Dagur - Tíminn Akureyri - 19.04.1997, Page 15

Dagur - Tíminn Akureyri - 19.04.1997, Page 15
Tónlistarhvalreki - Skunk Anansie og 5ting á leið til íslands til tónleikahalds Hafi einhverjir haldið að þetta sumar sem nú fer í hönd yrði viðburða- snauðara hvað tónleika með frægum erlendum tónlistar- mönnum áhærir, þá er víst óhætt að fullyrða, að svo verður aldeilis ekki raunin. Lands- menn eru vart farnir að finna vorþefinn í lofti, þegar fregnir hafa nú borist af tvöföldum sumarglaðningi, strax nú í næsta mánuði og svo í seinni hluta júnímánaðar. Er þetta svo bara ef að líkum lætur, upphaf- ið af meiru af svo góðu í sumar og seinna á árinu, t.d. kynnu Blur, eins og áður hefur verið sagt frá, að koma aftur til tón- ...og stórpopparinn Sting í júní. leikahalds, en í bili er alveg nóg að einbeita sér að því sem þeg- ar er ákveðið. Skunk Anansie Það er annars vegar ein af framsæknari rokksveitum Bret- lands um þessar mundir, Skunk Anansie, sem um er að ræða og má með sanni segja að þar sé góður fengur á ferð. Með hina þeldökku, sköllóttu söngkonu, Skin, sem er með þeim athygli- verðari og djarfari er fram hafa komið þar í landi um langt skeið, í fararbroddi hefur Skunk Anansie á frekar stuttum líftíma, um þremur árum, kom- ist í fremstu röð breskra rokk- sveita. Skin og félagar komu sem vænt spark inn í breskt rokklíf árið 1995 með fyrri plötunni sinni, Paranoid & sun- burned, sem var full af grimmd og árásargirni svo um munaði, en jafnframt bæði grípandi og seiðandi. Á seinni plötunni, Sto- osh, sem leit dagsins ljós í októ- ber sl. var áferðin á tónlistinni áfram grípandi og seiðandi, en árásargirnin hins vegar öllu minni. Áhrifamiklir textar söng- konunnar eru þó áfram fyrir hendi og lita tónlistina vel. Skunk Anansie verða með tón- leika í Laugardalshölhnni 10. maí og munu Unun og Botn- leðja koma fram með þeim. Má segja að sveitin sé nú loksins að koma til íslands, því a.m.k. tvisvar áður hefur verið reynt að fá hana hingað en án árang- urs. Sting í júní Á hinn bóginn er það svo eng- inn annar en fyrrum forsprakki stórsveitarinnar Police, Sting (sem réttu nafni heitir Gordon Summer) sem á leið er til landsins í sumar til tónleika- halds. Verða tónleikar hans 25. júní, í Laugardalshöllinni eins og hjá Skunk Anansie. Hver eða hverjir koma fram með honum er hins vegar óákveðið, en ekki er að vita nema að hann geri eins og Bowie gerði hér í fyrra, að velja sjálfur hverjir komi fram með honum. Miða á tón- leika Stings geta menn keypt á sama hátt og á tónleika Bowies, í gegnum hraðbanka íslands- banka. Um feril Stings með Pol- ice og síðan á eigin vegum þarf vart að íjölyrða fyrir tónlistar- áhugamönnum. Hefur frægðar- sól hans í stuttu máli sagt risið mjög hátt og plötur hans á borð við The dream of the blue turt- les, Soul cages og ekki hvað síst Ten Summoners tales, Nothing Uke the sun, hafa náð efstu sæt- um sölulista hvarvetna í heim- inum. (undantekningalítið hafa þessar plötur farið inn á topp 5 bæði í Bretlandi og Bandaríkj- unum t.d.). Vinsælu lögin hans eru svo ótalmörg, bæði með og án annarra frægra tónlistar- ÍDagur-SImúmt Laugardagur 19. apríl 1997 - 27 Umsjónarmaður Magnús Geir Guðmundsson manna og þá hefur kappinn gert góða hluti sem leikari, bæði í kvikmyndum og á sviði. Sting er svo í ofanálag þekktur fyrir að styrkja góð málefni, m.a. baráttuna gegn eyðingu regnskóganna í S-Ameríku o.fl. Með honum og Skunk Anansie líka, er því um sannkallaðan hvalreka að ræða á íjörur ís- lensks tónlistaráhugafólks. Skunk Anansie halda tónleika í maí... Jam verður rækilega minnst í sumar. JamumJam Um þessar mundir eru liðin 20 ár frá því einn af bestu og helstu boðberum pönksins og síðar ný- bylgjunnar í Bretlandi, The Jam, gaf út sitt fyrsta lag, In the city. Potturinn og pannan í þessari merku sveit var hinn einstaki söngvari og gítarleikari, Paul Weller, sem eftir að Jam var öll, stofnaði aðra, en allt öðruvísi sveit, Style Counc- il, er líka naut mikillar hylli. Weller hef- ur svo á síðustu árum gefið út plötur undir eigin nafni, sem notið hafa virð- ingar og vinsælda, síðast Stanley road, sem seldist mjög vel. í tilefni þessara tímamóta með Jam, kemur út í næsta mánuði fimm geislaplatna safn þar sem verður að finna lög af sjö plötum sveit- arinnar auk ýmissa tónleikaupptaka, lög af bakhliðum smáskífa og síðast en ekki síst lög sem ekki hafa komið út áður. Seinna í sumar kemur svo út „Tri- bute“plata, þar sem Qöldi frægra tónlist- armanna túlkar lög Jam. MeðaLþeirra verða Massive Attack, Everything but the girl, No doubt, Oasis, Primal scream, The Prodigy og Garbage. Noel Gallagher úr Oasis mun svo taka eitt lag ásamt Paul Weller sjálfum. Soundgarden Einn af helstu boðberum rymrokks- ins, Grungesins ásamt Nirvana, Pearl Jam, Alice in chains og fleir- um, Soundgarden, hefur nú nokkuð svo óvænt, hætt störfum. Barst þessi fregn í lok síðustu viku og er óhætt að fullyrða að mörgum aðdáandanum um heim all- an er nú brugðið. Að vísu er ljóst að mjög er farið að slá í rymrokkið, sem kennt hefur verið við Seattle, þaðan sem Soundgarden og flestar hinna hljóm- sveitanna eru upprunnar, auk þess sem á ýmsu hefur gengið hjá þeim Chris Cornell, Ben Shepherd, Kim Thayil og Bert Cameron, meðlimum Soundgarden, síðustu mán- uðina, en í ljósi þess að vel- gengnin hefur verið mikil á síðustu árum, kemur það nokkuð á óvart að hún leggi upp laupana nú. Ýmis vandræði, m.a. hjá Kim Thayil gítarleikara, sem kærður var á síðasta ári fyrir að ráðast á aðdáanda sveit- arinnar, geta verið ástæðan, en það hefur enn ekki fengist staðfest þar sem íjórmenn- ingarnir hafa ekki enn tjáð sig opinberlega um málið. Soundgarden var stofnuð fyrir um 13 árum, 1983 og sendi á þeim tíma frá sér sex plötur, miniplötuna Ultra- mega OK, 1988, Louder than love 1989, Badmotorfinger 1991, Superunknown 1994 og Down on the upside 1996. Þessar plötur hafa selst í yfir 20 milljónum eintaka á heimsvísu og gert Soundgarden af einni af fremstu rokk- sveitum samtímans. Stóra stökkið hjá henni var 1994 með Superunknown, sem fór á toppinn í Bandaríkjunum, í 4. sæti í Bretlandi og hlaut tvenn Grammy verðlaun m.a. Inni hélt platan hið frá- bæra lag, Black hole sun, sem mörgum finnst vera eitt af meistarastykkjum tíunda áratugarins. Soundgarden. Hefur selt yfir 20 millj. af plötum, en hættir samt. Sagan öll hjá

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.