Dagur - Tíminn Reykjavík - 22.03.1997, Blaðsíða 3

Dagur - Tíminn Reykjavík - 22.03.1997, Blaðsíða 3
Laugardagur 22. mars 1997 - III LENDINGAÞÆTTIR Höfðingi frá Langanesi Friðrik Guðmundsson frá Syðra-Lóni áttræður Sóma- og ævintýramaðurinn Friðrik Guðmundsson, fyrrver- andi yfirtollvörður á Keflavík- urflugvelli, er áttræður í dag, 22. mars. Friðrik er fæddur og alinn upp á stórbýlinu Syðra- Lóni á Langanesi. Hann tilheyr- ir þeirri kynslóð íslendinga sem fæddist í torfbæ og þar bjó hann ásamt foreldrum sínum, Guðmundi Vilhjálmssyni, bónda og kaupfélagsstjóra, og Her- borgu Friðriksdóttur, og systk- inum fram til 1924 að steinhús var byggt á Syðra-Lóni. Friðrik er fimmti í röð tólf systkina og man hann vel eftir h'finu í gamla torfbænum enda sjö ára gamall þegar nýja húsið var byggt. „Það voru ógurlegir ranghal- ar og draugalegir en hlýtt,“ hef- ur hann sagt um gamla bæinn. Nýja húsið var byggt á sama stað og það gamla nema baðstofan var látin standa og eld- húsið meðan húsið var byggt. Heimilisfólkið svaf að mestu leyti í baðstof- unni. í tómri hlöðu var þó slegið upp rúmbálkum og þar var vinnufólkið látið sofa. Friðrik svaf þar líka og fannst ljómandi gott. Friðrik gekk í Barna- skóla Þórshafnar og lauk Héraðsskólanum að Laugarvatni 1936. Hann tók próf frá Samvinnu- skólanum í Reykjavík á einum vetri og útskrifað- ist 1938. Hann hóf fljót- lega störf hjá Tollgæsl- unni og starfaði í Reykja- vík 1938-1942 og fór þá til Vestmannaeyja. Þar lauk hann minna vél- stjóraprófi samhliða starfi sínu í Tollgæslunni í Eyjum. Frá 1943 starfaði hann í Tollinum í Hafnar- firði og á Keflavíkurflug- fyrsti kaupfélagsstjórinn. Þau hjónin, Elín og Friðrik, hafa sýnt framsóknarstefnunni stuðning sinn í verki, unnið fyr- ir flokkinn í Hafnarfirði og ekk- ert kippt sér upp við stríðni tengdadóttur um síðustu fram- sóknarfuglana þar í bæ. Var með í stofnun naglaverksmiðju Friðrik á sér gnægð áhuga- mála enda er hann víðfróður maður og fróðleiksfús með af- brigðum og getur romsað upp úr sér stökum, tilvitnunum og kvæðum við ólíkustu tækifæri. Hann hefur alltaf lesið mikið og sótt einkum bækur til Bóka- safnsins í Hafnarfirði en þar stolið. Þeir urðu þó mjög sárir eitt vor- ið þegar allur há- karhnn hvarf - það fannst þeim gróft - og hættu þá að verka hákarl um nokkurt skeið. Eftir að Sigtryggur dó verkaði Friðrik nokkrum sinnum hákarl á Álftanesi í samvinnu við aðra. Friðrik kom ná- lægt ýmsu öðru, skytteríi og versl- unarrekstri ásamt konu sinni, um tíma stóð hann í flutningum og eitt sinn keypti hann hús á Keflavíkur- Friðrik Guðmundsson, fyrrverandi yfirtollvörður á Keflavíkurflugvelli, er áttræður í dag, 22. mars. Hann kvæntist Elínu Kristbergsdóttur verslunarmanni 29. mars 1956 og eiga þau því brúðkaupsafmæli eftir viku. Friðrik hóf störf í Tollinum fijótlega eftir að hafa lokið samvinnuskólaprófi og sinnti þeim störf- um fram á eftirlaunaaldur. Hann hafði þó ríka athafnaþörf og kom nálægt ýmsu, var til dæmis með í stofnun naglaverksmiðju við Borgarnes á sjötta áratugnum, útgerð báta frá Keflavík og Vestmannaeyjum og verslunarrekstri svo nokkuð sé nefnt. flugvelli, lét rífa það og seldi timbrið til að geta greitt skuldir sínar, svo eitthvað sé nefnt. Sjórinn togaði Sjórinn átti ahtaf sterk ítök í Friðriki og langaði hann til að verða sjómaður þó að hann segi nú að það hafi hann ekki getað orðið vegna sjóveiki. Ára- tugum saman átti hann þó trillu, með einhverjum hléum, og var það draumur hans að geta sinnt trilluútgerð á eftir- launaárum sínum. Hann var nýbúinn að láta af störfum og búinn að fjárfesta í litlu útgerðarhús- næði við höfnina í Hafnarfirði ásamt félögum sínum þeg- ar hann fékk blóðtappa og varð að flytjast á hjúkrunarheimilið Sólvang. Minna varð úr útgerð- inni en efni stóðu til. Synir Frið- riks og barnabörn hafa þó erft ást hans á sjónum og stunda siglingar þegar tækifæri gefast til. Friðrik hefur átt stóran kunningjahóp gegnum tíðina enda hefur hann laðað að sér fólk, yngra sem eldra, gegnum áhugamál sín og aðra fram- takssemi. Friðrik hefur átt góða vini í bræðrum sínum, mágum og öðru skyldfólki enda hafa systkinin frá Syðra-Lóni og fjöl- skyldur þeirra haldið saman gegnum þykkt og þunnt og hist reglulega tvisvar á ári með af- komendur sína. Þar hefur Frið- rik ekki látið veikindi hindra sig á neinn hátt. Þá hefur Friðrik eignast vini og kunningja gegn- um störf sín og áhugamál út um allt land. Friðrik verður heima á af- mælisdaginn og tekur á móti gestum milli klukkan 16 og 19. Guðrún Helga Sigurðardóttir. velli frá 1947 til 1987 að hann lét af störfum vegna aldurs. Brúðkaupsafmæli eftir viku Friðrik kvæntist Eh'nu Krist- bergsdóttur á afmælisdegi son- ar hennar, Kristjáns Skúla Sig- urgeirssonar lögfræðings, 29. mars 1956 og eiga þau því brúðkaupsafmæli eftir viku. Saman áttu þau tvö börn, Frið- rik Friðriksson arkitekt, fæddan 21. desember 1956, og Her- borgu Friðriksdóttur, fædda 23. febrúar 1960. Friðrik gekk Kristjáni í föðurstað og var það því samheldin og sterk fjöl- skylda sem alla tíð bjó að Sunnuvegi 9 í Hafnarfirði, hús- inu sem Friðrik byggði ásamt félaga sínum, Jóni Finnssyni hæstaréttarlögmanni. Þar komu þau hjónin sér upp fallegu heimili og hafa alltaf verið höfðingjar heim að sækja. Friðrik hefur alla tíð haft áhuga á þjóðmálum og fylgst vel með fréttum og umræðum í þjóðfélaginu. Hann er fram- sóknarmaður mikill af hug og hjarta og skiptir þar eflaust miklu uppeldið á Langanesi þar sem faðir hans var einn af stofnendum Kaupfélags Norð- ur-Þingeyinga um aldamótin og var hann í stjórn um skeið. Síð- ustu árin hafa íslendingasög- urnar höfðað mikið til hans og annar þjóðlegur fróðleikur. Friðrik er náttúrubarn, hann hefur alltaf haft ákaflega gam- an af veiðiskap, sat lengi í stjórn Stangaveiðifélags Hafn- arfjarðar og er þar nú heiðurs- félagi. Friðrik hefur ríka athafna- þörf og það hefur hann sýnt á ýmsan hátt, til dæmis með því að taka þátt í stofnun nagla- verksmiðju við Borgarnes á sjötta áratugnum. Friðrik var hluthafi í fyrirtækinu og átti þátt í því að keypt var ný vél frá Austur-Evrópu og aðrar notað- ar vélar hér innanlands. Þá stofnuðu bræðurnir Friðrik, Baldur og Jón Erlingur heitinn fyrirtækið Keflvíking hf. ásamt Birni mági sínum og gerðu út ijóra talsvert stóra báta frá Keflavík og Vestmannaeyjum í nokkur ár. Verkaði hákarl Friðrik verkaði líka hákarl ásamt öðrum bróður sínum, Sigtryggi heitnum, í samvinnu við ýmsa aðra. Þeir bræðin- gáfu þriðjung hákarlsins, hirtu sjálfir þriðjung og voru mjög sáttir við að þriðjungi hans væri GAMLA MYNDIN Hver kannast við fólkið? Ef lesendur Dags-Tímans þekkja einhverja á þeim myndum ssem hér birtast eru þeir vinsamlega beðnir að snúa sér til Minjasafnsins á Akureyri, annað hvort með því að senda bréf í pósthólf 341, 602 Akureyri aða hringja í síma 462 4162 eða 461 2562 (símsvari).

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.