Dagur - Tíminn Akureyri - 28.06.1997, Side 6

Dagur - Tíminn Akureyri - 28.06.1997, Side 6
Jón Birgir Pétursson skrifar Engu skal spáð um fram- vindu fargjaldabyJtingar- innar sem íslandsflug efndi til i gær. En vitað er að flugrekstur er dýr. Ekki aðeins eru tækin hundruða milljóna íjárfestingar, heldur er launa- kostnaður gífurlegur. Flugstjóri hjá Flugleiðum sem flýgur 400 flugtíma á ári, sem mun nálægt því að vera meðalflugtími áhafna, er að fá 17.500 krónur í greiðslu fyrir hvern floginn tíma! Launin lijá hinu nýja Flugfélagi íslands verða hin sömu. Fljúgi þessi flugstjóri að morgni til Egilsstaða og þaðan til Reykjavíkur - en eftir hádegi til Færeyja, er væntanlega kom- inn heiiri til sín um líkt leyti og aðrir launþegar landsins. Hann hefur á vinnudegi sínum unnið sér inn fyrir á annað hundrað þúsund krónur, verkamanns- laun á einum degi. Aðstoðarflugmaður kostar sitt, en er hvergi nærri foringja sínum í vinstra sætinu í laun- um. Flugfreyjan sem selur fólki kaffi og prinspóló er líka dýr og verðleggur sig á annan hátt en stelpur sem afgreiða sömu vöru í sjoppum, laun hennar geta verið á bilinu 2,5 til 3 milljónir á ári. Varahlutir og allar rekstrar- vörur í flugrekstri eru kostnað- arsamur liður. Og ekki má gleyma viðhaldsvinnu og eftir- liti, sem er geysidýr liður í rekstri flugfélaga, enda reglur mjög strangar. Vitað er að starfsfólks ís- landsflugs sættir sig við laun sem eru til muna lægri en þau sem Flugfélag íslands mun verða að greiða. Flugleiðir hafa hvað eftir annað látið í minni pokann gagnvart launþegum sínum, sem hafa alþjóðlegt launakerfi meðan aðrir hópar njóta ekki alþjóðlegrar viðmiðunar. Mikið ánægjuefni fyrir neytendur „Aukin samkeppni leiðir hér til lægri fargjalda og það er okkur auðvitað mikið ánægjuefni. Þetta hefur verið afar óeðlilegt, þegar það hefur verið dýrara að fljúga til dæmis til Þórshafn- ar á Langanesi, nærri tuttugu þúsund krónur, en að fara í fjögurra til fimm daga ferð að' hausti til London, þar sem inni- falið hefur verið lúxushótel og morgunverður,“ sagði Þuríður Jónsdóttir, lögfræðingur og skrifstofustjóri Neytendasam- takanna. „Nú vonum við að þetta verði til frambúðar, en ekki tilboðs- verð í byrjun. Ástandið hefur verið sérstakt. Mörg mál vegna - fram og til baka kostar það 6.930, - þrjátíu krónum meira en að skutlast með ís- landsflugi. Fargjöld fengust í vetur fyrir 3.850 krónur - á vegum verkalýðsfélaganna, 50% afsláttur, takmörkuð sæti í hverri ferð. • Einkabfll af venjulegri gerð, 8 lítra eyðsla á hverja 100 kfló- metra, éyðir trúlega 70 lítr- um á 434 kflómetra langri leið frá Reykjavík til Akureyr- ar og til baka. Lítrinn af bensíni kostar ca. 77.50 þannig að norðurferðin kost- ar nærri 5.500 krónur, auk minni háttar kostnaðar til viðbótar. En vel að merkja. í einka- bflnum sitja fleiri en bflstjórinn. Þar eru makinn og börn. Einka- bfllnum stjórna ferðalangar sjálfir og haga ferð sinni ná- kvæmlega eftir eigin geðþótta. Sá sem kemur norður með rútu eða flugi, stendur eins og illa gerður hlutur á endastöðinni og verður að reiða sig á rándýra bflaleigubfla, leigubfla, eða postulana tvo. Einkabfllinn á því leikinn eins og sjá má. Hins vegar mun ódýrt innan- landsgjald í flugi verða til þess að menn munu fara skreppi- túra út á land, án þess að blikka auga. Slík fargjöld munu leiða til mun meiri hreyfings á íslendingum sem vilja heim- sækja íslendinga. Vissum átt- hagaijötrum hefur verið aflótt. Odýrt innanlandsgjald í flugi mun auka ferðalöngun landsmanna og líkur á „skreppitúrum" fara vaxandi. fargjalda Flugleiða á ýmsum leiðum hafa borist Neytenda- samtökunum. Fólk skilur ekki hvers vegna íslendingar eiga að borga miklu meira í fargjöld en útlendingar," sagði Þuríður Jónsdóttir. Rútubíllinn, einkabíll- inn og flugvélin eru komin í enn harðari samkeppni en nokkru sinni fyrr á innan- landsmarkaði. Far- gjaldasprenging ís- landsflugs í gær end- urómar um allan samgöngugeirann. ís- landsflug lætur sér fátt um finnast, þegar keppinauturinn kvart- ar yfir stórfelldum taprekstri á innan- landsfluginu. Flugið nýtur forréttinda „Við höfum nú lengi verið í bullandi samkeppni við flugið. Núna er nánast verið að lækka verðið niður að rútuverðunum. Á því er afskaplega einföld skýring. Menn vilja komast inn á markaðinn, og þeim er gert það auðvelt á ýmsan hátt,“ sagði Gunnar Sveinsson, fram- kvæmdastjóri Bifreiðastöðvar íslands, í gær. Hann sagði að eftir sem áður væri einkabfllinn helsti keppinautur sérleyfishaf- anna. „Samkeppnisstaðan er allt önnur varðandi tollalega með- ferð á okkar tækjum og flugvél- um. Þessi mismunun gerir flug- inu auðvelt að lækka fargjöldin. Það er kannski allt í lagi með toll og vörugjald. Fólksflutning- ar eru ekki innan VASK- kerfis- ins. Þar af leiðandi leggjum við engan útskatt á. Og að öllu venjulegu eigum við ekki að fá að draga neinn innskatt frá. En hvað gerist í flugrekstri? Ef þú kaupir nýja flugvél og kaupir ákveðnar rekstrarvörur, þá leggur flugið að sjálfsögðu eng- an útskatt á, en það fær að draga frá 24,5% innskatt. Það er erfitt að keppa við þetta,“ sagði Gunnar. Rútubflaeigendur hafa að sjálfsögðu bankað upp á í ijár- málaráðuneyti og samgöngu- ráðuneyti og viljað leiðréttingu mála. Nú munu þeir banka enn á ný á dyr ráðherranna og knýja á um eðlilegt viðskipta- umhverfi. Ný rúta kostar á bilinu 25-30 milljónir króna. íslandsflug og Flugfélag íslands eru með snöggtum dýrari farkosti, en af- köstin eru líka margföld. Tollur sem greiddur er af rútubfl er frá 5-20%. Flugfélögin fá til viðbótar stórkostlega fyrirgreiðslu hins opinbera sem heldur uppi og byggir dýra flugvelli, flugstöðv- ar, flugumferðarstjórn og fleira. „Við höfum nú lengi verið í bullandi sam- keppni við flugið. Núna er nánast verið að lækka verðið niður að rútuverðunum. Á því er afskaplega ein- föld skýring. Menn vilja komast inn á markaðinn, og þeim er gert það auðvelt á ýmsan hátt,“ sagði Gunnar Sveinsson. Einkabíllinn hagstæðastur Hvaða kosti á ferðalangur sem er að fara norður í land í veð- urblíðuna þar? Flug? Rútubfll? Einkabfll? • Flugið, velji ferðamaðurinn íslandsflug, kostar 6.900 krónur fram og til baka. • Rútubfll frá Norðurleið kostar hann 3.850 krónur aðra leið, inkabíllmn sigrar enn í samkeppni við flug og rútu

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.