Dagur - Tíminn Akureyri - 28.06.1997, Blaðsíða 5
JQagur-'ðlfattnn
Laugardagur 28. júní 1997 - 5
Sjúkrahúsin
Tímasprengja í
nýju launakerfi
Gjörbylting verður á launakerfi hjúkrunarfræðinga 1. febrúar nk.
Heilbrigðisstéttir
reikna með góðri
launahækkun, - en
fjármálaráðuneytið
lofar engum
peningum.
Forsvarsmenn sjúkrahús-
anna hafa miklar áhyggj-
ur af framkvæmd kerfis-
breytinga í samningum við sér-
hæft starfsfólk í heilbrigðisgeir-
anum sem framundan eru. Þeir
óttast að í nýjum launarömm-
um hjúkrunarfræðinga, iðju-
þjálfa, sjúkraþjálfara, sjúkra-
liða, sálfræðinga og fleiri stétta
leynist tímasprengja. Slóraukn-
ar launagreiðslur kalla á fé sem
íjármálaráðuneytið telur sig
ekki hafa í höndunum. Engum
peningum hefur verið lofað af
samninganefnd ríkisins.
Nýtt launakerfi hjúkrunar-
fræðinga tekur gildi 1. febrúar
á næsta ári. Þar er um gjörbylt-
ingu að ræða og greinilegt að
launþegar hafa væntingar um
stórhækkuð laun. Eorsvars-
menn sjúkrahúsanna telja hins
vegar að einhverjir verði fyrir
vonbrigðum.
Jón M. Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri sjukrahússviðs
Reykjalundar, sagði í gær að
liann óttaðisl um vinnu aðlög-
unarnefnda, som eiga að raða
fólki á þrjú svið hins nýja
launakerfis. Nefndirnar eiga að
hefla störf 1. ágúst. Þær verða
skipaðar allt að þrem fulltrúum
stofnunar á móti jafnmörgum
frá stéttarfélagi. Nefndirnar
eiga að koma sér saman um
nánari forsendur fyrir því að
raða starfsfólki í launaflokka.
Ekki einstökum starfsmönnum,
heldur að finna einstökum
störfum pláss innan þriggja
launaramma eftir vægi
starfanna. Nái nefndir ekki
samstöðu, má skjóta málum til
úrskurðarnefndar, sem hefur
tíma til nóvemberloka að klára
sín verkefni. Ljóst er að lítið
verður aðhafst á sumarleyfis-
tímanum. Framundan er mikið
starf og væntanlega mikið karp
um niðurröðun einstakra
starfsmanna. Heimilt er að
meta hina ýmsu huglægu þætti,
og sagði Jón það í raun og veru
nokkuð grátt svæði.
„Ég hef heyrt í einstökum
starfshópum sem hafa séð þetta
samkomulag. Fólkið reynir að
sjá út hvernig sínum störfum
yrði raðað mögulega. Og þeir
eru að fá út eitthvað annað og
Sauðfé
meira en við gætum hugsanlega
ráðið við,“ sagði Jón M. Bene-
diktsson.
Launarammar hjúkrunar-
fræðinga eru þrír, A, B og C-
rammi. í A-ramma eru laun al-
mennra starfsmanna og eru
þau frá 102 þúsund krónum
fyrir byrjanda upp í 177 þúsund
fyrir 16. launafiokk 40 ára og
eldri. Ilafi hjúkrunarfræðingur
umsjón með verkefnum eða
málailokkum eru iægstu laun
127.500 krónur, en hæst nærri
218 þúsund krónur. 1 C-ramma
eru þeir sem hafa með stjórn-
un, áætlanagerð og samhæfingu
við stefnu stofnunar að gera.
Þar eru hæstu taxtalaun 285
þúsund krónur. -JBP
Greinargerð um bóluefni
leyfi og segir að von sé á grein-
argerð fljótlega upp úr helgi
vegna þess. Guðmundur bendir
á að ýmsar aðrar skýringar en
bóluefni geti verið fyrir afföll-
um.
þessu bóluefni
og það veikt-
ust hjá okkur
allmargar ær.
Þær átu ekki
alllengi og ég
missti þrjár ær
út af þessu.
Svo komu
ígerðir í
stungusárin.
Þetta hefur þó
ekki verið rak-
ið til neins.
Þeir sögðu mér Keldnamenn að
það væru dæmi um að kindur
urðu eitthvað lasnar eftir bólu-
setningu. Þeir þekktu þetta af
Suðurlandi að kindur hefðu
ekki étið.
Ekki vafi að eitthvað
var að - segir bóndi á
Hriflu. Keldur rann-
saka málið.
Von er á greinargerð frá
Keldum vegna bóluefnis
sem tengt hefur verið við
lambadauða og veikar ær. Guð-
mundur Georgson forstjóri seg-
ir að bóluefni hafi verið innkall-
að þegar tilefni gafst til og ekk-
ert athugavert komið í ljós: „Við
prófuðum iimkölluð efni og
fundum ekkert.“ Eins og Dagur-
Tíminn sagði frá í vikunni dráp-
ust á annað hundrað lömb á
Holti í Svínadal og röktu ábú-
endur það til bóluefnis frá
Keldum, að minnsta kosti að
hluta. Guðmundur Georgsson
segist ekki hafa heyrt um við-
líka afföll annars staðar. Hann
er nýkominn að málinu eftir
Eitthvað að?
„Fyrir mér var það engin
spurning að þarna var eitthvað
að,“ segir Sigtryggur Vagnsson,
bóndi að Hriflu, S-Þingeyjar-
sýslu. „Við sprautuðum með
Guðmundur Georgsson segir
að það sé misskilningur sem
fram hafi komið í fréttum vik-
unnar að stofnunin hafi fallist á
að um gallað bóluefni hafi verio
að ræða - enda hafi prófanir
ekki leitt neitt slíkt í ljós.
Stutt og laggott
Þorsteinn skipaður fangelsismálastjóri
Dómsmálaráðherra hefur skipað settan forstjóra Fangelsis-
málastofnunar ríkisins til að vera forstjóri stofnunarinnar
frá 1. júlí næstkomandi að telja. Tveir umsækjendur voru
um stöðuna. -sbs.
Snorri Olsen tollstjóri í Reykjavík
Fjármálaráðherra hefur skipað Snorra Olsen, yfirlögfræðing
hjá ríkisskattstjóra, í embætti tollstjóra í Reykjavík frá 1.
október nk. Frá sama tíma hefur Björn Hermannsson, nú-
verandi tollstjóri, óskað eftir lausn frá embætti. Alls sóttu
tíu manns um stöðuna. Frá komandi áramótum mun emb-
ætti Tollstjóra í Reykjavík taka við ýmsum verkefnum sem
Gjaldheimtan í Reykavík hefur annast, en undir lok sl. árs
varð að samkomulagi milli ijármálaráðuneytis og Reykja-
víkur að slíta samstarfi um sameiginlega innheimtu opin-
berra gjalda í borginni og frá áramótum mun Tollstjórinn í
Reykjavík annast innheimtuna. -sbs.
Kristján Eysteinsson, form. Skólanefndar Samvinnuháskólans á
Bifröst, til vínstri, og Guðmundur Bogason, sigurvegari, með sig-
urtillöguna á milli sín.
Nýtt merki fyrir Samvinnuháskólann
Guðmundur Bogason, grafískur hönnuður í Reykjavík, átti
tillögu þá sem sigraði í samkeppni sem Skólanefnd Sam-
vinnuháskólans á Bifröst í Borgarfirði efndi til í vetur um
nýtt merki fyrir skólans. Alls bárust um 70 tillögur og höf-
undur þeirrar tillögu sem skólanefnd valdi úr fær 100 þús
kr. peningaverðlaun. Nú fer fram frekari hönnunarvinna við
sigurtiliöguna, sein verður grunnur að nýju nierki skólans á
Bifröst. -sbs.
Skíðamót fullorðinna í Kerlingarfjöllum
Á laugardag um aðra helgi verður haldið i Kerlingarijöllum
7. meistaramót skíðamanna, þrítugra og eldri. Keppt er í
fiokkum sem spanna fimm ár. þ.e. frá 30 til 34 ára, 23 til 39
ára, 40 til 44 ára og þannig áfram. Þátttaka er öllum heim-
il. Farnar verða tvær ferðir: í svigi eða stórsvigi eftir að-
stæðum. „Eftir að hinni eiginlegu keppni er lokið, verður
lögð önnur braut með innbyggðu glensi og gamni. í þessari
seinni braut verður farin ein ferð. Samkomutjald verður
sett upp á tjaldstæðinu og verða verðlaun aflient þar,“ segir
í frétt. -sbs.
Fjölbreytt dagskrá í Fræðagarði
Fjölbreytt dagskrá verður í Fræðagarðinum við Mývatn um
helgina. í dag, laugardag, flytur Ölafur K. Níelsson fugla-
fræðingur erindi um fálka og rjúpur og verður erindið flutt
á ensku í Grunnskóla Skútustaðahrepps. Á sunnudag verð-
ur, kl. 10:30, lagt upp í gönguferð frá bfiastæðunum við
Ilverfjall og verður farið þar um næsta nágrenni, sem er
fjölbreytt út frá náttúrufræðilegu sjónarmiði. Fararstjóri í
þessari ferð er Ólöf Ýrr Atladóttir, forstöðumaður Fræða-
garðsins við Mývatn. - sbs
Áferð og flugi
Æ meiri íburður virðist lagður í auglýsingar. í tilefni bíla-
sýningar Toyota mátti líta þessa sérstæðu sýn í Laugar-
dalnum í gær þegar Toyota-menn fluttu bifreið á þak
Laugardalshallarinnar.