Dagur - Tíminn Reykjavík - 21.02.1997, Blaðsíða 3
Jlagur-Œmmm
Föstudagur 21. febrúar 1997 -15
MATARLÍ FIÐ í LANDINU
„Það verður engrnn
svangur hjá mér“
María er portúgölsk kona sem fluttist til
Patreksjjarðar Jyrir um 10 árum. Hún er al-
veg bit á því hvernig íslendingar sóa mat og
hversu dýrt þeir elda. Því hejur hún tekið sig
til og œtlar að halda námskeið í að elda
ódýrt með portúgölsku ívafi...
Sojakjöt
En hver er galdurinn við að
elda ódýrt? í fáum orðum má
segja að ráð Maríu séu á þá leið
að leita uppi það sem ódýrt er,
drýgja rétti með ódýrum vörum
eins og lauk, frystu grænmeti
og slíku, nýta alla afganga og
gæta þess að koma mat fyrir í
frysti áður en hann fer að
skemmast. María segist einnig
nota sojakjöt mikið. Hægt sé að
kaupa 300 gramma poka af
S
Eg get komist af með að
eyða 10.000 kr. í mat á
mánuði, með drykkjum
og hreinlætisvörum," sagði
María við blaðamann þegar
hann steig inn í ilmandi eldhús-
ið. „Og það verður enginn
svangur hjá mér,“ sagði hún og
brosti með öllu andlitinu þegar
hún sá vantrúarsvipinn á
blaðamanni - sem reyndar átti
alveg rétt á sér því María á 3
syni og alla á matfrekum aldri,
2 rétt rúmlega tvítuga og einn 6
ára.
María hefur aðlagað sig að
íslensku vöruúrvali og í stað
þess að býsnast yfir verði á t.d.
grænmeti þá talar hún um að
fólk eigi að nýta betur það sem
til er. Hún segist t.d. hafa farið
og hirt forláta
rófukál eitt
sinn hjá fólki
sem var að
taka upp rófur
en ætlaði að
henda kálinu.
„íslendingarnir
hlógu og hlógu
að mér.“
María hefur
verið að halda
námskeið í því
að elda ódýrt
og ætlar að
halda því
áfram þótt hún
æth að fara sér
hægt til að
byrja með
enda nýstigin
upp úr aðgerðum vegna bak-
veiki. Hún hefur einnig selt
matsölustað á Rauðarár-
stígnum saltfisksrétti
og hafa þeir runnið
út. En til þess að
Í;eta eldað fyrir
slendinga hef-
ur hún þurft
að laga sig
að matar-
venjum ís-
lendinga
sem hún
segir býsna
ólíka
Portúgölum.
íslendingar
þurfi að hafa
allt svo fínt og
hún segist
hreinsa saltfisk-
inn mun betur hér
en heima í Portúgal.
„íslendingar eru vanir að
hafa allt svo tilbúið."
Nemendur Maríu á námskeiðinu smjöttuðu á matnum og hrósuðu öllum
réttum.
sojakjöti á
100-200 kr. og
einn slíkur
dugi í 7 máltíð-
ir fyrir 4ra
manna fjöl-
skyldu, þ.e. í
staðinn fyrir
kjöt í ýmis
konar rétti. En
þá þurfi líka að
krydda réttinn
hressilega því
sojakjötið sjálft
sé bragðlaust.
Og ólíklegt er
að hún fái leið
á sojakjötinu
því hún segist
eiga mörg
hundruð upp-
skriftir með
í kollinum. „Ég
elda aldrei sama matinn."
„Efnið er svo dýrt á
íslandi og fólk er
biíið að vera svo
blankt. En það
er hægt að
borða ódýran
en hollan og
góðan mat á
íslandi,“
sagði Mar-
ía. Það virð-
ist ekki vera
okkur ís-
lendingum
eðlislægt,
því 40-50
þús. króna
matarreikningar
heyrast mun oftar
en 10.000 kr. Vilji
menn læra af henni
Maríu þá geta þeir skráð
sig á næsta námskeið í s:
562-1585. lóa
María notar ferskt grænmeti ekki mikið hér á landi en hafði það sem með-
læti til hátíðabrigða á námskeiðinu. Hún segist nota mikið af alls kyns
kryddum, m.a. kúmen sem sé mikið notað í portúgalskri matargerð.
sojakjöti
María notaði stórar bökunarkart-
öflur í Portúgalska saitfiskinn.
Saltjisklasagne (fyrir 6)
i.
1 smátt skorinn laukur
3-4 pressuð hvítlauksrif
Z dós af niðursoðnum tómötum
3 msk. aftómatsósu
1-2 súputeningar
Kryddað með 3 msk. af karríi og hnífsodd af eftirfarandi:
papriku, pipar, Taza Masala, Schlaschlik, kúmeni, múskati og
negul.
Hráefnið er steikt í blöndu af ólífuolíu og matarohu, laukurinn
fyrst. Þegar laukurinn er orðinn glærgulur er ríflega hálfu
glasi af vatni helt útí pottinn.
II.
Slurkur af ólífuolíu
'/ skorinn laukur
1 pressað hvítlauksrif
400 g beinlaus saltfiskur
Laukarnir steiktir á vægum hita í olíunni. Því næst er fiskurinn
settur út í. Blandið saman 1 msk. af hveiti og rúmum dl af
mjólk og hrærið út í fiskinn. Bætið við dáh'tið af ferskri stein-
selju.
III.
Hvíta sósan:
1 glas af mjólk
l’/ msk hveiti/maizena mjöl
smá pipar
1 dl rjómi
Fiskurinn, rauða sósan og lasagneplöturnar settar til skiptis í
eldfast mót í 3 lög. Hvítu sósunni hellt yfir efsta lagið. Bakað í
200 gráðu heitum ofni í tæpan klukkutíma. Nokkrum mínútum
áður en rétturinn er tilbúinn skal setja ostsneiðar yfir lasagne-
að.
Appelsínugul grœnmetissúpa
2kartöflur
300 q qrasker
l-2rófur
1 laukur
3 pressuð hvítlauksrif
Soðið í potti fullum af vatni í um 15 mínútur. Þegar grænmetið er orðið
meyrt er það maukað niður í mixara eða með svokölluðum töfra-
sprota. Nú, ef eldhúsið er afar frumstætt má líka notast við stöppu. Þeg-
ar súpan er orðin fagurlega appebmulituð, með engum kekkjum, er 2
msk. af ólöuolíu bætt við, 1 msk. af ósoðnum hrisgijónum, rófukáli
(þessu græna ofan á róftmum) og tveimur súputeningum. Súpan er lát-
in malla í nokkrar máiútur en svo borðuð.
Girnilegur sojakjötsréttur
i.
100 g sojakjöt sett í bleyti og látið liggja yfir nótt.
II.
Sósa með kjötinw
1 glasAB-mjólk
kryddað með dálitlu afi negul, túrmerik, múskati, papriku,
pipar, pikles-kryddi, schaschlik og kúmeni.
Sósunni hellt yfir sojakjötið og
geymt þannig meðan verið er
að útbúa heitu sósuna.
III.
Ólífuolía
1 laukur
3 hvítlauksrif
Z dós af tómötum
3 msk tómatsósa
3 súputeningar AB-sósan með kryddblöndunni
1 -2 lárviðarlauf gaf sojakjötinu afar gott bragð.
Laukurinn er steiktur í olíunni og því næst er tómötum, tómat-
sósu og teningum bætt við. Þegar sósan hefur mallað í dálitla
stund er sojakjötinu bætt út í ásamt rúmlega hálfu glasi af
vatni og glasi af frosnu blönduðu grænmeti. Soðið í um 40 mín.
og borið fram með hrísgrjónum.
Portúgalskur saltfiskur
i.
Fjórar bökunarkartöflur skornar ífernt og steiktar þar til gull-
inbrúnar í smá olíu. Geymdar.
II.
Ólífu- og matarolía
2 laukar skornir í skífur
4 pressuð hvítlauksrif
Mikið af papriku-kryddi
Dálítill pipar
Steikja í um 5 mfn. Saltfiskur í roðflettum flökum er skorinn í
stykki og stykkin eru lögð ofan á sósuna í pottinn. Lokið er lagt
ofan á pottinn og fiskurinn er soðinn í gufunni í 10-15 mín. á
lágum hita. Þá er steiktu kartöflunum raðað ofan í pottinn,
upp með hliðunum. Potturinn hafður á hellunni í 5 mín. í við-
bót en þá settur á kalda hellu. Niðurskorinni steinselju dreift
yfir. Leyfa lokinu að sitja á pottinum í um 10 mín. í viðbót.
Borið fram með glóðarsteiktum paprikum og grænmeti.