Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.04.1997, Síða 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.04.1997, Síða 1
HELGARÚTGÁFA Dómstólar Læknir ver sig sjálííir Við mættum fyrir dómara fyrir nokkrum vikum síð- an, lögmaður Jóhanns G. Bergþórssonar og ég. Dómarinn spimði hvort hægt væri að finna sættir milli okkar. Við tókum vel í þetta, en ég sagði að ef annar flötrn- væri á þessu en hingað til, þá mundi ég skoða það. En ég ætla ekki að biðjast opinber- lega afsökunar á ummælum mínum,“ sagði Gunnar Ingi Gimnarsson, heilsugæslulæknir og fyrrverandi formaður Al- þýðuflokksfélags Reykjavíkur, í samtali við Dag-Túnann í gær. „Ég heyrði nú ekkert í lög- manninum eftir þetta og við hittumst núna 1. april aftur hjá dómaranum. Þar var ákveðið að taka málið til flutnings í september," sagði Gunnar Ingi. Jóhann Gunnar Bergþórs- son, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, stefndi lækninum vegna DV-við- tals á síðasta sumri. Þar lét Gunnar Ingi þá skoðun sína í ljós að honum hefði frá upphafi þótt fráleitt að Alþýðuflokkur- inn gengi til samstarfs við Jó- hann G. Bergþórsson. „Ég hef fylgst með honum gegnum árin og komist að þeirri niðurstöðu að allar þær fjölskyldur sem hann hefur skil- ið eftir í botnlausu gjaldþroti hér og þar um landið og sá máti sem hann virðist upplifa það sem hann hefur valdið ger- ir það að verkum að ég set stórt spurningarmerki við það hvort þessi maður skynji siðferði yfir- leitt," voru ummæli Gunnars Inga í stóru helgarviðtali. Jó- hann Gunnar stefndi Gxmnari óðfluga fyrir þessi ummæli. „Ég var þarna að hugsa um heildarhagsmuni flokksins. Ég bakka ekki með þessa skoðun mína og hef mikil gögn til að byggja mál mitt á, en það mun ég reka sjálfur fyrir dómstól- um,“ sagði Gunnar Ingi Gunn- arsson í gær. -JBP Fréttir og þjóðmál Endurbætur á Stjórnarráðshúsinu við Lækjargötu standa nú yfir og hefur skrifstofa forsætisráðuneytisins verið flutt í gamla Sambandshúsið við Sölvhólsgötu, þar sem menntamálaráðuneytið er nú til húsa. Sjálfur forsætis- ráðherrann verður þó ekki þar, heldur mun Davíð Oddsson hreiðra um sig í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu, þar til endurbótum lýkur. Mynd: S Fjölmiðlar Siglingakeppni Elín Hirst ráðin á DV Elín Hirst. Mynd: ÞÖK Elín Hirst, fyrrverandi fréttastjóri á Stöð 2, hefur ráðið sig tímabundið sem ráðgjafa hjá Frjálsri fjölmiðlun hf. Elín tekur formlega til starfa á ritstjórn DV á mánudag og mun sinna skrifum og frétta- stjórn næstu þrjá mánuði sam- hliða ráðgjöf. „Ég ætla ekki að setjast nið- ur og skrifa skýrslur heldur ætla ég að hella mér í hringiðu mála - fara að grafa skurði með hinu fólkinu,“ segir Elín Hirst. -GHS Verðlagsmál Hvatt til hörku Stjórn Verkamannafélagsins Hlífar í Hafnarfirði hvetur launafólk til að sniðganga vörur frá fyrirtækjum sem hækka í verði án þess að gildar forsendur liggi þar að baki. Jafnframt mótmælir félagið harðlega nýlegum verðhækkun- um á brauði. Jóhannes Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Neytendasamtak- anna, segir mjög mikilvægt að neytendur veiti seljendum vöru og þjónustu aðhald í verðlags- málum. Tilgangurinn með því sé m.a. að tryggja að virk sam- keppni skili sér til neytenda. Þá sé aðhald í þessum efnum ekki síður nauðsynlegt þegar öll álagning er frjáls. Af þeim sök- um sé öll upplýsingamiðlun til neytenda afar brýn svo þeir geti haft sem best yfirlit yfir mark- aðinn og þær hræringar sem þar kunna að eiga sér stað í verðlagsmálum. -grh Beggja skauta byr í ferðaþjónustu ísland komið á kortið í alþjóðlegri skútu- siglingakeppni. s fysta skipti fer fram í sum- ar alþjóðleg siglingakeppni á skútum til íslands þar sem siglt verður frá Plymouth, Englandi til Reykjavíkur. Fimm- tíu skútur fá leyfi til að taka þátt í keppninni en aðsókn er mun meiri, og hafa þegar á annað hundað aðilar lýst áhuga sínum á þátttöku. Jón Skaptason hefur umsjón með þessu verkefni innanlands og segir hann þetta mjög spennandi tækifæri fyrir íslend- inga. Ekki bara áhugamenn um siglingar heldur sé þetta dýr- mæt landkynning og muni skila töluverðum tekjum í heildina. „Það verða tveir á hverri skútu en auk þess koma ÍJölskyldur Töluverðar vonir eru bundnar við alþjóðlega siglingakeppni þar sem ísland verður viðkomustaður í fyrsta skipti. margra. Einnig verða brögð að því að menn sigli aðra leið og fái síðan nýja aðila til að ná í skúturnar. Það stendur líka til að skipuleggja golfmót fyrir þessa aðila, auk þess sem Qöl- miðlar koma til landsins og sýna þessu áhuga,“ segir Jón. Það er klúbburinn Royal Western Yacht Club sem stend- ur að keppninni og verður keppt í þremur flokkum. Engir íslendingar verða með, enda er aðeins ein íslensk skúta nógu stór til að taka þátt. Lagt verð- ur af stað 7. júní og er áætluð landtaka í Reykjavík á þjóðhá- tíðardaginn, 17. júní. Sú tíma- setning er ekki tilviljun að sögn Jóns Skaptasonar. „Þetta verð- ur töluverð þrekraun en ef vel tekst til verður þessi keppni haldin annað hvert ár,“ segir Jón Skaptason, formaður sigl- ingaklúbbsins Brokeyjar. Ágúst Ágústsson hjá Reykja- víkurhöfn hefur umsjón með verkefninu fyrir hönd hafnar- innar. „Þessi mikli fjöldi kemur til með að nánast fylla höfnina og verður það nánast í fyrsta skipti sem höfnin fær tekjur af skútum,“ sagði Ágúst. BÞ íslendingaþættír fylgja blaðinu í dag Bæirnir berjast Lífið í landinu B BUkCKSiDECKER Handverkfæri SINDRIk IUIIH.I1IIIIIIMMIIMII -sterkur í verki

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.