Dagur - Tíminn Akureyri - 18.07.1997, Síða 1

Dagur - Tíminn Akureyri - 18.07.1997, Síða 1
Fréttir og þjóðmál íslendingaþættir Tækjaóð- ir bjart- sýnis- menn s Islendingar eru bjartsýnir og tækjaóðir, taka öruggt starf fram yfir góð laun, hafa dregið úr fituneyslu og vilja herða refsingar við skattalaga- brotum. Þetta er meðal þess sem lesa má úr nýjustu neyslu- og lífsstílskönnun Gallups. Á 70% íslenskra heimila er til örbylgjuofn og er þetta hlut- fall óvíða í heiminum hærra. Fleiri heimili eiga myndbands- tæki eða nærri 83% og um það bil fjóröungur landsmanna á myndbandsupptökuvél. Athygli vekur einnig að á ríf- lega þriðjungi íslenskra heim- ila, eða 35,6%, eru 2 bílar. Um helmingur á einn bíl, en aðeins 7,4% aðspurðra segja engan bíl á heimilinu. Það er kannski engin furða þótt treglega hafi gengið að íjölga strætisvagna- farþegum. Á þremur af hverjum fjórum heimilum er til reiðhjól, en væntanlega er þar í flestum til- fellirm um að ræða krakkahjól. Meira um tœkjaóða íslendinga á bls. 6. Akureyrarbær verðlaunar íslandsflug fyrir lágu fargjöldin. í gær afhenti Sigfús Sigfússon frá íslandsflugi Jakob Björnssyni, bæjarstjóra, 100 flugfarmiða á nýju, lágu fargjöldunum. Bæjarstjórinn stæðilegi ferðast nú fyrir aðeins 6.900 krónur þegar hann rekur erindi suður. Fleiri sáu sér leik á borði; hinir stæðilegu Samherjabræður keyptu líka 100 miða til að reka erindi sín. Myn&.as Halló Akureyri Deilt um ábyrgð á unglingum Flutningafyrirtæki telja sig ekki bera ábyrgð á unglingum yngri en 16 ára sem þeir flytja á Halló Akureyri. Forsvarsmenn Norðurleiðar og Flugfélags íslands telja vafasamt að hægt sé að gera þá ábyrga gagnvart því að koma unglingum, yngri en sex- tán ára, aftur til baka hafi þeir komið án eftirlits á hátíðina Halló Akureyri um verslunar- mannahelgina. í Degi-Tímanum í gær sagði Björn Jósef Arnviðar- son, sýslumaður á Akureyri, að hugsanlega yrði gripið til slíkra aðgerða - og er það hluti af stór- aukinni gæslu á hátíðinni í ár. Er skylt að flytja alla „Samkvæmt þeim reglum sem okkur eru settar er okkur skylt að flytja alla þá sem með okkur vilja fara; svo framarlega sem viðkomandi greiðir fargjaldið og eru ekki öðrum farþegum í bflnum til óþæginda. Því fæ ég ekki séð að hægt sé að gera okkur ábyrga að þessu leyti,“ sagði Þorvarður Guðjónsson, framkvæmdastjóri Norðurleiðar hf. í samtali við Dag-Tímann. „Ég held að þetta sé varla Magnús Már Þorvaldsson, fram- kvæmdastjóri „Halló“, var ekki með í ráðum. framkvæmanlegt. Við getum ekki spurt krakka sem vilja fara með okkur hvert ferðinni sé heitið. Til þess höfum við ekkert leyfi. Við getum ekki heldur spurt krakkana um skilríki til þess að athuga hvort þau séu yngri en sextán ára. Menn spyrja bara um slíkt í áfengis- verslunum. „Við spyrjum ekki svona „Við erum alla daga að flytja unglinga undir sextán ára aldri - og við spyrjum þau ekki að því hvert tilefni ferðarinnar sé. Það gerum við ekki heldur ætli þau að fljúga norður á Akureyri um verslunarmannahelgina. Lítum reyndar svo á að við höfum ekk- ert leyfi til þess að spyrja svona,“ sagði Thor Ólafsson, markaðs- stjóri Flugfélags Islands. Sjálfur kveðst Thor hafa efa- semdir um að lagalega standist að draga fólksílutningayfirtæki til ábyrgðar með þeim hætti sem sýslumaðurinn á Akureyri boðar. Efasemdir Ekki náðist í Björn Jósef Arn- viðarson, sýslumanns vegna þessa mál í gær. Staðgengill hans, Guðjón Björnsson, sagðist hins vegar ekki vita til þess að lúnn lagalegi þáttur þessara boðuðu aðgerða gagnvart fólks- flutningafyrirtækjunum hafi verið kannaður. Magnús Már Þorvaldsson, framkvæmdastjóri IJalló Akur- eyri, segir að þeir sem standa að hátíðinni hafi ekki verið með í ráðum og reyndar hafi miklar efasemdir um aðgerðirnar á alla lund. -sbs. Bls. 9 Er Sighvatur Blair? Lífið í landinu lllugi um Hæstarétt þBUGK&DECKER I__Handverkfæri SINDRI -sterkur í verki BORGARTÚNl 31 * SÍMI 562 7222 • BREFASIMI S62 1024

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.