Dagur - Tíminn Reykjavík - 28.01.1997, Qupperneq 7

Dagur - Tíminn Reykjavík - 28.01.1997, Qupperneq 7
|Dagur-®mmm Þriöjudagur 28. janúar 1997 - 19 MENNING O G LISTIR Sjonlausi gagnrýnandinn Hlín Agnars- dóttir svararJóni Viðari Jónssyni „En Um leið sýndi hann dómgreindar- leysi, sem kannski er aðalástæða til þess að hin unga leikkona hefur ekki sést á sviði eftir þetta, ekki heldur í sýningum Hh'nar Agnarsdóttur. Hefði hún þó átt að geta fundið leikkonunni eitthvert verð- ugt viðfangsefni, t.d. í hinum vinsæla klósettleik sínum, úr því hún hafði slíka trú á getu hennar." Jón Viðar Jónsson um Hlín Agnars- dóttur leikstjóra í Degi-Tímanum 24. jan. 1997. „Ég tek fram að ég hef enga skoðun myndað mér á hæfileikum Ástu Arnar- dóttur. Það get ég ekki gert, því ég hef ekkert séð til hennar annað en leik hennar í umræddri sýningu.“ Jón Viðar Jónsson um Ástu Arnar- dóttur leikkonu í Degi-Tímanum 24. jan. 1997. Elsku Jón Viðar. Ég las þessar klausur í grein eftir þig hérna um daginn og gerði mig seka um að fara að velta því fyrir mér í alvöru, svona eins og hinir, hvort eitthvað væri að þér. Guð hjálpi mér, eins og eitthvað sé að þér, þó blaðið hérna hafi spurt: „Hvað er að Jóni Við- ari?“ og látið einhverja bölvaða óværu úr leikhúsinu greina þig eins og hvern annan geðsjúkhng. Hvílík mannfyrirlitn- ing og dónaskapur. En samt er nú aug- ljóst af þessum klausum, hvað er að þér. Þú hlýtur bara að sjá ansi illa, annars hefðirðu ekki farið með fleipur og úðað yfir markið. Sko, þér að segja alveg prívat, bara til að bjarga þér út úr þessu klúðri sem bú- ið er að hafa á prenti eftir þér, æ, þú veist þarna um leikkon- ___________________ una sem þú segist ekki hafa sóð leika, síðan ég gerði þau mistök að velja hana í stórt hlut- verk í „Hvað dreymdi þig, Valentína?" æ, hún þarna, hvað heitir hún nú aftur, já, hún Ásta Arnardóttir, þá lék hún einmitt eitt af verðugri og eftirminnilegri hlut- verkunum í vinsæla kló- settleiknum mínum „Konur skelfa“ sem þú sást í fyrra og fjallaðir _________________ meira að segja um í Dagsljósi. Það er samt ekki víst að þú hafi séð hana þá, enda getur hún brugð- ...kveiktu nú einu sinni á þínu merkikerti og viðurkenndu eigin mis- tök. Ég hef nefnilega mjög ákveðna skoðun á gagnrýnendum sem geta ekki horfst í augu við eigin mistök. Jón Viðar, gettu hver Ásta er? ið sér í allra kvikinda líki, þú veist hvernig sumir leikarar eru, þeir eru nær óþekkjanlegir frá einni sýningu til ann- ________________ arrar. Það gera hæfileik- arnir sem þú átt svo erf- itt með að mynda þér skoðun á. Þú heyrðir kannski ekki í henni í þokkabót, æ, æ, ekki segja mér að þú sért heyrnarlaus í þokkabót. Jæja, þú getur nú reynt að bæta úr þessu öllu og sjá hana Ástu aftur núna í febrúar, því þá fer klósettleikurinn minn aftur af stað. En þá verðurðu að lofa mér því að fá þér ný gler- augu, þótt ekki væri nema til að lesa leikskrána, svo þú þyrftir ekki að láta hanka þig á svona smáatriðum. Annars er hætt við að þú verðir aftur sakaður um mannfyrirlitn- ingu og dónaskap. Og bara svona til að þú Hæstiréttur og Háskóli íslenskrar leiklistar verðir þér ekki til enn meiri skammar og bregðist ekki hlutverki þínu sem gagn- rýnandi, þá langar mig til að segja þér aftur alveg prívat, að hún Ásta er búin að leika í þremur leiksýningum í Borgar- leikhúsinu, síðan hún lék hjá mér í „Konur skelfa“, sýningum sem þú hefur fjallað um í Dagsljósi. Svona getur nú sjónleysið farið með fólk. Heyrðu, það var nú bara þetta, jú og svo eitt að lok- um, kveiktu nú einu sinni á þínu merki- kerti og viðurkenndu eigin mistök. Ég hef nefnilega mjög ákveðna skoðun á gagnrýnendmn sem geta ekki horfst í augu við eigin mistök. Ævintýraskáldið poppað upp Þjóðleikhúsið: Litli Kláus og Stóri Kláus eftir H.C. Andersen, byggt á leikgerð Lisu Tetzner. Þýðing: Marta Indriðadóttir. Söngtextar og Ijóð: Þórarinn Eldjárn. Leikstjóri: Ásdís Þórhallsdóttir. Leikmynd og búningar: Messíana Tómasdóttir. Dansar: Ástrós Gunnarsdóttir. Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason. Frumsýnt á Stóra sviði 23. janúar. Gunnar JyF Stefánsson Enn er leitað í sjóð gamalla æv- intýra þegar setja skal á svið barnasýningu. Meðal annarra orða: eru ekki frumsamin barnaleikrit í veröldinni leng- ur? Ekki þar fyrir að ég búist við að ný verk á þessu sviði taki hinum gömlu fram, síður en svo. En rétt væri að veifa öðru hverju nýju tré á þessu sviði, frekar en að halda stöðugt áfram að kreista og afmynda klassíkina og gera hana að sleikipinnum eins og hinn tröll- aukni vitundariðnaður stundar, með Disneyfyrirtækið fremst í flokki. En hér ræður vitaskuld markaðssjónarmiðið ferðinni - nema hvað? Nú vil ég ekki beint segja að sýningin á Litla Kláusi og Stóra Kláusi sé afmyndun á leikriti hins danska snillings. Vissulega er meginþræði ævintýrsins haldið hér en andrúmsloftið er annað. Raunar er eins og menn hafi ekki gert fyllilega upp við sig hvort eigi að segja söguna eða sýna hana - í líki trúðleiks, söngleiks, dansleiks eða óperu, en allar þessar tegundir má sjá í sýningu Þjóðleikhússins. En líka er H.C. Andersen sjálfur látinn koma fram en hann reynist svo utanveltu í öllu sjóinu. Af at- vikum ævin- týrsins sem hér sjást má nefna að ekki er hlífst við að henda af- höggnum haus ömmunnar fram og aftur um sviðið, sem er víst nokkuð harkalegt fyrir yngstu börnin. Hins vegar er látið nægja að Litli Kláus segi Lísu sinni frá „nasbráða" veit- ingamanninum sem átti að bera dauðri ömmunni öl út í vagn- inn, skvetti framan í hana svo hún féll við, en aumingja mað- urinn hélt hann hefði drepið hana. Þessi ágæta sena hjá Andersen fer fyrir lítið í handa- slætti Litla Kláusar. Grimmd ævintýra Það er freistandi að setja á langar ræður um annað eins efni og ævintýri Andersens, en hér verður að víkja nánar að sýningunni. Hún mun vera fyrsta leikstjórnarverkefni Ás- dísar Þórhallsdóttur og gæti ég trúað að hún eigi eftir að setja ýmsar barnasýningar á svið. Hún fylgir þeirri stefnu sem nú er hvarvetna uppi að „poppa“ efnið fyrir börnin og færa að nokkru til nútímans. Hvað sem um slíkt má segja tekst leik- stjóranum að búa til litskrúð- uga og fjöruga sýningu. Til þess nýtur hún góðs fulltingis búninga- og leikmynda- hönnuðar og tónlistar- manna, að ógleymdum söngtextahöf- undi. Sviðið er í sterkum litum og hringlaga formum, svo og búningar, nema hvað Stóri Kláus er allur horn- óttur. Gaman er að lesa í leik- skránni ýmsar útlistanir að- standenda sýningarinnar á starfi sínu, í svörum við spurn- ingum barnanna. Sýningin er öðrum þræði hugsuð til að veita þeim innsýn í leikhúsvinnu. Er viðbúið að grunnskólar geti nýtt sér hana í þeim tilgangi. Eða eins og segir í upphafs- og loka- söng: Svið, við og þið, þið, við og þetta svið það er allt sem þarf í okkar starf. Leikendum verður mismikið úr hlutverkunum eins og geng- ur. Bergur Þór Ingólfsson og Jó- hann Sigurðarson leika Kláus- ana, Bergur líflega, hann er geðfelldur barnaleikari, sýnist mér, en Jóhann hefði mátt vera fjöriegri og hrikalegri. Raunar kemur hér sem víðar í barna- sýningum upp tvískinnungur þar sem hlífst er við að sýna þá grimmd sem í ævintýrinu felst, svo að jafnóðum er sorfinn af broddurinn. Hins vegar sýndu Jóhann og leikstjórinn vel ágirnd Stóra Kláusar sem rekur hann áfram og sá móralski boð- skapur verksins komst fullvel til skila. Barnaleikrit og Þjóð- leikhúsið Ekki veit ég hvers vegna Lísa (Sigrún Edda Björnsdóttir) er látin vera svona smábarnaleg, en sú persóna er viðbót við æv- intýrið. Annars eru þau litlu hjónin raunar eins og saklaus börn í háttum sem er í mótsögn við pretti Litla Kláusar. Amman (Bryndís Pétursdóttir) er ósköp góðleg og stendur álengdar í engilslíki eftir að hún er dáin og Stóri Kláus búinn að háls- höggva hana. Annars sé ég ekki ástæðu til að útdeila einkunnum til leik- araliðs Þjóðleikhússins. Það fór sem vera bar faglega með sín hlutverk í samhengi sýningar- innar. Sönghópurinn var skemmtilegur og lög Jóhanns hljómuðu vel. Leikarar eru auð- vitað misfallnir til söngs. Einn bar af og var um leið ein skemmtilegasta týpan í sýning- unni: Örn Árnason í hlutverki djáknans. Hann er hér látinn vera matmaður mikill, - raunar borðar hann ekki staðgóðan mat heldur pitsur að nútímasið. Um það syngur hann í óperustíl sem Örn skilaði af mikilli prýði. Ævintýrið Litli Kláus og Stóri Kláus birtist hér einkum í líki trúðleiks og söngleiks. Frjáls- ræði það sem leikstjórinn veitir sér verður til þess að stíll sýn- ingarinnar verður nokkuð skræpóttur, eins og búningar persónanna. En um það er ekki að sakast, börnin virtust skemmta sér vel. Hins vegar hefði leikhúsið vissulega átt að sýna þessu verkefni þá virðingu að frumsýna það síðsdegis á laugardegi eða sunnudegi, en ekki á virkum degi sem miður hentar börnum og barnafólki. Ég hef áður gagnrýnt þvflíkt háttalag við frumsýningu barnaleikrita hjá Þjóðleikhús- inu og ítreka þá gagnrýni hér. Barnaleikrit eiga skilið fullan sóma af hálfu leikhússins, ekk- ert minna. Frjálsrœði það sem leikstjórinn veitir sér verður til þess að stíll sýningarinnar verður nokkuð skrœpóttur, eins og búningar persónanna.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.