Dagur - Tíminn Akureyri - 23.05.1997, Síða 7
JDagur-Smmtn
Föstudagur 23. maí 1997-19
Beðin í garðinum verða mikiu fallegri með hjálp þekju.
Mynd: JHF
GARÐALÍFIÐ í LANDINU
Dlgresið
undir
Nú vilja allir vera
lífvœnlegir í athöfn-
um sínum og segja
garðyrkjufrœðingar
algjört afturhvarf
til gamalla hús-
hátta um gróður og
jörð. Notkun á eit-
urefnum til að
drepa arfa er ekki
góð afspurnar.
Vilmundur Hansen, garð-
yrkjufræðingur, hefur
t.a.m. dálæti á svokall-
aðri þekju sem er græn aðferð
til að kæfa illgresi. „Maður tek-
ur þá bara heyið úr garðinum
og setur það í trjábeð eða önn-
ur beð og kæfir þannig arfann.
Það er í rauninni hægt að nota
hvað sem er í þekjuna; spæni,
álpappír, safnhaugamold, tjöru-
pappír og jólapappír. Þegar
þetta er gert á sér stað gerjun
sem llýtir fyrir allri lífsstarf-
semi, þetta rotnar bara og fer
út í jarðveginn.“
Þekjun fer þannig fram að
jarðvegurinn er hulinn með líf-
rænum efnum og eykur það
rotnun og magn næringarefna í
moldinni. ;,Jarðvcgur sem lengi
hefur staðið opinn á á hættu að
brotna niður og fá óæskilega
byggingu en með þekjunni má
koma í veg fyrir þetta og bæta
þann skaða sem þegar hefur
orðið. Aukið fæðuframboð í
jarðveginum eykur líka starf-
semi ánamaðka en þeir eru
bestu vinir jarðeigandans. Þeir
ílýta rotnun,
bæta jarðvegs-
byggingu og
auka loftskipti.
Um leið og
þekja ver jarð-
veginn fyrir
regni kemur
hún í veg fyrir
útskolun nær-
ingarefna."
Greinilega
góðra gjalda
verð, þekjan,
en er ekki
óhemju ljótt að
hylja garðinn
sinn með þess-
um hætti yfir
sumartímann?
„Það er það eina sem menn
hafa sett fyrir sig því þetta
verður að gerast yfir sumarið. -
En menn gera þetta auðvitað
ekki ár eftir ár og flestir eru til-
búnir til að þekja í eitt sumar
og fá svo miklu betri jarðveg og
garð næsta sumar. Plönturnar
verða miklu fallegri."
Vilmundur segir að það megi
nota allan lífrænan úrgang í
þekjuna, meira að segja dag-
blöð en þá er settur sandur yfir
þau.
Tvískiptur garður
Ertu með garð?
„Já ég er með garð á Þórs-
götunni í
Reykjavík.
Ilann er tví-
skiptur. f öðr-
um hlutanum
var aðallega
rauðamöl en ég
stakk saman
við hana heyi
og laufblöðum
þangað til ég
náði jarðvegin-
um góðum. í
þessum hluta
er svona nagla-
klippu- og
fiísatangagróð-
ur sem þarf að
hugsa mjög vel
um en í hinum hlutanum þar
sem ég er í sólbaði er allt í fífl-
um og sóleyjum og mér finnst
það mjög fallegt. Villtir garðar
eru líka fallegir." -mar
„Flestir garðeig-
endur eru tilbúnir
aðþekja í eitt sum-
ar og fá þannig
miklu betri jarðveg
og garð nœsta sum-
ar. Plönturnar
verða miklu
fallegri. “
VexMiðuH,
1997
®Vínartónleikar í
ilpróttaskemm-
unni á Akureyri
Kariakór, kammer-
sveit, einsöngur
Laugardagfur 24. maí kl. 17:00
Sunnutlag'ur 25. maí kl. 17:00
Einsöngur: Ólöf KolLrún Haráardóttir,
sópran, Þorgeir Andrésson, tenór
Konsertmeistari: Szymon Kuran
StjórnanJi: Roar Kvam
Píanóíeikur: Rickard Simm
Karl akór Akureyrar - Geysir
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Stóra sviðið kl. 20.00
KÖTTUR Á HEITU BLIKKÞAKI
eftir Tennessee Wiliams
16. sýn. fimmtud. 29. mai.
Næstsíðasta sýning.
17. sýn.fimmtud. 5. júní.
Siðasta sýning.
FIÐLARINN Á ÞAKINU
eftir Boch/Stein/Harnick
12. sýn. föstud. 30. maí. Uppselt.
13. sýn. laugard. 31. maí. Uppselt.
14. sýn. sunnud. 1. júní. Uppselt.
15. sýn. miðvikud. 4. júní. Örfá sæti laus.
16. sýn. föstud. 6. júní. Uppselt.
17. sýn. laugard. 7. júní. Uppselt.
18. sýn. föstud. 13. júní. Nokkur sæti laus.
19. sýn. laugard. 14. júní. Nokkur sæti laus.
19. sýn. sunnud. 15. júní.
20. sýn. fimmtud. 19. júní.
Tungskinseyjuhópurinn
í samvinnu við Þjóðleikhúsið
Óperan TUNGLSKINSEYJAN
2. sýn. í kvöld, föstud. 23. maí
3. sýn. laugard. 24. maí
4. sýn. þriðjud. 27. maí
„Athyglisverðasta áhugaleikhússýning ársins.“
Leikfélag Selfoss sýnir
SMÁBORGARABRÚðKAUP
eftir Berthold Brecht í leikstjórn Viðars
Eggertssonar.
Sunnud. 25. maí kl. 20.00.
Aðeins þessi eina sýning
Listdansskóli íslands
Nemendasýning
Laugard. 24. maíkl. 14.00.
Litla sviðið kl. 20.30
LISTAVERKIÐ
eftir Yazmina Reza
Sunnud. 25. mai. Uppselt.
Föstud. 30. maí. Uppselt
Laugard. 31. maí. Uppselt.
Sunnud. 1. júní. Uppselt.
Föstud. 6. júní. Uppselt.
Laugard. 7. júní Uppselt.
Föstud. 13. júní. Nokkur sæti laus.
Laugard. 14. júní. Nokkur sæti laus.
Sunnud. 15. júnf.
Miöasalan er opin mánudaga og
þriðjudaga kl. 13-18, frá miðvikudegi
til sunnudags kl. 13-20 og til 20.30
þegar sýningar eru á þeim tíma.
Einnig er tekið á móti'
símapöntunum frá kl. 10 virka daga.
Sýningar:
Um helgina var uppselt.
Vegna fjölda áskorana
verða sýningar:
Laugardaginn
24. maí kl. 20.30.
Sunnudaginn
25. maí kl. 20.30.
Allra síðustu sýningar
Það ætla allir að sjá
Vefarann!
Leikstjórn: Halldór E. Laxness
Sýningin er ekki við hæfi barna
Ekki er hægt a& hleypa
gestum inn í salinn eftir
að sýningin hefst.
Sýnt er á Renniverk-
stæðinu, Strandgötu 49.
Miðasalan er opin alla
virka daga nema mánudaga
frá kl. 13-17.
Miðasalan er í Sam-
komuhúsinu, Hafnarstræti 57
Sími í miðasölu
er 462 1400.
JBagurálItmhttt
- besti tími dagsins!