Dagur - Tíminn Akureyri - 18.07.1997, Qupperneq 3
(®agur-®trrratn
Föstudagur 18. júlí 1997 - 3
Hafnarfjörður
Ingvar klýfur
flokkinn!
Flest bendir til að
nýr meirihluti
Alþýðuflokks og
Alþýðubandalags
fæðist andvana.
Alger klofningur virðist
vera kominn upp á milli
bæjarfulltrúa Alþýðu-
flokksins í Hafnarfirði. Skiptast
þar í tvær fylkingar annars veg-
ar Ingvar Viktorsson, bæjar-
stjðri og með honum þeir Arni
Hjörleifsson og Ómar Smári Ár-
mannsson og svo hins vegar
Tryggvi Harðarson og Valgerð-
ur Guðmundsdóttir. Ágreining-
ur er um núverandi meirihluta-
samstarf með klofningsbroti Jó-
hanns G. Bergþórssonar úr
Sjálfstæðisflokknum en Ingvari,
Árna og Ómari Smára er mjög í
mun um að halda samstarfinu
áfram. í kjallaragrein í DV í
fyrradag gagnrýndi Ómar
Smári Guðmund Árna fyrir
hans framgöngu í málinu og
taldi hana til vansa. í sjón-
varpsfréttum í fyrrakvöld talaði
Árni Hjörleifs svo um fimm-
mannaklíku sem stæði á bakvið
uppnámið í nafni sameiningar
A-flokkanna.
Tryggvi og Valgerður sendu í
gær frá sér yíirlýsingu þar sem
þau segja skoðun sína á meiri-
hlut as amstarfmu.
í yfirlýsingunni er lýst yflr
óánægju með núverandi meiri-
hluta og að þau telji að mynda
eigi nýjan með Alþýðubandalagi
vegna framtíðarhagsmuna jafn-
aðarmanna á íslandi. Þrátt fyrir
óánægju sína með meirihluta-
samstarfið taka Tryggvi og Val-
gerður fram að því verði ekki
slitið nema að nýr meirihluti
liggi fyrir. „Við gefum í raun
frest fram í september en þá
kemur bæjarstjórn saman en
Magnús Jón og Ingvar kljást.
það á eftir að ijalla um málið í
flokknum og því ómögulegt að
segja hvað gerist,“ sagði Tryggvi
Harðarsson í gær.
Magnús Jón: Kratar
svari!
Ljóst er að mikillar óánægju og
óþoiinmæði er farið að gæta
innan Alþýðubandalagsins með
seinagang Alþýðuflokksins.
Magnús Jón Árnason, oddviti
Alþýðubandalags, segir liggja
ljóst fyrir að Alþýðubandalag
fari ekki í neinar viðræður á
meðan meirihluti liggur fyrir.
„Hvort að meirihlutinn er fall-
inn, það er hlutur sem Aiþýðu-
flokkurinn verður að svara og
það er mál tii komið að Alþýðu-
flokkurinn svari því hvaða bæj-
arfulltrúar eru talsmenn hans.“
Það má því ljóst vera að
shtni ekki upp úr meirihlutan-
um nú á næstu dögum þá muni
hann halda fram að næstu
kosningum. Áreiðanlegar heim-
ildir segja að Alþýðubandalagið
muni ekki bíða fram í septem-
ber til að mynda nýjan meiri-
hluta. Alþýðuflokksmaður í
Hafnarfirði segir mikinn vilja
fyrir því í Alþýðuflokknum að
slíta samstarfinu en Ingvar
standi harður gegn því: „Hann
klýfur flokkinn frekar en að
slíta meirihlutanum." rm
Sígarettur
Bann á helstu
tegundirnar
Flestar algengustu
tegundir af sígar-
ettum með meiri
tjöru en leyft verð-
ur að selja frá ára-
mótum.
Stjórn ÁTVR hefur sett í
innkaupareglur sínar
ákvæði um nýtt há-
mark tjöru í sígarettum,
sem þýðir að af flestum al-
gengustu tegundunum
(Winston m.a.) verður það
aðeins „létta" útgáfan sem
eru undir því hámarki.
Leyfilegt hámark tjöru sem
vindlingur má gefa frá sór
er nú 15 mg og samkvæmt
verðlista frá ÁTVR er al-
gengast er að tjöruinnihald-
ið sé á bilinu 13-15 mg. En
frá næstu áramótum verður
leyfilegt hámark lækkað
niður í 12 mg.
Þór Oddgeirsson aðstoðar-
forstjóri ÁTVR sagði svipað
hafa átt sér stað áður, þegar
núgildandi 15 mg hámark
var sett. Hér áður fyrr hafi
tjaran verið töluvert meiri.
Framleiðendur hafi brugðist
við með því að minnka tjöru-
innihaldið. Hvort þeir geri
það aftur nú sé enn ekki gott
að segja, en hins vegar ljóst
að pressan er öll niður á við.
Það séu jafnvel til sígarettur
með tjöru niður í 5-7 mg. Þar
er um að ræða Royale LF og
Gauloises Blondes LF. En al-
gengast er að „léttar" sígar-
ettur innihaldi 9 mg af tjöru.
- HEI
Rafmagnsgirðingai'
Girt fyrir fjarskipti
Menn hafa látið sig hafa truflanir frá rafmagnsgirðingum á simtöl en þykir
stórum alvarlegra þegar þær trufla tölvusendingar.
Gísli Sverrisson hjá
RALA: „Höfum verið
að benda mönnum á
að hafa Póst og síma
með í ráðum ef þeir
ætla að girða með
rafmagni.“
Rannsóknastofnun land-
búnaðarins bendir mönn-
um á að hafa menn frá
Pósti og síma með í ráðum ef
þeir ætla að setja upp raf-
magnsgirðingar. Nokkur tilfelli
eru um það að rafmagnsgirð-
ingar hafi truflað síma. Hefur
jafnvel gengið erfiðlega að ráða
bót á þeim vanda, enda ekki al-
veg ljóst hvað veldur. Menn
hafa jafnvel látið sig hafa það
þótt símtöl þeirra truflist af
hvimleiðum smellum. Hins veg-
ar þykir það öllu alvarlegra
þegar girðingarnar trufla tölvu-
sendingar, m.a. fax og korta-
posa í verslunum svo dæmi séu
nefnd.
Að sögn Gísla Sverrissonar í
bútæknideild RALA hefur síma-
mönnum og girðingareiganda
oftast tekist að leysa málin sín á
milli. En Póstur og sími telji sig
hins vegar hafa allan rétt sín
megin, þannig að takist ekki að
leysa vandann verði landeig-
andinn að taka girðinguna úr
sambandi. Rafmagnsgirðingar
hafa m.a. þann kost að vera
kringum helmingi ódýrari en
gamli góði gaddavírinn.
„Nei, það virðist ekki alveg
ljóst hvað veldur þessum trufl-
unum, menn hafa ekki fundið
nákvæmlega hver skýringin er.
Oftast er þetta kannski sam-
bland af mörgu, þannig að það
verður eiginlega að skoða hvert
tilvik fyrir sig,“ sagði Gísli.
Hljóðin í símanum segir hann
ekki ósvipuð og að hlusta á
spennugjafann sjálfan. Það
komi smá smellir með u.þ.b.
einnar sekúndu millibili, sem
fólki þyki eðlilega hvimleitt. En
öllu verra sé þegar girðingarn-
ar fari að rugla tölvusendingar,
sem nú fara stöðugt vaxandi.
Gísli tekur fram að langflest-
ar girðingar séu þó án þessara
vandamála. En þetta er til stað-
ar og full ástæða til að menn
haíi það í huga ætli þeir í girð-
ingarframkvæmdir. Hafa sam-
band við Póst og síma og kanna
hvar símstrengir liggja. Hafa
símamenn með í ráðum frá
upphafi, enda séu þeir allir af
vilja gerðir að reyna að koma í
veg fyrir þessi vandamál. - HEI