Dagur - Tíminn Reykjavík - 21.02.1997, Blaðsíða 15
JDagur-'ðlmrám
Föstudagur 21. febrúar 1997 - 27
Forðast endurtekningu
Árni Sigfússon,
framkvœmdastjóri Stjórn-
unarfélagsins og borgar-
fulltrúi í Reykjavík
Það er mjög handahófs-
kennt hvernig ég hlusta
á útvarp og horfi á sjón-
varp. Ég hlusta og horfí á
fréttir og fylgist með inngang-
inum á Stöð 2 og Ríkissjón-
varpinu til að forðast endur-
tekningu því að þær eru mjög
oft með sömu fréttir. Ég horfi
á CNN og Sky en það er þó
mjög handahófskennt og fer
eftir því hvenær ég hef að-
stöðu til að horfa á sjónvarp,"
segir Árni Sigfússon, fram-
kvæmdastjóri Stjórnunarfé-
lags íslands og borgarfuiltrúi
í Reykjavík.
„Það er enginn sjónvarps-
þáttur, sem ég staldra við.
Mér finnst þáttaraðir ómögu-
legar og mæli ekki með þeim.
Ég veit ekki hverjir hafa tök á
að fylgjast svo vei með sjón-
varpinu. Ef við viljum gera
okkur dagamun þá fáum við
okkur vídeóspólu og áður en
það er gert er metið hvort það
sé eitthvað áhugavert efni í
sjónvarpinu," segir hann.
Árni er talsvert upptekinn
maður og segist hann því lítið
hlusta á útvarp, einna helst
geri hann það þegar hann er
á ferð í bílnum. Þá skipti
hann ört á milli rása og finn-
ist þægilegra að hafa tónlist
heldur en talað mál og hlusti
meira á Bylgjuna en aðrar út-
varpsstöðvar.
Heimili Árna er barnmargt
og hlusta börnin gjarnan á út-
varpsstöðina FM og hljómar
tónhstin um heimifið. Árni
segist ekki gera neinar at-
hugasemdir við það.
ÁHU GAVERT f FJÖLMIÐLUNUM
Stöð 2 kl. 20.55
Sjónvarpið kl 23.05
Baráttan við bófana Sólskinsdrengimir
Gamanmyndin Dusilmenni, eða Blankman, er á dagskrá
Stöðvar 2. Hér segir frá hugrökkum náunga sem hefur sagt
glæpamönnum stríð á hendur. Hann býr í borg þar sem ríkir
ófremdarástand. Glæpatíðni hefur aukist og til að gera ástandið
enn verra er lögreglan í verkfalli. Og nú hafa bófarnir tekið
borgarstjórann í gíslingu og þá er fátt til ráða. En mitt í ringul-
reiðinni stígur fyrrnefndur náungi fram á sjónarsviðið og
ákveður að taka til sinna ráða. í fyrstu virðist hann ekki hafa
margt til brunns að bera. Hann á sér ekki einu sinni nafn. í
helstu hlutverkum eru Damon Wayans og hin fagra Robin
Givens. Myndin er frá árinu 1994.
Það eru þeir Woody Allen og Peter Falk sem leika aðalhlut-
verkin í bandarísku gamanmyndinni Sólskinsdrengjunum
sem er frá árinu 1995. Myndin er gerð eftir samnefndu leikriti
Neils Simons. Þar segir frá tveimur gamanleikurum sem komn-
ir eru af léttasta skeiði. Þeir höfðu mikið unnið saman áður fyrr
á árunum en sinnaðist illa og hafa ekki talast við í átta ár. Nú
er svo komið að kvikmyndafyrirtæki nokkurt vill fá þá til að
leika saman í jólamynd og eftir talsvert þref láta þeir til leiðast
en það gengur á ýmsu hjá gamlingjunum. Leikstjóri þessarar
myndar er John Erman og en auk Falks og Allens leika aðal-
hlutverk þær Sarah Jessica Parker og Whoopi Goldberg.
Mannlíf
Hraftis
Fyrsta eintak Mannh'fs á
þessu ári er komið út.
Eintakið er jafnframt það
fyrsta sem út kemur undir
stjórn hins nýja ritstjóra,
Hrafns Jökulssonar.
Ekki er hægt að kvarta yf-
ir að blaðið sé ekki breytt.
Nýtt útht, nýir pennar og ný
efnistök. Sumt var gott og
annað ekki, eins og gengur,
en sú tilfinning sem eftir sat
þegar flett hafði verið í gegn
um blaðið var skortur á
heiidaryfirbragði. Forljót for-
síða skemmir líka fyrir. Ást-
fangnasta par landsins lítur
út eins og nýkomið af jarðar-
för og tilvitnunum er dritað á
víð og dreif eins og einhver
hafi misst þær og látið þær
standa þar sem þær lentu.
Ætli stærsti galli blaðsins séu
samt ekki óspennandi mynd-
ir. Helsta forskot tímarita
fram yfir dagblöð er glans-
pappírinn sem gefur mögu-
leika á fallegum skýrum
myndum. Þessi möguleiki er
ekki nýttur. Sumar greinarn-
ar eru jafnvel alveg svartar,
eins og annars ágæt grein
um fóstureyðingar, og aðrar
skreyttar myndum sem bera
með sér að hafa verið grafn-
ar upp úr myndasafni. Grein
Þórhalls Eyþórssonar um
bækur er dæmi um hið síðar-
nefnda. Dæmigerð „redding"
á dagblaði en varla afsakan-
legt á tímariti sem kemur út
einu sinni í mánuði.
í stuttu máli: Margar
ágætis greinar og viðtöl,
enda vanir pennar á ferð. En
mikið skortir á að efnið sé
matreitt á aðlaðandi hátt og
að möguleikar tímaritisins
sem miðils séu nýttir til fulln-
ustu.
S JON V A R P
U T V A R P
c
0
SJÓNVARPIÐ
16.20 Þingsjá.
16.45 Leíáarljós
17.30 Fréttir.
17.35 Sjónvarpskringlan
17.50 Táknmálsfréttir.
18.00 Höfri og vinir hans
18.25 Ungur uppfinningamaöur
(4:13) (Dexter’s Laboratory). Banda-
rískur teiknimyndaflokkur um ungan
vísindamann sem töfrar fram tímavél-
ar, vélmenni og furöuverur eins og
ekkert væri einfaldara.
18.50 Fjör á fjölbraut
19.50 Veður.
20.00 Fréttir.
20.35 Happ í hendi.
20.40 Dagsljós.
21.15 Gettu betur (2:7) Spurninga-
keppni framhaldsskólanna. Aö þessu
sinni eigast viö Menntaskólinn á Akur-
eyri og Menntaskólinn á Egilsstööum.
Spyrjandi er Davíö Þór Jónsson, dóm-
ari Ragnheiöur Erla Bjarnadóttir og
dagskrárgerð er í höndum Andrésar
Indriöasonar.
22.20 Hjónaleysin (7:9)
(Mr and Mrs Smith).
23.05 Sólskinsdrengirnir
(The Sunshine Boys).
00.30 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
STOÐ 2
09.00 Línurnar i lag.
09.15 Sjónvarpsmarkaðurinn.
13.00 Stjarna er fædd (A Star Is
Born) Frægur rokksöngvari sem á við
áfengisvandamál aö striöa hlustar á
Esther Hoffman syngja á litlum nætur-
klúbbi og þau veröa strax ástfangin.
Aðalhlutverk: Barbra Streisand, Kris
Kristofferson og Gary Busey.
15.10 Framlag til framfara
15.35 NBA-tilþrif.
16.00 Kóngulóarmaðurinn.
16.25 Sögur úr Andabæ.
16.50 Magöalena.
17.15 Glæstar vonir.
17.40 Línurnar í lag.
18.00 Fréttir.
18.05 íslenski iistinn.
19.00 19 20.
20.00 Lois og Clark (17:22).
20.55 Dusilmenni (Blankman).
Hann býr ekki yfir neinum ofurkröftum.
Hann er blankur og nafnlaus. En hann
tekur þó aö sér aö halda glæpum I
skefjum í borg sem er eitt bófabæli.
22.35 Draugagangur (Haunting of
Sea Cliff Inn). Spennandi draugamynd
frá árinu 1994. Stranglega bönnuö
börnum.
00.10 Stjarna er fædd (A Star Is
Born). Sjá umfjöllun aö ofan.
02.35 Dagskrárlok.
s t ö Ð
STOÐ 3
08.30 Heimskaup
18.15 Barnastund.
19.00 Borgarbragur.
19.30 Alf.
19.55 Brimrót (High Tide II). Ævintýra-
legir og léttir spennuþættir.
20.40 Murphy Brown.
21.05 Smælingjar (The Long Road
Homé). Sagan gerist í kreppunni miklu
og segir frá Ertie Robinson. Hann fer
ásamt fjölskyldu sinni til Kaliforníu I von
um betra líf. Farandverkamenn voru í þá
daga ekki mikilsmetnir og á býlinu þar
sem fjölskyldan fær fyrst vinnu fá skepn-
urnar betri meðferö en þeir. Eitt barna-
barna Erties deyr og lendir fjölskyldan á
hálfgeröum vergangi en Ertie reynir hvaö
hann getur aö halda hópinn. Smám sam-
an taka farandverkamennirnir aö mynda
meö sér samstööu og þaö hefur mikil
áhrif á líf Erties og fjölskyldunnar.
22.35 Dýrkeyptur unaður
00.05 Á flótta. (Love on the Run). Gam-
ansöm, spennandi og rómantísk mynd
um ofurhugann Frank Powers sem tekur
aö sér aö bjarga ofdekraöri dóttur auö-
kýfings úr tyrknesku fangelsi. Aöalhlut-
verk: Anthony Addabbo, Noelle Beck,
Len Cariou og Blu Mankuma. Famleiö-
endur eru Aaron Spelling og Gary A.
Randall (e).
01.30 Dagskrárlok Stöðvar 3.
svn
©
SYN
17.00 Spítalalif (MASH).
17.30 Taumlaus tónllst.
19.00 Jörð 2 (e) (Earth II).
20.00 Tímaflakkarar (Sliders). Uppgötv-
un ungs snillings hefur óvæntar afleiö-
ingar í för með sér og nú er hægt að
feröast úr einum heimi í annan.
21.00 Hefndarför (The Bravados).
Þriggja stjörnu vestri meö Gregory Peck
og Joan Collins í aöalhlutverkum. Stór-
bóndinn Jim Douglas hefur oröiö fýrir
skelfilegri reynslu. Ungri eiginkonu hans
var nauögaö og hún síöan myrt og Dou-
glas er staöráöinn í aö koma fram hefnd-
um. Stórbóndinn hefur vitneskju um
hverjir voru aö verki og leggur af stað í
hættuför. 1958. Bönnuð börnum.
22.35 Undirheimar Miami (e) (Miami
Vice).
23.25 Ógnir í Bedlam (e) (Beyond Bedl-
am). Bresk hrollvekja frá árinu 1993
meö Elizabeth Hurley í einu aöalhlutverk-
anna. Leikstjóri: Vadim Jean. Stranglega
bönnuð börnum
00.50 Spítalalíf (e) (MASH).
01.15 Dagskrárlok.
RAS 1
09.00 Fréttir. 09.03 Ég man þá tíð.
09.50 Morgunleikfiml. 10.00 Fréttir.
10.03 Veðurfregnir. 10.15 Sagnaslóð.
11.00 Fréttir. 11.03 Samfélagið í
nærmynd. 12.00 Fréttayfirlit á há-
degi. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45
Veðurfregnir. 12.50 Auðllnd. 12.57
Dánarfregnir og auglýsingar. 13.05
Hádegistónar. 14.00 Fréttir. 14.03
Útvarpssagan: Á Snæfellsnesi.
14.30 Miðdegistónar. 15.00 Fréttir.
15.03 ísskápur með öðrum. Þáttur
um íslenskar fjölskyldur I öllum sínum
fjölbreytileika. (2) Sigrún Stefánsdóttir
ræðir viö tvenn hjón sem hafa búiö
saman í um eöa yfir hálfa öld. 15.53
Dagbók. 16.00 Fréttlr. 16.05 Rmm
fjórðu. 17.00 Fréttir. 17.03 Víðsjá.
18.00 Fréttir. 18.03 Þingmál. 18.30
Lesið fyrir þjóöina: Gerpla eftir Haildór
Laxness. 18.45 Ljóð dagsins. 18.48
Dánarfregnir og auglýsingar. 19.00
Kvöldfréttir. 19.30 Auglýsingar og
veðurfregnir. 19.40 Saltfiskur með
sultu. 20.40 Hvað segir klrkjan? (3)
Andagáfur. 21.15 Kvöldtónar. 22.00
Fréttir. 22.10 Veðurfregnir. 22.15
Lestur Passíusálma. 22.25 Norrænt.
23.00 Kvöldgestir. Þáttur Jónasar Jón-
assonar. 24.00 Fréttir.