Dagur - Tíminn Reykjavík - 21.02.1997, Síða 15

Dagur - Tíminn Reykjavík - 21.02.1997, Síða 15
JDagur-'ðlmrám Föstudagur 21. febrúar 1997 - 27 Forðast endurtekningu Árni Sigfússon, framkvœmdastjóri Stjórn- unarfélagsins og borgar- fulltrúi í Reykjavík Það er mjög handahófs- kennt hvernig ég hlusta á útvarp og horfi á sjón- varp. Ég hlusta og horfí á fréttir og fylgist með inngang- inum á Stöð 2 og Ríkissjón- varpinu til að forðast endur- tekningu því að þær eru mjög oft með sömu fréttir. Ég horfi á CNN og Sky en það er þó mjög handahófskennt og fer eftir því hvenær ég hef að- stöðu til að horfa á sjónvarp," segir Árni Sigfússon, fram- kvæmdastjóri Stjórnunarfé- lags íslands og borgarfuiltrúi í Reykjavík. „Það er enginn sjónvarps- þáttur, sem ég staldra við. Mér finnst þáttaraðir ómögu- legar og mæli ekki með þeim. Ég veit ekki hverjir hafa tök á að fylgjast svo vei með sjón- varpinu. Ef við viljum gera okkur dagamun þá fáum við okkur vídeóspólu og áður en það er gert er metið hvort það sé eitthvað áhugavert efni í sjónvarpinu," segir hann. Árni er talsvert upptekinn maður og segist hann því lítið hlusta á útvarp, einna helst geri hann það þegar hann er á ferð í bílnum. Þá skipti hann ört á milli rása og finn- ist þægilegra að hafa tónlist heldur en talað mál og hlusti meira á Bylgjuna en aðrar út- varpsstöðvar. Heimili Árna er barnmargt og hlusta börnin gjarnan á út- varpsstöðina FM og hljómar tónhstin um heimifið. Árni segist ekki gera neinar at- hugasemdir við það. ÁHU GAVERT f FJÖLMIÐLUNUM Stöð 2 kl. 20.55 Sjónvarpið kl 23.05 Baráttan við bófana Sólskinsdrengimir Gamanmyndin Dusilmenni, eða Blankman, er á dagskrá Stöðvar 2. Hér segir frá hugrökkum náunga sem hefur sagt glæpamönnum stríð á hendur. Hann býr í borg þar sem ríkir ófremdarástand. Glæpatíðni hefur aukist og til að gera ástandið enn verra er lögreglan í verkfalli. Og nú hafa bófarnir tekið borgarstjórann í gíslingu og þá er fátt til ráða. En mitt í ringul- reiðinni stígur fyrrnefndur náungi fram á sjónarsviðið og ákveður að taka til sinna ráða. í fyrstu virðist hann ekki hafa margt til brunns að bera. Hann á sér ekki einu sinni nafn. í helstu hlutverkum eru Damon Wayans og hin fagra Robin Givens. Myndin er frá árinu 1994. Það eru þeir Woody Allen og Peter Falk sem leika aðalhlut- verkin í bandarísku gamanmyndinni Sólskinsdrengjunum sem er frá árinu 1995. Myndin er gerð eftir samnefndu leikriti Neils Simons. Þar segir frá tveimur gamanleikurum sem komn- ir eru af léttasta skeiði. Þeir höfðu mikið unnið saman áður fyrr á árunum en sinnaðist illa og hafa ekki talast við í átta ár. Nú er svo komið að kvikmyndafyrirtæki nokkurt vill fá þá til að leika saman í jólamynd og eftir talsvert þref láta þeir til leiðast en það gengur á ýmsu hjá gamlingjunum. Leikstjóri þessarar myndar er John Erman og en auk Falks og Allens leika aðal- hlutverk þær Sarah Jessica Parker og Whoopi Goldberg. Mannlíf Hraftis Fyrsta eintak Mannh'fs á þessu ári er komið út. Eintakið er jafnframt það fyrsta sem út kemur undir stjórn hins nýja ritstjóra, Hrafns Jökulssonar. Ekki er hægt að kvarta yf- ir að blaðið sé ekki breytt. Nýtt útht, nýir pennar og ný efnistök. Sumt var gott og annað ekki, eins og gengur, en sú tilfinning sem eftir sat þegar flett hafði verið í gegn um blaðið var skortur á heiidaryfirbragði. Forljót for- síða skemmir líka fyrir. Ást- fangnasta par landsins lítur út eins og nýkomið af jarðar- för og tilvitnunum er dritað á víð og dreif eins og einhver hafi misst þær og látið þær standa þar sem þær lentu. Ætli stærsti galli blaðsins séu samt ekki óspennandi mynd- ir. Helsta forskot tímarita fram yfir dagblöð er glans- pappírinn sem gefur mögu- leika á fallegum skýrum myndum. Þessi möguleiki er ekki nýttur. Sumar greinarn- ar eru jafnvel alveg svartar, eins og annars ágæt grein um fóstureyðingar, og aðrar skreyttar myndum sem bera með sér að hafa verið grafn- ar upp úr myndasafni. Grein Þórhalls Eyþórssonar um bækur er dæmi um hið síðar- nefnda. Dæmigerð „redding" á dagblaði en varla afsakan- legt á tímariti sem kemur út einu sinni í mánuði. í stuttu máli: Margar ágætis greinar og viðtöl, enda vanir pennar á ferð. En mikið skortir á að efnið sé matreitt á aðlaðandi hátt og að möguleikar tímaritisins sem miðils séu nýttir til fulln- ustu. S JON V A R P U T V A R P c 0 SJÓNVARPIÐ 16.20 Þingsjá. 16.45 Leíáarljós 17.30 Fréttir. 17.35 Sjónvarpskringlan 17.50 Táknmálsfréttir. 18.00 Höfri og vinir hans 18.25 Ungur uppfinningamaöur (4:13) (Dexter’s Laboratory). Banda- rískur teiknimyndaflokkur um ungan vísindamann sem töfrar fram tímavél- ar, vélmenni og furöuverur eins og ekkert væri einfaldara. 18.50 Fjör á fjölbraut 19.50 Veður. 20.00 Fréttir. 20.35 Happ í hendi. 20.40 Dagsljós. 21.15 Gettu betur (2:7) Spurninga- keppni framhaldsskólanna. Aö þessu sinni eigast viö Menntaskólinn á Akur- eyri og Menntaskólinn á Egilsstööum. Spyrjandi er Davíö Þór Jónsson, dóm- ari Ragnheiöur Erla Bjarnadóttir og dagskrárgerð er í höndum Andrésar Indriöasonar. 22.20 Hjónaleysin (7:9) (Mr and Mrs Smith). 23.05 Sólskinsdrengirnir (The Sunshine Boys). 00.30 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. STOÐ 2 09.00 Línurnar i lag. 09.15 Sjónvarpsmarkaðurinn. 13.00 Stjarna er fædd (A Star Is Born) Frægur rokksöngvari sem á við áfengisvandamál aö striöa hlustar á Esther Hoffman syngja á litlum nætur- klúbbi og þau veröa strax ástfangin. Aðalhlutverk: Barbra Streisand, Kris Kristofferson og Gary Busey. 15.10 Framlag til framfara 15.35 NBA-tilþrif. 16.00 Kóngulóarmaðurinn. 16.25 Sögur úr Andabæ. 16.50 Magöalena. 17.15 Glæstar vonir. 17.40 Línurnar í lag. 18.00 Fréttir. 18.05 íslenski iistinn. 19.00 19 20. 20.00 Lois og Clark (17:22). 20.55 Dusilmenni (Blankman). Hann býr ekki yfir neinum ofurkröftum. Hann er blankur og nafnlaus. En hann tekur þó aö sér aö halda glæpum I skefjum í borg sem er eitt bófabæli. 22.35 Draugagangur (Haunting of Sea Cliff Inn). Spennandi draugamynd frá árinu 1994. Stranglega bönnuö börnum. 00.10 Stjarna er fædd (A Star Is Born). Sjá umfjöllun aö ofan. 02.35 Dagskrárlok. s t ö Ð STOÐ 3 08.30 Heimskaup 18.15 Barnastund. 19.00 Borgarbragur. 19.30 Alf. 19.55 Brimrót (High Tide II). Ævintýra- legir og léttir spennuþættir. 20.40 Murphy Brown. 21.05 Smælingjar (The Long Road Homé). Sagan gerist í kreppunni miklu og segir frá Ertie Robinson. Hann fer ásamt fjölskyldu sinni til Kaliforníu I von um betra líf. Farandverkamenn voru í þá daga ekki mikilsmetnir og á býlinu þar sem fjölskyldan fær fyrst vinnu fá skepn- urnar betri meðferö en þeir. Eitt barna- barna Erties deyr og lendir fjölskyldan á hálfgeröum vergangi en Ertie reynir hvaö hann getur aö halda hópinn. Smám sam- an taka farandverkamennirnir aö mynda meö sér samstööu og þaö hefur mikil áhrif á líf Erties og fjölskyldunnar. 22.35 Dýrkeyptur unaður 00.05 Á flótta. (Love on the Run). Gam- ansöm, spennandi og rómantísk mynd um ofurhugann Frank Powers sem tekur aö sér aö bjarga ofdekraöri dóttur auö- kýfings úr tyrknesku fangelsi. Aöalhlut- verk: Anthony Addabbo, Noelle Beck, Len Cariou og Blu Mankuma. Famleiö- endur eru Aaron Spelling og Gary A. Randall (e). 01.30 Dagskrárlok Stöðvar 3. svn © SYN 17.00 Spítalalif (MASH). 17.30 Taumlaus tónllst. 19.00 Jörð 2 (e) (Earth II). 20.00 Tímaflakkarar (Sliders). Uppgötv- un ungs snillings hefur óvæntar afleiö- ingar í för með sér og nú er hægt að feröast úr einum heimi í annan. 21.00 Hefndarför (The Bravados). Þriggja stjörnu vestri meö Gregory Peck og Joan Collins í aöalhlutverkum. Stór- bóndinn Jim Douglas hefur oröiö fýrir skelfilegri reynslu. Ungri eiginkonu hans var nauögaö og hún síöan myrt og Dou- glas er staöráöinn í aö koma fram hefnd- um. Stórbóndinn hefur vitneskju um hverjir voru aö verki og leggur af stað í hættuför. 1958. Bönnuð börnum. 22.35 Undirheimar Miami (e) (Miami Vice). 23.25 Ógnir í Bedlam (e) (Beyond Bedl- am). Bresk hrollvekja frá árinu 1993 meö Elizabeth Hurley í einu aöalhlutverk- anna. Leikstjóri: Vadim Jean. Stranglega bönnuð börnum 00.50 Spítalalíf (e) (MASH). 01.15 Dagskrárlok. RAS 1 09.00 Fréttir. 09.03 Ég man þá tíð. 09.50 Morgunleikfiml. 10.00 Fréttir. 10.03 Veðurfregnir. 10.15 Sagnaslóð. 11.00 Fréttir. 11.03 Samfélagið í nærmynd. 12.00 Fréttayfirlit á há- degi. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir. 12.50 Auðllnd. 12.57 Dánarfregnir og auglýsingar. 13.05 Hádegistónar. 14.00 Fréttir. 14.03 Útvarpssagan: Á Snæfellsnesi. 14.30 Miðdegistónar. 15.00 Fréttir. 15.03 ísskápur með öðrum. Þáttur um íslenskar fjölskyldur I öllum sínum fjölbreytileika. (2) Sigrún Stefánsdóttir ræðir viö tvenn hjón sem hafa búiö saman í um eöa yfir hálfa öld. 15.53 Dagbók. 16.00 Fréttlr. 16.05 Rmm fjórðu. 17.00 Fréttir. 17.03 Víðsjá. 18.00 Fréttir. 18.03 Þingmál. 18.30 Lesið fyrir þjóöina: Gerpla eftir Haildór Laxness. 18.45 Ljóð dagsins. 18.48 Dánarfregnir og auglýsingar. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Auglýsingar og veðurfregnir. 19.40 Saltfiskur með sultu. 20.40 Hvað segir klrkjan? (3) Andagáfur. 21.15 Kvöldtónar. 22.00 Fréttir. 22.10 Veðurfregnir. 22.15 Lestur Passíusálma. 22.25 Norrænt. 23.00 Kvöldgestir. Þáttur Jónasar Jón- assonar. 24.00 Fréttir.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.