Dagur - Tíminn Reykjavík - 02.04.1997, Blaðsíða 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 02.04.1997, Blaðsíða 1
LIFIÐ I LANDINU Miðvikudagur 2. apríl 1997 - /0. og 81. árgangur - 61. tölublað „LEITAAÐ EINNI LJÓS- HÆRÐRIMEÐ KVÓTA" Kristján Eldjárn Þorgeirsson, átj- án ára Selfoss- búi, áhugasamur um að taka við búskap af afa og ömmu í Skógs- nesi í Flóa. Hann stundar nám á Hvanneyri og er genginn í Fram- sóknarflokkinn. „Ég var til í það þegar mér var sagt að þetta væri Bændaflokk- ur íslands.“ að þarf að gera ungu fólki auðveldara um vik að hefja búskap,“ segir Kristján Eldjárn Þorgeirsson, ungur bændaskólanemi frá Sel- fossi. Ifann hefur allt frá íjög- urra ára aldri tíðum dvalist hjá ömmu sinni og afa, sem búa á bænum Skógsnesi í Gaulverja- bæjarhreppi. Kristján og afi hans, sem er þremenningur við 3. forseta lýðveldisins, eru al- nafnar, en amma hans er Guð- ný Magnúsdóttir. Þau hafa búið í Skógsnesi í um hálfa öld og fer búskaparferill þeirra því nú að styttast í hinn endann. Kristján Eldjárn, hinn yngri, er fullur ákafa að hcfja búskap í þeirra stað. „Þetta snýst þó allt um peninga," segir hann. Vídeó-börnin vita það ekki „Ég hef alltaf haft áhuga á bú- skap og verið hér öllum lausum stundum. Ég tel að allir krakk- ar hafi gott af því að vera í sveit, eigi þau þess einhvern kost. Það er ekki verra að vita hvaðan ullin og mjólkin koma og ég óttast að vídeó-börnin séu ekki lengur alveg með það á hreinu," segir Kristján. Hann bætir því og við að sér finnist kannski ákveðin skylda hvfla á sér að halda uppi merki bú- skapar í Skógsnesi. Norðlendingar stefna hærra „Við afi erum jú alnafnar og eigum meira að segja sama af- mælisdag, 20. september. Ég er fæddur 1978 en afi 1922,“ segir hinn ungi búhöldur, sem í vet- ur stundaði nám við Bænda- skólann að Hvanneyri í Borg- arfirði. Eftir áramót fór hann síðan í verknám við Tilrauna- stöðina að Möðruvöllum í Hörgárdal. „Það er mikill mun- ur á búskap og búskaparhátt- um á Suðurlandi og fyrir norð- an. Yfirleitt er umgengni við bæi fyrir norðan mun betri og kannski stefna Norðlendingar hærra en við fyrir sunnan. Að því leyti finnst mér gott að hafa farið í verknám fyrir norðan og fengið samanburðinn með þeim hætti. En hinn flatlendi Flói heillar mig. Þar þekki ég hverja þúfu og eins er þetta hérað vel til búskapar fallið. Fyrir norð- an eru ekkert nema íjöll,“ segir hann. Massey Ferguson stendur alltaf fyrir sínu. Kristján stendur hér við þann burðuga dráttarjálk og í baksýn er íbúð- arhúsið í Skógsnesi. Myndir: - sbs. Jarðabréf eru góð hugmynd í Skógsnesi er búið með 17 kýr, sem hýstar eru í torffjósi - sem byggt var um miðbik aldarinn- ar. Eftir því sem best er vitað er torfijósið í Skógsnesi það eina hérlendis þar sem enn er stunduð mjólkurframleiðsla. Kristján yngri, segir að nauð- synlegt sé að húsa jörðina uppá nýtt. „Allt snýst þetta um peninga og það er afar dýrt að byggja allt uppá nýtt. Stjórnvöld þurfa að finna einhverjar leiðir til þess að ungu fólki sé auðveld- ara að byrja búskap. Þær aðstæður sem nú eru í Skógs- nesi gera slíkt ekki beinlíns auðvelt. Því finnst mér vel koma til greina, einsog til dæmis var nefnt á fundi hjá Búnaðarsambandi Eyjaijarðar nú á dögunum, að gefin yrðu út jarðabréf sem væru til dæmis til fjörutíu ára. Væru þessi jarðabréf þá byggð upp með svipaðri hugmyndafræði og til dæmis húsbréfin," segir hann. í Bændaflokki íslands Það er kannski afstætt, þegar talað er um landbúnað, að ganga út frá því að stórar og grasgefnar jarðir séu þær sem best henta til búskapar. Eðli- legra er að velta upp þeirri spurningu hvort jörðinni fylgir ríflegur kvóti. „Maður þarf að finna sér eina ljóshærða - sem er frá jörð sem fylgir einhver kvóti að ráði,“ segir Kristján. Og hann heldur áfram: „Það gekk einn skólafélagi minn uppá Hvanneyri á mig í vetur og spurði mig hvort ég vildi ganga í Framsókn- arflokkinn. Ég var til í það þeg- ar mér var sagt að þetta væri Bændaflokkur íslands. Fyrir alla muni vil ég beita mér í þágu bænda, þótt framtíðin verði náttúrlega að skera úr um það hvort ég verði þing- maður. Eins og sakir standa stefni ég að verða bóndi í sveit og það hlutverk heillar mig,“ segir Kristján, hinn yngri, í Skógsnesi. -sbs. — — -W . Kristján og hundurinn Hvatur. Nafnarnir tveir fyrir utan gamla torffjósið í Skógsnesi. „Það þarf að gera ungu fólki auðveldara um vik að hefja búskap.“

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.