Dagur - Tíminn Akureyri - 14.06.1997, Side 19
JOaginr-®mrám
Laugardagur 14. júní 1997 - 31
SKAK
Guðfríður
Lilja
Grétarsdóttir
skrifar
Blindskák er eitt þeirra
fyrirbæra skáksögunnar
sem í gegnum tíðina hafa
vakið hvað mesta athygli á
meðal almennings. Mörgum er
óskiljanlegt hvernig hægt er að
teíla „blindandi" jafnvel margar
skákir samtímis, án þess að
hafa fyrir framan sig skákborð
eða taflmenn til að þreifa á.
Það hefur enda verið sýnt að
blindskák tekur háan toll af
fólki, bæði líkamlega og and-
lega, og sums staðar hefur hún
jafnvel verið bönnuð af yfirvöld-
um, eins og til dæmis í Sovét-
ríkjunum sálugu.
Heimildir eru til um blind-
skák allt frá 8. og 9. öld, þar
sem segir frá eftirsóttum og
virtum arabískum skákmeistur-
um sem tefldu allt að ijórar
blindskákir samtímis. Einnig
eru til gamlar kínverskar þjóð-
og dæmisögur þar sem blind-
skák kemur við sögu. Ein slíkra
sagna segir frá sigursælum
hershöfðingja sem í dulargervi
smyglaði sér inn í mikilvægan
bæ til að kanna hvernig hann
gæti best farið að því að her-
taka hann. Eina nóttina gat
hann ekki sofið þar sem hann
heyrði á stöðugt tal tveggja
kvenna í næsta herbergi. Hann
gat ekki séð þær í myrkrinu, en
sem hann hlustaði á tal þeirra
gerði hann sér grein fyrir að
þær voru að tefla skák blind-
andi.
Honum varð um og hann
hugsaði með sjálfum sér að ef
konur bæjarins væru svo afl-
miklar að geta blindandi stjórn-
að herjum sínum, þá væru karl-
mennirnir án efa ósigrandi.
Sagan segir að hershöfðinginn
hafi þá forðað sér úr bænum og
ákveðið að finna önnur lönd til
að herja á.
Endurvakin á 18. öld
Þrátt fyrir háan aldur blind-
skákarinnar virðist það hins
vegar ekki vera fyrr en á 18.
öld sem hún er endurvakin, eft-
ir langan svefn, af franska
meistaranum Philidor. Aðeins
18 ára að aldri vakti Philidor,
sem líka var afkastamikið tón-
skáld, geysilega athygli á Café
de la Régence í París. Þar tefldi
hann blindandi 2 skákir sam-
tímis við skákmeistara sem
máttu horfa á taflið. Upp frá því
varð það vinsælla á meðal
góðra skákmeistara að tefla slík
blind fjöltefli, og í lok 19. aldar
voru sumir af bestu meisturun-
um farnir að tefla blindskákir á
12 skákborðum samtímis.
Skákmenn eins og Morphy,
Zukertort, Paulsen og Black-
burne voru mjög góðir í blind-
skák og sýndu oft listir sínar á
því sviði, jafnvel oftar en heilsu-
samlegt getur talist. Frægar
frásagnir eru til dæmis til af
blindfjöltefli Morphy við 8 bestu
skákmenn Parísar á Café de la
Regence árið 1858. Morphy sat
í 10 klukkutíma í þar til gerðum
hægindastól og tefldi án hlés,
starandi á vegginn fyrir framan
sig á meðan „sjáandi“ skák-
meistararnir fyrir aftan hann
sátu þungt hugsi yfir taflborð-
unum.
Morphy vann 6 skákir og
gerði 2 jafntefli. Aðdáunarfullur
blaðamaður skrifaði: „Morphy
hefur sannað sig æðri Cesar, því
að hann kom, hann sá ekki,
hann sigraði.“
Heimsmet í blindskák
Árið 1902 sló Bandaríkjamað-
urinn Pillsbury nýtt heimsmet
með því að tefla blindfjöltefli
við 21 skákmeistara í Hannov-
er. Síðari skákmenn, eins og
Réti, Aljekín og Najdorf, slóu
svo heimsmet Pillsbury, en sá
sem komst lengst var ungverski
stórmeistarinn Janos Flesch,
sem árið 1970 tefldi samtímis
62 skákir blindandi. Eftir 12
klukkustunda setu hafði hann
unnið 31 skák, gert jafntefli í 18
og tapað 3. Hann afsannaði því
orð virts dagblaðs í Chicago,
sem árið 1933, þegar Aljekín
setti nýtt heimsmet og tefldi
blindfjöltefli við 32, skrifaði:
„Þetta afrek er áreiðanlega við
ystu mörk þess sem mannshug-
inn getur mögufega afkastað og
mannlegt minni framkallað.
Handan þessara marka hlýtur
aðeins að vera að finna ringul-
reið og brjálsemi.“
Þótt ótrúlegt megi virðast
tefldi Koltanowski oft af meiri
snilli blindandi en sjáandi. Eft-
irfarandi skák var tefld á blind-
fjölteflinu í Antwerpen 1931:
Hvítt: Koltanowski
Svart: Dunkelblum
Max-Lange-árás
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4
Bc5 4. 0-0 Rf6 5. d4 exd4 6. e5
d5 7. exf6 dxc4 8. Hel+ Be6 9.
Rg5 Dd5 10. Rc3 Df5 11. Rce4
Bb4 12. c3 dxc3 13. bxc3 Ba5
14. g4 Dg6 15. Rxe6 fxe6 16.
Í7+ Kxí7 17. Rg5+ Kg8 18.
Hxe6 Dd3 19. Del Hf8 20. He8
Dd7 21. Hxf8+ Kxf8 22. Ba3+
Re7 23. Hdl Dxg4+ 24. Kfl
Dxg5 25. Hd5 Dh4 26. Hh5 Df6
27. Hf5 og svartur gaf, 1-0.
Að lokum er ekki úr vegi að
minna á að blindir hafa líka
gaman að því að tefla og geta
náð langt á því sviði eins og
öðrum. I stað þess að tefla eig-
inlega „blindskák“ tefla blindir
hins vegar oftast á sérstaklega
útbúnum taflborðum og með
þar til gerðum taflmönnum.
Reitir borðsins eru misháir og
hvítu mennirnir frábrugðnir
þeim svörtu svo að teflendur
geta áttað sig á stöðunni með
því að snerta mennina og borð-
ið á milli leikja.
Alþjóðablindraskáksam-
bandið var stofnað árið 1958 og
það hefur staðið fyrir heims-
meistarakeppnum og regluleg-
um Ólympíuskákmótum blindra
frá árinu 1961.
BRIDGE
Björn
Þorláksson
skrifar
Evrópumótið í bridge hefst
á morgun í Montecatini á
Ítalíu. ísland keppir í
kvennaflokki og opnum flokki
og hlýtur takmarkið að vera eitt
af fimm efstu sætunum þannig
að liðin komist í heimsmeist-
arakeppnina sem 1‘ram fer í
Túnis í október. Það ætti að
vera raunhæft viðmið í opna
flokknum en kvennahðið er lítt
skrifað blað.
Björn Eysteinsson er fyrirliði
karlahópsins en hann skipa;
Jón Baldursson-Sævar Þor-
björnsson, Aðalstoinn Jörgen-
sen-Matthías Þorvaldsson og
Guðmundur Páll Arnarson-Þor-
lákur Jónsson. í kvennaflokki
spila Guðrún Óskarsdóttir,
Anna ívarsdóttir, Ljósbrá Bald-
ursdóttir, Jacqui McCreal, Est-
her Jakobsdóttir og Valgerður
Kristjónsdóttir. Ragnar Her-
mannsson þjálfaði liðið er Björn
Theódórsson er liðsstjóri.
Dagur-Tíminn tók Guðmund
Pál tali rétt áður en íslensku
landsliðin héldu utan og bað
hann að spá í spilin. Liðið er
mjög leikreynt en GPA er ekkert
alltof bjartsýnn á árangur. „Lið-
ið er sterkt á pappírunum og
e.t.v. gengur þetta en eins gæt-
um við dottið niður í miðjumoð-
ið. Mér finnst e.t.v. ekki sami
eldmóður í liðinu og oft hefur
verið en menn ganga til verks
eins og í hverri annarri vinnu,
aðalatriðið er að vélin virki. Við
erum búnir að gera þetta svo
oft að eldmóðurinn kemur ekki
fyrr en á staðnum. En ég á von
á að adrenalínið flæði þegar
fyrsta gjöfin er tekin upp. Ann-
ars gengur ekki neitt,“ segir
GPA. Það gæti sett strik í reikn-
inginn að Þorlákur og GPA hafa
ekkert spilað saman í hálft ár
en þeir eiga átta ára feril sam-
an og því kemur það e.t.v ekki
að sök.
Guðmundur telur ítali og
Frakka langefsta á blaði hvað
varðar sigurmöguleika en næst
komi Svíar, Norðmenn og jafn-
vel Danir ásamt vonandi Islend-
ingum. Á síðasta stórmóti í
Ródos spiluðu öll íslensku pörin
nokkuð jafnt og virtust jöfn að
styrkleika. Sú staða hefur
meira og minna ekki verið fyrir
hendi allt frá árinu 1991, að
mati GPA og vonandi verður
uppskeran eftir því. Áfram ís-
land, jafnt konur sem karlar.
Bikarinn 1997
Allmörgum leikjum er lokið í 1.
umferð Bikarsins 1997 og hafa
úrslit orðið eftirfarandi:
Björgvin Leifsson Húsavik-
Guðjón Bragason Hellu 82-124
Guðmundur Ólafsson Akranesi-
Sparisjóður Mýrasýslu 90-145
SS Brú Akureyri-
Sparisjóður Hornafj. 126-11
Bryndís Þorsteinsd. Reykjavík-
Birgir Ö. Steingrímsson 84-112
Neon Reykjavik-
Einir Hornafirði 128-83
Bílanes Kaflavík-
Rúnar Einars. AK/Rek 115-91
Þorsteinn Guðjónsson Dalvík-
Jens Jensson Reykjavík 115-91
Jón N. Gíslason Reykjavík-
Ham ísafjörður 51-112
Sveinn Áðalgeirsson Húsavík-
Gunnlaug Einarsd. R.vík 87-73
Ólafur Steinason Selfoss-
Aðalsteinn Sveinsson 121-95
Guðný Guðjónsdóttir Reykjavík-
Gissur Jónasson Ak. 103-110
ingurinn. Til að gera langa sögu
stuttu fékk sagnhafi tvo slagi,
1100 til andstæðinganna.
Reyndar vinnst slemma í AV en
ekki er hún góð.
Samanburðurinn hófst:
„Við eigum eitt hræðilegt spil.“
„Já, við líka.“
„Spil 17.“
„Já, það er líka vonda spilið
okkar. Fínt þau fóru saman.“
„Ekki fóruð þið í „allann“?“
„Nei, við spiluðum 2 lauf.“
„Jájá og við spiluðum einn
spaða 1100 niður. Bíddu, sagð-
irðu 2 lauí???“
„Já, austur opnaði og ég
sagði tvö lauf. Það var ekki rætt
hvort það væri krafa en ég taldi
svo ekki vera og sagði pass. Þau
unnust!“
Þrátt fyrir þessi vísindi vann
sveit Guðjóns leikinn nokkuð
örugglega.
Gylfi Baldurs-
son Reykja-
vík-Guðlaugur
Bessason ÓI-
afsvík 115-83.
Umsjónar-
mann skortir
þekkingu til
að álykta
mikið um úr-
slit þessara
leikja en þó er
ljóst að það
kemur á óvart
að sveit Rún-
ars Einars-
sonar skyldi
bera skarðan
hlut á Suður-
nesjum.
í bikarleik
sveitar Guð-
jóns Braga-
sonar gegn íslenska landsliðið i
sveit Björg-
vins frá Húsavík var spilara
harðlega refsað fyrir að út-
spilsdobla sögn á fyrsta sagn-
stigi. Lítum á það:
9653
854
7532
D87
AKG4
K987
43
K973
AD6
AKD
* T86
ADGT2
GT2
G94
Sagnir:
Norður Austur Suður Vestur
pass pass pass llauf
pass lhjarta doblf?) redobl
lspaði dobl pass pass
opnum flokki í bridge.
Norður gaf og passaði og það
sama gerði austur, Gaukur
Hjartarson, þar sem tígulopnun
í Prescisionkerfi hans og Frið-
geirs, makkers hans, lofar 12
punktum ef spilin eru jafnskipt.
Það hvarflaði eitt andartak að
suðri að opna á veikum tveimur
í hjarta en það er óöguð sögn
og því varð passið fyrir val-
inu.Vestur hóf leikinn á sterku
laufi og eftir jákvætt hjartasvar
Gauks sem hafði ekkert með lit-
inn að gera, taldi suður lag að
útspilsdobla. Tilfinningin var að
vestur myndi verða sagnhafi í
grandsamningi. En þetta reynd-
ist ekki góður tími fyrir hetju-
dáðir. Friðgeir redoblaði að
sjálfsögðu á jöfnum hættum og
norður sá að samningurinn
myndi að öllum lfkindum
standa - jafnvel moð yfir-
slag/slögum - og prófaði einn
spaða. En hakkavélin var kom-
in af stað. Gaukur doblaði og
einn spaði doblaður varð samn-