Dagur - Tíminn Akureyri - 19.07.1997, Side 11

Dagur - Tíminn Akureyri - 19.07.1997, Side 11
ttraíimL)-'mfjiíuí Jktgur-®tmfam t\fa\ .vj t Avt\>obtngunA - ö\ Laugardagur 19. júlí 1997 -11 PJOÐMAL Sægreifaveldi, eins og við sjáum það í dag - þarf að strika út - segir Gunnar í Syðra-Vallholti. P0Ssreixss&n - veitt og unnið og siglt á er- lendar hafnir - ef ekki tU full- vinnslu hér í landi. Allur fiskur í land innan 100 mílnanna. Unninn heima í sjávarþorpum, umhverfis allt land. - Þau urðu til á sín- um tíma vegna fisksins - hann var - er - og verður - þeirra lifibrauð um ókomna tíð. Það er lífsakk- eri fólksins í þessu landi, að fuEnýta auð- lindirnar. Það er fullkomin þörf á því að ráða- menn fari að skilja þessa ein- földu staðreynd. Það er þjóðin sem á fiskinn í sjónum. Það er engin framtíð fyrir þjóðina, - að einhverjir braskarar og spekúl- antar, geti leikið sér með ijör- egg þjóðarinnar, og tekið at- vinnumöguleikana frá fólkinu að vild sinni. Sægreifar Sægreifaveldi, eins og við sjáum það í dag - þarf að strika út. Hér geta allir haft vinnu, sé rétt á haldið. Það er mikið að, ef at- vinnu skortir í jafn stóru og fá- mennu landi sem hér, þar sem fremur þyrftu allir að vinna tvöfalt verk til að standa undir velferð og framtíð þjóðarinnar - hvílíkt fámenni sem hér er. Hvers konar menn hafa hér ráðið, ef svo er - sem sagt er, að fiskurinn sé dreginn upp úr sjó með nýtískuvélum - rennt í gegnum vinnslukerfin um borð, og meira en helmingur aflans út fyrir aftur, engum að gagni. Aðeins hirt það besta. Shkir veiðimenn ættu hvergi að sjást á miðum. Við förum illa að ráði okkar. Veiðum of mikið, og förum illa með aflann. Hryggilegt. En á þessu græða sumir góðan pen- ing. Hér er happdrættisþjóð. Illa er farið með auðlindar lendur, ýmsu má líkja við veggspjöll og slörk. Auðurinn safnast á örfáar hendur, en almúginn lifir við fátæktar mörk. Hryggileg lýsing - ef satt reynist. Hvar er nú forsjón- in? Hvar er nú Davíð? Golíat berst um. Hættum nú þessari hringa- vitleysu - þess- ari gegndar- lausu sóun verðmæta, sem okkur er trúað fyrir, og höfum engan rétt til að fara svo með - sem gert er. Þingmenn Hér eiga foringjar okkar, þing- mennirnir, mikið verk ógert, og só þeim ofvaxið að hrinda þessu þjóðþrifamáli í fram- kvæmd, þarf jafnvel að kjósa upp á nýtt, og þá án þeirra kjörgengis, varla tökum við þó af þeim kosningaréttinn. Viljum við uppreisn íjöldans gegn kúg- urimum? Dæmin blasa við um allan heim. Svo má brýna að bíti. Hvers vegna rís hinn kúg- aði lýður upp og ætlar að ganga af þjóðhöfðingjum sínum dauð- um, eins og dæmin eru víða um heim, núna síðast í Kongó. Vilj- um við virkilega stuðla að shku þjóðarmissætti hér á landi, með því að ausa fé í einn og skammta öðrum úr hnefa, en slíkt er undirrót ógæfu og ófarnaðar, og endar oftast með skelfilegum afleiðingum. Karp um skegg Við erum svo fá hér, að við höf- um ekki efni á því að standa í innbyrðis deilum og karpi urn keisarans skegg. Hér eiga allir að vera sem einn maður, jafnir og trúir þegnar þessarar út- hafseyjar, sem er svo langt frá öðrum byggðum bólum á jarð- arkringlunni. Verndum fiskimiðin, uppeld- isstöðvarnar, og fullvinnum fiskinn í landi til útflutnings. þeir geta ekki selt fullunnin fisk í sveltandi heimi. Gætum okkar - verðum ekki undir í baráttunni um gullið, sem glepur og ginnir, og gerir menn að þrælum sínum og fífl- um. Greinin er birt örlítið stytt m. samþ. höfundar. 'fiylgstu með umfjöllun um menningu og listir í rbegi-Tímanum Jagur-Hmmm -besti tími dagsins Styrktaraðili Leikfélags Akureyrar Framhaldsskólinn á Húsavík Við Framhaldsskólann á Húsavík er laust starf skólafulltrúa (ritara) frá 15. ágúst nk. Æskileg menntun er stúdentspróf og góð hæfni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg. Umsóknarfrestur er til 30. júlí 1997. Upplýsingar eru veittar í símum 464 2095 og 464 2075. Skólameistari. Það eru lélegir sölumenn, ef (III Framsóknarflokkurinn Vinningaskrá sumarhappdrættis Framsóknarflokksins 1997 Dregið var 10. júlí 1997 og eru vinningsnúmer sem hér segir: 1. Vinningur nr. 24502 2. Vinningur nr. 588 3. Vinningur nr. 38056 4. Vinningur nr. 4239 5. Vinningur nr. 26388 6. Vinningur nr. 21980 7. Vinningur nr. 29014 8. Vinningur nr. 4963 9. Vinningur nr. 14640 10. Vinningur nr. 32849 11. Vinningur nr. 30780 12. Vinningur nr. 3604 13. Vinningur nr. 38625 14. Vinningurnr. 2253 15. Vinningur nr. 36506 Vinninga ber að vitja innan árs frá útdrætti. Nánari upplýsingar á skrifstofu Framsóknarflokksins í síma 5624480. Hvers er að vænta af verkalýðsforustu, sem unir slíku ófremdarástandi, launamisrétti og mis- munun - óréttlæti - sem við blasir í þjóðfélaginu?

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.