Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.04.1997, Side 2

Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.04.1997, Side 2
2 - Laugardagur 5. apríl 1997 |Dagur-®mtmn Iheita pottinum í gær voru menn sem höfðu verið í karphúsinu í fyrrinótt þegar bankamenn voru að semja. Þeir upplýstu að það hefði fyrst og fremst mátt þakka gömlu samningalipurð og lempni Steingrfms Hermanns- sonar að samningar tókust því þegar allt virtist komið í strand tók Denni að beita sér. Það fylgdi sögunni að það væri ekki tilviljun að hann hefði haldið saman ríkisstjómum sem ekki hefði átt að vera hægt að halda saman..... Sami pottverji sagði hins vegar að Ásmundur Stef- ánsson hefði verið sá þverasti við samningaborðið og ein- kennilegt að þetta sé sami maður og var aðalnúmerið í þjóðarsáttarsamningunum..... Agæt saga úr pottinum í gær frá formannsskiptum í Alþýðuflokksfélagi Reykjavíkur. Gunnar Ingi Gunnarsson heilsugæslulæknir gat ekki annast formennsku áfram vegna mikilla anna á öðrum vettvangi. Formaður í hans stað var kjörinn Rúnar Geir- mundsson útfararstjóri. Gunn- ar Ingi kvaddi samkrata með þessum orðum: „Almenna reglan er sú að það þykir sorg- legt þegar útfararstjóri tekur við verkefni úr höndum læknis. í þessu tilviki tel ég hins vegar að svo sé ekki.“ Kratar fögn- uðu þessum lokaorðum Gunn- ars Inga með kröftugu lófa- taki... Ljóst er að herstöðvarand- stæðingur númer eitt, Ragnar Stefánsson jarð- skjálftafræðingur, gengur til liðs við NATO í júlí í sumar. Þá fer hér fram almannavarnaæf- ing fjölmargra þjóða, settar verða á svið náttúruhamfarir á SV- horninu. Einn íslensku þátttakendanna er Veðurstofa íslands - jarðskjálftadeild, sem Ragnar veitir forstöðu... Veiðistjóri Bankamenn Reykjavík Starfs- öryggi eflt Bankamenn telja að starfsör- yggi þeirra sé betur tryggt gegn hópuppsögnum en áður eftir að þeir fengu fram bókun þess efnis með nýgerðum kjara- samningi sínum. Sem dæmi er samningurinn uppsegjanlegur með tveggja mánaða fyrirvara ef t.d. 30 manns fengju reisu- passann á einu bretti í Lands- bankanum. Friðbert Traustason, formað- ur Sambands íslenskra banka- manna, segir að þessi bókun sé nýmæli og ein af forsendum kjarasamningsins. Þar kemur fram að á samningstímanum munu bankarnir leitast við að tryggja starfsöryggi banka- manna. Ef til hópuppsagna kemur getur hvor aðili fyrir sig sagt upp samningnum með áð- urnefndum fyrirvara. -grh Skotveiðimenn hafa verið að sækja meira í heiðargæsina að undanförnu. Glannaleg grágæsaveiði Nýjar veiðitölur líta dagsins Ijós. Jafn- vægi almennt talið gott. Veiðitölur fyrir árið 1995 og 1996 liggja nú fyrir en þó eru tölur ársins 1996 bráðabirgðatölur þar sem um 1000 skýrslur eiga enn eftir að berast. Svo virðist sem veiðin sé svipuð frá ári til árs og segir veiðistjóri, Ásbjörn Dagbjarts- son, að jafnvægi veiði og stofn- stærðar virðist almennt gott. „Það er greinilega meiri rjúpnaveiði, en gæsirnar eru í svipuðu horfi. Heiðargæsaveiði hefur sennilega eitthvað aukist og grágæsaveiðin er dálítið glannaleg miðað við áætlaða stofnstærð. Þetta er þó ekki jafn svakalegt og kom í Ijós með hrafninn þar sem nýliðunin öll og rúmlega það virtist skotin árlega. Hins vegar bendir ýmis- legt til að stofnstærðirnar séu vanmetnar. Hvað varðar hrafn- inn tel ég það alveg ljóst,“ segir Ásbjörn. Heldur minna veiddist af ref árið 1996 en ’95 og er það í samræmi við áætlanir. Veiðin náði hámarki árið 1994 þegar 3.182 dýr voru veidd en 1996 voru þau 2924. 12.496 veiði- kort voru gefin út í fyrra og hef- ur óánægjuöldur vegna upp- töku þeirra lægt verulega síð- ustu misserin að sögn veiðistjóra. Embættið fær ágætis útkomu í skoðanakönnun sem gerð var hjá veiðimönnum ný- verið, en Ásbjörn segir þó vonbrigði hve fáir hafi gert tillögur um breyt- ingar eða úrbætur. BÞ Áfram R-listi Flokkarnir fjórir sem standa að Reykjavíkurlistanum hafa allir samþykkt formlega að bjóða fram saman í næstu kosningum. Jafnframt skora þeir á Ingibjörgu Sólrúnu Gísla- dóttur að taka 8. sæti listans sem borgarstjóraefni. Samhljóða tillaga um þetta hefur verið borin upp og sam- þykkt í fiokkunum 4, nú síðast í fulltrúaráði Alþýðuflokksins í fyrrakvöld. Flokkarnir hafa einnig tilnefnt 5 fufltrúa, hvern í sérstakt trúnaðarráð R-list- ans. Því er ætlað að móta tillög- ur um hvernig standa eigi að vali fólks á lista, en um það eru nokkuð skiptar skoðanir. Full- trúaráð Alþýðuflokksins sam- þykkti í fyrrakvöld tillögu, þar sem því er beint til fulltrúa flokksins í trúnaðarráðinu að þeir beiti sér fyrir því að viðhaft verði opið prófkjör. -vj Asbjörn Pagbjartsson veiðistjóri „Petta er þó ekkijafn svakalegt og kom í Ijós með hrafninn þar sem ngliðunin öll og rúmlega það virt- ist skotin árlega. “ VEÐUR O G FÆRÐ ■■■■■■■ súsSMuBSumUBuBSœSSm mm Akureyri Sun Mán Þri Mið n acL L Reykjavík Sun Mðn Þrí Mið mm 5 0 V4 VSV3 VNV4 NNA3 SSA3 VSV5 N5 NV3 ASA 2 °? Sun Mén Þri Mið mm Egilsstaðir 0- -5 -10 T °? Sun Mén Þri Mið ***** SV3 A5 SSA5 SSV4 SV7 A4 ANA3 SSV4 SV5 V4 VSV3 VNV4 NNA3 SSA3 VSV 5 N5 NV3 ASA 2 N2 ANA4 NA4 SSV2 SV5 ANA4 NA5 SSA4 VSV5 VNV3 S 2 VNV2 A2 SA 2 V3 V3 A2 SV3 Blönduós Stórhöfði c Sun Mán Þri Mið mm -10- -15 °C Sun Mán Þri Mið - 5 0 V3 NA2 NNV3 A2 SSA3 VSV4 NNA4 NA2 A2 VNV7 SA5 NNV3 VNV4 A3 V6 VNV4 ASA 2 SVS Austlæg átt, kaldi um morguninn en hæg síðdegis. Við suðurströndina verður dálítil slydda eða snjókoma en annars bjartviðri. Iliti verður nálægt frostmarki allra syðst yfir daginn en annars má búast við eins til 6 stiga frosti. Línuritin sýna Qögurra daga veðurhorfur á hverjum stað. Línan sýnir hitastig, súluritið 12 tíma úrkomu en vindáttir og vindstig eru tilgreind fyrir neðan. Veðrið ki.12 á h Skafrenningur var á nær öllum vegum í Árnessýslum og á Vest- urlandi í gærkvöld. Búast mátti við að heiðar á Snæfellsnesi, Fróðárheiði og Kerlingarskarð lokuðust í gærkvöld. Holta- vörðuheiði var fær en búist við að færð gæti spillst með kvöldinu. Steingrímsfjarðarheiði var ófær vegna veðurhæðar og snjókomu. Á Norðurlandi og Suðurlandi var þokkaleg færð en skafrenningur. Einnig var allgóð færð á Héraði og á Austijörðum. Búast mátti við að færð þyngdist verulega á Möðrudalsöræfum og á heiðum með gærkvöldinu.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.