Dagur - Tíminn Reykjavík - 22.01.1997, Page 7

Dagur - Tíminn Reykjavík - 22.01.1997, Page 7
jDagur-CEtmúm Miðvikudagur 22. janúar 1997 -19 i M E N N I N G O G LISTIR Ekki tilbúin veröld - heldur ekta Hvað er græn ferðamennska? „Þetta er ákveðin hugmyndafræði sem sprett- ur upp í kjöifar neikvæðra áhrifa fjöldaferða- mennsku sem kennir okkur hvernig við eigum að taka ábyrgð á okkar gjörðum gagnvart náttúrunni þegar við ferðumst. Þetta er svona upplýst ferðamennska." Ferðamennska er ekki lengur spurning um að panta sér farmiða, fljúga til útlanda, slump- ast ú einhver œvintýri eða hafa það bara gott. Ferða- mennska snýst um úthugs- aða markaðssetningu, A síðustu árum hefur hug- myndin um grœna ferða- mennsku síast inn í vitund œ fleiri ferðamanna og telja ferðamálafrömuðir hana vœnlega leið til að markaðssetja ísland. Ferðaskrifstofan Landnáma, sem tók til starfa í Reykjavík fyrir skemmstu, er sú eina sem sérhæfir sig í vistvænum ferða- lögum til útlanda og innan- lands. Að sögn Ingiveigar Gunnarsdóttur, ferðamálafræð- ings hjá Landnámu, hafa við- brögð fólks verið mjög góð og einkum hringi eldra fólk sem ekki nennir að flatmaga á ströndum. „Það vill ekki tilbúna veröld heldur ekta. Ferða- mynstur fólks er að breytast. Það er farið að sækja meira í ákveðna upplifun á ferðalög- um.“ - En hvernig getið þið tryggt ferðamönnum upplifanir? „Það liggur í skipulagning- unni. Við förum á staðinn og tökum út aðstæður. Svo sendum við fulltrúa frá fyrirtækinu með í allar ferðir." - Hvernig er dæmigert grænt ferðalag? „f staðinn fyrir að fara á ferðamannastaðina í Grikklandi t.d. þá göngum við inn í litlu grísku þorpin þar sem við kynnumst mannlífinu. Við förum sem sagt út af margt- roðnum slóðum. Við erum ekki að sækja í kraðak heldur í mannh'fið sjálft í landinu." - Verður eftir sem áður gist á Hilton og öðrum alþjóðlegum hótelkeðjum? „Við reynum að nota litla íjölskyldurekna gististaði þann- ig að það sé staðurinn sem hagnist en ekki einhver rík fjöl- skylda í Bretlandi. Og helst um- hverfisvæna staði. Við komum t.d. til með að skipta við gisti- stað í Ekvador sem er vottaður umhverfisvænn. Frárennslið frá hótelinu er hreinsað, sorp er flokkað, umhverfisvæn efni not- uð í ræstingu og allt endurnýtt sem hægt er að endurnýta o.s.frv. En sums staðar neyðumst við að skipta við hótel eins og Mariott.“ - Eru þetta ekki margfalt dýrari ferðir en pakkaferðirn- ar? „Þær eru örlítið dýrari. í massaferðunum flýgur þú á einn áfangastað, dvelur þar all- an tímann og borgar bara flug og gistingu. En hjá okkur flýgur þú á áfangastaðinn og ferðast svo um hann með fagleiðsögn. Þú ert kannski aldrei meir en 2-3 nætur á hverjum stað og þá er nánast allt innifalið. Kosta- Ríka ferðin kostar t.d. 239.000 kr. í 17 nætur með vistfræði- legri leiðsögn." Vaxandi tíska Að sögn Ingiveigar er græn ferðamennska mjög vaxandi tíska í alheimsferðamennsku, bæði innan Evrópu og Banda- ríkjamarkaði. „Það er t.d. talið að um 50% Bandaríkjamanna sem ferðast til annarra landa hafi áhuga á fuglaskoðun. í Kanada er þessi tala 75%.“ Og Ingiveig er jafnframt sannfærð um að ef íslendingar hæfu hvalveiðar á ný þá myndi Bandaríkjamarkaður hrynja. ís- lendingar yrðu gerðir að blóra- bögglum fyrir hvalveiðarnar enda hefðu Bandaríkjamenn minni hagsmuna að gæta gagn- Siðfræði græna ferðamannsins: • Taktu ekkert - nema Ijósmyndir. • Skildu ekkert eftir - nema fótspor þín. • Dreptu ekkert - nema tímann. vart þeim en Norðmönnum. Þemaferðir á íslandi - Hvernig eru grænu ferðirn- ar um ísland? „í staðinn fyrir að bjóða hringferð um landið eins og flestir gera þá erum við að taka ákveðin svæði fyrir. Við verðum t.d. með þemaferð um vatnið, „Water, water everywhere - and most of it to drink“. Með því leggjum við áherslu á hrein- leika landsins og vatnið sem Ingiveig segir græna ferðamenn einkum skiptast í 3 hópa: 1. Fólk, 45 ára og upp- úr, sem búið er að koma börnum sínum á legg. Yfirleitt vel menntað, hefur ferðast mjög víða og hefur fjárráð. 2. Ungt fólk sem er nýbúið að Ijúka há- skóla, vill fara í ódýrar ævintýraferð- ir og safna sér reynslu en undir for- merkjum grænnar ferðamennsku. 3. Náttúruverndar- sinnar á öllum aldri. spennandi form, jöklarnir, heita vatnið o.s.frv. í þessari ferð er innifalin fræðsla, sérstaklega jarðfræði." Ýmsar tegundir fræðinga verða með í íslensku ferðunum, svo sem jökla- eða jarðfræðing- ar en einnig verða almennir leiðsögumenn sem Landnáma mun reyndar mennta sérstak- lega í umhverfisfræði. Glæst stóriðja en skröltandi rútur Enn hefur ísland ekki fengið neinar alþjóðlegar vistvænar vottanir í ferðamennskunni en Ingiveig telur að ísland eigi mikla framtíð fyrir sér í grænni ferðamennsku svo lengi sem ís- lendingar verði sjálfum sér samkvæmir, þannig gangi t.a.m. ekki að auglýsa hér hreint og ómengað land þegar verið er að setja álver á viðkvæma og fal- lega staði. „Það eru hættuleg skilaboð út á markaðinn. Ferðamálayfirvöld verða þá að staldra við og hugsa hvort þeim sé stætt á því að auglýsa þetta sem hreint land.“ Erlendir ferðamenn skildu um 20 milljarða króna eftir í landinu á síðasta ári en Ingiveig segir að ferðaþjónustan sem at- vinnugrein virðist samt ekki vera nógu áþreifanleg.“ Nokkr- ar rútur sem skrölta um landið eru svo ómerkilegar miðað við glæstar byggingar álvera og raforkuvera en ferðamennskan skilar þjóðarbúinu jafnvel meiri hagnaði til framtíðar séð en stóriðja." lóa

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.