Dagur - Tíminn Akureyri - 28.06.1997, Qupperneq 6
Jón Birgir
Pétursson
skrifar
Engu skal spáð um fram-
vindu fargjaldabyJtingar-
innar sem íslandsflug
efndi til i gær. En vitað er að
flugrekstur er dýr. Ekki aðeins
eru tækin hundruða milljóna
íjárfestingar, heldur er launa-
kostnaður gífurlegur. Flugstjóri
hjá Flugleiðum sem flýgur 400
flugtíma á ári, sem mun nálægt
því að vera meðalflugtími
áhafna, er að fá 17.500 krónur
í greiðslu fyrir hvern floginn
tíma! Launin lijá hinu nýja
Flugfélagi íslands verða hin
sömu. Fljúgi þessi flugstjóri að
morgni til Egilsstaða og þaðan
til Reykjavíkur - en eftir hádegi
til Færeyja, er væntanlega kom-
inn heiiri til sín um líkt leyti og
aðrir launþegar landsins. Hann
hefur á vinnudegi sínum unnið
sér inn fyrir á annað hundrað
þúsund krónur, verkamanns-
laun á einum degi.
Aðstoðarflugmaður kostar
sitt, en er hvergi nærri foringja
sínum í vinstra sætinu í laun-
um.
Flugfreyjan sem selur fólki
kaffi og prinspóló er líka dýr og
verðleggur sig á annan hátt en
stelpur sem afgreiða sömu vöru
í sjoppum, laun hennar geta
verið á bilinu 2,5 til 3 milljónir
á ári.
Varahlutir og allar rekstrar-
vörur í flugrekstri eru kostnað-
arsamur liður. Og ekki má
gleyma viðhaldsvinnu og eftir-
liti, sem er geysidýr liður í
rekstri flugfélaga, enda reglur
mjög strangar.
Vitað er að starfsfólks ís-
landsflugs sættir sig við laun
sem eru til muna lægri en þau
sem Flugfélag íslands mun
verða að greiða.
Flugleiðir hafa hvað eftir
annað látið í minni pokann
gagnvart launþegum sínum,
sem hafa alþjóðlegt launakerfi
meðan aðrir hópar njóta ekki
alþjóðlegrar viðmiðunar.
Mikið ánægjuefni fyrir
neytendur
„Aukin samkeppni leiðir hér til
lægri fargjalda og það er okkur
auðvitað mikið ánægjuefni.
Þetta hefur verið afar óeðlilegt,
þegar það hefur verið dýrara
að fljúga til dæmis til Þórshafn-
ar á Langanesi, nærri tuttugu
þúsund krónur, en að fara í
fjögurra til fimm daga ferð að'
hausti til London, þar sem inni-
falið hefur verið lúxushótel og
morgunverður,“ sagði Þuríður
Jónsdóttir, lögfræðingur og
skrifstofustjóri Neytendasam-
takanna.
„Nú vonum við að þetta verði
til frambúðar, en ekki tilboðs-
verð í byrjun. Ástandið hefur
verið sérstakt. Mörg mál vegna
- fram og til baka kostar það
6.930, - þrjátíu krónum
meira en að skutlast með ís-
landsflugi. Fargjöld fengust í
vetur fyrir 3.850 krónur - á
vegum verkalýðsfélaganna,
50% afsláttur, takmörkuð
sæti í hverri ferð.
• Einkabfll af venjulegri gerð, 8
lítra eyðsla á hverja 100 kfló-
metra, éyðir trúlega 70 lítr-
um á 434 kflómetra langri
leið frá Reykjavík til Akureyr-
ar og til baka. Lítrinn af
bensíni kostar ca. 77.50
þannig að norðurferðin kost-
ar nærri 5.500 krónur, auk
minni háttar kostnaðar til
viðbótar.
En vel að merkja. í einka-
bflnum sitja fleiri en bflstjórinn.
Þar eru makinn og börn. Einka-
bfllnum stjórna ferðalangar
sjálfir og haga ferð sinni ná-
kvæmlega eftir eigin geðþótta.
Sá sem kemur norður með rútu
eða flugi, stendur eins og illa
gerður hlutur á endastöðinni og
verður að reiða sig á rándýra
bflaleigubfla, leigubfla, eða
postulana tvo. Einkabfllinn á
því leikinn eins og sjá má.
Hins vegar mun ódýrt innan-
landsgjald í flugi verða til þess
að menn munu fara skreppi-
túra út á land, án þess að
blikka auga. Slík fargjöld munu
leiða til mun meiri hreyfings á
íslendingum sem vilja heim-
sækja íslendinga. Vissum átt-
hagaijötrum hefur verið aflótt.
Odýrt innanlandsgjald í flugi mun auka ferðalöngun landsmanna og líkur á „skreppitúrum" fara vaxandi.
fargjalda Flugleiða á ýmsum
leiðum hafa borist Neytenda-
samtökunum. Fólk skilur ekki
hvers vegna íslendingar eiga að
borga miklu meira í fargjöld en
útlendingar," sagði Þuríður
Jónsdóttir.
Rútubíllinn, einkabíll-
inn og flugvélin eru
komin í enn harðari
samkeppni en nokkru
sinni fyrr á innan-
landsmarkaði. Far-
gjaldasprenging ís-
landsflugs í gær end-
urómar um allan
samgöngugeirann. ís-
landsflug lætur sér
fátt um finnast, þegar
keppinauturinn kvart-
ar yfir stórfelldum
taprekstri á innan-
landsfluginu.
Flugið nýtur
forréttinda
„Við höfum nú lengi verið í
bullandi samkeppni við flugið.
Núna er nánast verið að lækka
verðið niður að rútuverðunum.
Á því er afskaplega einföld
skýring. Menn vilja komast inn
á markaðinn, og þeim er gert
það auðvelt á ýmsan hátt,“
sagði Gunnar Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri Bifreiðastöðvar
íslands, í gær. Hann sagði að
eftir sem áður væri einkabfllinn
helsti keppinautur sérleyfishaf-
anna.
„Samkeppnisstaðan er allt
önnur varðandi tollalega með-
ferð á okkar tækjum og flugvél-
um. Þessi mismunun gerir flug-
inu auðvelt að lækka fargjöldin.
Það er kannski allt í lagi með
toll og vörugjald. Fólksflutning-
ar eru ekki innan VASK- kerfis-
ins. Þar af leiðandi leggjum við
engan útskatt á. Og að öllu
venjulegu eigum við ekki að fá
að draga neinn innskatt frá. En
hvað gerist í flugrekstri? Ef þú
kaupir nýja flugvél og kaupir
ákveðnar rekstrarvörur, þá
leggur flugið að sjálfsögðu eng-
an útskatt á, en það fær að
draga frá 24,5% innskatt. Það
er erfitt að keppa við þetta,“
sagði Gunnar.
Rútubflaeigendur hafa að
sjálfsögðu bankað upp á í ijár-
málaráðuneyti og samgöngu-
ráðuneyti og viljað leiðréttingu
mála. Nú munu þeir banka enn
á ný á dyr ráðherranna og
knýja á um eðlilegt viðskipta-
umhverfi.
Ný rúta kostar á bilinu 25-30
milljónir króna. íslandsflug og
Flugfélag íslands eru með
snöggtum dýrari farkosti, en af-
köstin eru líka margföld. Tollur
sem greiddur er af rútubfl er
frá 5-20%.
Flugfélögin fá til viðbótar
stórkostlega fyrirgreiðslu hins
opinbera sem heldur uppi og
byggir dýra flugvelli, flugstöðv-
ar, flugumferðarstjórn og fleira.
„Við höfum nú lengi
verið í bullandi sam-
keppni við flugið.
Núna er nánast verið
að lækka verðið niður
að rútuverðunum. Á
því er afskaplega ein-
föld skýring. Menn
vilja komast inn á
markaðinn, og þeim
er gert það auðvelt á
ýmsan hátt,“ sagði
Gunnar Sveinsson.
Einkabíllinn
hagstæðastur
Hvaða kosti á ferðalangur sem
er að fara norður í land í veð-
urblíðuna þar? Flug? Rútubfll?
Einkabfll?
• Flugið, velji ferðamaðurinn
íslandsflug, kostar 6.900
krónur fram og til baka.
• Rútubfll frá Norðurleið kostar
hann 3.850 krónur aðra leið,
inkabíllmn sigrar enn í
samkeppni við flug og rútu