Dagur - Tíminn Reykjavík - 28.01.1997, Side 16

Dagur - Tíminn Reykjavík - 28.01.1997, Side 16
|Bagur~©mttm Þriðjudagur 28. janúar 1997 GMNI' NÓMLEFj; 800 70 80 ^Dítgur-^tmmn -besti tími dagsins! Reykjavík Úr dagbók lögregluimar í Reykjavík 24.-27. janúar Dagbók helgarinnar tekur mið af snjó og slæmu veðri á starfssvæði Iögreglunnar í Reykjavík. Tilkynnt var um 41 umferðaróhapp, auk 5 slysa. Þá voru lögreglumenn á tímabili löngum uppteknir við að aðstoða fólk í ófærð og hálku. Fólk hafði reyndar í útvarpi verið hvatt til að vera ekki á ferðinni nema nauðsyn krefði, en margir töldu sig ekki þurfa að taka mark á þeim boðskap. Tilkynnt var um 18 innbrot, 8 þjófnaði, 7 líkamsmeiðingar, eitt rán og 9 eignar- spjöll. Fíkniefni komu við sögu í þremur málum og afskipti voru höfð af 19 ein- staklingum vegna ósæmilegrar ölvunar- háttsemi á almannafæri. XX manns voru vistaðir í fangageymslum um helgina. Af innbrotum helgarinnar má nefna innbrot í bifreiðir við Selbraut, á bif- reiðastæði við Laugarásbíó og í Skeif- unni. Aðfaranótt laugardags var skrif- stofubúnaði stolið í innbroti í fyrirtæki við Egilsgötu og farið var inn í hús við Háagerði, aðstöðu lækna við Kleppsspít- ala. Um nóttina var brotist inn í hús við Árbæjarblett. Lögreglumenn fylgdu eftir fótsporum, sem lágu frá vettvangi, að húsi við Reyðakvísl. Þar voru 5 menn handteknir og síðan færðir til yfir- heyrslu. Lagt var hald á tölvu og prent- ara, sem stolið hafði verið. Brotist var inn í verslun við Laugaveg, hús við Stigahh'ð, íbúð við Unufell, fyrirtæki við Síðumúla, Ármúla, Vagnhöfða og við Suðurlandsbraut. Þá voru 8 rúður brotn- ar í skóla við Norðurfell. Aðfaranótt mánudags var maður handtekinn innan dyra í fyrirtæki við Síðumúla. Hann hafði spennt þar upp glugga og farið inn. Þeg- ar að var komið var hann í óða önn við að reyna að eyðileggja aðvörunarkerfið, án árangurs. Maðurinn var eftirlýstur vegna gruns um að hafa staðið að öðr- um innbrotum. Akureyri Úr dagbók lögreglunnar á Akureyri vikuna 19.-25. janúar 1997 Síðastliðin vika var mjög um- hleypingasöm. Þýða og frost til skiptis, rigning, slydda og snjó- koma einkenndu hana. Akstursskil- yrði voru því í lakara lagi á götum bæjarins. í dagbók vikunnar eru 136 tilvik færð til bókar. Á laugardagskvöldi um kl. 20:00 var ekið utan í 13 ára ungling á Þingvallastræti við hús nr. 29. Var hann á gangi austur götuna að sunnanverðu. Hann féll í götuna og fór bifreiðin yfir vinstri fót hans. Ökumaður bifreið- arinnar hélt ferð sinni áfram austur Þingvallastrætið en talið er að um fólksbifreið hafi verið að ræða. Drengurinn náði að komast í hús til að hringja eftir aðstoð ætt- ingja. Var hann fluttur á slysadeild F.S.A. til athugunar. Við athugun kom í ljós að unglingurinn var brot- inn á vinstri fæti við ökkla og var með skrámur á mjöðm. Mál þetta er nú til meðferðar hjá rannsóknardeild lögreglunnar. Eru það tilmæli til öku- manns bifreiðarinnar að hann gefi sig fram við lögregluna vegna máls- ins. Þá eru það einnig tilmæli til þeirra er hafa einhverjar upplýsing- ar um málið að hafa samband við lögregluna. Eignatjón en ekki meiðsli í vikunni var tilkynnt til lögreglunnar um 23 umferðaróhöpp. Ekki urðu nein meiðsli í þeim svo vitað sé, að- eins eignatjón. Hálka mun hafa verið meðvaldur í þeim en þó má gera ráð fyrir að ökumenn hafi ekki hagað akstri í samræmi við aðstæður. Þrír ökumenn voru teknir vegna gruns um ölvun við akstur. Einn þeirra hafði ekið á bifreið og farið af staðn- um og annar hafði stolið bifreið og var auk þess án ökuréttinda. Fjórtán ökumenn og farþegar í bifreiðum voru kærðir fyrir að nota ekki örygg- isbelti í akstri. Þá voru 9 ökumenn kærðir fyrir að virða ekki stöðvunar- skyldu. Á sunnudag var tilkynnt um inn- brot í bifreið við Álfabyggð 10. Var hliðarrúða brotin til að komast inn í hana. Úr henni var stolið . Kenwood útvarpi og geislaspilara. Þá var tilkynnt um innför í tvær bifreiðar við Álfabyggð 16. Þær voru ólæstar en engu var stolið úr þeim, einungis ruslað til í þeim. Þeir sem ein- hverjar upplýsingar hafa sem leitt gætu til að upplýsa þessi mál eru vmsamlegast beðnir að snúa sér til lögreglunnar. Göngugata ekki bílastæði Um helgina var tilkynnt um 4 lík- amsmeiðingar til Iögreglunnar. Þau mál eru til meðferðar hjá rannsókn- ardeild lögreglunnar. Nokkuð bar á ölvun um helgina og gistu 5 menn fangageymslur en mörgum var ekið til síns heima. Svo sem allir í bænum munu vita var Hafnarstræti ( Göngugatan ) ný- lega gert að vistgötu. Ekki má leggja þar bifreiðum nema á sex merktum stæðum, sem eru fyrir fatlaða og þá sem þurfa á heilsugæslustöðina og sýsluskrifstofuna á Akureyri. Lög- reglan hefur haft afskipti af og sekt- að nokkra ökumenn fyrir að leggja í götunni. Eru það tilmæli frá lögregl- unni að ökumenn virði þær umferð- arreglur er gilda í götunni. GR Skátaskáli brennur Á föstudag fótbrotnaði maður er hann datt í hálku á Skúlagötu. Hann var flutt- ur með sjúkrabifreið á slysadeild. Um kvöldið voru aðilar staðnir að því að stela eldsneyti af bifreiðum í Álakvísl. Þeir voru handteknir. Þá voru tveir menn færðir á lögreglustöð eftir að fíkni- efni fundust í fórum þeirra er þeir voru stöðvaðir í akstri á Bústaðavegi. Um hálfellefuleytið var tilkynnt um eld í húsi í Heiðmörk. Þar reyndist vera um að ræða skátaskála, sem varð alelda á skömmum tíma. Fólk, sem verið hafði í skálan- um, komst út án teljandi vandræða. Skálinn brann til ösku. Öku- maður og far- þegi voru íluttir á slysa- deild með sjúkrabifreið eftir harðan árekstur tveggja bif- reiða á Strandvegi skömmu fyrir miðnætti. Aðfaranótt laugardags voru tveir menn færðir í fangageymslu eftir slags- mál á veitingastað við Pósthússtræti. Eft- irlitsmenn vínveitingahúsa töldu gesti út af veitingahúsi við Austurstræti. Um of marga gesti reyndist vera að ræða í hús- inu. Tveir menn á bifreið voru hand- teknir á Sölvhólsgötu. Þeir höfðu verið staðnir að því að stela þar stöðumæli. Ökumaðurinn er grunaður um ölvunar- akstur. Maður var sleginn í hnakkann á veitingastað við Hverfisgötu. Hann var íluttur á slysadeild. Þá var annar maður fluttur þangað skömmu síðar eftir að hann fannst meðvitundarlaus á veitinga- húsi við Hafnarstræti. Maður kom á mið- borgarstöð lögreglunnar og kærði lík- amsárás, sem hann hafði orðið fyrir á veitingastað við Tryggvagötu þá um nóttina. Þá tilkynnti gestur hótels árás, sem hann hafði orðið fyrir af völdum tveggja manna á Laugavegi. Hann meiddist lítilsháttar á úlnlið. Loks kom maður á slysadeild undir morgun er sagðist hafa orðið fyrir árás á Túngötu fyrr um nóttina. í öllum framangreind- um tilvikum virtist vera um minniháttar meiðsli að ræða. Hundur í rusli Á laugardagsmorgun voru tveir menn færðir á lögreglustöð eftir að lítilsháttar af fíkniefnum hafði fundist við húsleit við Einarsnes. Kona datt í hálku fyrir utan verslun í Skeifunni og var flutt á slysa- deild með sjúkrabifreið. Hundur stal ruslapoka í Reykjabyggð síðdegis á laug- ardag og bar hann heim að nálægum bæ. Ökumaður og farþegi voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur tveggja bifreiða á Gullinbrú. Þrennt var ílutt á slysadeild eftir árekstur tveggja bifreiða á gatnamótum Bústaðavegar og Háaleit- isbrautar á laugardagskvöld. Bifreið stöðvaðist á staur í Ártúnsbrekku. Aðrar lentu út af við Rafstöðvarveg og við Vest- urlandsveg. Drengur klemmdi löngutöng í húsi við Kaplaskjólsveg með þeim af- leiðingum að nöghn fór af. Lögreglu- menn óku honum á slysadeild. Skömmu fyrir miðnætti komu tveir menn að öðr- um í undirgöngum við Iðufell. Annar hafði hníf í hendi, en notaði hann ekki til að ógna með. Þeir báðu manninn hins vegar um peninga og lét hann þá hafa peningabuddu með eitt þúsund krónum í. Mannanna var leitað, en án ár- angurs. Um nóttina skar kona sig á glerbroti á fæti í Hjaltabakka. Henni var ekið á slysadeild. Unglingavandamál að hverfa Undir morgun voru fimm piltar hand- teknir í Lækjargötu eftir að þeir höfðu skemmt sér við að vinna þar skemmdir á tveimur bifreiðum. Piltarnir voru sel- fluttir á móti lögreglu heimabyggðar þeirra. Annars sáust unglingar ekki í miðborginni um helgina, ekki frekar en endranær undanfarna mánuði. Ástæða er til að vekja athygli á því að þar hefur orðið mikil og jákvæð breyting til hins betra í þeim efnum. Þá er ljóst að veru- lega góður og almennur árangur hefur náðst eftir að foreldrar og unglingar fóru að fylgja ákveðnar eftir ákvæðum um bann við útivist að næturlagi. Áhrifa þess er m.a. farið að gæta í minni áfeng- isneyslu unglinga, hækkun áfengis- neyslualdurs, fækkun afbrota á meðal þessa aldurshóps o.fl. Ástæða er og til að þakka foreldrafélögum og öðrum þeim sem að þessum málum hafa komið. Þessir aðilar eru hvattir til að halda áfram á sömu braut og stefna að enn frekari árangri. Mönnum var bjargað út úr fyrirtæki við Fossháls á sunnudag. Þeir höfðu lok- ast inni er lyklarnir höfðu gleymst í skránni að utanverðu. Maður féll í hálku við Eiðistorg og skarst á höfði. Hann var fluttur á slysadeild. Um kvöldið fannst þýfi úr innbrotum í húsi við Stóragerði. M.a. var um að ræða þýfi úr innbrotum í húsnæði FÍB og áhöld úr innbroti í hár- greiðslustofu frá því um helgina. Tæki til fíkniefnaneyslu og efnisleifar fundust og á staðnum. Ó.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.