Dagur - Tíminn Akureyri - 28.06.1997, Page 5

Dagur - Tíminn Akureyri - 28.06.1997, Page 5
JQagur-'ðlfattnn Laugardagur 28. júní 1997 - 5 Sjúkrahúsin Tímasprengja í nýju launakerfi Gjörbylting verður á launakerfi hjúkrunarfræðinga 1. febrúar nk. Heilbrigðisstéttir reikna með góðri launahækkun, - en fjármálaráðuneytið lofar engum peningum. Forsvarsmenn sjúkrahús- anna hafa miklar áhyggj- ur af framkvæmd kerfis- breytinga í samningum við sér- hæft starfsfólk í heilbrigðisgeir- anum sem framundan eru. Þeir óttast að í nýjum launarömm- um hjúkrunarfræðinga, iðju- þjálfa, sjúkraþjálfara, sjúkra- liða, sálfræðinga og fleiri stétta leynist tímasprengja. Slóraukn- ar launagreiðslur kalla á fé sem íjármálaráðuneytið telur sig ekki hafa í höndunum. Engum peningum hefur verið lofað af samninganefnd ríkisins. Nýtt launakerfi hjúkrunar- fræðinga tekur gildi 1. febrúar á næsta ári. Þar er um gjörbylt- ingu að ræða og greinilegt að launþegar hafa væntingar um stórhækkuð laun. Eorsvars- menn sjúkrahúsanna telja hins vegar að einhverjir verði fyrir vonbrigðum. Jón M. Benediktsson, fram- kvæmdastjóri sjukrahússviðs Reykjalundar, sagði í gær að liann óttaðisl um vinnu aðlög- unarnefnda, som eiga að raða fólki á þrjú svið hins nýja launakerfis. Nefndirnar eiga að hefla störf 1. ágúst. Þær verða skipaðar allt að þrem fulltrúum stofnunar á móti jafnmörgum frá stéttarfélagi. Nefndirnar eiga að koma sér saman um nánari forsendur fyrir því að raða starfsfólki í launaflokka. Ekki einstökum starfsmönnum, heldur að finna einstökum störfum pláss innan þriggja launaramma eftir vægi starfanna. Nái nefndir ekki samstöðu, má skjóta málum til úrskurðarnefndar, sem hefur tíma til nóvemberloka að klára sín verkefni. Ljóst er að lítið verður aðhafst á sumarleyfis- tímanum. Framundan er mikið starf og væntanlega mikið karp um niðurröðun einstakra starfsmanna. Heimilt er að meta hina ýmsu huglægu þætti, og sagði Jón það í raun og veru nokkuð grátt svæði. „Ég hef heyrt í einstökum starfshópum sem hafa séð þetta samkomulag. Fólkið reynir að sjá út hvernig sínum störfum yrði raðað mögulega. Og þeir eru að fá út eitthvað annað og Sauðfé meira en við gætum hugsanlega ráðið við,“ sagði Jón M. Bene- diktsson. Launarammar hjúkrunar- fræðinga eru þrír, A, B og C- rammi. í A-ramma eru laun al- mennra starfsmanna og eru þau frá 102 þúsund krónum fyrir byrjanda upp í 177 þúsund fyrir 16. launafiokk 40 ára og eldri. Ilafi hjúkrunarfræðingur umsjón með verkefnum eða málailokkum eru iægstu laun 127.500 krónur, en hæst nærri 218 þúsund krónur. 1 C-ramma eru þeir sem hafa með stjórn- un, áætlanagerð og samhæfingu við stefnu stofnunar að gera. Þar eru hæstu taxtalaun 285 þúsund krónur. -JBP Greinargerð um bóluefni leyfi og segir að von sé á grein- argerð fljótlega upp úr helgi vegna þess. Guðmundur bendir á að ýmsar aðrar skýringar en bóluefni geti verið fyrir afföll- um. þessu bóluefni og það veikt- ust hjá okkur allmargar ær. Þær átu ekki alllengi og ég missti þrjár ær út af þessu. Svo komu ígerðir í stungusárin. Þetta hefur þó ekki verið rak- ið til neins. Þeir sögðu mér Keldnamenn að það væru dæmi um að kindur urðu eitthvað lasnar eftir bólu- setningu. Þeir þekktu þetta af Suðurlandi að kindur hefðu ekki étið. Ekki vafi að eitthvað var að - segir bóndi á Hriflu. Keldur rann- saka málið. Von er á greinargerð frá Keldum vegna bóluefnis sem tengt hefur verið við lambadauða og veikar ær. Guð- mundur Georgson forstjóri seg- ir að bóluefni hafi verið innkall- að þegar tilefni gafst til og ekk- ert athugavert komið í ljós: „Við prófuðum iimkölluð efni og fundum ekkert.“ Eins og Dagur- Tíminn sagði frá í vikunni dráp- ust á annað hundrað lömb á Holti í Svínadal og röktu ábú- endur það til bóluefnis frá Keldum, að minnsta kosti að hluta. Guðmundur Georgsson segist ekki hafa heyrt um við- líka afföll annars staðar. Hann er nýkominn að málinu eftir Eitthvað að? „Fyrir mér var það engin spurning að þarna var eitthvað að,“ segir Sigtryggur Vagnsson, bóndi að Hriflu, S-Þingeyjar- sýslu. „Við sprautuðum með Guðmundur Georgsson segir að það sé misskilningur sem fram hafi komið í fréttum vik- unnar að stofnunin hafi fallist á að um gallað bóluefni hafi verio að ræða - enda hafi prófanir ekki leitt neitt slíkt í ljós. Stutt og laggott Þorsteinn skipaður fangelsismálastjóri Dómsmálaráðherra hefur skipað settan forstjóra Fangelsis- málastofnunar ríkisins til að vera forstjóri stofnunarinnar frá 1. júlí næstkomandi að telja. Tveir umsækjendur voru um stöðuna. -sbs. Snorri Olsen tollstjóri í Reykjavík Fjármálaráðherra hefur skipað Snorra Olsen, yfirlögfræðing hjá ríkisskattstjóra, í embætti tollstjóra í Reykjavík frá 1. október nk. Frá sama tíma hefur Björn Hermannsson, nú- verandi tollstjóri, óskað eftir lausn frá embætti. Alls sóttu tíu manns um stöðuna. Frá komandi áramótum mun emb- ætti Tollstjóra í Reykjavík taka við ýmsum verkefnum sem Gjaldheimtan í Reykavík hefur annast, en undir lok sl. árs varð að samkomulagi milli ijármálaráðuneytis og Reykja- víkur að slíta samstarfi um sameiginlega innheimtu opin- berra gjalda í borginni og frá áramótum mun Tollstjórinn í Reykjavík annast innheimtuna. -sbs. Kristján Eysteinsson, form. Skólanefndar Samvinnuháskólans á Bifröst, til vínstri, og Guðmundur Bogason, sigurvegari, með sig- urtillöguna á milli sín. Nýtt merki fyrir Samvinnuháskólann Guðmundur Bogason, grafískur hönnuður í Reykjavík, átti tillögu þá sem sigraði í samkeppni sem Skólanefnd Sam- vinnuháskólans á Bifröst í Borgarfirði efndi til í vetur um nýtt merki fyrir skólans. Alls bárust um 70 tillögur og höf- undur þeirrar tillögu sem skólanefnd valdi úr fær 100 þús kr. peningaverðlaun. Nú fer fram frekari hönnunarvinna við sigurtiliöguna, sein verður grunnur að nýju nierki skólans á Bifröst. -sbs. Skíðamót fullorðinna í Kerlingarfjöllum Á laugardag um aðra helgi verður haldið i Kerlingarijöllum 7. meistaramót skíðamanna, þrítugra og eldri. Keppt er í fiokkum sem spanna fimm ár. þ.e. frá 30 til 34 ára, 23 til 39 ára, 40 til 44 ára og þannig áfram. Þátttaka er öllum heim- il. Farnar verða tvær ferðir: í svigi eða stórsvigi eftir að- stæðum. „Eftir að hinni eiginlegu keppni er lokið, verður lögð önnur braut með innbyggðu glensi og gamni. í þessari seinni braut verður farin ein ferð. Samkomutjald verður sett upp á tjaldstæðinu og verða verðlaun aflient þar,“ segir í frétt. -sbs. Fjölbreytt dagskrá í Fræðagarði Fjölbreytt dagskrá verður í Fræðagarðinum við Mývatn um helgina. í dag, laugardag, flytur Ölafur K. Níelsson fugla- fræðingur erindi um fálka og rjúpur og verður erindið flutt á ensku í Grunnskóla Skútustaðahrepps. Á sunnudag verð- ur, kl. 10:30, lagt upp í gönguferð frá bfiastæðunum við Ilverfjall og verður farið þar um næsta nágrenni, sem er fjölbreytt út frá náttúrufræðilegu sjónarmiði. Fararstjóri í þessari ferð er Ólöf Ýrr Atladóttir, forstöðumaður Fræða- garðsins við Mývatn. - sbs Áferð og flugi Æ meiri íburður virðist lagður í auglýsingar. í tilefni bíla- sýningar Toyota mátti líta þessa sérstæðu sýn í Laugar- dalnum í gær þegar Toyota-menn fluttu bifreið á þak Laugardalshallarinnar.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.