Dagur - Tíminn Akureyri - 19.07.1997, Blaðsíða 5
iDagur-ÍEmTmn
Laugardagur 19. júlí 1997 - 5
Alþingi
Hjörleifur Gutf-
ormsson hefur
loks eignast of-
jarl, því ræður
Steingríms J.
Sigfússonar mæí
ast mun lengri.
Allaballar
hötðu orðið
Alþýðubandalagið var á sinn hátt
stærsti flokkurinn á Alþingi á 121.
löggjafarþinginu, þ.e.a.s. ef' mælt
væri í ræðutíma, Alþýðubandalagsmenn-
irnir 9 höfðu orðið í meira en fjórðung af
ræðutíma þingsins - töluðu m.a.s. 10
stundum lengur heldur en 25 þingmenn
Sjálfstæðisflokksins til samans - eða 120
stundir af samtals 462 stunda ræðutíma
á síðasta þingi. Frammarar og kratar
voru vart meira en hálfdrættingar á við
allaballa.
Meira en helmingur þessara 462ja
klukkustunda mundi sparast ef enginn
temdi sér meira málæði heldur en Vii-
hjálmur Egilsson, enda kannski að von-
um að hann skuli skila mestri „fram-
leiðni" allra þingmanna. Vilhjálmur tal-
aði um 80 sinnum, en aðeins rúmar 2
mínútur að meðaltah. Steingrími J. Sig-
fússyni dugðu ekki minna en rúmar 7
mínútur að jafnaði. Hann hefði þannig
þurft yfir 9 klukkustundir til að klára sig
af öllum ræðum og Vilhjálms, sem dugði hins
vegar 2.50 klukkutímar. Fyrir sínar 230 ræður
þurfti Steingrímur 27 klukkutíma, en Vilhjálmur
hefði afgreitt þær ahar á rúmum 8 tím-
um.
Það var samt Svavar Gestsson sem
miklu oftar hafði eitthvað til málanna að
leggja en nokkur annar, raunar um 130
sinnum oftar, en Ágúst Einarsson, sem
næst oftast steig í stólinn. Yfir 380 sinn-
um þurfti Svavar að láta ljós sitt skína á
síðasta þingi, í alls 26 stundir.
Feir Steingrímur, Svavar og Hjörleifur
báru langt af öðrum um mælsku og
sögðu um 1/6 hluta alls þess sem sagt
var á síðasta þingi. Og tíu mælskustu
þingmennirnir áttu um 40% ræðutím-
ans, 183 klukkusíundir.
Þeim tíu orðvörustu dugðu aftur á
móti 15 klukkutímar fyrir allar sínar
ræður og töluðu enda nær allir innan við
2 tíma. í þessum hópi var t.d. forseti
þingsins, Ólafur G. (enda oft kvartað
undan málæði annarra), þingflokksfor-
maðurinn Valgerður Sverrisdóttir,
hrekkjalómurinn Árni Johnsen og Guð-
jón Guðmundsson, sem talaði sjaldnar en nokkur
annar, aðeins 14 sinnum á síðasta þingi.
- HEI
Níu þing-
menn
Alþýðu-
bandalags-
ins töluðu
töluðu leng-
ur á síðasta
þingi en
samanlagð-
ur 25
manna
þingflokkur
Sjálfstæðis-
flokksins.
Ljósmyndasafn
Guðný Gerður ráðin
Borgarráð gegn sam-
þykkt menningar-
nefndar. Syni Erlends
í SÍS hafnað. Fram-
sókn ekki með.
Borgarráð samþykkti með
þremur samhljóða at-
kvæðum á fundi sínum í
gær að ráða Guðnýju Gerði
Gunnarsdóttir sem forstöðu-
mann Ljósmyndasafns Reykja-
víkur.
í bókun sjálfstæðismanna í
borgarráði er vakin athygli á
því að með þessu hafi borgar-
ráðsfuhtrúar R-listans virt að
vettugi fyrri ákvörðun meiri-
hlutans í menningarnefnd borg-
arinnar sem vildi ráða Einar
Erlendsson í stöðuna. Hann er
sonur Erlends Einarssonar fyrr-
verandi forstjóra SÍS. Sjálfstæð-
ismenn telja þetta vera merki
um að verulegur ágreiningur sé
innan R-lista á milli fufltrúa
Kvennalista og Framsóknar-
flokks, enda hafi enginn borg-
arfulltrúi Framsóknar verið á
fundi borgarráðs í gær.
í bókun borgarráðsfulltrúa
R-lista er þessum skýringum
sjálfstæðismanna vísað á bug.
Bent er á sérstök viðræðunefnd
hafi einróma mælt með Guð-
nýju Gerði og því sé ráðning
hennar byggð á faglegum rök-
um. -grh
Stutt & taggoit
Nýju laun toppanna
Samkvæmt úrskurði Kjaradóms eru mánað-
arlaun æðstu embættismanna þjóðarinnar
sem hér segir:
Forseti Islands er með 434.200 krónur,
forsætisráðherra 417.900 kr. og aðrir ráð-
herrar 379.900 krónur. Hvort tveggja er að
meðtöldu þingfarakaupi sem nemur
211.700 krónum.
Mánaðarlaun forseta Hæstaréttar eru
345.700 en aðrir hæstaréttadómarar fá
314.300 krónur og hið sama fær ríkissaksóknari. Ríkissátta-
semjari er með 300.500 krónur, ríkisendurskoðandi
266.800 kr. og biskup íslands er með 262.400 krónur í laun
á mánuði.
Dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur er með 274.500
krónur í mánaðarlaun en aðrir dómstjórar 248.100 krónur.
Mánaðarlaun héraðsdómara eru 239.400 og umboðsmaður
barna er með 211.700 krónur. -grh
Alþjóðleg æfing á íslandi
Almannavarnaæfingin Samvörður 97 hefst á formlegan hátt
næsta mánudagskvöld á íþróttavelhnum í Keflavík.
Æfingin er liður í friðarsamstarfi Atlantshafsbandalags-
ins og 26 annarra Evrópuríkja, Partnership for Peace, og
koma alls um 400 manns frá 16 þjóðum til fslands til að
taka þátt í henni ásamt um 600 íslendingum. Fyrstu er-
lendu þátttakendurnir koma til landsins í dag en sjálf æfing-
in fer fram á suðvesturlandi dagana 25.-27. júlí. Verður þá
hkt eftir afleiðingum öflugs jarðskjálfla og mun erlenda
hjálparliðið koma því íslenska til aðstoðar. Opnunarhátíðin
á mánudag hefst klukkan 19. Þar munu hðsmenn allra
sautján þátttökuþjóða koma saman, leikin verður tónlist og
flutt ávörp. Samtímis verður haldin sýning á íþróttasvæðinu
á þeim tækjum og búnaði sem þátttökusveitirnar hafa með-
ferðis. Allir eru velkomnir á opnunarhátíðina. AI
Pétur Hafstein vanhæfur?
Jón Oddsson, hæstarréttarlögmaður, hefur höfðað mál á
hendur íslenska ríkinu fyrir mannréttindadómstóli Evrópu
fyrir hönd þriggja umbjóðenda sinna vegna meints vanhæfis
Péturs Kr. Hafstein, hæstarréttardómara og fyrrum forseta-
frambjóðenda. Alls er um fimm mál er að ræða. Fyrir liggja
tvö mál hjá mannréttindadómstólnum sama eðlis. Það eru
mál Hreins Loftssonar hdl. og Kjartans Ragnarssonar hdl.
Þannig eru sjö mál á skrá hjá dómstólnum. Lögmennirnir
sem um ræðir telja Pétur Kr. Hafstein vanhæfan þar sem
hann hafi tekið við frjálsum framlögum á opinn banka-
reikning sem stuðningsmenn Péturs opnuðu. Hann hafi með
því misst hæfi sitt sem óhlutdrægur dómari. rm
Þrír góðir: Páll, stórfiskurinn og Dagur-Tíminn!
Risasjóbirtingur
Eyjaljarðará er landskunn sem ein gjöfulasta silungsveiðiá
landjns, en Páll Stefánsson átti kannski ekki von á þessu! 11
punda sjóbirtingi! Einar Long í veiðafæradeild KEA telur
svona birting einsdæmi í ánni, sem hingað til hefur verið
nefnd bleikjuá. Dýrið tók maðk á svæði tvö, Torfum.