Dagur - Tíminn Reykjavík - 08.02.1997, Síða 3

Dagur - Tíminn Reykjavík - 08.02.1997, Síða 3
|Dagur-®œnmi Laugardagur 8. febrúar 1997 -15 Skiptir kynþokkinn máli í atvinnulífinu? Efsvar- ið er jákvœtt, er hann okkur til framdráttar eða trafala? Hvort er líklegra að konur eða karlar geti nýtt sér kynþokka til að koma sér áfram í lífinu? Er kynþokkinn eitthvað sem við sjáum eða skynjum? essar spurningar, og fleiri tengdar kynþokkanum, voru til umræðu á skemmtistaðnum Astró í gær- kvöldi á dagskrá sem tengdist Jafnréttisdögum Stúdentaráðs Háskóla íslands. Heyrum hvað fyrirlesararnir fjórir hafa um málið að segja. kona h'tur út eins og Marilyn Monroe eða er eitthvað öðruvísi í laginu ef hún er að grúska í málvísindum. Ef hún er aftur á móti að vinna með fólki, sér- staklega ef hún þarf að sann- færa fólk, selja því eitthvað eða annað slíkt, þá getur kynþokk- inn verið til framdráttar." Hvað er kynþokki? Jónína Leósdóttir, blaðakona hjá Fróða, leggur áherslu á að nauðsynlegt sé að skilgreina hvað sé kynþokki, áður en hægt sé að meta hvort þetta fyrirbrigði sé fólki til trafala eða framdráttar. „Kynþokki er ekki eitt- hvað aug- ljóst eins og t.d. þegar verið er að tala um rautt hár,“ segir hún. Þegar búið er að komast að niðurstöðu um hvað sé kyn- þokki telur Jórnna hugsanlegt að hann skipti máli í sumum at- vinnugreinum en öðrum ekki. „T.d. breytir voða litlu hvort Misnotkun leiðir til falls „Kynþokki er eitt af því sem manneskjan hefur. Sumir eru gáfaðir, sumir eru sterkir, sum- ir eru vel að sér í einhverjum sértækum málum og sumir eru kynþokka- fullir. Ég held að kyn- þokkinn geti tvímæla- laust verið til fram- dráttar en ef hann er misnotaður getur hann þó orðið viðkomandi að falli,“ segir Hallur Helgason, dag- skrárstjóri Bylgjunnar. -Gildir það sama um kyn- þokka karla og kynþokka kvenna? „Vegna valdahlutfallsins í heiminum tel ég reyndar að konur geti nýtt sér kynþokkann betur þar sem þær eru yfirleitt að eiga við yfirvald af hinu kyn- inu. I atvinnulífinu og valdatafli samfélagsins eru karlar, í lang- flestum tilfellum, að sækja á, sættast við eða leita til kyn- braeðra." hagar hann sér einfaldlega þannig og ef einhver hefur eitt- hvað við það að athuga er það hans vandamál. Mér iinnst þetta vera spurning um frelsi hvers einstaklings til að fá að vera hann sjálfur." AI hvernig aðrir bregðist við hon- um. Miklu frekar snýr þessi spurning að hverjum og einum og ætti kannski frekar að Hvorki fjötrar né frami „Ég fæ ekki í fljótu bragði séð hvort að það að vera talinn kynþokkafullur séu fjötrar eða frami. Hvorugt held ég,“ segir Þorsteinn J. Vilhjálmsson, dagskrárgerðarmaður á Stöð 2. Vangaveltur Þorsteins snúast aðallega tun hvern- ig kynþokki kemur fram í því sem við sjáum ekki. „Þá á ég t.d. við hvernig rödd hefur áhrif á það sem okkur kann að þykja kyn- þokkafullt. Einnig ein- staka orð sem eru kynþokkafull. Ekki brosið eða brjóstin, sem við sjáum, heldur frekar það sem við skynjum í sambandi við kynþokkann.“ Sjálfsmyndin mikilvæg- ust „Mín niðurstaða er sú að spurningin hvort kynþokki sé fjötrar eða frami snúi ekki að umheiminum, þ.e.a.s. hvernig aðrir upphfi minn kynþokka og líður mér vel?“ Elsa B. Vals- dóttir, lækna- nemi og formaður Heimdallar. Elsa telur að sjálfs- mynd einstaklings hafi meiri áhrif á hvort honum gangi vel, en álit annarra. „Ef einhverjum h'ður vel í kynþokkahlutverkinu Strákar, stelpur ogtölvur Eiga strákar tölvuöldina? „Já, auðvitað, eins og þeir eiga allt annað sem er gaman og skemmtilegt eða gróðavœnlegt, “ er svar Þor- valds Sverrissonar, vísindaheimspekings. Birna Bragadóttir, tölvunarfrœðingur, er ekki sammála. „Tölvuöldin er eins opin okkur og hugur okkar er opinn, “ segir hún. Að mati Þorvalds eru aðallega þrír hlutir sem skipta máli í heiminum. í fyrsta lagi gróði, öðru lagi sköpun og þriðja lagi réttlæti. Strákarnir eigi gróðann og tækifærin til sköpunar en ekki stelpur. „Við hirðum gróðann sem verður til á tölvu- öldinni og það erum við sem fáum að leika okkur með þetta nýja verkfæri.“ Þorvaldur segir freistandi að halda að tölvur komi til með að gegna hlutverki í jafnréttisbaráttu kvenna en slíkar væntingar séu bara rugl. Enginn munur sé á tölvum og öðru að því leyti að alltaf endi það þannig að konur vinni skít- verkin. „Þær fá valmyndina en við búum valmyndina til og stjórnum þar með lífi þeirra kvenna sem vinna við tölvur út um allan heim. Auðvitað er ekkert réttlæti í þessu en svona er heimurinn." Og Þorvaldur er ekki bjartsýnn á að breytingar séu í vændum. „Þetta er umhverfi þar sem fikt borgar sig og að þora að fikta án þess að vera hræddur við að eyðileggja eitt- hvað mikilvægt. Markviss fiktnáttúra er annaðhvort ekki til staðar, eða alin úr stelpum. Ég veit ekki hvort. Stelpur likta í ótrúlega leiðinlegum hlutum, hanga inni á klósetti og mála sig eða leika sér með einhverjar tuskur. Þetta er umhverfi þar sem allir möguleikar eru tæmdir á mjög stuttum tíma.“ Ólíkar aðferðir en jafngildar Birna Bragadóttir, tölvunarfræðinemi, er ekki sammála Þorvaldi um að stelpur standi strákum að baki á tölvuöld vegna hræðslu við að flkta. Hún telur að stelpur beiti gjarnan annarri aðferð en hún sé jafn- gild þeirri sem strákarnir nota. „Þegar ég mæti fyrirstöðu í mínu námi þá bakka ég. Ég dreg mig í hlé og leggst yfir vanda- málið. Strákarnir fara aðra leið. Þeir bakka ekki heldur stökkva. Ef þeir kunna ekki eitthvað þá bara sleppa þeir því. Þetta eru tvær aðferðir og í mínum huga eru þær jafngildar. Séð frá karlmanninum er að- ferð konunnar, eða mín aðferð, ekki árangursrík því hún tekur of langan tíma. -En þér sjálfri, finnst þór þín aðferð virka jafn- vel? „Eftir yfirleguna veit ég meira um sviðið. Og þegar ég mæti svipuðum verkefnum veit ég bet- ur hvar ég er stödd. Þannig að mín aðferð skil- ar sér, en á lengri tíma.“ Birna segir að hún hljóti að vera bjartsýn fyrir hönd kvenna, annað væri uppgjöf. Hún telur því ekki að eigna eigi strákum tölvuöld- ina. Séu hugir stúlkna opnir standi tækifæri tölvunnar einnig þeim til boða. AI

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.