Dagur - Tíminn Reykjavík - 13.02.1997, Page 10
10 - Fimmtudagur 13. febrúar 1997
4
4Ditgur-'3Iúrtirm
í Þ R
HANDBOLTI • 1. deild karla
Valsmenn
stöðvuðu KA
Válsmenn bundu enda á
sigurgöngu KA-manna í
hörkuskemmtilegum leik
liðanna að Hlíðarenda í gær-
kvöld. Leikur liðanna var mjög
spennandi og minntu um margt
á viðureignir liðanna frá síðasta
vetri. Lokatölur urðu urðu
23:22 eftir að KA-menn höfðu
skorað tvö síðustu mörk leiks-
ins á lokamínútunni.
Varnarleikur beggja liða og
markvarsla var mjög góð í fyrri
hálfleiknum. KA-menn voru
heldur sterkari aðilinn í framan
af leiknum og leiddu 8:11 í leik-
hléi. KA-menn héldu síðan
frumkvæðinu í jöfnum síðari
hálfleik, allt þar til sex og hálf
mínúta var til leiksloka, þá
komust Valsmenn yfir í fyrsta
skiptið í leiknum, 20:19. Vals-
menn juku síðan muninn í þrjú
mörk, 23:20 en KA-menn skor-
uðu tvö síðustu mörkin á loka-
mínútunm.
Guðmundur Hrafnkelsson
varði mjög vel fyrir Val í síðari
hálfleiknum og ungu strákarnir,
Ari Allansson og Daníel Ragn-
arsson komu mjög sterkir upp í
síðari hálfleiknum. Valsmenn
virðast vera á mikiiii uppleið og
með sigri liðsins á KA hefur lið-
ið lagt af velli tvö af þremur
toppliðum deildarinnar í tveim-
ur síðustu leikjum.
Leó Örn Þorleifsson var frá-
bær í fyrri hálfleiknum, hann
reif félaga sína áfram í byrjun
og skoraði fimm af fyrstu níu
mörkum KA. Vörn og mark-
varsla liðsins var mun betri en í
undanförnum leikjum, sérstak-
lega í fyrri hálfleiknum.
Ari Allansson og Jón Krist-
jánsson skoruðu fimm mörk
fyrir Valsmenn, hjá KA var Ró-
bert Julian Duranona marka-
KARFA
Ikvöld
Úrvalsdeild:
Grindavík-ÍR kl. 20
KR-SkaUagrímur kl. 20
Breiðablik-Keflavík kl. 20
Haukar-Þór kl. 20
Umferðinni lýkur annað kvöld
með leikjum ÍA og Tindastóls og
Njarðvíkur og KFÍ.
Hamar
félagsheimili Þórs:
Salir til leigu
Tilvaldir til hvers
konar íþrótta- og tóm-
stundaiðkana.
Gufa - Pottur -
Búningsaðstaða
Hamar
sími 461 2080
hæstur með átta mörk og Leó
Örn Þorleifsson skoraði fimm
mörk. ae/fe
Guðjón hetja FH
Guðjón Árnason var hetja FH-
liðsins sem uppskar eitt stig á
heimavelli sínum gegn ÍBV.
Guðjón skoraði tíu mörk fyrir
FH-Iiðið, þar af síðasta mark
leiksins fjórum sekúndum fyrir
leikslok, en lokatölur leiksins
urðu 26:26.
FH leiddi lengst af í leiknum
og hafði fjögurra marka forskot
í leikhléi, 17:13, en Eyjamenn
voru komnir með undirtökin í
leiknum á lokamínútunum.
Zoltan Belany var atkvæða-
mestur Eyjamanna með 11
mörk.
Sveifla í Mosfellsbæ
UMFA hafði yfirburði gegn
daufum HK-mönnum í Mosfells-
bænum í gærkvöld. Heimamenn
náðu sjö marka forskoti í upp-
hafsmínútum síðari hálfleiks-
ins, 13:6 og hálfleikurinn virtist
vera formsatriði. HK-menn
náðu hins vegar að minnka
muninn niður í eitt mark, 23:22
og átti möguleika á að jafna
leikinn, en heimamenn skoruðu
tvö síðustu mörkin.
Róbert Julian Duranona, stórskytta
Guðjónsson og Daníel Ragnarsson
Öruggir útisigrar hjá
Haukum og Gróttu
Topplið Hauka og lið Gróttu
sem lengst af vetrarins hefur
dvalið í botnsæti deildarinnar,
gerðu út um andstæðinga sína
fyrir leikhlé. Haukar voru allan
tímann nokkrum skrefum á
undan heimamönnum á Selfossi
og höfðu náð sjö marka forskoti
í leikhlé, 9:16 og Grótta hafði
óvænt níu marka forskot í
Seljaskólanum gegn ÍR, 8:17.
Góð markvarsla Sigtryggs Al-
bertssonar kom í veg fyrir að
ÍR-ingar næðu að komast inn í
leikinn í síðari hálfleiknum.
KA-manna gerir sig líklegan til að reyna skot að marki Vals, en Eyþór
taka hann föstum tökum.
HANDBOLTI
Urslit í gærkvöld:
1. deild karla:
FH-ÍBV 26:26
Selfoss-Haukar 21:27
ÍR-Grótta 26:30
Valur-KA 23:22
UMFA-HK 25:22
Þriðj udagskvöld:
Stjarnan-Fram 24:24
KNATTSPYRNA
Þorsteinn Crl Skallagríms
Varnarmaðurinn stóri og
stæðilegi, Þorsteinn
Sveinsson, sem lék með
Þórsliðinu á síðasta keppnis-
tímabili, mun að öllum líkind-
um ganga til liðs við úrvals-
deildarlið Skallagríms innan
fárra daga. Þorsteinn, sem býr
nú á Akranesi, hefur áður leik-
ið með Kópavogsliðunum
Breiðablik og HK.
Staðan í
Haukar
UMFA
KA
Fram
ÍBV
Valur
Stjarnan
FH
Grótta
ÍR
Selfoss
HK
1. deild
18 13 2
18 14 0
18 12 1
18 8 4
16 9
18 8
17
18
18
17
18
18
karla:
3 466:
468
485:
422:
400
410:
447:
10 456:
11 428:
11 417:
12 439:
13 406:
424 28
434 28
462 25
397 20
369 19
416 19
440 16
480 15
461 12
420 11
495 10
446 9
1. deild kvenna:
FH-Haukar 24:22
Óvæntur sigur FH á Ilaukastúlkum
sem þar með töpuðu sínum öðrum
leik í vetur.
Stjarnan-Valur 35:20
Stjarnan komst upp að hliða Hauka á
toppnum. Bæði liðin hafa 22 stig, en
Stjarnan á leik til góða.
Víkingur-Fram 16:24
SKÍÐI • Stórsvígskeppni HM í Sestriere
Kristinn keyrði út úr
brautinni í fyrri ferðinni
Gruningen frá Sviss sigraði, en 41 af
110 keppendum heltust úr lestinni
í fyrri umferðinni.
Þátttöku Kristins Björns-
sonar í stórsvigskeppninni
á heimsmeistaramótinu í
stórsvigi í gær tók skjótt af.
Kristinn náði ekki að halda sér
á erfiðri brautinni og skíðaði út
úr brautinni ofarlega í brekk-
unni eftir fimm eða sex hlið í
fyrri umferðinni. Alls tóku 110
skíðamenn þátt í keppninni í
stórsvigi og 41 þeirra keyrði út
úr brautinni í fyrri umferðinni.
Það var norskur skíðaþjálfari
sem lagði brautina, en lagning
hennar var harðlega gagnrýnd
af mörgum keppendum í gær.
Svisslendingurinn Michael von
Gruningen sigraði með nokkr-
um yfirburðum. Hann kom í
mark á 2:48,23 og var rúmri
sekúndu á undan Lasse Kjus
frá Noregi.
„Þær voru ekki margar
beygjurnar hjá mér í dag,
brautin var þétt lögð og færið
þannig að það mátti ekki gera
nein mistök," sagði Kristinn,
eftir stórsvigið í gær. Hann
sagðist ekki vera svekktur yfir
útkomunni, en stefndi á að gera
betur í svigkeppninni.
Arnór Gunnarsson frá ísa-
firði tók þá ákvörðun að taka
ekki þátt í stórsvigskeppninni
og hann sagðist ekki sjá eftir
því. „Það kitlaði mig ekki að
vera með, ég tala nú ekki um
það þegar ég sá aðstæðurnar,
brautin var mjög erfitt og færið
skrýtið, þurr gervisnjór og kald-
ur sem dúaði undan keppend-
um. Ég var því ánægður með að
vera ekki með,“ sagði Arnór.
KARFA
Bayless fékk
eins leiks bann
Ronald Bayless, leik-
stjórnandi Skaga-
manna, sem rekinn var af
leikvelli í leik við Skalla-
grím fyrir skömmu, hefur
verið dæmdur í eins leiks
bann af aganefnd KKÍ.
Þetta er mikil blóðtaka fyrir
ÍA, þar sem Bayless er pott-
urinn og pannan í leik liðs-
ins, leikstjórnandi og aðal-
skytta. Bayless mun því
missa af leik félagsins við
Tindastól á föstudagskvöld-
ið, en Stólarnir mæta þá
með hinn firnasterka Win-
ston Peterson. gþö
Athugasemrí
fráKKÍ
Pétur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri KKÍ,
hafði samband við blaðið
vegna umfjöllunar blaðsins
í gær, um strand Skaga-
manna á ísafirði. Pétur var
að vonum ósáttur við ásak-
anir um að starfsmenn KKÍ
sætu með hendur í skauti
og gerðu ekki neitt þegar
veður eru válynd. Pétur
sagði að farið væri eftir
ákveðnum reglum þegar
félög þurfa að ferðast um
langan veg í óveðrum. Þær
reglur eru einfaldar. Ef far-
ið er akandi er leikur sett-
ur á ef Vegagerðin og lög-
regla telja leiðina færa. Ef
aftur á móti er farið með
flugvélum, eru leikir settir
á svo framarlega sem flug-
félögin treysta sér til að
fljúga. Varðandi ósk for-
ráðamanna einhverra fé-
laga um að leika kl. 14 á
ísafirði, sagði Pétur að ís-
firðingar vildu það ekki
vegna þess að þá kæmu
færri áhorfendur á leikina.
Skólafólk væri þá ekki
komið á vistina og því væri
farið eftir óskum ísfirðinga
um leiktxma. Pétur benti
jafnframt á að önnur félög
væru ekki tilbxíin að taka á
móti KFÍ-mönnum kl. 14 af
nákvæmlega sömu ástæðu,
þá kæmu færri áhorfendur
á leiki þeirra. gþö