Dagur - Tíminn Reykjavík - 21.02.1997, Qupperneq 10
1
22 - Föstudagur 21. febrúar 1997
Akureyri
FÖSTUDAGUR
Opinn fyrirlestur í
Háskólanum
/ Föstudaginn 21. febrúar
Jkf mun dr. Ludgers
V* Kúhnhardt halda opinn
fyrirlestur við Háskólann á Ak-
ureyri. Hefst fyrirlesturinn kl.
14 og verður í húsnæði háskól-
ans við Þingvallastræti í stofu
24, annarri hæð.
Fyrirlestur sinn nefndir dr.
Kúhnhardt The construction of
the European Union and the
role of Germany. Fyrirlesturinn
er öllum opinn.
LAUGARDAGUR
Leiðsögn í
skíðagöngu
tps / Skíðasambandið gengst
Jfiy fyrir skíðagöngukennslu á
v» Akureyri á morgun og
mun almenningi gefast kostur á
að fá leiðsögn í íþróttinni. Boðið
verður upp á þrjú námskeið í
Hlíðarfjalli, kl. 10, 12 og 14, og
eru þau þátttakendum að
kostnaðarlausu. Óskar Jakobs-
son verður aðalkennari, en
námskeiðið fer fram á göngu-
svæðinu í Hlíðarfjalli.
Skákþing Akureyrar,
yngri flokkar
Skákþing Akureyrar í
yngri flokkum hefst
laugardaginn 22. febrúar kl.
13.30 í Skákheimilinu að Þing-
vallastræti 18. Teflt verður í
þremur aldursflokkum og í
stúlknaflokki. Mætið vel og
stundvíslega.
Tónleikar söngdeildar
Laugardaginn 22.
* ; febrúar klukkan 17:00
efiúr söngdeild Tónlist-
arskólans á Akureyri til tón-
leika í Safnaðarheimili Akur-
eyrarkirkju. Nemendur af öllum
stigum koma fram og er efnis-
skráin mjög fjölbreytt og
skemmtileg. Um 20 söngvarar
koma fram en í deildinni eru
rúmlega 60 nemendur
Eiga mamma og pabbi
að velja makann?
•j/ / Laugardaginn 22. febrúar
hefst 1 umferð Mælsku-
og rökræðukeppni JC ís-
lands. Keppnin fer fram í fé-
lagsheimili JC Akureyrar að Ós-
eyri 6 og hefst kl. 16:00. JC Ak-
ureyri keppir þar á móti JC
Garðabæ/Kópavogi. Umræðu-
efnið er: Að forráðamenn skulu
velja maka fyrir börn sín. JC
Akureyri mælir með en JC
Garðabær/Kópavogur á móti.
Öllum er velkomið að mæta og
hlýða á.
Námskeið Félags vél-
sleðamanna í Eyjafirði
♦’>,/ Laugardaginn 22. febrúar
* * verður haldið námskeið í
rötun og notkun GPS og
áttavita á vegum Félags vél-
sleðamanna í Eyjaflrði. Nám-
skeiðið er ókeypis fyrir félags-
menn og eru nýir félagsmenn
að sjálfsögðu velkomnir.
Námskeiðið er haldið í hús-
næði Hjálparsveitar skáta á Ak-
ureyri, Lundi við Skógarlund,
sem sveitin lætur í té, og hefst
það fyrir hádegi á laugardegin-
um. Skráning er hjá Haftækni í
síma 462 7222 og menn þurfa
að hafa með sér áttavita og
GPS.
Gallerí +
Myndlistarsýningu
t Ástu Ólafsdóttur „án
leiðarvísis" í Gallerí +
lýkur á sunnudaginn klukkan
18:00. Gaslleríið er opið laugar-
og sunnudag frá klukkan
14:00-18:00 (eða eftir sam-
komulagi við Pálínu í síma 462
4481}
Ljósmyndasýning á
Café Karólínu
Á Café Karólínu stendur nú yflr
ljósmyndasýning. Myndirnar
tók Ásgrímur Ágústsson ljós-
myndari á lokahátíð Listasum-
ars á Akureyri 7. september á
síðasta ári. Sýningunni lýkur 7.
mars.
SUNNUDAGUR
Fundur hjá
frímúrurum
Itilefni af 75 ára afmæh
Sam-Frímúrarareglunn-
ar á íslandi mun reglan
standa fyrir opnum kynn-
ingarfundi á Akureyri á
sunnudag. Fundurinn fer
fram í Glerárgötu 32, 3.
hæð, og hefst kl. 14. Fram-
sögumaður verður Njörður
P. Njarðvík en hann er
jafnframt formaður regl-
unnar á íslandi. Áður hafa
verið skrifaðar blaðagrein-
ar um Sam-Frímúrararegl-
una en þetta mun vera í
fyrsta sinn sem kynningar-
fundur er haldinn. í blað-
inu á morgun verður nán-
ari umfjöllun um fundinn
og félagasamtökin.
Konudagsskemmtun í
Alþýðuhúsinu
Á konudaginn 23.
febrúar verður hin ár-
lega skemmtun sem
Tómstundastarf aldr-
aðra stendur fyrir. Verður hún
haldin í Alþýðuhúsinu við
Skipagötu og hefst kl. 15 með
glæsilegu kaffihlaðborði ásamt
skemmtidagskrá, sem Skíðaráð
Akureyrar sér um. Aðgangseyr-
ir er kr. 800. Eldri borgarar í
nágrannabyggðarlögum bæjar-
ins eru velkomnir.
Höfuðbotgar-
svæðið
FÖSTUDAGUR
Skaftfellingafélagið
^•<>oo Skaftfellingafélagið er
(°J,V þ með myndasýningu í
kvöld kl. 20.30 í Skaft-
fellingabúð, Laugavegi 178, þar
sem sýndar verða myndir af
Skeiðarárhlaupinu og eldsum-
brotunum í Vatnajökli.
Félag eldri borgara
Kópavogi
Spiluð verður félagsvist
og dansað að Fannborg
8 (Gjábakka) föstudag-
Líf og
inn 21. febrúar kl. 20.30. Húsið
öllum opið.
Félag fráskilinna
Fundur verður í
kaffihúsinu Tíu drop-
um, Laugavegi 27, föstudaginn
21. febrúar kl. 20.30. Félags-
fólk fjölmennið og takið með
ykkur gesti. Nýir félagar vel-
komnir.
Lúdó og Stefán
Qy Vegna fjölda áskorana
^ 1 og þeirra sem urðu frá
að hverfa á 35 ára af-
mælisdansleik Lúdó og Stefáns
á Hótel íslandi verður hátíðin
endurtekin föstudaginn 21.
febrúar. Húsið opnað kl. 22,
stanslaust fjör til kl. þrjú. For-
sala aðgöngumiða og borða-
pantanir í síma 568 7111.
Upplyfting í Glæsibæ
Hljómsveitin Upplyfting
•->.hk n verður ásamt söngvar-
anum Ara Jónssyni í
Danshúsinu Glæsibæ
föstudags- og laugardagskvöld.
Danshúsið er opið frá kl. 22 til
kl. 3. Borðapantanir í síma 568
6220.
LAUGARDAGUR
Laugardagsgangan
Vikufeg laugardagsganga Hana
nú í Kópavogi verður á morgun.
Lagt af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.00. Nýlagað
molakaffi.
Ljósálfar leita félaga
Ljósmyndafélagið Ljósálfar er
félag áhugafólks um ljósmynd-
un og leitar nú eftir fólki með
ferskar hugmyndir og áræði til
að framkvæma þær. Félags-
menn verða með kynningu á
starfseminni laugardaginn 22.
febrúar kl. 14-16 í nýju hús-
næði Ljósmyndamiðstöðvarinn-
ar Myndáss að Skólavörðustíg
41.
Sýning á
grafíkverkum
Laugardaginn 22. febrúar verð-
ur opnuð sýning í anddyri Nor-
ræna hússins á 17 grafíkblöð-
um og 3 skúlptúrum eftir
sænsku listakonuna Lenu
Cronqvist. Sýningin verður opin
daglega á opnunartíma Nor-
ræna hússins, en henni lýkur
miðvikudaginn 12. mars.
Sjónþing
Vísiakademíunnar
Laugardaginn 22. febrúar hefst
í Nýlistasafninu við Vatnsstíg
Sjónþing Vísiakademíunnar.
Salþing, eða þingleikar í fræð-
um, hefst klukkan 14 með fyrir-
lestri Bjarna H. Þórarinssonar
sjónháttafræðings. Kl. 16 verð-
ur opnun myndlistarsýningar á
Sjónþingi, en kl. 17 verða
spjallborðsumræður um Vísi-
akademíu og benduvísifræði.
Sósíalísk fræðsluhelgi
fj>, / Sósíalísk fræðsluhelgi á
Mu vegum Ungra sósíalista
™ og Málfundafélags al-
þjóðasinna hefst kl. 12 á hádegi
laugardaginn 22. febrúar að
Klapparstíg 26, 2. hæð. Meðal
frummælenda eru Ólöf Andrea
Proppé, Gylfi Páll Hersir og Jos-
hua Carroll. Frekari upplýsing-
ar í síma 552 5502.
Norræn kvennavika
Dagana 20.-25. maí nk.
verður haldin hátíð í Kal-
mar í Svíþjóð sem ber
yfirskriftina Kvinnor sá in i
|Dagur-‘3Immm
Norden. Af þessu tilefni er
markaðsstjóri hátíðarinnar,
Lena Garucob, stödd hér á
landi og verður með kynningar-
fund í Kornhlöðunni við Banka-
stræti laugardaginn 22. febrúar
kl. 15. Allar konur velkomnar.
SUNNUDAGUR
Afmælistónleikar
Kammermúsíkklúbbs-
ins
/ Afmælistónleikar
; Kammermúsíkklúbbs-
ins, sem fresta varð 9.
nóvember sl., verða í Bústaða-
kirkju sunnudaginn 23. febrúar
kl. 20.30.
„Farðu og sjáðu“
Nk. sunnudag, 23. febrú-
ar kl. 16, verður rúss-
neska kvikmyndin „Farðu
og sjáðu“ (Ídí í smotrí) sýnd í
bíósal MÍR, Vatnsstíg 10. Mynd
þessi var gerð 1985 og ijallar
um ógnarverk þýska innrásar-
hersins í Hvíta-Rússland árið
1942. Enskur texti. Aðgangur
er ókeypis og öllum heimill.
Æskan og hesturinn
Æskulýðsdagur verður
haldinn sunnudaginn
23. febrúar í reiðhöll
Gusts í Kópavogi og hefst kl. 13.
Fjöldi hestamannafélaga mætir
á svæðið. Hindrunarstökk,
hlýðniæfingar og margt fleira.
Grín og glens. Frítt inn.
Skaftfellingafélagið í
Reykjavík
,11+»"-,. Félagsvist sunnudaginn
^y/L 23. febrúar kl. 14 í
® Skaftfellingabúð,
Laugavegi 178.
MÁNUDAGUR
Fræðslufundur í
febrúar
Mánudaginn 24. febrúar,
kl. 20.30 verðm- næsti
fræðslufundur Hins ís-
lenska náttúrufræðifélags á
þessu ári. Fundurinn verður
haldinn í stofu 101 í Lögbergi,
Lagadeildarhúsi Háskólans. At-
hugið breyttan fundarstað á
þessu ári. Fundarefnið verður
helgað undangengnum umbrot-
um í Vatnajökli og á Skeiðarár-
sandi. Fræðslufundir HÍN eru
öllum opnir og aðgangur
ókeypis.
Ingveldur Ýr við
slaghörpuna
./ Mánudaginn 24. febrú-
; ar verða tónleikar í
Listasafni Kópavogs,
Gerðarsafni, í tónleikaröðinni
„Við Slaghörpuna. Ingveldur Ýr
Jónsdóttir mezzósópran syngur
fjölþaUta efnisskrá, en hún er
sérstakur gestur „Við Slaghörp-
una“ að þessu sinni, en Jónas
Ingimundarson situr við flygil-
inn að venju, enda eins konar
gestgjafi tónleikaraðarinnar.
Tónleikarnir heíjast kl.
20.30. Verð aðgöngumiða er
1.000 krónxrr og verða þeir
seldir við innganginn.
Göran Tunström á
Súfistanum
Heimsbókmenntaklúbb-
ur Máls og menningar
efnir til upplestrar-
kvölds á Súfistanum, bókakaff-
inu í bókabúð Máls og menn-
ingar, mánudaginn 24. febrúar
nk. klukkan 20.30. Tilefnið er
að um þessar mundir er sænski
skáldsagnahöfundurinn Göran
Tunström staddur hér á landi í
því skyni að kynna nýjustu
skáldsögu sína, Ljóma, sem nú
er komin út hjá Máli og menn-
ingu í þýðingu Þórarins Eld-
járns.
Upplestrarkvöldið hefst
klukkan 20.30 og eru allir vel-
komnir.
Hvolsvöllur
SUNNUDAGUR
Góufagnaður í Hvoli
p! Kvennakórinn Ljósbrá í
; Rangárþingi heldur
tónleika í Hvoli, Hvols-
velli, fyrsta góudag, 23. febrúar
kl. 15.30. Einnig kemur Jóru-
kórinn í heimsókn og flytur
nokkur lög og kórarnir taka
lagið saman.
Aðgangseyrir er 1000 krónur
fyrir fullorðna, og eru veitingar
innifaldar í aðgangseyri.
HLÍfogjf^L-—1
Tilkynningar sem eiga að
birtast í Líf og fjör
kálfinum þurfa að berast
ritstjórn fyrir hádegi á
fimmtudag. Æskilegt er
að mynd fylgi.
Samkórinn Björk í söngferð
Samkórinn Björk úr Austur-Húnavatnssýslu heldur tón-
leika í Gerðubergi í Reykjavík laugardaginn 22. febrúar
kl. 14 og á Flúðum sama dag kl. 21.
í Gerðubergi stendur Gerðubergskórinn að tónleikunum
með Björkinni og á Flúðum er Vörðukórinn, blandaður kór
úr Árnessýslu, samstarfsaðili Bjarkarinnar að tónleikunum
þar.