Dagur - Tíminn Reykjavík - 28.01.1997, Blaðsíða 13

Dagur - Tíminn Reykjavík - 28.01.1997, Blaðsíða 13
iDagur-®tnrátn Þriðjudagur 28. janúar 1997 - 25 Húsnæði til leigu Til leigu herbergi í miöbænum á Ak- ureyrl. Ýmsar stæröir. Uppl. á virkum dögum frá kl. 9-18 í síma 461 2812.___________________ Herbergi til leigu í lengri eöa skemmri tíma. Uppl. í síma 462 3035. Saumastofan HAB Fleecefatnaöur í úrvali, s.s. jakkar, peysur, buxur, vélsleöabuxur, treflar, lúffur, derhúfur meö og án eyrna- skjóta, hestaábreiöur, hettur undir hjálma, lambhúshettur, kragar, vinnu- peysur og margt fleira. Saumastofan HAB, Árskógsströnd, sími 466 1052. Ökukennsla Kenni á glænýjan og glæsilegan Mazda 323 sportbíl. Útvega öll náms- og prófgögn. Kenni allan daginn, kvöldin og um helgar. Anna Kristín Hansdóttir, ökukennari, heimasími 462 3837, farsími 893 3440, símboöi 846 2606. Kenni á Mercedes Benz. Tímar eftir samkomulagi. Útvega námsgögn. Hjálpa til viö endurnýjunarpróf. Ingvar Björnsson, ökukennari frá KHÍ, Akurgeröi 11 b, Akureyri, sími 895 0599, heimasími 462 5692. Bólstrun Bólstrun og viögeröir. Áklæöi og leöurlíki í miklu úrvali. Vönduð vinna. Visa raðgreiðslur. K.B. bólstrun, Strandgötu 39, sími 462 1768. Bændur Til sölu nokkrar ungar kýr. Buröartími í febrúar og mars. Uppl. i síma 463 1311. Bifreiðar Til sölu Subaru Legacy 2,0 árg. 92. Arctic Edition, ekinn 97 þús., beinsk., steingrár, toppgrind, álfelgur, rafdr. rúður, speglar og huröir, dráttarbeisli, vetrar/sumard. Ástandssk. í Topp í Kópav. Toppeinkunn. sk. 98. Verö 1.260.000. Skipti á ódýrari eöal- vagni koma til greina. Uppl. í sfma 421 1921 eða hjá Bílasölu Keflavíkur í sínia 421 4444. Fundir Mígreni og hormón. Mígrenisamtökin huldu fræðslufund þriðjudaginn 28. junúar kl. 20.30 í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, Reykjavík. Arnar Hauksson, dr. med. fjallar um mí- greni og hormón. Kaffiveitingar. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Messur edllltfe Glerárkirkja. Kyrrðar- og bænastund verður í kirkjunni kl. 18.10. Munið kyrrðarstund í hádeg- inu á morgun miðvikudag kl. 12-13. Sóknarprestar. Ymislegt Miðstöð fyrir fólk í atvinnuleit. Opið hús í Punktinum alla miðviku- daga frá kl. 15- 17. Kaffiveilingar í boði, dagblöð liggja frammi og prestur inætir á staðinn til skrafs og ráðagerða. Sérstök dagskrá auglýst ef svo ber undir. Akureyrarkirkja.____________________ Frá Sálarrannsóknafélaginu á Akurcyri. Opin fyrirbænastund verður *■ laugardaginn 25. jan. kl. 16. f sal félagsins. Heilun alla laugardaga frá kl. 13 til 16. Ath. Einstakt tækifæri: Aruljósmynd- un og stuttur lestur á vegum félagsins helgina 1. og 2. febrúar. Félagsmenn sitja fyrir pantanir í símum félagsins alla virka daga frá kl. 13-16. Símar 462 7677 og 461 2147. Stjórnin._____________•_____________ Þríhyrningurinn - andleg miðstöð. Miðlarnir Lára Halla Snæ- fells, Sigurður Geir Ólafsson og Guðfinna Sverrisdóttir áruteiknari, starfa hjá okkur dagana 25.-28. janúar. Tímapantanir á einkafundi fara fram milli kl. 13 og 16 á daginn í síma 461 1264. Athugið! Skúli Viðar Lórenzson verður með námskeið í heilun í janúarmánuði ef næg þátttaka fæst. Námskeiðspantanir í síma461 1264. Ath. Heilun alla laugardaga frá kl. 13.30 til 16 án gjalds. Þríhymingurinn - andleg miðstöð, er op- in öllum sem þangað vilja leita. Við bjóð- um upp á miðlun, og er heilun á laugar- dögum milli kl. 13.30 og 16-án gjalds. Einnig er boðið upp á tíma í einkaheilun ef óskað er eltir því. Einnig erum við með bænahringi hjá okkur og má koma fyrirbænum til skrifstofu okkar á Fum- völlum 13, 2. hæð. Þeir sem vilja gerast styrktaraðilar skrá sig í síma 461 1264. Komið og sjáið góðan stað i hlýju um- hverfi. Þríhyrningurinn -andlcg miðstöð. Furuvöllum 13, 2. hæð, sími 461 1264. ÖKUKEIMIXISLA Kenni á Galant 2000 GLSi 4x4 '92 Útvega öll gögn sem með þarf. Bók lánuð - Endurnýjunarpróf Greiðslukjör. JÓN S. ÁRNASOIM Símar 462 2935 • 854 4266 Kenni allan daginn og á kvöldin. DENNI PffiMflLflUSI „Nú vil ég ekki ojlar fá kvartanir frá Herra Wilson góði minn!" „Mamma segist ekki oftar vilja fá kvartanir frá þér." Akureyri Frá Ferðafélagi Akureyrar Nú er að hefjast nýtt ferðaár hjá Ferðafélagi Akureyrar. Ferðakynning verður því haldin fimmtudagskvöldið 30. janúar og ferðir ársins kynntar í máli og myndum. Á áætlun eru alls 37 ferðir af margvíslegum toga. Kynningin verður í Galtalæk, húsi Flugbjörgunarsveitarinnar og hefst kl. 20. Á eftir kynning- unni verður boðið upp á kaffi og kökur. Aðgangseyrir er 300 og frítt fyrir börn, allir vel- komnir. Fyrsta ferð ársins verður farin laugardaginn 1. febrúar klukkan 9, þá er ætlunin að fara á skíðum eða fótgangandi að Baugaseli í Barkárdal. Nán- ari upplýsingar og skráning á skrifstofu félagsins á föstudag kl. 17.30-19.00 (s-462-2720) Ungar ekkjur hittast Nú stendur til að koma á fót stuðningshópi ungra ekkna á Akureyri og í nágrenni. Fyrsti fundurinn verður annað kvöld, klukkan 21, í húsi Krabba- meinsfélagsins á Akureyri. All- ar ungar ekkjur velkomnar. Nánari upplýsingar fást hjá Krabbameinsfélaginu eða hjá Önnu Maríu Guðmann í s-462 3021. Höfuðborgarsvæðið Trjá- og runna- klippingar Fræðslufyrirlestur um trjá- og runnaklippingar verður haldinn föstudagskvöldið 31. janúar nk. klukkan 20 til 23 í húsnæði Landgræðslusjóðs, Suðurhlíð 38 í Reykjavík. Fyrirlesari verður Kristinn H. Þorsteinsson garð- yrkjufræðingur og garðyrkju- stjóri Rafmagnsveitna Reykja- víkur. Hann mun fjalla um lim- gerðisklippingar frá gróður- setningu til grisjunar, trjáklipp- ingar hvað varðar lögun trjáa- og grisjun trjákrónu og um skraut- og berjarunna í tengsl- um við grisjun og aðrar klipp- ingar til að viðhalda fegurð, blómríki og berjauppskeru. Skráning fer fram hjá Magnúsi Hlyn Hreiðarssyni, endur- menntunarstjóra Garðyrkju- skóla ríkisins í síma 483 4061 til fimmtudagsins 30. janúar. Verð krónur 1000. Fyrirlestur- inn er öllum opinn, jafnt fag- fólki sem áhugafólki. Boðið verður upp á kaffi og kleinur. Ástkær faðir minn, tengdafaðir, fósturfaðir, afi og langafi, ÓLI MAGNÚSSON, lést á Dvalarheimilinu Hlíð 24. janúar. Magnús Ólason, Borghildur Kristbjörnsdóttir, Hólmfríður Svala Jóhannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA SÆMUNDSDÓTTIR, Skólastíg 5, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 29. janú- ar kl. 13.30. Benjamín Antonsson, Margrét Ásgrímsdóttir, Gunnhallur Antonsson, íris Biggs, Jónína Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, HELGA JARÞRÚÐUR JÓNSDÓTTIR, Gullbrekku, Eyjafjarðarsveit, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þann 17. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sverrir Magnússon, Jón V. Sverrisson, Bergþóra Jóhannsdóttir, Sæunn E. Sverrisdóttir, Brynjólfur Guðmundsson, Svala H. Sverrisdóttir, Lilja Sverrisdóttir, Birgir H. Arason, Kolbrún Sverrisdóttir og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýndan samhug og vináttu við andlát og útför systur minnar, INGVELDAR JÓHANNSDÓTTUR frá Litlu-Þúfu, Miklaholtshreppi. Fyrir hönd aðstandenda, Ásta Lára Jóhannsdóttir. Frá Félagi eldri borg- ara í Reykjavík og ná- grenni Danskennsla í Risinu kl. 18.30 og dansæfing kl. 20. Bréf Vestur- íslendinga Fyrirlestrarfundur á vegum Vináttufélags íslands og Kan- ada og Sagnfræðingafélags ís- lands verður í Odda, Háskóla íslands, stofu 101, miðviku- dagskvöldið 29. janúar kl. 20.30. Vilhjálmur Hjálmarsson, rit- höf. og fv. ráðherra, mun spjalla um Vesturfara og V- ís- lendinga. Síðan mun Berg- steinn Jónsson, fv. sagnfræði- prófessor, fjalla um „íslensk Ameríkubréf‘, bréf V-íslend- inga. Opinn fundur, ókeypis, allir velkomnir. Harmonikuball Lionsklúbburinn Muninn mun standa fyrir harmonikuballi föstudaginn 31. janúar nk. í Lionsheimilnu Lundi, Auð- brekku 25, Kópabogi. Húsið verður opnað kl. 21.00. Félagar úr Harmonikufélagi Reykjavíkur sjá um að halda uppi dúndrandi íjöri og lifandi stemmningu sveitaballanna á hinu rúmgóða dansgólfi staðar- ins. Allur ágóði af skemmtuninni fer í líknarsjóð klúbbsins en hann hefur m.a. stutt við bakið á samtökum fatlaðra, einstak- lingum og íleirum sem þurft hafa á aðstoð að halda. Aðgangseyrir verður 1.000 krónur. I UMFERÐINNI ERU ALLIR í SAMA LIÐI

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.