret-
lands um þessar mundir, Skunk
Anansie, sem um er að ræða og
má með sanni segja að þar sé
góður fengur á ferð. Með hina
þeldökku, sköllóttu söngkonu,
Skin, sem er með þeim athygli-
verðari og djarfari er fram hafa
komið þar í landi um langt
skeið, í fararbroddi hefur
Skunk Anansie á frekar stuttum
líftíma, um þremur árum, kom-
ist í fremstu röð breskra rokk-
sveita. Skin og félagar komu
sem vænt spark inn í breskt
rokklíf árið 1995 með fyrri
plötunni sinni, Paranoid & sun-
burned, sem var full af grimmd
og árásargirni svo um munaði,
en jafnframt bæði grípandi og
seiðandi. Á seinni plötunni, Sto-
osh, sem leit dagsins ljós í októ-
ber sl. var áferðin á tónlistinni
áfram grípandi og seiðandi, en
árásargirnin hins vegar öllu
minni. Áhrifamiklir textar söng-
konunnar eru þó áfram fyrir
hendi og lita tónlistina vel.
Skunk Anansie verða með tón-
leika í Laugardalshölhnni 10.
maí og munu Unun og Botn-
leðja koma fram með þeim. Má
segja að sveitin sé nú loksins að
koma til íslands, því a.m.k.
tvisvar áður hefur verið reynt
að fá hana hingað en án árang-
urs.
Sting í júní
Á hinn bóginn er það svo eng-
inn annar en fyrrum forsprakki
stórsveitarinnar Police, Sting
(sem réttu nafni heitir Gordon
Summer) sem á leið er til
landsins í sumar til tónleika-
halds. Verða tónleikar hans 25.
júní, í Laugardalshöllinni eins
og hjá Skunk Anansie. Hver eða
hverjir koma fram með honum
er hins vegar óákveðið, en ekki
er að vita nema að hann geri
eins og Bowie gerði hér í fyrra,
að velja sjálfur hverjir komi
fram með honum. Miða á tón-
leika Stings geta menn keypt á
sama hátt og á tónleika Bowies,
í gegnum hraðbanka íslands-
banka. Um feril Stings með Pol-
ice og síðan á eigin vegum þarf
vart að íjölyrða fyrir tónlistar-
áhugamönnum. Hefur frægðar-
sól hans í stuttu máli sagt risið
mjög hátt og plötur hans á borð
við The dream of the blue turt-
les, Soul cages og ekki hvað síst
Ten Summoners tales, Nothing
Uke the sun, hafa náð efstu sæt-
um sölulista hvarvetna í heim-
inum. (undantekningalítið hafa
þessar plötur farið inn á topp 5
bæði í Bretlandi og Bandaríkj-
unum t.d.). Vinsælu lögin hans
eru svo ótalmörg, bæði með og
án annarra frægra tónlistar-
ÍDagur-SImúmt
Laugardagur 19. apríl 1997 - 27
Umsjónarmaður
Magnús Geir Guðmundsson
manna og þá hefur kappinn
gert góða hluti sem leikari,
bæði í kvikmyndum og á sviði.
Sting er svo í ofanálag þekktur
fyrir að styrkja góð málefni,
m.a. baráttuna gegn eyðingu
regnskóganna í S-Ameríku o.fl.
Með honum og Skunk Anansie
líka, er því um sannkallaðan
hvalreka að ræða á íjörur ís-
lensks tónlistaráhugafólks.
Skunk Anansie halda tónleika í maí...
Jam verður rækilega minnst í sumar.
JamumJam
Um þessar mundir eru liðin 20 ár
frá því einn af bestu og helstu
boðberum pönksins og síðar ný-
bylgjunnar í Bretlandi, The Jam, gaf út
sitt fyrsta lag, In the city. Potturinn og
pannan í þessari merku sveit var hinn
einstaki söngvari og gítarleikari, Paul
Weller, sem eftir að Jam var öll, stofnaði
aðra, en allt öðruvísi sveit, Style Counc-
il, er líka naut mikillar hylli. Weller hef-
ur svo á síðustu árum gefið út plötur
undir eigin nafni, sem notið hafa virð-
ingar og vinsælda, síðast Stanley road,
sem seldist mjög vel. í tilefni þessara
tímamóta með Jam, kemur út í næsta
mánuði fimm geislaplatna safn þar sem
verður að finna lög af sjö plötum sveit-
arinnar auk ýmissa tónleikaupptaka, lög
af bakhliðum smáskífa og síðast en ekki
síst lög sem ekki hafa komið út áður.
Seinna í sumar kemur svo út „Tri-
bute“plata, þar sem Qöldi frægra tónlist-
armanna túlkar lög Jam. MeðaLþeirra
verða Massive Attack, Everything but
the girl, No doubt, Oasis, Primal scream,
The Prodigy og Garbage. Noel Gallagher
úr Oasis mun svo taka eitt lag ásamt
Paul Weller sjálfum.
Soundgarden
Einn af helstu boðberum rymrokks-
ins, Grungesins ásamt Nirvana,
Pearl Jam, Alice in chains og fleir-
um, Soundgarden, hefur nú nokkuð svo
óvænt, hætt störfum. Barst þessi fregn í
lok síðustu viku og er óhætt að fullyrða
að mörgum aðdáandanum um heim all-
an er nú brugðið. Að vísu er ljóst að
mjög er farið að slá í rymrokkið, sem
kennt hefur verið við Seattle, þaðan sem
Soundgarden og flestar hinna hljóm-
sveitanna eru upprunnar, auk þess sem
á ýmsu hefur gengið hjá
þeim Chris Cornell, Ben
Shepherd, Kim Thayil og
Bert Cameron, meðlimum
Soundgarden, síðustu mán-
uðina, en í ljósi þess að vel-
gengnin hefur verið mikil á
síðustu árum, kemur það
nokkuð á óvart að hún leggi
upp laupana nú.
Ýmis vandræði, m.a. hjá
Kim Thayil gítarleikara, sem
kærður var á síðasta ári fyrir
að ráðast á aðdáanda sveit-
arinnar, geta verið ástæðan,
en það hefur enn ekki fengist
staðfest þar sem íjórmenn-
ingarnir hafa ekki enn tjáð
sig opinberlega um málið.
Soundgarden var stofnuð
fyrir um 13 árum, 1983 og
sendi á þeim tíma frá sér sex
plötur, miniplötuna Ultra-
mega OK, 1988, Louder than
love 1989, Badmotorfinger
1991, Superunknown 1994
og Down on the upside
1996. Þessar plötur hafa selst í yfir 20
milljónum eintaka á heimsvísu og gert
Soundgarden af einni af fremstu rokk-
sveitum samtímans. Stóra stökkið hjá
henni var 1994 með Superunknown,
sem fór á toppinn í Bandaríkjunum, í 4.
sæti í Bretlandi og hlaut tvenn Grammy
verðlaun m.a. Inni hélt platan hið frá-
bæra lag, Black hole sun, sem mörgum
finnst vera eitt af meistarastykkjum
tíunda áratugarins.
Soundgarden. Hefur selt yfir 20 millj. af plötum, en hættir
samt.
Sagan öll hjá