Dagur - Tíminn Reykjavík - 08.02.1997, Blaðsíða 2
14 - Laugardagur 8. febrúar 1997
eLísLsLisjð
Fyrir smáfólldð
Enn og aftur þurfum við að leggja höf-
uðið í bleyti og finna okkur eitthvað
sniðugt og skemmtilegt til að gera með
krökkunum. Hvað íinnst ykkur um þess-
ar hugmyndir?
Barnamyndskreytingar
Sýningin „Myndskreytingar í norrænum
barnabókum" stendur enn yfir í Lista-
safninu á Akureyri. Fallegar og
skemmtilegar myndir sem börnin ættu
að hafa gaman af að skoða. Ef þið viljið
leyfa smáfólkinu að kynnast listinni er
þetta rétta sýningin.
Brúöubfllinn verður meö sívinsæla sýningu I Bæjar-
bfói.
Brúðubíliinn í Firðinum
Hafnfirskir krakkar mega nú kætast og
fara í leikhúsfötin því að von er á Brúðu-
bílnum í Hafnarfjörð. Brúðubfllinn verð-
ur með sína sívinsælu sýningu í Bæjar-
bíói í dag, laugardag, og verða tvö leikrit
á dagskránni. Að sjálfsögðu eru allir
krakkar velkomnir og byijar sýningin
klukkan þrjú. Aðgangseyrir er 500 krón-
ur.
Draumafákurinn
Norsk kvikmynd um hana Marit, 8 ára,
verður sýnd í Norræna húsinu kl. 14 á
sunnudaginn og er aðgangur ókeypis.
Marit er nýbúin að eignast systkini sem
fær alla athygli fjölkyldunnar og því fer
hana að dreyma um að eignast hest. Á
gangi úti í skógi í sumarfrnnu heyrir hún
í gauknum, stiflir sér undir tré því þá
uppfyllist ósk hennar, eða hvað...?
Leikhúsin
Skrípalæti trúðanna í Trúðaskólanum í
Borgarleikhúsinu halda áfram. Örfá sæti
eru laus á morgun, sunnudag, og miðinn
er á 1200 kr. (fyrir börn og fullorðna).
Þá er Maggi Scheving enn að sprikla í
Loftkastalanum í leikriti sínu Áfram
Latibær. Það eru örfá sæti laus í dag,
laugardag, en uppselt á morgun. Miðinn
kostar 1200 kr. fyrir börn og 1700 kr.
fyrir fullorðna.
Fjöfskylduspilin
Hvernig er það annars með öll þessi fjöl-
skylduspil sem seljast eins og heitar
lummur (maður hefur reyndar ekki rek-
ist á lummuvagna undanfarin ár) eða
bara eins og kók í dós/bauk, fyrir hver
jól? Hvernig væri nú að taka upp Picti-
onary eða Trivial Pursuit eða Undir sól-
inni eða Fimbulfambið og hafa það
huggulegt með fjölskyldunni á laugar-
dagseftirmiðdegi?
Snjókarlar og kerlingar
Síðan er auðvitað spurning um að not-
færa sér eitthvað allan þennan hvíta
snjó sem nú prýðir götur og garða víða á
landinu. Ef fer að hlána væri t.d. hægt
að grípa tækifærið og hnoða nokkra
snjóbolta, jafnvel búa til snjókarl, eða
kerlingu. Snjóhús væri auðvitað toppur-
inn.
Engar galdralausnir
Iþróttir fyrir alla hvetja fólk til að
kynna sér starfsemi líkamsræktar-
stöðva nú um helgina. Átakið er í
samvinnu við Dag- Tímann og Rás 2, en
eins og lesendur okkar vita er dágóður
hópur í ströngu aðhaldi og þjálfun á síð-
um blaðsins og í líkamsræktarstöðvun-
um Vaxtarræktinni og Aerobic Sport. Ef
þú ert að hugsa um að slást í hópinn
vilja íþróttir fyrir alla létta þér fyrsta
skrefið - þú getur tekið það í dag! En
fyrst heilræði frá Þorsteini G. Gunnars-
syni, framkvæmdastjóra samtakanna:
Allt of algengt er að fólk helfi sér út í
líkamsræktina af fullum krafti, af meira
kappi en forsjá og gefist síðan upp vegna
þess að árangurinn var ef til vill ekki sá
sem viðkomandi átti von á. Til þess að
auðvelda sér að byija í lflcamsrækt er
nauðsynlegt að hafa nokkur atriði í
huga:
1. Gerðu áætlun.
Finndu þér tíma sem hentar vel til æf-
inganna. Best er að tengja æfingarnar
vinnutíma. Æfa þá fyrir vinnu, í hádeg-
inu ef kostur er, eða strax að vinnu lok-
inni. Mun erfiðara reynist að drífa sig í
líkamsræktina þegar fólk er komið heim
úr vinnunni. Best er því að taka æfinga-
fötin til á kvöldin og setja æfingatöskuna
á áberandi stað, þannig að hún gleymist
nú ekki heima. Gott er að setja sér það
markmið að æfa þrisvar sinnum í viku
en það er nauðsynlegt til þess að ná
raunverulegum árangri og ekki í styttri
tíma en 20 mínútur í senn.
2. Settu þér markmið.
Afar mikilvægt er að setja sér strax í
upphafi nokkuð nákvæm markmið og
gera sér grein fyrir því af hverju þú vilt
æfa. Sumir æfa til að grenna sig, aðrir til
að auka þol og styrk en fyrst og fremst
æfir fólk til þess að bæta heilsuna. Mark-
miðin verða að vera raunhæf og auðvelt
að uppfylla þau. Óraunhæft er til að
mynda að ætla sér að missa 10 kfló á
tveimur vikum.
3. Finndu þér æfingafélaga
Þótt margir kjósi að æfa einir, er afar
gott að eiga sér æfingafélaga, einn eða
fleiri. Félagar sem æfa á sama stað á
sama tíma hvetja hvern annan til að
stunda æfingarnar reglulega.
4. Prófaðu
sem flestar greinar
Líkamsrækt á að vera skemmtileg en
það sem einum hentar á ekki alltaf við
um annan. Það skiptir því miklu máli að
þér líki það sem þú ert að gera. Prófaðu
sem flestar greinar; til dæmis göngu,
skokk, sund, þolfimi, pallapuð, tækjasal
og hjólreiðar. Ef þú finnur til leiða,
skiptu um grein.
5. Haltu æfingadagbók.
Mjög gott er að halda æfingadagbók, þar
sem skráðar eru lágmarksupplýsingar
um æfingarnar, s.s. hvað er æft, hversu
lengi, hver líkamsþyngdin er, hver púls-
inn er við áreynslu og árangur æfing-
anna.
Víða opið í dag:
Vegna átaksins okkar verða eftirtaldir
aðilar með opið hús:
Egilsstaðir:
Táp og fjör, Reynivöllum 5. Opið hús
laugardaginn 8. febrúar. Boðið upp á
léttan þolfimitíma kl. 11.00. Hraðari
tíma kl. 13.00. Fólki kynnt það sem lflc-
amsræktin hefur upp á að bjóða.
Akureyri:
Bjarg, Bugðusíðu 1. Opið hús laugardag-
inn 8. febrúar frá kl. 10.30 til 14.00.
íþróttakennarar leiðbeina fólki og gefa
góð ráð.
Sauðárkrókur:
Hreyfing, Aðalgötu 20. Opið hús laugar-
daginn 8. febrúar. Gestum kynnt það
sem Ukamsræktin hefur upp á að bjóða.
Vestmannaeyjar:
Opið hús í líkamsræktinni í íþróttamið-
stöðinni. íþróttakennari leiðbeinir gest-
um og gefur góð ráð.
Reykjavík:
Máttur, Faxafeni. Boðið var upp á
ókeypis þolfimitíma í vikunni með góð-
um árangri.
Góða skemmtun, gott betra líf!
IÞROTTIR FVRIR RLLR
Hugmyndaflugið
mohgunbuuio
Velkominn Steinar
Sumir virkja vatnsföll
og jarðvarma, við
virkjum fólk.
Steinar S. jónsson
hefur ákveðið að Ijá
okkur orku sína.
Við fögnum því.
Velkominn Steinar.
, Á góðum stað í hlíbun-
HRAíiNBjS-^SIIm5 utá.m**'*'**■--' - “
FUBUGRUND KÓP. - GOTT jjj-
y aóð ca 80 fm 3js h«rt3. íbúö.
s« SutwtvlM. Hentór «>
stuú { M.H. 09 v«fsto. Vefö
3J2 mtHJ-
lagi.
Við birtum hér til
gamans dæmi um
auglýsingar sem
gripu augu ritstjórnar
vegna frumleika og
sniðugs orðavals.
Hrísalundur á Akur-
eyri er með á nótun-
um og þar á bæ
fylgjast
menn geinilega vel með fréttum:
„Það eru viðsjárverðir tímar. Hafísinn
nálgast," segir í auglýsingunni og í fram-
haldi er fólk hvatt til að hamstra sér mat
til að vera við öllu búið ef „landsins forni
fjandi“ léti á sér kræla. Og hjá Fast-
eignasölunni Borgir í Reykjavík virkja
þeir hvorki vatnsföll né jarðvarma. Þeir
virkja fólk. y\I
ig úr garði
gerðar að þær
veki athygli. Og
þá er eins gott
að hugmynda-
flugið sé í góðu
HRÍSALUXDUH_
f'yri r þ ig!
Það eru viðsjár-
verðir tímar
Hafísinn nálgast
Erum enn bírg af ódýrum
alþýðumat og lokkandi steikum
ásamt hlöðnu fiskbordi
A 1 •
ílagi
Viðskipti eru harður heimur og
vissara að hafa allar klær úti sé
ætlunin að standa sig. í því tilliti
skipa auglýsingar mikilvægan sess. Ekki
er nóg að muna eftir að auglýsa heldur
þurfa auglýsingarnar líka að vera þann-