Dagur - Tíminn Reykjavík - 08.02.1997, Qupperneq 4
76 - Laugardagur 8. febrúar 1997
MENNING O G LISTIR
Jkgur-'ðlímimt
hi wem
Á eina milljón
af vindlabeltum
Sími auglýsingadeildar er 460 6100
Fax auglýsingadeildar er 460 6161
„Albert lét hann hafa merkið sitt, fór svo í veskið sitt og tók þar upp
merki, sem hann hafði verið með frá því fyrir stríð, gaf mér það og skrifaði
aftan á: „Með kveðju. Albert Guðmundsson.“,“ segir Ásmundur.
3Dagur-®tntitm
- besti tími dagsins!
Verktakar, smiðir, bifvélavirkjar,
píparar, rafvirkjar, málarar,
verslunarmenn...
Kynnið ykkur
TILBOÐ
okkar á raðauglýsingum.
Ásmundur Ingimar Þórisson safn-
ari á nokkra vindla og vel á aðra
milljón vindlabelta í safni sínu.
Hann hefur aldrei reykt sjálfur en
finnst honum þá söfnunin ekki
skjóta skökku við? „Það er ekkert
að því,“ segir hann.
Myndir. Sveinn
Frændi minn var að safna
vindlabeltum þegar ég var
h'till strákur og þá fékk ég
svo falleg belti gefins að ég
tímdi ekki að láta hann hafa
þau svo að ég fór að safna sjálf-
ur. Þetta hefur verið skömmu
fyrir fermingu því að utan inn
einn vindilinn er poki utan af
veiðistöng sem ég fékk í ferm-
ingargjöf. Ég setti vindilinn í
pokann til að hann þornaði ekki
upp,“ segir Ásmundur Ingimar
Þórisson, 46 ára safnari í
Reykjavík.
Ásmundur var um 10-11 ára
gamall þegar hann byrjaði að
safna vindlabeltum og á nú vel
á aðra milljón vindlabelta, sem
sum eru að vísu eins en það er
eins og gengur. Hann flokkar
beltin á spjöld svipað og frí-
merkjasafnarar gera en er þó
aðeins búinn að flokka og
ganga frá rúmlega helmingi af
vindlabeltunum og á því óskap-
lega mikið magn eftir í kössum
heima hjá sér.
„Þetta er ofboðsleg vinna og
maður hefur ekki tíma til að
ganga frá þessu öllu. Maður
verður að sitja tímunum saman
til að koma þessu öllu vel fyrir,“
segir hann.
Keypti til að
hirða merkin
Ásmundur segist ekki vita hvort
vindlabelti hafí verið mun al-
gengari eða sjaldgæfari á þeim
árum þegar hann hafi byrjað að
safna því að hann hafi aldrei
reykt sjálfur en viðurkennir að
það hafi ekki alltaf verið tekið
út með sældinni að safna
vindlabeltum þó að það hafi
verið gaman.
„Wilhelm II var seldur í tíu
stykkja pökkum og það voru
alltaf eitt til tvö laus merki fyrir
safnara í hverjum pakka. Ég
keypti pakka til að hirða merk-
in og gaf svo fólki sem reykti
vindlana. Þannig eignaðist
maður tvö belti,“ útskýrir Ás-
mundur hvernig söfnunin gekk.
„Svo er fullt af vindlum, 20-24 í
pakka, sem eru allir með sitt-
hvoru beltinu," segir hann.
Ekkert í
uppáhaldi
Ásmundur segir að ættingjar og
vinir hafi verið duglegir að
gauka að honum vindlabeltum
gegnum tíðina. Margir, sem hafi
safnað beltum og gefist upp á
því, hafi gefið sér sín merki.
Hann segist ekki eiga neitt
uppáhaldsbelti í safninu en í
hans eigu leynast mörg skraut-
leg og skemmtileg vindlabelti.
Á sýningu í fordyri Áfengis-
og tóbaksverslunar ríkisins í
Kringlunni má
sjá vindlabelti
með mynd af
Ásgeiri Sigur-
vinssyni, fyrrum
fótboltamanni í
Belgíu, og öðr-
um nafntoguð-
um knattspyrnu-
mönnum, nátt-
úrulífsmyndir og
skrautlegar
myndir af er-
lendu kóngafólki
og þekktum
stjórnmála-
mönnum á borð
við Ronald Reagan, Margréti
Thatcher, Winston Churchill,
Gaddafi Líbýuforseta og Fred
Flintstone og frú. Ásgeir er því
ekki í óþekktum félagsskap.
Með kveðju,
Albert
„Ég á eitt merki frá Partagas,
sem er vindlategund. Einn vin-
ur minn, sem vissi að ég safn-
aði vindlabeltum, sá Albert
heitinn Guðmundsson einu
sinni reykja vindil. Hann bað
Albert um að gefa sér merki
handa vini sínum og Albert lét
hann hafa merkið sitt, fór svo í
veskið sitt og tók þar upp
merki, sem hann hafði verið
með frá því fyrir stríð, gaf mér
það og skrifaði aftan á: „Með
kveðju. Albert Guðmunds-
son.“,“ segir Ásmundur.
Hann bendir á að vindlabelt-
in séu gífurlega misjöfn og
íburðarmikil, Wilhelm II beri til
dæmis gjarnan dýramyndir,
skjaldarmerki og fána og hann
segist eiga stóran hluta af öllu
því sem það fyrirtæki hefur gef-
ið út. Á sýningunni má sjá ís-
lenska fánann og skjaldarmerki
Reykjavíkur-
borgar á
vindlabelti og
þar sem eyð-
urnar eru
vantar vindla-
belti inn í.
Þau eru nefni-
lega númeruð
aftan á svo að
hægt er að
fylgjast með
því.
„Þetta er
gert til að
plata fólk til
að kaupa þá
eins og gert er með tyggjópakka
fyrir krakkana," segir hann.
Reykir ekki
Ásmundur á einnig gamla eld-
spýtustokka og nokkra stóra og
myndarlega vindla á sýning-
unni og segir að vinir og ætt-
ingjar hafi gefið sér þá. Hann
hefur þó aldrei reykt sjálfur og
segist vera á móti reykingum.
En skýtur þá ekki skökku við að
safna vindlum og vindlabeltum?
„Það er ekkert að því,“ segir
hann. -GHS
Reykvíkingurinn Ás-
mundur Ingimar
Þórisson var 10-11
ára gamall þegar
hann byrjaði að
safna vindlabeltum
Hann á nú vel á
aðra milljón belta
46 ára gamall.