Dagur - Tíminn Akureyri - 19.07.1997, Blaðsíða 10

Dagur - Tíminn Akureyri - 19.07.1997, Blaðsíða 10
10 - Laugardagur 19. júlí 1997 Orösendning til bænda, búnaöarsam- banda og dýralækna vegna flutnings á líffé milli varnarhólfa í haust (Geymið þessa auglýsingu). Þeir bændur, sem vilja kaupa líflömb vegna fjárskipta á komandi hausti, þurfa að leggja inn skriflega pöntun fyrir 31. júlí 1997. Þeir koma einir til greina, sem fengið hafa úttektarvottorð héraðsdýralæknis um að lokið sé fullnaðarsótthreinsun og frágangi húsa, umhverfis og annars sem sótthreinsa átti. Ákveðið hefur verið að bæta við sótthreinsun og maurahreinsun. Merkinga- skylda verður á nýjum fjárstofni. Sami frestur gildir fyrir bændur, sem óska þess að fá keypt hrútlömb til kynbóta á ósýktum svæðum vegna vandkvæða á að nota sæðingar eða vegna annarra gildra ástæðna. Þeir skulu fá umsögn héraðsdýra- læknis um það efni og senda pöntun sína með milligöngu viðkomandi búnaðarsambands. Á svæðum þar sem riðuveiki eða aðrir alvarlegir smit- sjúkdómar gætu leynst er varað við allri fjárverslun þ.m.t. kaupum og sölu á lífhrútum. Héraðsdýralæknir gefur nánari upplýsingar um heilbrigðisástand í sínu umdæmi. Umsóknum verður svarað fyrir ágústlok. Leyfi ræðst af heilsufari fjár á sölusvæðinu, þegar kemur að flutningi hverju sinni. 18. júlí 1997. Embætti yfirdýralæknis, Sölvhólsgötu 7. BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Drög að fréttatilkynningu í samræmi við Aðalskipulag Reykjavíkur 1996-2016 og vegna óska hagsmunaaðila, hefur borgarráð ákveðið að vinna þróunaráætlun / skipulagsramma fyrir miðborgina þ.e. frá Hlemmi að Aðalstræti. Afmörkun miðborgar Reykjavíkur Tilgangur meö gerð þróunaráætlunar / skipulagsramma er að hvetja til og stýra uppbyggingu í miðborginni næstu 6 árin, þar með talið stefnumótun og tillögur fyrir eftirtalda þætti: • verslun / veitingastaði • viðskipti • menningu • húsvernd • útivist / afþreyingu • íbúðir • umferð og bílastæði. Haldnir eru fundir með fulltrúum viðskiptalífsins og annarra hagsmunaaðila á svæðinu. Breskt ráðgjafafyrir- tæki, “Bernard Engels, Arhitects and Planners”, hafa verið ráðnir fyrir til verksins. Þeim er ætlað að leiða aðila saman, gera óháða úttekt og móta tillögur fyrir borgar- ráð. Fyrirtækið hefur víðtæka þekkingu og reynslu í svipuðum verkefnum í Evrópu. Stýrihópur skipaður fulltrúum miðborgarsamtakanna, Þróunarfélags Reykjavíkur, skipulagsstjóra og borgar- verkfræðingi, heldur utan um verkefnið. Nánari upplýs- ingar fást hjá Hafdísi Hafliðadóttur (hafdis@rvk.is) og Ingibjörgu R. Guðlaugsdóttur (irg@rvk.is) á Borgarskipu- lagi Reykjavíkur Jlagur-®TOróm PJÓÐMÁL Um dagrnn og veginn Gunnar Gunnarsson Syðra-Vallholti, Skagafirði, skrifar Það er ekki annað að sjá en við séum á dálítið hættu- legum tímamörkum, þeg- ar hver höndin er upp á móti annarri, og allir heimta og krefja, eins og óþekkir krakkar: Ég vil hafa, ég vil fá - og órétt- lætið orðið shkt að sumir lifa á margföldum launum á við aðra, t.d. starfandi fólk í raun- og undirstöðugreinum. Er heii brú í því þjóðfélagi sem lætur viðgangast, að einum sé veitt tí- falt á við annan í starfi og leik - og elhlaunum, enda þótt hærra standi að mannvirðingum. Eru ekki allir jafnir fyrir lögunum, eða byggist þetta þjóðfélag á ólögum og ójafnaði? Við höfum frétt af góðborg- urum, s.s. bankastjórum, sem við höfum falið að varðveita okkar fé, og þeir - svo komið ár sinni fyrir borð, að fá í risnu milljónatugi á örfáum árum til að eyða í útlöndum. Þetta ER sorglegt, og þó vaða keimlík dæmi hvarvetna uppi í þjóðfé- laginu. á meðan fjöldinn hefur undir eitt hundrað þúsund á mánuði, eru aðrir með nær milljón, eða e.t.v. meira á mán- uði. Hvað kemur til, að ráða- menn leyfa sór slíka ráðs- mennsku, bruðl og sóun og mis- munun. Það er enginn öðrum jafn, ýmsir skrimta varla. Getir þú ekki eignast nafn, áttufáa hjarla. Verkalýðshreyfingin Hvers er að vænta af verkalýðs- forustu, sem unir slíku ófremd- arástandi, launamisrétti og mismunun - óréttlæti - sem við blasir í þjóðfélaginu? Hvers vegna er ekki krafan um lág- markskaupið - eitt hundrað þúsund krónur á mánuði, og hámarkskaup helmingi hærra - og ekki krónu meira. Er nokkur meiri sanngirniskrafa til? Hvað hafa verkalýðsforingjar í laun? Bullcraft rafmagnsborvélar Þýsk gæði 14.4 v hleðsluborvél Stíglaus rofi Sjálfherðandí patróna M/bremsu Fyrír íðnaðarmannínn Tilboð Nú aðeins kr. 16.900,- Visa/Euro raðgreiðslur Furuvöllum 13 • Sími 462 7878 Það er ef til vill ekki undarlegt þótt þeir semji um 50-70 þús- und kr. á mánuði ef þeir sjálfir geta lifað á þeim launum. Og hvað með forstjórana? Hvað hafa þeir í kaup? Geta þeir kinnroðalaust horft framan í fólkið sitt, þegar þeir greiða launin? Hversvegna líðum við, fólkið í landinu, að fyrirtæki og hið opinbera, moki fé út og suð- ur í gæðinga sína - og gefi jafn- vel auðæfi þjóðarinnar, eins og fiskinn í sjónum t.d., sem landið á - þjóðin - fólkið sem hér dvel- ur - lifir og starfar. Rafstrengur Og þá orkuna í fallvötnum landsins, að nokkin- skuh vera til - svo skyni skroppinn, að hann telji okkur einhvern hag í því að leiða orkuna í rafstreng út til annarra landa. Til hvers börðust forfeð- ur okkar fyrir sjálfstæði þjóð- arinnar, ef við viljum vera eins og ný- lenduþjóð fyrir Evrópu, - eins og Afríka nítjándu aldar- innar - flytja alla auðlegð okkar tO út- landa, bæði fisk og orku óunna, og við að standa eftir, atvinnulaus og einskis megnug. Það er ekki burðugt hlutskipti menningarþjóðar, sem við viljum þó vera. Það lifir enginn á milliliðum, - undir verður að standa þrótt- mikil framleiðsla til lands og sjávar, vara - sem fólkið þarf til síns lífsviðurværis. Framleiðsl- an er nefnilega sú undirstaða sem allt hvílir á - og á henni hf- ir milliliðurinn. Skjótfenginn gróði Við einblínum á skjótfenginn gróða í stóriðjuverum, hendum sem sagt krónunni en hirðum aurinn, og mengum umhverfið. SkUjum sem sagt ekki það - sem er mergurinn málsins, að margt smátt gerir eitt stórt, og velmegun þjóðarinnar byggist á smáfyrirtækjum út um aUt land, - að við nýtum orkuna sjálf - tU fuUvinnslu vörunnar. Að allir sitji við sama borð hvað kaup- gjald snertir og kjör, og hafi næga vinnu. Að gamla fólkið, sem lagði grunninn að því sem við eigum í dag, beri mann- sæmandi hlut- skipti í ellinni, og að alUr hafi sömu ellilaun, hvort sem maðurinn heit- ir nú Pétur eða Pála, - karl eða kona, - hvort hafi verið bankastjóri, prestur, þing- maður, bóndi eða verkamaður á starfsævinni, svo nokkur starfsheiti séu nú nefnd. Það er margt að Og þá ekki síst hérna á Sauðár- króki - Króknum, sem við köU- um svo - þessum faUega og snyrtilega bæ, sem vex og stækkar með hverju árinu sem líður. Við munum þá tíð fyrir margt löngu, er menn og konur hópuðust suður á vertíð vetur eftir vetur, vegna þess að hér var svo Utið að gera. Og margt af þessu góða fólki kom aldrei aftur, enda ríkti stöðnun á Króknum á þeim árum, mann- fjöldinn nær enginn, unga fólkið varð að hleypa heimdraganum - leita á önnur mið, hvar at- vinnumöguleikarnir voru betri og meira gert fyrir fólkið. Hór skorti aUt framtak. En framsýnir menn sáu hvar hmfurinn stóð í kúnni. Það var stofnað tU útgerðar á Sauðár- króki, og fólkið fékk vinnu við fiskvinnslu. SlUc lyftistöng fyrir bæjarfélagið, að þróunin snerist við, enginn þurfti lengur að leita burt, aUir höfðu næga vinnu, - og fólk flutti hingað. Slíkar undir- stöðugreinar, sem fiskveiðar og landbúnað- ur, kaUa á ótal hendur í iðnaði og milliliðum, enda varð mikil gróska á Króknum, ný bæjarhverfi risu hvert af öðru og fólkinu fjölgaði ört. All- ir undu sér vel í þessu skemmtUega umhverfi og allri veðurblíð- unni, sem einkennir byggðina - Skagafjörð, fjörðinn okkar fagra, sem varinn er af hinum háu og tignarlegu, stflhreinu fjöUum, sem umlykja héraðið okkar, eins og gæfuskeifa. En Adam var ekki lengi í Paradís. Menn fengu glýju í augun, það var hægt að senda lítt unninn fiskinn úr landi - beint á matborð útlendinga. Sægreifarnir hirtu allan ágóð- ann, það á bara að strika yfir fiskvinnsluna, eins og hún sé eitthvert óþurftarbarn - ómagi á þjóðfélaginu, eitthvað sem ber sig ekki - þetta fjöregg þjóðarinnar sem hún vissiUega er. Fiskurinn er of dýr upp úr sjó, - það er nú vandamálið. Svo er hann bara unninn í hafi, og hent og hent. Þeir vita hvað útlendingurinn viU. Atvinnuleysi Atvinnuleysi. Hvers er ábyrgð- in. Hvernig geta menn leyft sér að skauta svo málum sem gert er, - taka atvinnuna frá fólkinu. Það heitir varla fiskvinnsla lengur á Króknum, vilj- um við virki- lega hljóta hið sama hlutskipt- ið - og orðið er á Þingeyri vestur? Nei - svo sannarlega ekki. Það verður að snúa við blaðinu - og það tafarlaust. Og það er mjög einfalt mál, - eins og hvaðeina, ef rétt er á haldið. Togararnir - hver og einn ein- asti - út fyrir 100 milurnar og þar geta þeir togað og skrapað, Hvers vegna rís hinn kúgaði lýður upp og ætlar að ganga af þjóðhöfðingjum sín- um dauðum, eins og dæmin eru víða um heim, núna síðast í Kongó. Viljum við virkilega stuðla að slíku þjóðarmissætti hér á landi? Við einblínum á skjót- fenginn gróða í stór- iðjuverum, hendum sem sagt krónunni en hirðum aurinn, og mengum umhverfið.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.